Vísir - 06.08.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 06.08.1964, Blaðsíða 1
 Saltað á RAUFARHÖFN 54. árg. - Fimmtudagur 6. ágúst 1964. - 177. tbl. Mikil sfld hefur veiðzt i sum- ar. Hefur obbinn af henni farið í bræðslu (allt að 4/5). Tíðarfar hefur verið gott til lands, að þvi er Einar Guðmundsson á síldarsöltunarstöðinni „Óðinn“ sagði Vísi í morgun. Hafa um 1000 manns unnið i verksmiðj- um og á plönum (11 talsins) i sumar. Um siðustu helgi var talsverð hrota. Veiddist sildin um 200 milur austur af Langa- nesi. Reyndist hún misjöfn — 40% talið nýtilegt í söltun. Sig- urbjörn Bjarnason, fréttaritari Visis á Akureyri, var þar á ferð og tók þessar myndir af tveim söltunarstöðvum. Á annarri myndinni er verið að skipa upp úr Önnu frá Siglufirði við plan- ið „Óðinn“, en þar vinna 84 stúlkur. Er mikill dugnaður í kvenforkunum. Á hinni mynd- inni eru stúlkur á plani Valtýs Þorsteinssonar, „Hafsilfur“, og eru þær ekki siður röskar. Hörmilegt ástand á SIGLUFIRBI Par hefur udeins veríð saltað í tæpar sex þúsund tunnur „Það er enginn síldarsvipur yfir Siglufirði, og ástandið hef- ur aldrei verið jafnslæmt", sagði Ragnar Jónsson frétta- ritari Vísis í morgun. Hér er að heita má ekkert aðkomufólk, og margir Siglfirðingar eru komnir austur á firði. Á Siglu- firði er 21 söltunarstöð, og neniur heildarsöltunin þar nú 5,905 tunnum, en það cr minna en hæstu söltunarstöðvamar, t. d. á Raufarhöfn, hafa saltað. Bræðsla er nú hér aðeins öðru hvérju, éða eftir því, hvenær síldarflutningaskipin koma hingað. Mjög alvarlegt ástand er nú rikjandi á Siglufirði, því að síldin hefur alveg brugðizt fyr- ir Norðurlandi. Litið sem ekk- NYSKA TTRANNS0KNAR DFILD SENN ST0FNUD Ráðið í sex embætti Á MORGUN rennur út um- sóknarfrestur um sex embætti i nýrri rannsóknardeild sem sehn verður stofnuð við embætíi rikisskattstjóra. Fyrir skömmu var auglýst eftir forstöðumanni þessarar deildar, deildarstjóra og fjórum fulltrúum. Hlutverk þessarar deildar er að annast bókhaldsrannsóknir, rannsóknir á framtölum og eft- iiiit með öllum gjöldum sem skattstjórar leggja á. Er þessí nýja deild stofnsett samkvæmt ákvæðum og heimild i hinum nýju lögum um tekiu og eignarskatt sem sambykkt voru í vor. Munu starfsmenn deildarinnar starfa um land alit, en ekki aðeins hér í höfuðborg inni. Stofnun deildarinnar er þáttur í þeim mlklu umbótum á skattalögunum sem í vor voru samþykktar og miðar að því, að koma í veg fyrir skattsvik i hvers konar mynd. ert er af aðkomufólki á staðn- um, og margir * Siglfirðingar farnir austur á firði. Rauðka hefur nú brætt 67,477 mál og Sfldarverksmiðja rik'isins 143,- 361 mál. Er það miklu meira en i fyrra, því þá bræddi S.R. aðeins 32.159 mál. Nú er hins vegar aðeins brætt öðru hverju á Siglufirði, eða eftir því sem síldarflutningask'ipin koma að aústan. Síldarsöltunin, sern ætíð hef- ur sett hvað sterkastan svip á Siglufjörð, hefur vægast sagt verið mjög lítii í sumar. 21 söltunarstöð er á Siglufirði, en nú hefur aðeins verið saltað á 8 stöðvum. Haraldarstöð hefur saltað i 435 tunnur, Nöf 26"6 tunnur, íslenzkur fiskur 725 tunnur, Hafl’iði 287 tunnur, Vesta 355 tunnur, ísafold 912 tunnur, Kaupfélag Siglfirðinga 132 tunnur og Hrímnir 363 tunnur. Er því heildarsöltunin á Siglufirði orðin alls 5,905 tunnur. Samkvæmt siðustu skýrslu hefur verið saltað á öllu landinu í 145,146 ti^nnur. Er öll söltun á Siglufirði minni en hæstu söltunarstöðvar, t.d. á Raufarhöfn, éru með. Sænskir síldarkaupmenn hafa að undanförnu keypt mestalla sína síld frá Siglufirði, en nú eru þeir fluttir með allt sitt að- stoðarfólk austur á firði. ■ „Ástandið er þvi hörmulegt, og menn muna ekki eftir þvf verra,“ sagð'i Ragnar Jónsson, fréttaritari Vísis að lokum. Dr. Mozer BLADID ! DAG Viðtal Vísis við dr. Mozer d Mýrdalssandi: Visindalegur árangur eUfíaugaskots ins langtum meirí en báizt var við Frakkarnir frestuðu í gær- kvöldi að skjóta upp síðari eld- flauginni af Mýrdalssandi. Þeir urðu líka að hætta við skotið kvöldið áður. Vísir átti sfmtal við dr. Mozer, framkvæmda- stjóra vísindaleiðangursins, i morgun. Kvað hann ástæðuna hafa verið hvassveður, enda þótt segulsvæðið hefði staðið þannig af sér, að skot hefði verið fram- kvæmanlegt, var orka segul- magnsins ekki nægilega mikil tfl þess að vega upp á móti veðurskilyrðunum. Blaðið spurði dr. Mozer, hvort loftbelgurinn, sem fannst við Kjarrá í Borgarfirði, hefði veitt þeim einhverjar frekari upp Framhald á bls 7

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.