Vísir - 08.10.1964, Blaðsíða 16
!»*#■ '<P<ví s <■ w X
,
Fimmtudagur 8. október <í 964.
Leifur
a
6.10 frá
- Leifur Eiríksson, Rolls Royce
V skrúfuvél Loftleiða setti aftur
hraðamet á flugleiðinni New
i York — Keflavik, en hún lenti
£ á Keflavikurvelli kl. 7,35 í morg
un og hafði þá aðeins verið 6
•s tíma og 10 minútur á leiðinni.
‘t, Flugstjóri á flugvélinni var
* Ólafur Ólsen, en siglingafræðing
? ur var Magnús Ágústsson,
i
Engin
síSd
nótt
Á myndinni eru stjórnarmenn Handritastofnunarinnar, talið frá vinstri: Hreinn Benediktsson, prófessor, Halldór Halldórsson, prófessor,
Einar Ól. Sveinsson, forstöðumaður Handritastofnunarinnar, Stefán Pétursson, þjóðskjalavörður og Finnbogi Guðmundsson landsbóka-
vörður. Á myndina vantar tvo stjórnarmenn Ármann Snævarr, háskólarektor og Kristján Eldjárn, þjóðminjavörð. (Ljósm. Vísis B.G.)
Engin síldveiði var í nótt fyrir
.austan, en síldveiðin s.l. sólarhring
var 7020 mál og tunnur hjá 12
rkipum. Bræla er á miðunum, en
menn vonast til að veður fari batn
andi þegar líður á daginn.
JT
• a
Einar 01. Sveinsson ræðir við biaðomenn
„Það má segja að í hópi and-
stæðinga vorra gangi maður
undir manns hönd í áróðrinum
gegn því, að handritamálið fái
Fyrstu hljómieikar
góð Iok. En ekki má . þó
gleyma því, að við eigum sem
áður örugga og duglega liðs-
menn Heitstrengingar þeirra og
ósleitileg vinna er mikilsverð“.
Þetta sagði Einar Ól. Sveinsson
prófessor fundi í gærdag
með blaðamönnum, sem Hand-
ritastofnun tslands hélt.
Sagði prófessorinn að sumt
af því sem skrifað hefði verið
í dönsk blöð svo og áróðurs-
bæklingurinn „Staðreyndir um
íslenzku handritin" væru stað-
leysur einar, og væri Dönum
ekki stætt á málflutningi sem
þeim. Yrði að mótmæla þessu
harðlega og koma þeim mót-
mælum til Danmerkur.
Kvað próf. Einar Ólafur
starfi Handritastofnunarinnar
hafa verið beint inn á þá braut
að hefja vísindaútgáfu og ljós-
prentun handrita. Þannig kæmu
líklega út í haust Viktors saga
og Blávus búin til prentunar af
Jónasi Kristjánssyn þá kæmi
líklega Sýnisbók elztu íslenzkra
handrita frá upphafi, aöt fram
til 1270 — 80, en um hana sér
próf. Hreinn Benediktsson. Þá
ætt'i annað rit að koma um lfkt
leyti, en það er ljósprentun
eiginhandarrita Jónasar Hall-
grímssonar af kvæðum hans.
Þá kemur vísindaútgáfa af
Svarfdælu og j’æreyingasögu,
ennfremur upphaf af rímnasafni
sem á að taka við af Rímna-
safni Finns Jónssonar. Byrjað
er að Vinna að vísindaútgáfu af
Árna biskups sögu. Ýmislegt
fleira er framundan í útgáfu-
starfi Handritastofnunarinnar
en til útgáfustarfseminnar er
veitt á fjárlögum ein millj.
króna á ári auk launa starfs-
manna.
Gat próf. Einar Ólafur þess,
að ákveðið væri að Handrita-
Framh. á bls. C.
starfsemimi
Vetrarstarf Sinfóníuhljómsveitar
innar hefst i kvöld með tónleikum
í Háskölabíöi kl. 21. Stjórnandi
verður bandaríski hljómsveitar-
stjórinn Igor Buketoff, einleikari
með hljómsveitinni er danski pf-
anóleikarinn Victor Schioler. Á efn
isskránni verður: Forleikur að
„Fjalla-Eyvindi,“ eftir Karl Ó. Run-
ólfsson, Sinfónía nr. 3 i F-dúr op.
