Vísir - 28.04.1964, Blaðsíða 6
VlSIR . Þriðjudagur 28. apríl 1964.
5
Fraitl mtm
Framhald af bls. 2.
leikmaður. Salurinn ykkar er
eitt hið furðulegasta sem fyrir
augu bar hér og vart hæfur til
að keppa í. Dómararnir hér eru
mjög góðir, en nokkurn tíma
þarf tll að venjast ykkar regl-
um því þær eru talsvert frá-
brugðnar því sem við erum van
ir heima f Noregi.“
Um leikina sagði Gruben, að
Fram væfi áberandi bezta liðið
taktískt og skemmtilega leik-
andi. Einnig taldi hann að Ieik
ur Fredensborgar gegn Fram
hefði verið bezti leikur þess í
heimsókninni. „Það sem þið haf-
ið einkum fram yfir okkur eru
þessar stórhættulegar langskytt-
ur. Ég held að það hljóti að
vera stórkostlegt að sjá tvö ís-
lenzk lið með svo miklum skot
mönnum keppa sín á milli,“
sagði Gruben að lokum.
Bjöm Sogn, 21 árs þjálfari
hjá 2. deildarliði f Osló sagði
að hann hefði Iært mikið af ís-
landsheimsókninni, sérlega af
leiknum við Fram, þar sem
hann hefði loks séð út taktík,
sem hann gæti sýnt og kennt
liði sínu. Hann var hrifinn af
langskyttunum, Ingólfi, Gunn-
laugi og Ragnari Jónssyni, en
beztan taldi hann samt Guðjón
Jónsson með hinar skemmtilegu
sendingar sfnar og lúmsk skot.
„íslenzkur handknattleikur er
á heimsmælikvarða,“ sagði hann
að lokum, „og það er einróma
álit okkar í Fredensborg að
handknattleikurinn muni rísa
enn hærra með tilkomu nýju í-
þróttahallarinnar ykkar“.
KR vann —
Framhald af bls. 2.
Valsliðið náði á köflum saman
úti á vellinum, en við markið rann
allt út í sandinn. Bezti maður liðs-
ins var nýliðinn Reynir Jónsson, er
Valur fær frá Breiðabliki f Kópa-
vogi, en Reynir má þó vara sig á
of miklum einleik. Annar nýliði f
þessum leik var Ingvar Elísson,
en hann kom ekki eins vel út og
Reynir, virtist ekki „finna sig“ sem
bezt, en eflaust á hann eftir að
gera það síðar. Framverðir iiðs-
ins voru ekki nógu afgerandi og f
rauninni má hið sama segja um
framvarðalínu KR.
Dómari var Haukur Óskarsson
og dæmdi hann mjög vel.
SAAB
1964
mi
Er líka fyrir yður
Sveinn Björnsson & Co.
Garðastræti 35
Box 1386 - Sími 24204
Ferðafélagið —
Frámh. af bis. 16
þá þurfa íslendingar að vera við-
búnir að greiða götu þeirra og
skipuleggja Surtseyjarferðir.
Ferð Ferðafélagsins hefst n. k.
föstudag e. h. og verður farið
með flugvél til Vestmannaeyja. Þar
hefur félagið fengið svefnpokapláss
í skólahúsi, en þátttakendur verða
að sjá sér sjálfir fyrir mat.
Farðir verður um Heimaey og
allir fegurstu og merkustu staðir
hennar skoðaðir, þá verður Feng-
inn bátur til að fara út að Surtsay,
en ekki er þó meiningin að fara
þar í land. Komið verður aftur síð-
degis á sunnudaginn, flugleiðis
hingað til Reykjavíkur.
Þegar Vísir átti tal við kr'f-
stofu Ferðáfélagsins í morgun,
hafði rignt fyrirspurnum út af þess
ari ferð.' Er nauðsynlegt að vænt-
anlegir þátttakendur sæki farmiða
sína í síðasta lagi f. h. á fimmtu-
daginn.
C • •• o X
SmjörBO ■■
Framh. af bls. 16.
erlendum markaði, en þær til-
raunir hefðu borið lítinn áraag-
ur vegna þess hve markaðirnir
væru lokaðir ytra. Sigurður
sagði, að í Bretlandi og Þýzka-
landi væru mikil höft á smjör-
innflutningi og erfitt fyrir þá
að komast að, sem ekki hefðu
„kvótai'. T. d. hefðu Bretar ný:
lega birt áætlun um smjörinn- í
flutning sinn á timabilinu 1. ;
apríl 1964 til 1. apríl 1965 og j
hygðust þeir á því tímabili
flytja inn 420 þús. lestir af j
smjöri. Væri það magn allt flutt j
inn frá rikjum, er þeir hefðu '
áður keypt smjör af, svo sem j
Dönum og ýmsum Austur-Ev- j
rópuríkjum. Bretar segðu, að til j
greina kæmi, að þeir flyttu inn
20 þús. lestir til viðbótar, en
ef svo yrði, myndu þeir bjóða
Útför
SVEINS JÓHANNSSONAR kaupmanns
verður gjörð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 29. þ. m.
kl. 13,30. Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hins
látna, skal bent á Hallgrimskirkju.
Fyrir mína hönd og bamanna.
Ingibjörg Kortsdóttir.
„viðskiptavinum" sínum þau við
skipti áður en til greina kæmi
að kaupa það magn af Islend-
ingum. Svipaðir viðskiptahættir
tíðkuðust í smjörverzluninni I
Vestur-Þýzkalandi. Kvaðst Sig-
■urður hafa orðið fyrir miklim
vonbrigðum með það hve ófrjáls
viðskiptin með þessa fram-
leiðsluvöru væru I umræddum
Vestur-Evrópuríkjum.
