Vísir - 23.06.1964, Side 8
3
mmikvm
Utgefandi: Blaðaútgáfan VISIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði.
I lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis - Edda h.f
rjaBMBMHaHBnaHBMHBnnaaaBaMaHnauHBKKai
Viturleg samþykkt S.I.S.
^largar og langar greinar hafa birzt í Tímanum allt
síðastliðið ár, þar sem harðlega hefir verið deilt á
n'kisstjórnína fyrir að stórauka ekki framkvæmdir í
iandinu og veita meira fé út í atvinnulífið. Um þverbak
keyrði þegar bankarnir takmörkuðu útlán sín í fyrra.
Það töldu þingmenn Framsóknarflokksins ganga glæpi
næst og höfðu mörg orð og stór um það hve ill sam-
dráttarstefna ríkisstjórnarinnar væri. Sjálfsagt væri að
stórauka útlánin, í stað þess að draga úr þeim. En nú
bafa þau tíðindi gerzt, að sá voldugi félagsskapur S. í.
S. hefir gert samþykkt á aðalfundi sínum, sem gengur
í algjört berhögg við þennan söng Framsóknarflokks-
;ns. I þeirri samþykkt er hins vegar mörkuð nákvæm-
lega sama stefnan í fjármálum og ríkisstjórnin hefir
beitt sér fyrir. í S. í. S. samþykktinni er orðrétt talað
um nauðsyn þess „að útlán séu minnkuð.og að fjár-
festing Sambands og kaupfélaganna sé takmörkuð
sem mest má verða og ekki hafnar nýjar byggingar-
framkvæmdir að sinni nema fé til þeirra sé fyrirfram
tryggt“. Auk þess ályktar félagsskapurinn „að nauð-
syn sé á að mikillar varúðar sé gætt í fjármálum“.
Hér er vissulega viturlega mælt, enda slík varúð sjálf-
sögð, ef unnt á að reynast að hafa hemil á verðbólg-
unni í landinu. Enginn aðili gæti meira lært af þessari
samþykkt en Framsóknarflokkurinn. Og enginn einn
maður gæti meira lært af henni en formaður Fram-
sóknarflokksins, Eysteinn Jónsson. Það vill svo til, að
hann á líka sæti í stjórn S. í. S. — svo honum ætti að
íeynast auðvelt að kynna sér samþykktina — og fara
eftir henni!
Herfræðileg mistök
] 30 hræðum tókst kommúnistum að smala saman til
þess að mótmæla varnarliðinu á sunnudaginn. Það er
eins og íbúatalan í afskekktum hrepp eða farþegatala
einnar íslenzkrar flugvélar. Það var allt og sumt.
‘Aldrei fyrr hefir fylgisleysi íslenzku kommúnistadeild-
arinnar verið opinberað á jafn ljósan hátt. Frá sjónar-
miði kommúnista hlýtur gangan að vera talin meiri
háttar herfræðileg mistök. Það er ekki erfitt að tala
digurbarkalega í blöðunum. En það er verra þegar
„þjóðin“ reynist ekki nema hundrað og þrjátíu manns.
.
V1 SIR . Þriðjudagur 23. júní 1964.
Edward Kennedy meðvitundarlaus í flugvélarflakinu.
Edward Kennedy mun ná
fullri heilsu eftir
Mönnum hnykkti ónotalega
við, er það fréttist fyrir seín-
ustu helgi, að Edward Kennedy
yngsti bróðir hins myrta for-
seta, Johns F. Kennedy, hefði
meiðzt lífshættulega af völdum
flugslyss. Og menn ræddu um
þetta sem nýtt reiðarslag fyrir
Kennedy-ættina.
En betur mun að líkindum
fara en á horfðist, því að lækn
ar telja, að Kennedy muni ná
sér að fullu, en hann muni verða
misseri að ná sér að fullu.
í flugslysinu beið flugmað-
urinn bana og einn af nánustu
samstarfsmönnum Kennedys.
Edward meiddist í baki og rif-
bein brotnuðu, en hann hefir
Með Gullfossi fyrir helgi kom
hingað til Iands ungur skoti,
Alasdair Murray, sem er nokk-
urs konar „framvörður“ leið-
angurs sem hefur í hyggju að
kanna landssvæðið milli Hofs-
jökuls og Langjökuls.