90 eftir Brahms, sinfónisk tilbrigði
Francks og Rapsódia um stef eft
ir Paganini og Rachmaninoff.
Starfsemi sinfóniuhljómsveitar-
mar eykst alltaf. í vetur verða a.
m.k. 16 tónleikar auk þess átta til
niu skólatónleikar og tveir tónleik-
ar fyrir börn á aldrinum 5-10 ára.
Miklar vonir eru bundnar við þessa
æskulýðstónleika, en verið er að
ala upp hlustendur framtíðarinnar.
Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar
í vetur verður Igor Buketoff, stjórn
ar hann 10 af hinum 16 tónleikum,
auk hans stjórna þeir Gustav Kön-
ig, Róbert A. Ottósson, Proinnsfas
O’Duinn og Páll S. Pálsson.
Óvenjumargir íslenzkir einleik-
arar leika með sinfóníuhljómsveit-
inni í vetur, eru þeir fjórir talsins,
Björn Ólafsson, Rögnvaldur Sigur-
Framh. á bls. 6.
Eitt af þeim verkefnum, sem
rafeindaheilar nútimans leysa,
er ýmis vinna hjá tryggingafé-
Iögunum og um allan heim eru
heilarnir nú mjög notaðir af
tryggingafélögunum. I morgun
hittum við að máli sérfræðing
IBM í París i rafeindaheilum og
notkun þeirra hjá tryggingafé-
Iögum. Hann heitir O. Cilius-
Nielsen og er Dani, en búsettur
í París, og f dag heldur hann
fyrirlestur um notkun heilanna
í Hótel Sögu.
„Starfsemin er orðin afar sér-
hæfð“, sagði Nielsea i stuttu
rabbi í morgun. „Einn hefur
notkun heilanna á þessu sviði
að sérgrein, annar á hinu. Það
er alveg furðulegt hvað heilarn-
ir geta gert í þjónustu trygg-
ingafélaganna og hve mikið þeir
Gunnar J Friðriksson
Ákveðið hefur verið, að Norð-
urlöndin taki sameiginlega þátt
í heimssýningunni i Montreal
1967. Munu þau reisa sameig-
inlegan sýningarskála. Mun ís
land því fá tækifæri til þess að
taka þátt í sýningunni, en ís-
land hefur ekki tekið þátt i
heimssýningu síðan 1939 i New
York.
Ríkisstjórnin hefur falið
Gunnari J. Friðrikssyni, for-
manni Félags ísl. iðnrekenda að
undirbúa málið ásamt fulltrúum
frá' hinum Norðurlöndunum.
Vísir náði sem snöggvast tali
af Gunnari f morgun. Kvað
hann það mjög mikilvægt að
íslandi skyldi veitást tækifæri
til að taka þátt í heimssýning-
unni í Montreal og kynna þar
framleiðsluvörur sínar. En
Gunnar sagði, að þátttaka ís-
lands í sýningunni hefði ekki
komið til greina, ef ekki hefði
verið um sameiginlega þátttöku
Norðurlandanna að ræða, þar
eð kostnaður við þátttöku væri
svo gífurlega mikill.
Gunnar sagði, að sýningar-
skáli Norðurlandanna á heims-
sýningunni yrði mjög stór og
veglegur, en undirbúning allan
kvað hann enn á frumstigi.
Gunnar kvaðst vera á/ förum
til Noregs til þátttöku í fundi
samtaka iðnrekenda á Norður-
löndum og yrði þá haldinn
fyrsti fundurinn um þátttöku
Norðurlanda í heimssýningunni.
í rauninni vita um viðskiptavin-
inn og segir frá öllu sem hann
veit á aðeins örfáum sekúnd-
um.“
Hér kvaðst O. Cilius-Nielsen
ræða við tryggingafélögin um
leigu á rafeindaheila eða jafnvel
sölu, en tvö tryggingafélög hér
hafa notfært sér slíka heila,
Samvinnutryggingar og Sjóvá-
tryggingafélagið. Og sem fyrr
segir heldur Nielsen fyrirlestur
um notkun heilanna og það gagn
sem sem tryggingamenn hafa
af honum. Skal þess getið að
fyrirlesturinn er í Súlnasalnum
og hefst kl. 5 og eru allir þeir,
sem áhuga hafa velkonmir.