Vísir - 09.04.1964, Side 8
8
VISIR
Utgefandi: BlaOatitgðfan VÍSIR
Ritstjðri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Askriftargjald er 80 krónur á mánuði.
1 lausasölu 5 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 Unur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Sundurlyndi
Islendingar eru minnsta sjálfstæða þjóð heimsins.
Það hefur verið sagt, að við kæmumst fyrir við eina
götu í stórborg, og það er víst rétt. Ef við vöknuðum
allir einn góðan veðurdag upp við það, að búið væri
að koma okkur fyrir á slíkum stað, er líklegt að við
mundum vilja standa saman. Þá mundi þjóðarstolt
okkar segja til sín, líkt og það hefur gert hjá Vestur-
fslendingum, sem reynt hafa að vernda þjóðemið í
lengstu lög, þótt hætt sé við að sú barátta endi með
ósigri.
Eitt sinn kom sú hugmynd fram, að rétt væri að
flytja alla íslendinga suður á Jótlandsheiðar og leggja
niður byggð á íslandi. Þá risu upp þjóðleg öfl, sem
afstýrðu því áformi, eða kæfðu hugmyndina strax í
fæðingunni. Á síðustu árum hafa þær getsakir komið
fram, að einhverjir íslendingar væru tií, sem gætu
hugsað sér að við yrðum 51. fylki Bandaríkjanna. Slíkt
er auðvitað fjarstæða og fráleitt að nokkmm íslendingi
hafi dottið það í hug í alvöru. Hihs vegar er vitað, að
hér em til menn, sem vel gætu hugsað sér að afsala
sjálfstæði þjóðarinnar í hendur alheimskommúnismans
— en þeir eru sem betur fer fáir og ná vonandi aldrei
þeim áhrifum í þjóðfélaginu, að vemleg hætta stafi af
hugmyndum þeirra.
Við skulum vona að hin þjóðlegu öfl verði alltaf
nógu sterk til þess, að slík svik við sjálfstæði og þjóð-
erni verði óframkvæmanleg. En emm við ekki samt
sem áður að grafa undan sjálfstæðinu með því eilífa
sundurlyndi, sem hér ríkir? Er ekki fullkomin ástæða
fyrir lýðræðisflokkana að hugleiða hvað er að gerast?
Einn lýðræðisflokkyrinn, Framsókn, hefur nú um langt
skeið tekið höndum saman við kommúnista um að
halda uppi ófriði og togstreitu milli stétta og reka
skemmdarstarfsemi gegn efnahagskerfi landsmanna.
Þessum tveimur flokkum hafði nálega tekizt það
fyrir 5 árum, að koma landinu í greiðsluþrot við út-
lönd. Hvað hefði orðið um sjálfstæðið, ef svo hefði
farið? Því skal ekki haldið fram, að leiðtogar Fram- i
sóknarflokksins hafi vísvitandi unnið að því, að leiða
slíka ógæfu yfir þjóð sína; en með samstarfinu við
kommúnista höfðu þeir næstum því gert það. Þess
vegna hefði mátt ætla, að Framsóknarmenn hefðu lært
svo mikið af reynslunni, að þeir létu ekki kommún-
ista teyma sig áfram á þeirri braut.
En hvað hefur gerzt? í ofstæki sínu og valdafíkn
hafa leiðtogar Framsóknarflokksins varpað fyrir borð
allri ábyrgðartilfinningu í stjórnmálum og unnið mark
visst að því með kommúnistum, að koma viðreisninni
á kné. Ef slíkt er ekki að vinna gegn fjá'rhagslegu ör-
yggi og sjálfstæði landsins, er vandséð, hvað getur
kallazt því nafni.
Lýðræðisöfl þessarar litlu þjóðar þurfa öll að standa
saman, ef vel á að fara. Þar með er ekki sagt, að þau
geti ekki greint á um ýmsa hluti — en skemmdarverk
mega þau ekki vinna.
VlSIR . Flmmtudagur 9. april 1964.
Flugvél Flugsýnar, Beechcraft C45H. Á mfndinni eru tveir flugmenn félagsins, Guðmundur Óiafsson
og Sverrir Jónsson, en f miðjunni stendur Magnús Stefánsson, einn af forkólfum félagsins. Á mynd-
ina vantar þriðja flugmanninn, Egil Benediktsson.
2 NÝJAR FLUGVÉLAR
í INNANLANDSFLUGIÐ
Nú fyrir skömmu héldu
fjórir íslenzkir flugmenn
utan, tveir til Kaup-
mannahafnar og tveir til
Boston, allir fóru þeir
sömu erinda, þ. e. að
sækja flugvélar. Guð-
bjöm Charlesson frá ísa
firði fór ásamt Aðalbimi
Kristbjamarsyni til Bost
on og sótti þangað Piper
Apache flugvél, splúnku
nýja, en Sverrir Jónsson
og Egill Benediktsson
sóttu notaða Beechcraft
C45H flugvél til Hafnar.
„Við fórum utan við Aðal-
björn nokkru fyrir páska og fór
afhending vélarinnar fram á flug
vellt rétt fyrir utan Boston þar
sem heitir Norwood. Heim ilug-
um við frá Boston til Goose
Bay, Narssassuaq og til Reykja
víkur. Alls tók flugið ekki nema
um 13 klukkutima og komum
við heim á 2. I páskum“, sagði
Guðbjörn í viðtalj í gær.
„Og hvenær hefst flugið?“
„Það hafa margir verið að
spyrja mig sömu spurningar,
ekki hvað sízt ísfirðingar, sem
eru spenntir að sjá flugvélina.
Eftir að heim kom hef ég unnið
mikið við að gera flugvélina
tilbúna í flugið. Það þarf að
ganga frá ýmsum pappirum, það
þurfti að mála hana o. s. frv.
Það var ýmislegt sem gera
þurfti, en vonandi get ég farið
f fyrsta flugið eftir viku eða
10 daga“.
„Hvaðan hyggst þú reka flug-
starfsemina?"
„Frá Isafirði |að sjálfsögðu.
Að vísu er þar enn ekki góð
aðstaða, t. d. ekkert flugskýli,
en ég er einmitt að hugsa ráð
til að bæta úr því“.
„En viðgerðaþjónustan, er
hún fyrir hendi á lsafirði?“
„Nei, hana mun ég fá hér á
Reykjavíkurflugvelli. Það verða
tvö fyrirtæki Flugiðjan og Flug-
verk, sem sjá um hana".
„Er flugvél sem þessi ekki
dýrt fyrirtæki?“
„Jú geysidýrt. Líklega kostar
þetta allt I allt um 3 milljónir
og hefði mér aldrei tekizt að
kljúfa þetta nema með mjög
góðri fyrirgreiðslu Þorvalds
Garðars Kristjánssonar, alþingis
manns, svo og ísafjarðarkaup-
staðar, sem gengið hefur 1 á-
byrgð“.
Flugvél Guðbjörns ér tveggja
hreyfla, mjög hraðskreið og
getur farið 180 mílur á klukku-
stund, og er ísvarin á stéli,
skrúfum og vængjum, hin glæsi-
legasta í alla staði. „Það var
virkilega skemmtileg tilfinning
að setjast undir stýri vélarinn-
ar", segir Guðbjörn, „ég er mjög
Framhald á bls. 7.
Flugvél Guðbjörns Charlessonar af Piper Apache-gerð og eigandi hennar.