Vísir - 13.06.1964, Side 15
V í SIR • Laugardagur 13. júní 1S64.
15
■3S
cr ^4’ i1
JL-EZI
I 1 T ■*■ I-*- I ' I ' I r I " I
— Þú skalt ekki ala neinar
áhyggjur um þaS, sagði Óskar.
Ég gæti mín Hvernig' er annars
líðanin?
—1 Ég hefi sáran höfuðverk,
og það er remmubragð í munn-
inum á mér.
- Þyrstur?, spurði Óskar.
— Já, ég vildi gefa mikið til
að geta „fengið mér eina“.
— Svangur?
— Nei, en ég gæti kannski
rennt niður nokkrum ostrum -
svo sem eins og einni .tylft.
- Geturðu staðið á löppun-
um.
— Það held ég.
- Þá skulum við koma, ég
gæti ekki sofnað nú hvort eð
er. Við leitum uppi stað, þar sem
ég get boðið þér upp á vínglas
og ostrur.
- Það er gott.
Og svo lögðu þeir af stað og
studdi Óskar Baunastöngina á
leið niður stigann. Og svo leidd
ust þeir á leið í krána.
XXXI.
Fyrrverandi samstarfsmaður
Paul Damala hafði, eins og les-
andinn mun minnast, lofað að
skila seinustu þáttum sjónleiks-
ins á ákveðnum degi klukkan 9
að morgni. Hann hafði falið
manni sem bjó í Drouotgötu að
taka afrit af því, og fór hann
fyrst og sótti bæði frumritið og
afritið Höfundurinn, Leroux,
náði sér í leiguvagn. Hann stakk
frumritinu undir sessu í vagnin-
um, en blaðaði í afritinu á leið-
inni, og var svo annars hugar,
að hann uppgötvaði, er hann var
kominn til leikstjórans, að hann
hafði gleymt frumritinu undir
sessunni.
- Hafið þér númerið á leigu-
vagninum?“ spurði leikstjórinn.
- Já.
- Og heimilisfang yðar er
væntanlega á frumhandritinu?
- Já.
Flýtið yður þá. Þetta fer sjálf
sagt vel, — við höfum afritið —
og enginn getur haft hag af að
halda frumhandritinu.
Og svo fór Leroux að leita
uppi vagninn til þess að endur-
heimta handrit sitt.
Óskar Rigault hafði ekki
gleymt því, að hann hafði lofað
að sækja Katrínu í Batignolles-
hverfi.
Laust eftir klukkan 9 höfðu
þeir lokið morgunverði í krá
nokkurri, hann og Baunastöng-
in, og hafði hinn síðarnefndi nú
gætt hófs bæði í mat og drykk.
Leið honum nú sæmilega, þótt
ekki væri hann enn laus við
höfuðþyngslin.
— Ég þarf að fara í Batignoll-
es-hverfið, sagði Óskar. Viltu
koma með?
- Já, ég yfirgef þig ekki,
því að ef þú af einhverri tilvilj-
un skyldir álpast út í eitthvað,
áttu það á hættu að verða drep-
inn og er bezt að ég sé nálægur,
ef ég gæti hjálpað þér.
- Gott og vel, náum okkur í
leiguvagn, sagði Óskar.
- í þessum svifum kom leigu
vagn og Óskar gaf vagnstjóran-
um merki um að nema staðar.
— Við þurfum að hafa not af
vagninum um sinn, kannski
nokkrar klukkustundir, sagði
Óskar, er það í Jagi?
- 1 bezta lagi, herra minn.
- Gott og vel akið fyrst að
húsinu nr. 108 við Rue des Dam
es í Batignolles.
Óskar settist nú við hliðina á
Baunastönginni, sem þegar hafði.
setzt. Þegar Óskar var setztur,
varð hann þess var, að eitthvað
var undir sessunni, og fór að
athuga það betur. Sá hann, að
þetta var handrit. Hann leit á
efsta blaðið og las sér tii mikill-
ar undrunar: Glæpurinn í hrað-
lest nr 13. Harmleikur í 5 þátt-
um.
- Jæja, jæja, tautaði Óskar,
höfundurinn hefir sjálfsagt
gleymt þessu. Við getum fært
honum það, hér er heimilisfang
ið, og fengið í staðinn aðgöngu-
miða að frumsýningunni.
En forvitni Óskars var vakin
og þarf ekki að lýsa undrun
hans, er hann las það sem skráð
var á blaðsíðu 2:
Persónur: KaupKonan fagra,
Lucile • Vemier, Marie Anne
Vemier, Juana leikkona, Jac-
ques Vemier, ,dr Vitalli,
Arnala, leikari . CazeviIIe,
leynilögreglumaður, Feu-Follet
leynilögreglumaður, Rannsóknar
dómarinn, Saksóknari, Rigolo.
- Hver þremillinn. Rigolo -
og — og maður skyldi halda, að
höfundurinn hefði breytt með
einum staf nöfnum allra sem
komið hafa við sögu morðmáls-
'ins, sem ég er flæktur í.
j Og svo las hann áfram:
! Leon, stúdent.
I René, stúdent.
