Vísir - 20.03.1965, Blaðsíða 7
V ISIK . JLaugaraagur zu. marz iuöd.
#
Æskan
undir
merki
Krists
MBBS "■
Ó, syng þínum Drottni
Sitt hvorum megin í kirkjunni
fyrir framan kórinn sitja ferm-
ingarbömin svo hátíðlega al-
varleg á svip, telpumar í síð-
um, blúndulögðum kjólum,
drengirnir í svörtum fötum með
hvíta slaufu, því að þetta er
löngu áður en sr. Jón á Akra-
nesi fann upp fermingarkyrtl-
'ana. Uppi í kórdyrunum stend-
ur gamli presturinn í svörtu
hempunni sinni og heldur yfir
okkur fermingarræðuna. Hann
að hann er orðinn ellimóður og
andstuttur eftir að vera búinn
að prédika í 47 ár. Sjálfsagt hef-
ur ekki verið neitt sérstakt við
þessa fermingarræðu. Hún hef-
ur áreiðanlega verið gott og gilt
Guðs orð eins og sr. Jóhanns
var von og vísa. Ekkert situr
samt eftir af henni í minni þess
fermingardrengs, sem þetta rit-
ar, nema það, sem hér segir:
„Kæru fermingarbörn. Mig
langar til að gefa ykkur gott
ráð, sem ég veit að verður ykk-
ur til blessunar í lífinu, ef þið
farið eftir því. Við ykkur stúlk-
ur vil ég segja: Gangið í K. F.
U. K., og við drengina: Gangið
í K. F. U. M. Það er hollur fé-
lagsskapur. Þar fáið þið gott
ferðanesti út á æviveginn. Þar
verður ykkur ekki kennt neitt
annað en gott. Þar verður ykk-
ur leiðbeint um margt, hjálpað
til þess að lifa þannig að þið
verðið nýtir menn, ykkur og
foreldrum ykkar til gagns og
sóma“.
Syngið Drottni nýjan söng.
fermingarbörnum frá vorinu
1924, sem fengu þessi heilræði
fermingarföður síns sr. Jóhanns
Þorkelssonar, hafa farið eftir
því. Hitt er ekki að efa, að mik
ið hollráð var það, sem hanr;
gaf, því að ekki getur ung stúlka
heppilegri félagsskap heldur en
K. F. U. K. og K. F. U. M.
★
Þessar endurminningar vökn-
uðu eitt kvöldið nú í vikunni á
Æskulýðssamkomu K. F. U. M.
og K. í Laugarneskirkju. Kirkj-
an er full af fólki á öllum aldri,
en meiri hlutinn er ungt fólk,
sem fylgist vel með öllu, sem
fram fer^ hlustar af athygli á
alvarlegan boðskap ræðumann-
björtum æskuglöðum rómi. Og
eldra fólkið syngur líka og lítur í
kringum sig af hrifningu, því að
það er svo glatt cg ánægt yfir
því að æskulýðurinn er hér fagn
andi og biðjandi í húsi Guðs en
ekki reikand; úti á hálum heims
K.F.U.M. og K. hefur haldið
Æskulýðsviku í Laugarneskirkju
í rúman áratug og hafa þær
helzt aldrei fallið niður. Sóknar-
presturinn — sr. Garðar Svavars
son og sóknarnefndin^ (formaður
hennar er Hjörtur Guðmunds-
son, varðstjóri) hafa sýnt þessu
starfi mikinn skilnmg og góða
fyrirgreiðslu, enda hefur K.F.U.
M. og K. alltaf verið kirkjulegur
félagsskapur og hlýtur sam-
kvæmt eðli sínu og uppruna hér
á íslandi að vera það. Hann er
eina verulega kröftuga leik-
mannshreyfingin innan fslenzku
kirkjunnar og það er mikil fórn
fýsi og mikil fyrirhöfn, sem
liggur að baki öllu því víðtæka
og fjölþætta starfi, sem fram fer
í félögunum allan ársins hring.
Og það er mikið starf, sem ligg-
ur í því að koma á samkomu-
haldi eins og því sem fram fer í
Æskulýðsvikunni, sjá um kynn-
ingu, prentun og auglýsingar, en
um það sér sérstök nefnd úr
Laugarnesdeildum félagsins, fá
ræðumenn sem geta gefið sér
tíma og lagt vinnu í að semja
ávörp og erindi og svo fólk til
að annast allan þann margþætta
söng_ sem fram fer á hverri
samkomu, einsöng, kvartett,
kvennakór og blandaðan kór.
Um þann þátt samkomuhaldsins
hafa aðallega annazt þau Helga
Magnúsdóttir skólastjóri, Kristín
Þór skrifstofustúlka og Gústaf
Jóhannesson gjaldkeri. Vita all-
ir, sem til þekkja hvert feikna
starf liggur í því að æfa og und
irbúa söngfólkið.
í lok einnar samkomunnar
hitti ég sóknarprestinn í Laugar
nesi sr. Garðar Svavarsson.
— Þú sækir Æskulýðssam-
„Já, alltaf þegar ég hef tæki-
færi til. Mér finnst það eink-
ar ánægjulegt að svo gott sam-
starf skuli vera milli K.F.U.M.
og K. og kirkjunnar. Það er góð
vika hér í Laugarnessókn með-
an æskulýðsvikan stendur. Það
er gleðilegt að sjá yngri og eldri
streyma til kirkjunnar og fylla
hana kvöld eftir kvöld. Það er
uppörvandi fyrir okkur prestana.
sem höfum oft svo misjafna
kirkjusókn að sjá vott þess,
hve rík ítök kristinn boðskapur
á í mörgu fólkj, því að þar sem
sannleiksorð Jesú hljóma skír og
skær, þar er upplýsandi birta og
hjálp fyrir hvern þann, er geng-
ur í einhverju myrkri".
Fyrstu æskulýðsvikur K.F.U.M.
og K. í Laugarneskirkju voru
undirbúnar af aðalfélaginu, sem
hefur bækistööð sína við Amt-
mannsstíg. Hin síðari ár hafa
þær meir og meir hvílt á deild-
um félagsins f Laugarnesi, sem
eiga sitt eigið hús við Kirkju-
teig 33. Þar er blómlegt starf,
unnið af fórnfúsum meðlimum í
þágu æskunnar. Þar eru fundir
fyrir unglingadeild K.F.U.K. öll
mánudagskvöld kl. hálf níu en
fyrir K.F.U.M. á föstudagskvöld
um á sama tíma. Auk þess eru
tómstundakvöld á þriðjudögum
kl. 8-10.
★
Æskulýðsvikan í Laugarnes-
kirkju í ár stendur þessa viku og
lýkur á morgun. í kvöld sjá
Kristileg Skólasamtök um sam
komuna, á morgun verður
messa og altarisganga kl. 2. Og
svo annað kvöld lokasamkom-
an. Þá er efnið: Minnstu Jesú
Krists, ræðumaður Bjarni Eyj-
eða ungur maður valið sér ins brautum. komurnar sr. Garðar. ólfsson.
t herrans helgidómi .
talar hægt og með hvíldum, því Ekki er nú vitað hve mörg af anna, það sem syngur sálmana,
Kirkjan
og þjóðin