Vísir - 18.03.1965, Side 8

Vísir - 18.03.1965, Side 8
3 VI S IR . Fimmtudagur 18. marz 1965. VISIR Otgefandi: BlaBaútgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr. á mánuði I lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 tínur) Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Iðnaðurinn i dag Jslenzkur iðnaður er engin öskubuska í íslenzkum þjóðarbúskap, ekkert olnbogabarn, sagði Jóhann Haf- stein iðnaðarmálaráðherra á aðalfundi Félags ís- lenzkra iðnrekenda. í ræðu sinni rakti ráðherrann 17 málaflokka, hagsmunamál iðnaðarins í landinu, og gerði grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar á þessum sviðum og framkvæmdum í þágu iðnaðarins. Benti hann m. a. á hve Iðnlánasjóður hefði tekið algjörum ' stakkaskiptum síðustu árin, framlag ríkissjóðs aukizt og sjóðurinn stórefldur. Þá stæði fyrir dyrum ný tolla- lækkun á vélum til iðnaðarins í landinu, fjárveitingar til leiðbeiningastarfsemi í ýmsum iðngreinum yrðu auknar. Tækniskóla hefði verið komið á fót og grund- völlur lagður fyrir stórauknum stálskipasmíðum hér á landi. Þá ætti setning reglugerðar skammt í land um breytingu á lausaskuldum iðnaðarins í föst lán. Ráðherrann drap á þá staðreynd, að þótt.sumar grein- ar verksmiðjuiðnaðarins eigi nú við erfiðleika að etja, þá má ætla að sumt af því séu tímabundin vandamál. í flestum öðrum greinum iðnrekstursins hefur verið vöxtur og gróska eins og opinberar tölur um hag- vöxtinn sýndu, og væri óvíða í Evrópu um meiri vöxt að ræða en hér. Tæplega væri ástæða til áberandi böl- sýni meðan svo yeeri. Kvað ráðherrann naumast rétt að vera að telja sér trú um að iðnaðurinn væri að kom ast á vonarvöl. Væri það hreint og beint skaðlegt að stuðla að því að festa þá skoðun í hugum fólks. formaður F. í. I., Gunnar J. Friðriksson, drap á þá erfiðleika, sem aukið innflutningsfrelsi hefur valdið íslenzkum iðnaði á undanfömum misserum. Áherzlu bæri að leggja á að tollalækkanir fari aðeins fram að því tilskildu, að fyrir liggi athuganir, er sýni áhrif breytinganna á viðkomandi iðngreinar og séð sé fyrir ráðstöfunum til þess að gera iðnaðinum kleift að mæta hinni breyttu aðstöðu. Hér má segja að kjarni málsins sé fólginn. Iðnaðurinn er nú að skera upp hina bitm reynslu haftaáranna, þegar leyfi fengust ekki fyrir vélum eða nýjum húsbyggingum og iðnaðinn skorti tilfinnanlega rekstrarfé. Þau erfiðu ár merg- sugu iðnaðinn svo, að nú eiga sumar greinar hans erfitt um samkeppnisaðstöðu alla. Þess vegna verður að fara með varúð t tollabreytingar, vera vel á verði gegn því að ekki séu fluttar erlendar iðnaðarvörur til landsins á „dumping“ verði, og jafnan gæta þess að iðnfyrirtæki með Iífsmátt séu ekki kæfð i of hröðum breytingum. Ríkisvaldið verður vissulega að gera sér ljóst, að iðnaðurinn þarf enn á mjög auknu fjármagni að halda til þess að hann geti gegnt þjóðnytjahlut- verki sínu. Iðnaðurinn gerir vissulega ekki kröfur til neinna sérréttinda, en hann gerir þá kröfu að fá að njóta sömu réttinda og vjðurkenningar og aðrir at- vinnuvegir þjóðarinnar Það er sjálfsögð sanngirnis- krafa. Leikfélag Reykjavíkur: T^að verður óneitanlega for- vitnilegt að fylgjast með þeim viðtökum, sem þessi sjón- leikur Dario Fo fær héma hjá okkur. Við kunnum yfirleitt helzt að meta gaman ef eitt- hvað er meint með því, kannski erum við þó ekki eins mikið fyrir tvírætt kynmeiningagaman og aðrar þjóðir ýmsar, að minnsta kosti ekki, ef það er óeðlilega fágað; við höfum að vísu alltaf hlegið að grófu gamni, en þó ekki nema við viss ar aðstæður og í vissu umhverfi, aldrei talið það sviðshæft eða samkvæmishæft. En grátt gam- an höfum við alltaf kunnað vel að meta, þar sem illgirnislega var sveigt að mönnum og mál- efnum, einkum að mönnum, því að okkur hefur alltaf hætt við að meta málefnin eftir mönnum, sem er og eðlilegt þar sem allir þekkja alla. En gaman eingöngu vegna gamansiris, það höfum við alltaf kallað krakkaskap og fífla læti, fyrir neðan virðingu full- orðins fólks að halda því á loft og hafa skemmtun af. Þó hefur það varðveitzt í frásögnum af gömlum ieikjum, að til var að fólk hér á landi skemmti- sér