Fyrirliði leiðangursins he>t-
ir John Henderson og hefur
hann áður farið í sams Konar
leiðangra til margra annarra
landa m.a. Grænlands. Leiðang-
urinn mun dveljast í einr tvær
vikur milii jöklanna við jökla-
fræði, dýrafræði og jarðfræði-
rannsóknir. Hér er þó ekkl um
raunverulegan vísindaleiðangur
að ræða, heldur eru þetta frem-
ur áhugamenn, enda á vegum
not bæði handleggja og fóta.
Hann liggur í sjúkrahúsi í
Northampton Talið var að
hryggjarliðir í lend, sem eru
mikilvægar hryggstoðir, hefðu
brákazt.
Kennedy hafði tekið þátt í at
kvæðagreiðslunni í þjóðþinginu
í Washington um mannréttinda-
frumvarpið og lagði af stað það
an í leiguflugvél ásamt Bayh
öldungadeildarþingmanni frá
Indiana og konu hans og Ed-
ward Moss, einkaráðunaut sín
um og ætluðu þeir á flokksþing
demokrata I Southampton, þ.-r
sem greiða skyldi atkvæði um
frambjóðanda flokksins til öld-
ungadeildarinnar I næstu kosn
Rovers Scouts from Scotland og
Bandalags fsl. skáta. í stuttu
rabbi, sem fréttamaður Vísis
átti við Alasdaír, sagði hann að
þeir hefðu mikinn áhuga á
að kanna Surtsey, en hann vissi
ekki hvort þeir kæmu því við
í þetta skipti því að tími'þeirra
hefði allur verið skipulagður
fyrir nokkuð löngu. Hann sagði
ennfremur, að þeir myndu ekki
algerlega binda sig við svæðið
mílli jöklanna, heldur fara einn
ig um nærliggjandi sveitir, eft
ir því sem tækifæri gæfust. Alas
dair mun vinna að undirbúningi
ferðarinnar þar til félagar ham ,
sem eru 13 talsins koma hin^-
að, fyrsta ágúst.
flugslysið
ingum. Þegar fréttist á sam-
kunduna um slysið risu menn úr
sætum og kusu Edward fram-
bjóðanda með lófataki.
Áreksturinn varð í þoku og
rakst flugvélin á trjátoppa i
aldingarði Vængirnir rifnuðu af
en boiurinn valt á hliðina. Flug
maðurinn beið bana þegar, en
Edward Moss lézt í sjúkrahúsi.
Bayh slapp með skrámur cg
bjargaði konu sinni meðv.tund
arlausri úr flugvélinni, Mikil
gleði ríkir í Bandaríkjunum yf-
ir batahorfunum.
Alasdair Murray. (Ljósm.:Vísir).
Leiðangur frá Skotlandi
Anton Dohrn bjargaði slösuð-
um sjómanni á Grænlandshafi
Á laugardaginn sendi nurskt
skip, sem var að veiðum við
austurströnd Grænlands út
skeyti þar sem það bað um ?ð-
stoð. Var það skipið Stálegg frá
Álasundi Hafði rúmlega finmt-
ugur skipsmaður um borð, Sig-
urd Möller, slasazt illilega, þar
sem hann hafði lent með aðra
höndina í vindu.
Landhelgisgæzlan íslenzka
gerði þegar f stað ráðstafanir
til að senda varðskipið Óðin
á móti skipinu og fá aðstoð
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli með þyrlu, sem Óðinn gæti
flutt á móti Stálegg. En nokkru
síðar var þó hætt við það vegna
þess að þýzka eftirlitsskipið,
Anton Dohrn, var nær hinu
norska skipi og á þvi er læ^n.r
og fullkomin skurðstofa.
í fyrrad. mættust norska skipið
og Anton Dohrn um 200 milur
út af Grænlandsströnd og 300
mílur frá íslandi. Var hir.n slas-
aði maður tekinn um borð og
skurðaðgerð gerð þegar á bcn-
um, Missti hann tvo fingur. en
auk þess voru hönd hans og arm
ur mjög kramin.
Vísir átti símviðtal við Voben
skipherra á Anton Dohrn v pær.
Hann sagði að norska sjo-
manninum liði nú vel. Ekki
kvað hann Anton Dohrn geia
sér sérstaka ferð með hann til
íslenzkrar hafnar, þar sem at-
læti hans- væri eins og á sjúkra
húsi um borð í skipinu pn að
líkindum mun Anton Dohrn
koma til Reykjavíkur í næstu
T »>
viku.