Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 3
ÍX9E23EZ33E ammmm 3 Buie aðmíráll kannar heiðursvörð. Lengst til hægri er franski aðmírállinn. (Ljósm. Vísis: B. G.) Fljótandi flugvöllur La Résoiue var hleypt af stokkunum f september 1961. Það er 12 þús. tonn að stærð með 40 þús. ha. vél, en gang- hraði þess 26 hnútar. Blaða- manni og ljósmyndara Vísis var boðið f stutta kynnisferð um skipið. Það er f alla staði hið glæsilegasta, og mikil regla virðist rfkjandi um borð. Hver hlutur var á sfnum stað og allt vandlega merkt. 1 La Résolue er m.a. stór og mikil veðurstofa, sjúkradeild, þar sem læknir, Iæknanemi og tannlæknir starfa. Stórt og mikið bakarí er um borð, svo og verzlanir og kennslustofur bæði fyrir flug- mannina og liðsforingjaefnin. 1 þyrlugeymslunni, sem er undir þilfarinu, stóðu átta stórar ame rískar þyrilvængjur og ein frönsk. Þær eru fluttar með lyftu upp á þilfarið. Sérstakur stjórnklefi er fyrir þilfarið, þar sem fylgzt er nákvæmlega með Snemma f gærmorgun kom franska flugþiljuskipið La Résolue siglandi inn á ytri höfnina í Reykjavik. Klukkan var um 7 f. h., þegar blaða- maður og Ijósmyndari Vísis héldu út í skipið, ásamt fulltrúa varnarliðsins og sendiráðsritara franska sendiráðsins. La Réso- Iue lá langt úti á ytri höfn, eða úti við svonefnda sjöundu bauju. Þegar við komum um borð í þetta 12 þús. tonna glæsilega flugþiljuskip, var mik ið að gera uppi í brú. Mikill fjöldi yfirmanna, hver öðrum borðalagðari, voru þar að und- irbúa siglinguna inn á ytri höfn ina. Hafnsögumaðurinn gaf fyr- irskipun um að sett skyldi á 12 mflna férð, og ekki leið langur tími, þar til akkeri La Résolue voru látin síga í sjóinn skammt frá hafnarkjaftlnum. -K Myndin er tekin f þyrlugeymslunni undir þilfarinu. Verið er að undirbúa flutning þyrlanna upp á þilfar. I öllu, sem gerist þar og einnig með fluginu. -x Mikill viðbúnaður var á þil- farinu um níuleytið í gærmorg- un. Von var á Buie aðmírál, yfirmanni varnarliðsins, í heim- sókn. Tveimur stórum þyrlum var skipað upp, heiðursvörður kom sér fyrir og Ciotteau, skipherra og aðmíráll Claude komu niður á þilfar. Skömmu eftir níu lenti þyrla Buie, og aðmírállinn kannaði heiðurs- vörðinn, en síðan var honum boðið að skoða skipið. í gærmorgun gekk vísiaðmír- állinn Rociers á fund forsætis- ráðherra. Skipulagðar verða ferðir fyrir áhöfnina um Reykja vík og nágrenni hennar. Almenn ingi var boðið að skoða þetta glæsilega skip í gær og aftur í dag milli 3 og 5 e. h. Á morgun heldur La Résolue til Frakk- lands, en hefur þar mjög stutta viðdvöl, því að ætlunin er, að það sigli þaðan fljótlega til Danmerkur og Þýzkalands. íslenzki hafnsögumaðurinn ræðir hér við tvo af yflrmönnunum uppi f brú um siglinguna inn á ytri höfnina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.