Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 8

Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 8
VlSIR . Fimmtudagur 16. apríl 1964. 8 9 Utgerandi: tilaðautgáran VtSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi *178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði. I lausasölu 5 kr eint. — Simi 11660 (5 línur) Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Hagsmunir láglaunafólks ;|eð skattabreytingafrumvörpunum sem ríkisstjómin lefir nú lagt fram á Alþingi verða skattbyrðarnar á mdsfólkinu gerðar mun léttbærari. Tekjuskattsbreyt- igin ein sparar borgurunum 80 milljónir á þessu ári. Vuk þessa lækkar útsvarsstiginn, en enn er ekki vitað ivaða áhrif það hefir til lækkunar útsvara, þar sem mn er óvíst hver afsláttur hinna einstöku sveitar- 'élaga verður. En það er þó ljóst að útsvarsbreytingin /erður verulega hagstæð láglaunafólki og bammörg- im fjölskyldum. \ síðasta ári hækkuðu meðallaun allmjög í landinu, ;amfara því sem verðbólgan fór aftur á skrið. Þetta iiafði það í för með sér að skattstigarnir skekktust. æss vegna er það sjálfsögð og réttlát breyting sem ú hefir verið framkvæmd að hækka skattfrjálsu ekjurnar í samræmi við hækkuð laun. Það má aldrei ;oma fyrir aftur að skattarnir lami sjálfsbjargarvið- !eitnina, misbjóði gjaldþoli manna og brjóti í bág við réttarmeðvitund þeirra. Þannig var það á Eysteinsár- jnum, og reyndar allt fram til 1960 er viðreisnarstjórn- n framkvæmdi sína fyrstu miklu skattalækkun. Fram að þeim tíma var það algeng nauðvörn borgaranna ð svíkja undan skatti og allir þekktu þá spillingu >g það misrétti sem því var samfara. Launamenn, sem •,efa urðu allar tekjur sínar upp til skatts, voru skatt- mdir en aðrir sluppu með furðu lága skatta. Þetta íremdarástand hefir núverandi ríkisstjórn afnumið, 7g, nú eru almennar launatekjur algjörlega tekjuskatt- iausar. Mynd þessi var tekin af bátnum Venusi frá Árskógssandi, þar sem hann hafði fallið á hliðina á sandkambinum neðan við skipasmíðastöðina. „Fall er fararheill “ Nýlega var hleypt af stokk- unum tveimur nýjum 19—20 tonna bátum frá Skipasmiðastöð K.E.A. Akureyri. Bátamir eru Farsæll 2. frá Hrísey og Venus frá Árskógssandi Farsæll 2. var sjósettur um morguninn, en siðdegis þeg- ar Venus skyldi settur fram henti það óhapp, að báturinn féll á hliðina á sandkambinum neðan við Skipasmíðastöðina (sjá mynd). Hermann Guðmunds son skipstjóri á hinum nýja bát, sagði eftir að hafa gengið úr skugga um að skemmdir hefðu ekki orðið neinar vemlegar: „Fall er fararheill“ Eigendur báta þessara eru: Farsæl 2. eiga bræðurnir Sigmar og Gunnar Jóhannessynir og ÓIi Bjömsson allir frá Hrísey. Venus eiga Guðmundur Bene- diktsson tveir synir hans og Hörður Gunnarsson. Ennþá er eftir að ganga frá rafmagni og stillingu tækja. Við Torfunefsbryggju liggur nú Far- sæll 2. Skipstjórinn þar um borð er Sigmar Jóhannesson hann svaraði nokkmm fyrirspurnum á þessa leið: —Hvenær hófst smíði bátanna? Haustið 1963 var samið við Tryggva Gunnarsson, for- stjóra Skipasmíðastöðvar K.E.A. um að teikna bátinn og byggja hann síðan, i millitíðinni komu þeir af Árskógssandinum í sömu erindum, og útfallið varð að við slógum saman um þessa gerð og em bátamir smiðaðir jafn- hliða og em alveg eins. Hvernig lizt þér á nýja bát- inn? Báturinn er sérlega glæslleg- ur og hefur auk venjulegra tækja radar, sem er mjög óvenju legt, ef ekki einsdæmi af bátum af þessari stærð. Vélin er