Baunastöngin.
| Hver andsk . . . Er mitt
nafn þarna líka, sagði Bauna-
1 stöngin. En ekki er þetta allt.
1 Sjáðu, þama er listi yfir sýning-
'aratriðin, sem eru 10:
| 1. Glatað bréf, 2. Milli Parísar
og Lyon, 3. Kaupkonan fagra,
j4. Fjárráðamaður, 5. Glerskurð-
armaður eða hin týnda vasa-
bók, 6. Hjá rannsóknardómar-
!anum. 7 Húsið við fljótið, 8.
Blinda stúlkan, 9. Afrek Rigolo
10. Augu Marie-Anne.
- Já, það er engum vafa unií-
irorpið, þéttá; er hvorki :ltneirá
né minna én'_sjðnleikur tim'morð
ið á Jacques Bernier, og við öll,
sem komið hafa við sögu máls-
ins erum persónur leiksins.
- Þetta er kyndugt, sagði
Baunastöngin og hló. en hann
hafði ekki skilið til fulls hvað
hér gat legið á bak við, en Ósk-
ar fór að blaða i leikritinu og sá
brátt, að höfundurinn var mál-
inu gerkunnugur. Hann virtist
þekkja alla, sem við sögu komu,
— og hann lét Rigolo nota sömu
orðatiltæki og hann notaði.
i - Hvernig veit maðurinn
þetta allt? spurði hann undrandi
; Hann hlýtur að hafa haft skil-
yrði til þess að fylgjast mæta
vel með öllu.
Óskar strauk sér um ennið:
— Ef það væri nú hann —
hann sjálfur — morðinginn.
Kann að vera heimskuleg til-
gáta, en hver þekkir svo vel til
málsins nema hann. En þarna er
nafn hans og heimilisfang skrif-
að meo rauðu bleki. Nú hef ég
hann, svo sannarlega, nú kló-
festi ég hann.
Hann barði í rúðuna á vagn-
þilinu milli farþega og vagn-
stjóra:
- Snúið við og akið í Cujas-
götu 12.
— Hvað ætlarðu að gera?,
spurði Baunastöngin.
- Það skal ég segja þér,
gamli vin, við erum nefnilega
komnir á slóðina, sagði Óskar.
Ef höfundurinn er £kki morðingi
Jacques Berniers veit hann að
minnsta kosti svo mikið, að ég
skal knýja hann til þess að
hjálpa mér til að finna morðingj
ann. Þú getur bölvað þér upp á
að hann sleppur ekki. Ég er með
skammbyssu í vasanum og reyni
hann að flýja skal hann fá skot
í báðar lappir.
•■.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.
5 i
:■ DÚN- OG
FIÐURHREINSlíN þ
■; vatnsstfg 3. Sími 1874C J«
i
V
«■
SÆNGUR
REST BEZT-koddar.
Endurnýjum gömlu /
sængurnar, eigum j!
dún- og fiðurheld vet. ■;
Seljum æðardúns- og Ij
gæsadúnssængur — ^
og kodda af ýrnsum J
stærðum. í
*:?íi9yí i/1 ri l (*>A
V.V.V.V.V.V.V.ViViVa".
Fæst í næstu búð.
T
A
R
Z
A
N
Þegar við lendum Joe, segir
Tarzan, þá verður þú að gæta
þess að Wambi og Abuzzi sjáist
ekki, svo að hermenn Batusanna
reyni ekki að drepa þá. Wawa,
kallar hann síðan i hátalarann, ég
ætla að koma niður og ræða við
þig, segðu hermönnum. þínum að
ég sé vinur. Á jörðinni lítur
Wawa órólegur í kringum sig.
Síðan hann lagðist veikur og
kraftar hans dvínuðu hefur vald
hans yfir hermönnunum stöðugt
minnkað, vegna þess að hinn svik
uli sonur hans hefur verið að
reyna að vinna þá á sitt band.
Aðeins skipandi myndugleiki hans
og virðing sú sem þeir höfðu áð
ur borið fyrir honum, kom f
veg fyrir að Mambo tæki alger
lega völdin. Mambo sonur minn
segir Wawa, leggið þið frá ykk-
ur spjótin. Tarzan er vinur okk-
ar. Hann er góður maður. Ég
þekki vel þennan Tarzan hreytir
Mambó út úr sér. Og ég hefi sagt
honum að ef hann stígi nokkurn
tíma aftur fæti sínum á Batusa
landið muni ég drepa hann.
OMEGA úíin
heimsfrægu
BIFREIÐAÞJÚNUSTA
Skoðun i nánd. Lagfærum rafkerf
ið, stillum hleðslu og vél. Önn-
umst ennfremur alls konar smávið-
gerðir bifreiða. Opið frá kl. 8-7
Rafnýting s.f.
Melgerði 6 — Sími 4íO‘/a
Kópavogi
GróðurmoBd
Túnþökur
Flytjum heim.
AÐSTOÐ H.F.*
Símar 15624 — 15434.
’ i
í
RETTI
LYKILLINN
AÐ RAFKERFINU
TUNÞOKUR
BJÖRN R. EÍNARSSON
SÍMÍ a085G
Herrusokkur
crepe-nylon ,<i 29.00
MDUatorgl