Vísir - 20.02.1965, Side 1
VISIR
55. árg. — Laugardagur 20. febrúar 1965. - 43. tbl.
Flugdrekar ú Miklotúni
Það er sjaldgæf sjón að sjá
drengi leika sér að flugdrekum
í Reykjavfk. Fyrlr nokkrum
árum var það næsta daglegur
viðburður. Aukin velmegun
hefur dregið úr þeim fram-
kvœmdakraft. Þess vegna var
Ijósmyndari ekki lengi að snara
sér út úr bílnum þegar hann
sá þessa pilta stjórna slikum
glæsilegum dreka. Erlendis
þykir enn mikið sport í því að
eiga flugdreka og jafnvel full-
orðnir sjást laumast út undir
því yfirskini að þeir séu að að-
stoða börnin sín.
Skortur oriinn á reynd-
um flugmönnum á íslundi
Loftleiðir verða að ráða fjöldss flugmanna erlendis frá
Flugmannaskortur er tek-
inn að gera vart við sig hér á
landi, aðallega hjá Loftleið-
um, sem bæta við sig 32 nýj
um flugmönnum við komu
nýju flugvélanna. Sama sag-
an er með flugvélstjóra og
flugfreyjur. Loftleiðir munu
fá menn lánaða til að fljúga
DC-6B vélunum í sumar frá
Flugfélagi íslands, en flug-
stjóra verður að ráða erlendis
frá, einkum á leiguvélamar.
Undanfarið hafa bæði flugfé
lögin verið að ráða flugmenn.
Flugfélag íslands fékk rúmlega
30 umsóknir og úr þeim eru
10 umsækjendur valdir eftir að
hafa gengizt undir ýmiss konar
próf, m. a. í stærðfrasði, ensku
og almennri þekkingu. Síðar
kemur hingað pró'essor í sál
fræði frá Stokkhó’rnsháskóia
og mun hann prófa hæfni flug-
mannanna á ýmsum sviðum.
Flugfélagið hefur ekki lagt mik
ið upp úr flugstundafjöida ungu
flugmannanna, sem ráðnir eru
sem aðstoðarflugmenn, en reynt
að ná í menn sem vilja og geta
lært, eins og Jóhann Gíslason
flugrekstursstjóri félagsms
sagði í stuttu símtali í gær. —
..Flugmannsstarfið er óðum að
verða vísindastarf. Flugvélar
eru ekki keyrðar áfram á vöðva
aflinu lengur“, sagði hann.
Hjá Loftleiðum er þegar búið
að ráða 9 flugmenn, sem munu
fljúga í sumar sem siglingafræð
ingar á DC-6B. Þeir flugmenn
Loftleiða, sem undanfarið hafa
verið á DC-6 vélunum, munu nú
flestir flytjast á Rolls-Royce
vélarnar. Loftleiðir ráða yfir-
leitt ekki flugmenn nema með
minnst 1000 flugstundir, en til
að verða flugstjórar, þurfa
menn að hafa safnað 5000 flug
stundum. Þeir sem útskrifast
frá flugskólunum með atvinnu-
réttindi, eru almennt með 200
flugstundir og auka við sig á
flugi fyrir litlu flugfélögin.
Vélamenn og flugvirkjar virð
ast sama vandamálið. Flugfé-
lagið hefur yfir að ráða um
40 flugvirkjum, sém er algjört
Framh. á bls. 6
Rætt við Weymouth aðmírál:
Kostnaður við varnir ís- 1 lnnbrot ' tvö
landsum2600millj.kr.áárrMi á Raufarhöfn
Ritstjórar Reykjavíkurblaðanna
áttu f gær tal við yfirmann vamar-
liðs Atlantshafsbandalagsins á ís-
landi, Weymouth aðmírál á heimili
bandariska sendiherrans við Lauf-
| ásveg.
j í viðtalinu gat aömirállinn þess
I að hætt hefði nú verið eftirlitsflugi
með Super Constellationflugvélum
héðan frá íslandi, svo sem Vísir
| skýrði frá i gær. Gat hann þess
að þetta væri vegna þess að hern-
aðartæknin hefði mjög breytzt á
siðustu árum. Nú væri ekki búizt
BLAÖSÐ í DAG
við að árás á Iandið væri gerð með
flugvélum, svo sem áður fyrr, held-
ur myndu væntanlegir árásaraðilar
notast við flugskeyti. Því væri
talið ónauðsynlegt að hafa flugvél-
ar eftir sem áður á eftirlitsflugi.
