Vísir - 20.03.1965, Blaðsíða 3
VÍSIR . Laugardagur 20. marz 1965.
Lítill labbakútur, sem hljóp :m stokka og steina.
Fóstrurnar voru að hjálpa börnunum að byggja sér lítið hús á „Höllunum“, en það heita kletta-
borgimar sem bamaheimilið og hin fagra Kópavogskirkja standa á. Fóstran heitir Oddný Gests-
dóttir og er til hægri en við hlið hennar er Anna Jensdóttir, og lengst til vinstri er HeiBrún Guð-
mundsdóttir.
. . og þá er húsið risið af grunni. íbúarnir fluttir inn og virðast ánægðir vel. Innst situr Marla litla
með bros á vör ,þá Jónína, Svana og Iris, sem fór hjá sér þegar hún var mynduð.
Klettarnir í garðinum eru skemmtilegri en nokkur leiktæki og þar láta börnin ímyndunaraflið vinna.
Kristinn litli beitti Jónínu vinkonu sinni fyrir í Bonanza-leiknum.
Vorsólin er farin að skína. Á
hverjum degi sem liður er sól-
in örlftið hærra á lofti, vermir
eilftið meira og senn em bömin
farin að verða meira áberandi f
lelk úti við.
í gær fór MYNDSJÁIN f heim
sókn á barnaheimilið f Kópavogi,
en það tók til starfa fyrir nokkr-
um mánuðum og er hin þarfasta
stofnun eins og gefur að skilja f
þessum bammarga bæ, sem segja
má að hafi byggzt upp á barna-
fólki og ungu fólki sem hefur ver-
ið að stofna heimili.
Bamaheimilið er mjög skemmti
lega úr garði gert og úti við
voru börnin að leik í garðinum,
sem býður upp á mjög mlkla fjöl-
breytni. Bömin voru á elnu máli
um að vinsælasti leikurinn þama
væri BONANZA. Þetta hafa þau
lært f sjónvarpinu, en leikur þessi
var einu sinni kallaður kúreka-
leikur eða Roy Rogers-leikur, en
svona breytast tímamir og börn-
in með.
☆
SÓL OG VOR
HJÁ ÞEIM UNGU
í KÓPAVOGI