Volvo Penta 200 ha. — Þið áttuð bát áður Sigmar? — Já, og eigum hann enn, það er Farsæll, smiðaður af Tryggva og teiknaður af honum. — Hvað ætlastu fyrir? — Á netaveiðar fyrst, síðan reikna ég með að við fömm á handfæri í sumar eins og vant er. )tjórnarandstaðan heldur því gjarnan fram, að ríkis- tjórnin sé stjórn hinna ríku, en ekki hinna efnaminni. f einhver hefir lagt trúnað á þær fullyrðingar ætti kattabótin að sýna fram á hve þær eru fráleitar. Það ;r hér einmitt verið að létta skattabyrðunum af inum efnaminni. Þeir hafa mestan haginn af skatta g úsvarslækkuninni, eins og töflurnar yfir lækkan- irnar gjörla sýna. * Fyrsti áfanginn Tjármálaráðherra vék í ræðu sinni á Varðarfundi að ví hvort skattalækkunin myndi ekki hafa óhagstæð .ensluáhrif, er landsmönnum eru sparaðar 80 millj- nir, sem þeir geta notað til annarra hluta. Á því er cneitanlega nokkur hætta en á hinn bóginn verður að 'íta á það, að verðbólgan hefir skekkt skattstigann, cannig að hér er að miklu um sjálfsagða leiðréttingu vegna hennar að ræða. Líta verður á skattalækkun- ína sem fyrsta liðinn í þeim efnahagsráðstöfunum, sem gérðar verða á næstunni. Þær munu miða að því «ð stöðva þá óheillaþróun sem myndaðist eftir launa- skriðið á síðasta ári og koma aftur á jafnvægi hagslífinu. verði sett ur á stofn Deilur um ýmis atriði nýrra loftferðalaga 1 fyrra var lagt fram á Al- þingi, en eigi afgreitt frá ping- inu, frumvarp til nýrra loftferða laga, sniðið i flestum atriðum eftir norrænni loftferðalöggjöf, og sum ákvæðin alveg sam- hljóða. Þetta frumvarp er nú mjög til umræðu f þinginu og hafa 4 þingmenn, einn úr hverj um flokki, borið fram allmargar breytingatillögur við það, að ætla má í samræmi við vilja flugmanna hér á Iandi. Töluvert harðar deilur eru um sumar þess ara tillagna. í breytingatillögun um er m. a. gert ráð fyrir að hér verði komið á fót föstum flug- dómstól, sem ekki er á hinum Norðurlöndunum, að þvi er Haukur Claessen, varaflugmála- stjóri, sagði blaðinu. í hinu upprunalega frumvarpi er gert ráð fyrir að eftirlit og rannsókn óhappa í sambandi við flug, heyri undir flugmálastjórn ina, nema i alvarlegum tilfellum, þá getur flugmálaráðh. skipað sérstakar rannsóknarnefndir hverju sinni. En í breytingatil- lögum fjórmeninganna er sem fyrr segir gert ráð fyrir aðihér sé komið upp flugdómstól, sem rannsaki öll slys. Þá er ákvæði í frumv. um að flugmenn séu skyldir til að ganga undir blóðrannsókn, ef grunur leikur á að þeir séu und- ir áhrifum áfengis, en hliðstætt ákvæði mun vera á hinum Norð urlöndunum. 1 breytingatillög- unum er gert ráð fyrir að flug- maður megi ekki fljúga 12 næstu klukkustundir eftir blóð- rannsóknina, hvort sem eitt- hvert áfengismagn finnst f blóð inu eða ekkert. Annað ákvæði er I frumvarp- inu um það að flugmaður megi ekki neyta áfengis 6 næstu klukkustundir eftir að hann lýk ur flugferð, ef ástæða sé til aö búast við rannsókn á einhverju varðandi flugið f þeirri ferð. I breytingatillögunum er það gert að skilyrði að flugmaðurinn hafi fengið aðvörun á vaktinni, en dæmi ekki um þetta sjálfur. En hafi aðvörunin komið sé honum óheimilt að neyta áfengis þessar 6 klukkustundir. Þá er ákvæði i frumvarpi þessu að loftferðalögum þess efnis að sekta megi flugmenn eða setja þá jafnvel í varðhald, ef þeir mæti of seint í vinnu, en fjórmenningarnir leggja til að þetta ákvæði verði fellt úr frum varpinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.