Vísir - 06.08.1964, Blaðsíða 6
6
V í S IR . Fimmtudagur 6. ágúst 1964.
vinnur sii grundvallorrannsóknum á ýmsum þáttum þjóð-
múlu —i íyrstu verkefni verður „Menntun íslenzkrar
æsku#/ — Stjórnurformuður Þórir Einursson
Stjómir Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna og Heimdallar
FUS hafa nú ákveðið að koma
á fót Rannsóknar- og upplýs-
ingastofnun ungra Sjálfstæðis-
manna sem hafi það verkefni
að vinna að „grundvallarrann-
sóknum á ýmsum þáttum þjóð-
málanna og gerir tillögur um
stefnu og markmið ungra Sjálf-
stæðismanna í þjóðmálum“ svo
sem segir í samþykktum stofn-
unarinnar.
Þessi ákvörðun fyrrgreindra
aðila er árangur af bréfi Bjama
Benediktssonar, formanns Sjálf
stæðisflokksins til ungra Sjáif-
stæðismanna þ. 8. júní s.I., en
þar hvatti hann til aukinnar
rannsóknarstarfsemi ■ á vegum
ungra Sjálfstæðismanna á
grundvallarþáttum þjóðmál-
anna. Stjóm stofnunarinnar
Þórir Einarsson
verður skipuð 7 mönnum og
hefur Þórir Einarsson, við-
skiptafræðingur, verið skipað-
ur formaður hennar.
STJÓRN
STOFNUNARINNAR
Svo sem fyrr segir er stofnun-
in sett á stofn á vegum SUS og
Heimdallar FUS. Skipar stjórn
SUS fjóra menn 1 stjóm hennar,
en Heimdallur þrjá. Formaður er
tilnefndur af stjórn SUS og skal
hann jafnframt eiga sæti í stjórn
SUS. Er stjórn stofnunarinnár
skipuð til tveggja ára í senn.
HLUTVERK
STOFNUNARINNAR
Hlutverk Rannsóknar- og upp-
Iýsingastofnunar ungra Sjálfstæð-
ismanna er að vinna að rannsókn-
um á hinum ýmsu þáttum þjóð-
málanna I þvl skyni að móta og
endumýja stefnu ungra Sjálfstæð-
ismanna í þjóðmálum. Skal hún
m. a. hafa vakandi auga á nýjum
stefnum og straumum I þjóðfélag-
inu og gera tillögur um stefnw
ungra Sjálfstæðismanna í sam-
ræmi við eðlileg viðfangsefni
stjórnmálasamtaka ungs fólks.
Ennfremur mun stofnunin hafa
umsjón með útgáfu upplýsinga-
rita til kynningar á stefnu og
störfum ungra Sjálfstæðismanna.
Mun stofnunin ýmist vinna að á-
kveðnum verkefnum samkvæmt
tilvísun stjóma SUS eða Heim-
dailar eða fyrir eigið frumkvæði.
UNDIRNEFNDIR
Stjóm Rannsóknar- og upplýs-
ingastofnunarinnar er heimilt að
skipa undirnefndir, sem taki til
meðferðar einstök tiltekin verk-
efni og einnig getur hún leitað
til einstakra manna um rannsókn-
ir á ákveðnum atriðum. Stjómir
SUS og Heimdallar fjalla um end-
anlega afgreiðslu þeirra álita, sem
stjóm stofnunarinnar sendir frá
sér.
MERKUR AFANGI
Með tilkomu Rannsóknar- og
upplýsingastofnunar er merk-
um áfanga náð í starfsemi ungra
Sjálfstæðismanna. Með henni
skapast grundvöllur fyrir mjög
auknum áhriftun ungra Sjálfstæð-
ismanna á stefnu og störf Sjálf-
stæðisflokksins, og er það vissu-
lega ánægjuefni, að það skuli
verða fyrir tilverknað formanns
Sjálfstæðisflokksins, Bjama Bene
diktssonar.
Fyrsta verkefni stofnnnartenar
verður „Menntun islenzkrar
æsku“, en Bjami Benediktsson
óskaði sérstaklega eftir því, a8
ungir Sjálfstæðismenn tækju það
til meðferðar. Nánar verður skýrt
síðar frá öðrum stjórnarmönnum
Rannsóknar- og upplýsingastofn
unarinnar.
ALLUR ER VARINN GÓÐUR
Kínverskir kommúnistar haga
gjörðum sínum í samræmi við
málsháttinn gamla, sem segir,
aö það sé of seint að byrgja
brunninn, þegar baraið er dottið
ofan f.
Til þess að komast fyrir hugs-
anleg skemmdarverk leyniþjón-
ustu Bandaríkjanna og annarra
þeirra útsendara alheimsauð-
valds og afturhalds, sem hatast
við íbúa Alþýðulýðveldisins
Kina, hafa hin kommúnísku
stjórnarvöld komið sér upp eink-
ar haganlegu og þægilegu kerfi.
f hverju einasta húsi, og þá
væntanlega í hverju herbergi, er
komið á fót nokkurs konar leyni
þjónustu, þótt smá sé hún I
sniðum, og síðan sér þessi inn-
anhúss-lögregla um að koma á
framfæri við hlutaðeigandi
stjórnarvöld öllum upplýsingum,
sem bent gætu til samvinnu ann
arra fjölskyldumeðlima við
væntanlega innrásarheri Banda-
ríkjamanna.
Af starfsfólki heimilisleyni-
þjónustunnar er ekki krafizt
staðgóðrar þekkingar á júdó, né
heldur langskóiamenntunar I
meðferð sprengiefna og leyni-
merkja. Svo langt hafa kommún-
istar náð á sviði nýtingar vinnu-
afls, að þeir hafa séð sér fært
að nytja til fullnustu það vinnu-
afl, sem í kapitaliskum löndum
er látið fara algjörlega til spill-
is, sem sé böm. Meðfylgjandi
mynd sannar ljóslega hina mik-
ils um verðu, sósíalísku, skipu-
lagshæfileika. Er hún af bömum,
sem gerzt hafa sek um afbrot
gegn rlkinu, og sjást, þau játa
glæpi sina. Sennilega hafa af-
brotin þótt vera fremur smá-
vægileg, þvl ella hefðu þau vænt
anlega verið send I vinnubúðir,
sér til sáluhjálpar, en til þess að
nota tímann og tækifærið, eru
bömin um leið látin greina frá
glæpsamlegum tilhneigingum
f jölskyldumeðlima sinna. Ef
ráða má af svip telpukindarinn-
ar lengst til hægri, þá er ekki
óliklegt, að þegar röðin kemur
að henni, muni hún geta greint
frá djöfullegu samsæri ömmu
siifnar og C. I. A. um loftárásir
fyrrgreindra aðila á samgöngu-
leiðir kínverskra „sjálfboðaliða“
• til hjálpar undirokuðum Ibúum
Suður-Viet Nam, sem nú eiga í
heilögu stríði við alheimsimperi-
alismann, alheimskapitalismann
og fjöldann allan af öðrum al-
heims-ismum.