ÍSLENZKA SMJÖRIÐ
LÍKAR VEL.
Sigurður sagði, að send hefðu
verið sýnishorn áf íslenzka
smjörinu til Bretlands, Vestur-
Þýzkalands og fleiri landa og
líkaði það mjög vel. Einnig
kvað hann íslendinga geta selt
smjörið á samkeppnisfæru verði
í þessum löndum. Það væri bví
hvorki of hátt verð né iéleg
gæði, sem spilltu fyrir smjörsölu
fslendinga, heldur hitt, að þeir
hefðu ekki haft „kvóta“ áður.
SELT TIL TÉKKÓSLÓVAKÍU.
Sigurður kvað nú hafa tekizt
samninga við Tékka um að
selja þangað 50 lestir af smj'iri
og hefði fengizt ágætt verð þjr.
Mundi þetta magn fara út í
maímánuði. Væri þessi saia
betra en ekkert, en þó nefði
þurft að selja meira.
Vísir spurði Sigurð hvort
nokkuð hefði komið til greina
að framleiða nýjar vörur úr
smjörinu eða þá að blanda því
í smjörlíki. Hann kvað hvorugt
á döfinni. Sagði Sigurður, að
reynslan af því að bæta smjöri
I smjörlíki væri yfirleitt slæm.
Freisto Itend-
göngu n
Surtsey
Frá Vestmannaeyjum var Vísi
símað I morgun, að nokkrir út-
lendingar, sem vetursetu hafa hatt
í Vestmannaeyjum og flestir eða
allir unnið f fiski, hafi f nuga
landgöngu á Surtsey.
Þetta er 8 — 10 manna hópur af
ýmsu þjóðerni, frá Bandaríkjunum,
Englandi, Skotlandi, írlandi, Mar-
okkó, Ástralíu og Austurríki. Höfðu
þeir pantað vélbátinn Harald með
sig út f gærkveldi, en þrátt fyrir
afbragðs veður var förinni af ein-
hverjum ástæðum frestað og var
ieiðangurinn ófarinn f morgun. ^yr
irliði hópsins er bandarískur, Micha
ei Bird að nafni.
Ekki er vitað að þeir eigi neitt
sérstakt erindi út i eyna, annað
en það að hafast þar við í tver
eða þrjár nætur. Telja þeir sig vel
búna að vistum og öðrum útbún-
aði og að þeir muni geta nafzt
þar við dögum saman ef ekki gef-
ur í iand.
Listmunaupp-
boð í Þfóðleik
húskjallara-
num
Á silfur- og listmunauppboði,
sem Sigurður Benediktsson heid
ur í Þjóðleikhúskjallaranum í
dag, eru alls 50 hlutir. Fjöl-
breytni er mikil, og margir hlut
anna fágætir. Má þar t. d. teíja
austurlenzkt teppi, og mann-
tafl úr fílabeini, silfurslegið
drykkjarhorn, gullslegið Búddha
líkan og glæsilegan kaleik. —
Einnig eru þar silfurskeiðar,
sem taldar eru vera úr búi Ein-
ars Benediktssonar. Uppboðið
hefst kl. 5.
Sýning —
Framh .af bls. 1.
aðardeild SÍS, Sláturfélag Suð-
urlands, Sölufélag garðyrkju-
manna, Fiskifélag Isiands, Verzl
unarráð íslands, Iðnaðarmanna-
féiag Reykjavíkur, Búnaðarféiag
Islands, Mjólkursamsalan og
Grænmetisverzlun landbúnaðar-
ins.
Hús Sýningarsamtaka at- !
vinnuveganna verður bæði í-
þrótta- og sýningarhús. Mun að
staða til að efna til sýninga
hér batna mjög við tilkomu
hússins en segja má, að ekkert
hús sé til er henti fyrir sýningar
nú.
Félag íslenzkra iðnrekenda og
Landssamband iðnaðarmanna
hafa fyrir nokkru ritað stjórn
Sýningarsamtaka atvinnuveg-
anna og óskað eftir afnotum af
húsinu 1965. Telja þessir aðilar
ekki veita af að hefja undirbún-
ing sýningarinnar strax enda
yrði hér um að ræða hina mestu
iðnsýningu, er hér hefði verið
haldin.
Frá þessu er skýrt í nýút-
komnu hefti af íslenzkum iðn-
aði.
SKIPAFRÉTTIK
M.s. Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og Horna-
fjarðar 29. þ.m. Vörumóttaka til
Hornafjarðar í dag.
Ms. Herðubreið
fer vestur um lnd í hringferð 30.
þ.m. Vörumóttaka í dag til Kópa-
skers, Þórshafnar, Bakkafjarðar,
Vopnafjarðar, Borgarfjarðar, Mjóa
fjarðar Stöðvarfjarðar, Breiðdals-
víkur og Djúpavogs. Farseðlir seld
ir á fimmtudag.
HÚSEIGENDUR
Klæðning s.f. framkvæmir fyrir yður gólfdúka-, flísa-, lista-, mosaik- og
teppalagnir. — Hljóðeinangrun, ásamt allri annarri veggfóðrun. Otvegum
efni ef óskað er. Fagmenn. Klæðning sf. Símar 32725, 10140 og 14719.
BÍLL - ÓSKAST
Óska að kaupa nýlegan vel meðfarinn 4—5 manna bíl. Sími 14779.
ÖKUKENNSLA
Kenni akstur og meðferð bifreiða. Sími 22588.
VINNUVÉLAR - TIL LEIGU
Leigjum út litlai steypuhrærivélar, ennfremur rafknúna grjót- og múr-
hamra, með borum og fleygum, og mótorvatnsdælur. Upplýsingar I
sima 23480.