Margrét Olafsdóttir og Gisli Halldórsson í hlutverkum í 3. atriði. Þjófar, lík og falarkonur EFTIR DARIO FO Þýðandi: Sveinn Einarsson — Leikstjóri: Christian Lund við þess háttar gaman, en líka að oftast nær gekk það út i einhverjar öfgar. Það má kann- ski segja, að þetta gaman hins ítalska höfundar gangi líka út í öfgar, en það er soralaust með öllu, lætur að minnsta kosti öll málefni í friði og heggur hvergi hlífar af manninum að minnsta kosti; öfgamar verða þá helzt í ærzlunum, en það er matsat- riði og fer bæði eftir leikurum og áhorfendum. En enginn skyldi halda að það væri vandalaust að túlka gaman sem þama er á boðstólum; ekki fyrir okkur, sem eigum ekki þetta létta skap og stundarkæti þeirra á Suðurlöndum og óneit- anlega bar nokkuð á þessum stirðbusahætti, sem er þjóðar- einkenni okkar, fyrst í leiknum — það var eins og leikendurnir þyrðu ekki almennilega að ærsl- ast eins og efni stóðu til af ótta eða feimni við áhorfendur; eins og þeir spyrðu sjálfa sig hvort þetta væri hægt hérna, frammi fyrir virðulegum frumsýningar- gestum, enda bersýnilegt að fmmsýningargestir spurðu hins sama: litu í laumi hver á ann- an — getur hann hlegið að þessu, og þó fyrst og fremst, getum við hlegið að þessu. En smám saman fór að losna um þessar hömlur, frumsýningar- gestir gleymdu því að þeir voru ekki neinir, krakkar lengur og þegar leikararnir fundu breyt- inguna á andrúmsloftinu, náðu þeir sér óðara á strik, svo að þarna varð um gagnkvæma keðjuverkan að ræða. Það er kannski rangt að tala um sjónleik, þvf að þetta eru i rauninni þrír einþáttungar og ekkert samband þeirra á milli innbyrðis efnislega; það er ein- ungis stíllinn, sem tengir þá, frá sagnarmátinn. Mér fannst fyrsta atriðið, eða fyrsti þátturinn, veikast og rislægst, en ef til vill var það mest fyrir það, að þetta var fyrsta atriðið — að leikendur, höfundur og áhorf- endur voru að kynnast og ekki vissir um hvort þorandi væri að sleppa þéringunum, en þetta ger breyttist strax við upp- haf annars atriðis — þegar þeir Gísli Halldórsson og Brynjólf- ur Jóhannesson tóku forystuna í leiknum, og þau Erlingur Gísla son, Bríet Héðinsdóttir og Pét- ur Einarsson fylgdu þeim svo fast eftir, að ekki mátti á milli sjá á köflum. Að mínu áliti var þetta atriði heilsteyptast að leik, sé hægt að tala um heilsteypt ærsli. Mætti og segja mér, að það væri bezt gert frá höfundar- ins hendi. Þeir Brynjólfur og Gísli voru bókstaflega óborgan- legir — og þó sér í lagi Gísli. Þess ber að geta, að þessi þátt- ur verður enn hreinræktaðra gaman á sviði hér en suður á Italíu, því að höfundur veitist þar að bandittarómantíkinni, sem ekki á sér nein ítök hjá okkur .. . ekki þessi, sem þarna er sveigt að. Okkar banditta- rómantík er annars eðlis og þarf ekki annað en að skreppa í Þjóðleikhúsið um þessar mundir til að kynnast henni lítillega, fullvissa sig um að hún sé til, þó að öll sé hún daufari en sú ítalska, að minnsta kosti eins og þau fimmmenningamir túlk- uðu hana. Þriðja og síðasta atriðið var óneitanlega gamansamt, og margir leikendanna fóru skemmtilega með það gaman — og enn var það Gísli Halldórs- son, sem hafði forystuna á hendi, þó að leikendur veittu honum örugga og skemmtilega fylgd. Haraldur Bjömsson naut sin mun betur þar en í fyrsta atriðinu, en eitthvað skorti í leik og látbragð Guðmundar Pálsson ar i öskutunnunektarsýning- unni, kannski var hátíðleikinn ekki nógu sannfærandi, brodd- borgarayfirbragðið ekki nógu stílfærð andstæða nektarinnar og tunnunnar. Sænskur leikstjóri, komung- ur, Christian Lund, var ráðinn hingað til að annast stjóm og sviðsetningu leiksins. Hann hef- ur áreiðanlega unnið vel. Ein- hvern veginn finnst mér að þetta gaman geti varla legið vel við sænskum, en það er kannski misskilningur, eða leik- stjóri þessi undantekning — og kannski er æska hans honum einmitt hjálparhellan. Steinþór Sigurðsson hefur gert atriðun- um skemmtilega og viðeigandi umgerð, eins og hans var von og vísa. í leikslok var leikend- um klappað lof í lófa og eins í lok atriða ... Loftur Guðmundsson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.