Vísir - 20.03.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 20.03.1965, Blaðsíða 16
 .7"' ISIF Fræðslu núm- skeiðíð ; Næsti fundur á fræðslunám- ) skeiði verklýðsráðs Óðins verð- ur í Valhöli næstkmiandi mánu- dagsk. kl. 8,30. Bjarni B. Jóns son hagfræðingur talar um á- stand og horfur í efnahags- og itvinnumálum. Á eftir verður málfundur. I Holræsið mikla tilbúið / haust Holræsið mikla í Fossvogi mun að öllum líkindum kosta eitthvað yfir 40 milljónir króna. Sagði Pétur Jónsson fram- kvæmdastjóri Véltækni h.f. í gærkvöldi, að verkinu miðaði allvel áfram og vonaðist hann til að því lyki í októbermánuði n. k. Hefur verið unnið af miklu kappi við þessa miklu fram- kvæmd síðan í október 1963 og mun því taka tvö ár að ljúka því.Er holræsið liðlega 7 kílómetrar, nær frá sjávarmál- inu skammt fyrir neðan Olíu- félagið Skeljung í Skerjafirði upp að Árbæ fyrir innan Elliða- Unnið er nú á þrem stöðum að holræsinu og eru milli 40 og 50 menn þar í vinnu með fljótvirk tæki, vélskóflur, jarð- ýtur, sem vinna á hinum geysi Framh. á bls. 6 \ Laugardagur 20. marz 1965. Drottningin I síðustu ferðinni Kaupmaunahöfn í gær. Ganila farþegaskipið Dronn- ing Alexandrine lagði í morgun af stað í siðustu ferð sína til Reykjavíkur. Þegar skipið kem ur til baka úr þessari ferð verð- ur það selt Að þessu sinni voru með skip- inu nokkrir farþegar danskir og Framh. á bls. 6 Nýtt tæki hefur verið prófað hjá Eðlisfræðistofnun Háskólans undanfama daga. Það er útvarps tæki, sem notað er til að tíma- setja gervitung! á brautum þeirra og er hingað komið á vegum Lundúnaháskóia og Kon unglega brezka vísindafélagsins. Enskur eðiisfræðingur, Ken Fea, hefur unnið að því að reyna tæk ið hér, ásamt dr. Þorsteini Sæm undssyni, sem sér um jarðeðlis- fræðirannsóknir Eðlisfræðistofn unarinnar, og Hjálmari Sveins- syni. Ken Fea kom til landsins á miðvikudagskvöldið og hafði þá Framh. á bls. 6 HAFNAR HÉR Á LANDI Ekki skyggnilýsing í Frfkirkjunni Skyggnilýsingarfundi þeim, sem hafði verið boðaður f Fríkirkjunni 29. þ.m. hefur nú verið aflýst. Safnaðarráð kirkjunnar ákvað að draga leyfið til baka. Blaðið hafði nýlega samband við Kristján Siggeirsson formann safnaðarráðs Frfkirkjusafnaðarins. — Þegar við vorum beðnir á sínum tíma um afnot af kirkjunni var það gert af hálfu Sáiarrann- sóknarfélagsins. Var gefið í skyn að hér væri um erindi að ræða eða eiithvað þvíumlikt, og var því erindið auðsótt. Við er- um það frjálslyndir að við höf- um leyft t.d. Hjálpræðishernum Skátum og Fíladelfíusöfnuðí að halda samkomur hjá okkur, þeg ar mikið hefur legið við hjá þeim. En þá kom frétt og viðtal við Ottó A. Michelsen, ritari Sálar- rannsóknarfélagsins i einu dag- blaði borgarinnar, þess efnis að hér yrði um miðilsfund að ræða og skipti það engum togum að sím- hring’ingum linnti ekki hjá okkur. Það var kallaður saman safnaðar- ráðsfundur og þar samþykkt að draga leyfið til baka. Það var aldrei talað um miðils- fund eða skyggnilýsingu, enda hefðum við aldrei viljað leyfa það. Haraldur Níelsson hélt á sínum tíma oft samkomur i k’irkjunni, en það voru aðeins erindi og messur, sem hann hélt. Það voru ágætis samkomur. Vísir hafði tal af Ottó A. Mich- elsen. Hann sagði að skyggnilýs- ingarfundurinn yrði haldinn i ein hverju öðru húsnæði I stað Frí- kirkjunnar innan tiðar. Radiotækið í notkun við að mæla feril gervitungla. Við tækið er Hjálmar Sveinsson, þá Þorsteinn Sæmundsson og Bretinn Ken Fea. TÍUNDI STARFSFRÆÐSLU- DAGURINN Á MORGUN Á morgun verður tíundi al- menni starfsfræðsludagurinn haldinn í Iðnskólanum í Hátíðasal flytur forseti ís- lands, herra Ásgeir Ásgeirsson, ávarp. Stúlknakór undir stjórn Jóns G. Þórarinssonar syngur, en að athöfninni í Hátiðasal lokinni, leikur drengjahijóm- sveit undir stjórn Karls O. Run óifssonar í anddyri Iðnskólans eða úti fyrir aðaldyrum ef veð ur ieyfir. Klukkan 14 er húsið opnað aimenningi og stendur starfs- fræðslan til klukkan 17. Veittar verða upplýsingar um 170 starfs greinar, skóla og stofnanir, en leiðbeinendur eru mun fleiri. Ef lagðar eru við þessa tölu þær starfsgreinar, sem frætt var um á starfsfræðsludegi sjávarútvegs ins hinn 28. febrúar s. 1., verða starfsgreinar, sem unglingar hafa átt kost á að fræðast um á þessum tveimur dögum 214. Til samanburðar má geta þess að á fyrsta starfsfræðsludegin- um var leiðbeint um 67 starfs- greinar og leiðbeinendur voru 70. Að undirbúningi og fram- kvæmd starfsfræðsludaganna tveggja í vetur vinna milli 5 og 600 manns. Þá má geta þess að í sambandi við þessa daga Framh. á bls. 6 - v ; n ! < V.k\'W %• ?. ?'¥■'*> #!’>« T *>- •» »*...

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.