Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 1
VÍSIR Nýjasta Ijósmynd af Surtsey Hér er síðasta loftmyndin af Surtsey, tekin af Landmæling- um Islands s. 1. laugardag og er tekin beint niður yfir eyna. Vinstra megin á eynni sér í hraungíginn og leggur gufu upp af honum. Frá honum sér leggja hraunstraum, eða hrauná, sem nær niður á miðja flatneskjuna neðst á myndinni. Þessi flat- neskja er nýja Surtseyjarhraun- ið, sem orðið er um 40 hektarar að stærð. Þetta er nýtt landnám og hefur stækkað eyjuna ört á fáum dögum. Hraunbreiðan er um 1250 metra löng og nær 600 metra breið, þar sem hún er breiðustu. Heildarstærð Surtseyj ar var s.l. Iaugardag 1,6 ferkm. Framh.,á bls. 5. Lendingarskilyrði góð í SURTSEY „Okkur kom ekki til hugar að lenda í Surtsey, þegar við fórum frá Reykjavík. Hugmynd ina fengum við þegar við flug- um yfir eyna á leið til Vest- mannaeyja. Við fórum svo frá Eyjum skömmu eftir hádegi í flug út að Surtsey og þá var ákveðið að reyna, sagði Kristján Flygenring, verkfræðingur í stuttu viðtali við Vísi í gærdag. Hann er einn þeirra þriggja, sem brugðu sér i stutta heimsókn út í Surtsey í gær. Farkosturinn var 3ja sæta Cessna 180 í eign Bjöms Pálssonar, en flugmaður Stcfán Þ. Jónsson. Framh. á 5. siðu. Ljósmynd tekin lóðrétt dr lofti af Surtsey. Krossinn sýnir hvar flugvélin Ienti í gær. Helga fékk 721. í róðri í net. Miklar landanir í Þorlókshófn Uppgripaafli er af rígaþorski á Selvogsbanka og hefir afli eins netabáts komizt upp í yfir 70 tonn i róðrí og mun það algert met. Vélbáturinn Hclga koni inn i nótt með 72 tonn af fiski, sem hún hafði fengið á Selvogsbanka, og eru þess engin dæmi á yfir- standandi vertfð, að netabátur hafi komið inn með eins mikinn afla úr netum, að minnsta kosti ekki til Reykjavíkur, en þess er að geta, að Helga var að draga í fyrradag og fram á dag i gær. Bluðið í dag BIs. 3 Franskt flugvéiamóð urskip í Reykjavik. — 6 Heimdallarsíða. — 7 Hugmynd um' Is- landshús i London. — 8 Fall er fararheill. Ný ir bátar á Akureyri. — 9 Samtal við Magnús j Blöndal Jóhannsson. Afli er annars feikimikill á bank- anum, en afli bátanna allsmisjafn. Nótabátar, sem voru að losa í morgun á Akranesi og f Reykja- vik, voru með 10—30 tonn, en bátar, sem eru með nel i flóan- um, fá lítið. Fréttaritari blaðsins í Hafnar- firði var í Þorlákshöfn i nótt og kvað hann heldur minni afla hafa verið lagðan á land þar í gær en i fyrradag, en þá var landað þar 6 — 700 tonnum. Meitill í Þorlákshöfn tók .’ið 250 — 260 tonnum, en yfir helm- ingnum þannig ekið til Reykja- víkur, Hafnarfjarðar og nokkurra staða annarra. Hann kvað um 70 bilfarma hafa farið vestur yfir fjall 1 nótt. Mikið kvað hann þessa flutninga hafa gengið gre'ðar í vetur vegna þess hve færð hef ir verið góð, en í nótt í mikilli umferð um Hellisheiði var erf- itt að aka vegna hríðarveðurs Tveir togarar komust ekki út í Reykjavík í gær MIKILL vinnuaflsskortur er nú á togurunum og verða skipin iðulega fyrir töfum vegna þess hve ilia gengur að manna þau. Er ekki talið, að bót fáist á þessu vandræðaástandi fyrr en skólum lýkur og unglingar úr og hálku, en allt gekk slysa- laust. Það eru 8 Þorlákshafnarbátar, sem Ieggja upp þar og 3-4 Vest- mannaeyjabátar að staðaldri, svo að heimabátar geta raunverulega talist 11, þeir leggja ekki á land annars staðar, en svo eru 20-40 aðkomubátar, sem leggja þar á land við og við og stundum róður eftir róður. Það eru aðallega frystihús Bæj- arútgerðar Reykjavíkur og Fisk- verkunarstöð Jupiters og Marz, sem taka við fiskinum, sem ekið er til Reykjavíkur. Þá er þess að geta, að fisk- verkunarstöðin á Selfossi tekur við fiski með vaxandi aflabrögðum Hún tók við 30 tonnum í gær. Þótt kynlega kunni að láta í eyr- um sumra, að flytja fiskinn upp í sveit til verkunar, er þetta hent ugt að sumu Ieyti í þessu tilfelli, — fiskurinn er nærtækur fyrir fiskverkunarstöðina og hún hefur nægilegt vinnuafl á staðnum. Vestmannaeyjabátar fengu alls um 1400 lestir I fyrradag, sem var bezti dagur vertlðarinnar, og var um 400 tonnum landað I Þorláks- höfn. iff" i' JTHiri—’—wfflw—g* Mikil maanekla á skólunum fást á togarana. Vísir átti í morgun stutt við- tal við Hallgrím Guðmundsson hjá Togaraafgreiðslunni um mannaleysið á togurunum. Hallgrímur sagði, að ástandið hefði verið sérstaklega slæmt síðustu vikurnar. Nefndi hann sem dæmi, að í gær hefðu tveir togarar, Jón Þorláksson og Egill Skallagrímsson gert tvær til- raunir til þess að komast út en hvorug hefði tekizt vegna mann eklu. Þriðja tilraunin verður gerð fyrir hádegi í dag. sagði Hallgrímur. Hann sagði, að frystihúsin auglýstu nú stöðugt eftir fólki og segja mætti að barizt væri um hvern mann á vinnumarkaðinum. Þess vegna reyndist togurunum erfitt að fá nægilegan- mannafla. Vísir ræddi einnig í morgun stuttlega við Kristján Rggnars- son hjá LI’Ú um mannahald bát- anna. Hann kvað þá einnig í erf iðleikum með að fá nægilega marga sjómenn. Sagði hann, að um 250 Færeyingar væru nú á bátunum og í frystihúsunum hér og ef þeirra nyti ekki við mundi ástandið vissulega vera mjög slæmt. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.