Us. 3 Myndsjá:
Barizt í frumskóg-
um.
— 4 Krossgáta Vísis
— 7 Barátta við
krabbamein.
— 8—9 Leið Jacqueline
lá til Washington
Við þessa breytingu fækkar um
300 flugliða og 65 liðsforingja í
varnarliðinu, sem annazt hafa fyrr-
greint könnunarflug. Aðspurður
sagði aðmírállinn að þessi breyting
j gæfi ekki til kynna að hernaðar-
1 legt mikilvægi Islands væri minna
en áður. Það væri síður en svo og
lægi mikilvægi landsins eftir sem
áður f því hve hér væri mikilvæg
birgðastöð fyrir aðgerðir á Norður-
Atiantshafi.
KOSTNAÐUR VEGNA
VARNANNA.
Þá gat aðmírállinn þess f svari
við einni spumingunni að heildar-
Framh. á bls 6
Hinn ókunni maður reiddi
málningardollur til höggs
í fyrrinótt brauzt ölvaður
maður inn í tvö hús á Raufar-
höfn, hann var aðkomumaður
af skipi, sem lá á höfninni. í
fyrra innbrotinu var með honum
annar maður, en hann virðist
fremur hafa haft það hlutverk
að reyna að aftra félaga sinum
frá að fremja innbrot og fá
hann til að hætta því.
Menn þessir voru báðir skips
menn af tankskipinu Þyrli, sem
kom til Raufarhafnar til að
taka síldarlýsi til útflutnings.
Þyrill kom seint í fyrrakvöld
til Raufarhafnar og þeir félag-
arnir virðast strax hafa farið
frá borði og lent að drykkju.
Kl. 2 um nóttina var fyrra
innbrotið framið í íbúðarhúsi
Síldarverksmiðja ríkisms. Þar
er búið á neðri hæð, en efri
hæðin mannlaus. Þeir komust
upp á efri hæðina, skemmdu
þar tvær hurðir og SKrúfuðu úr
öll öryggi hússins. Annar þeirra
virðist hafa verið hvatamaður,
Framh. á bls. 6
Eimskipafélagsskip losna
Ralph Weymouth flotaforingi
yfirmaður vamarliðsins.
Tvö skip Eimskipafélagsins
stöðvuðust í Bandaríkjunum vegna
verkfallanna. Það voru Selfoss,
sem er búinn að vera á annan
mánuð í New York og Dettifoss,
sem hefur verið sfðan um seinustu
mánaðamót í Wilmington. Nú
hefur Alríkisdómstóllinn í Banda-
ríkjunum fyrirskipað fimm daga
vinnu hjá hafnarverkamönnum og
losna skipin bæðj í kvöld og í
fyrramálið. Dettifoss fer til New
York og mun festast þar aftur ef
verkfallið heldur áfram að loknum
þessum fimm dögum.
Heyrzt hefur að verkamenn muni
ekki fara I verkfallið aftur, í það
minnsta vinna þeir á alveg eðlileg-
an hátt, en þeir eru vanir að taka
því mjög róiega ef þeir fyrirhuga
að halda verkfallinu til streitu.
Brúarfoss fer til Banaaríkjanna
eftir tæplega viku. Verkfallið hefur
komið sér illa fyrir Eimskipafélag-
ið. Það hefur kom'ið úr skorðum
hjá þeim mörgum áður ákveðnum
áætlunum.