Vísir - 07.05.1965, Side 1
VISIR
— Föstudagur 7. maí 1965. — 102. tbl.
MNNEKLA LAMAR AF-
GRELBSLU SKIPANNA
Togaraafgreiðslan verður verst úti
Verið að landa spærlingi Ur Hvalfelli
miðum.
í morgun. Skipið var að koma úr tilraunaveiðiferð á heima-
Mjög víðtækur skortur er á
hafnarverkamönnum i Reykja-
vík og Hafnarfirði. „Það er
voðalegt til þess að vita að
þegar einhver fiskur fæst þá er
ekki hægt að taka á móti hon-
um“. Þetta sagði Hallgrímur
Guðmundsson, verkstjóri Tog-
araafgreiðslunnar í stuttu viðtali
í morgun.
Togaraafgreiðslan verður
sennilega verst úti af völdum
skortsins á verkamönnum. Júpi-
ter og Hvalfell luku löndun í
gærkvöldi í Reykjavík og voru
búnir að bíða nokkra daga eftir
löndun. Tók hún 2 daga en ætti
að taka helmingi styttri tíma
með meiri mannskap. Um 20
manns voru að vinna að þessu
en ef vel á að vera þarf 45—
50 manns. Fylkir sem var búinn
að bíða hér í 4 daga fór í Hafn-
arfjörð með aflann en ekki er
vitað hvort betur gengur þar,
því Hafnfirðingar eigá við sama
vandamál að etja. í dag verður
byrjað á löndun úr Aski, sem
kom í morgun.
Ekki er ósennilegt að skóla-
piltar snúi sér eitthvað að vinnu
við höfnina, þegar þeir losna úr
skóla og rætist þá væntanlega
eitthvað úr skortinum. Margir
hafa krækt sér í aukaskilding á
sunnudögum með því að vinna
við fisklöndun eða uppskipun
á vörum, en nú hefur Dagsbrún
tilkynnt að verkamenn muni
ekki vinna „á eyrinni“ á sunnu-
dögum í sumar. Mun það gert
vegna undirskriftasafnana verka
mannanna sjálfra. Gildir þetta
til 1. ‘október.
Við hringdum í mann sem titl-
aður er yfirverkstjóri Eim^kipa-
félagsins „á eyrinni“ í morgun
og báðum um upplýsingar um
fólksskortinn. Var manninum
tregt tungu að hræra og
varð hinn versti við. Samkv.
upplýsingum sem Sigurlaugur
Þorkelsson, blaðafulltrúi, safn-
aði síðar saman fyrir Vísi, eru
7—8 svokölluð fastagengi starf-
andi, en það eru vinnuhópar,
sem vinna í lestunum. Séu
fleiri en tvö skip inni í einu er
hætta á að fólksskorturinn geri
vart við sig. Aukalið þarf í
vöruskemmur félagsins, og
sömuleiðis eftir að gengin eru
komin í vinnu, en þau sitja að
sjálfsögðu fyrir allri vinnu.
Vinnuaflsskorturinn er því
mjög tilfinnanlegur við höfn-
ina. Sama saga mun vera hjá
Ríkisskip, Sambandinu og
smærri félögunum, — fólk vant-
ar.
Borgarstjórnin heimilar aðild Reykja-
víkur að stórvirkjunarfrumvarpi því, er
liggur fyrir Alþingi
Á fundi borgarstjómar í gær
var samþykkt að Reykjavíkur
borg skuli taka þátt í Lands-
virkjun, samkvæmt frumvarpi
þvi, er liggur fyrir Alþingi. Á
þann hátt verður Reykjavíkur-
bórg í framhaldi af aðild sinni
i Sogsvirkjun aðili í virkjana-
heild, er tekur við eignum og
skuldbindingum Sogsvirkjunar
og reisi orkustöðvar viðar um
land.
Borgarstjóri tók fyrstur til
máls, rakti meginatriði frum-
varpsins og útskýrði hina ýmsu
liði. Tillagan sem borgarstjóri
lagði fram var svohljóðandi:
Borgarráð leggur til við borg
arstjórn, að Reykjavíkurborg
verði í framhaldi af aðild sinni
að Sogsvirkjun aðili að virkjuna
fyrirtæki, er taki við eignum og
skuldbindingum Sogsvirkjunar
innar og reisi allt að 210 þús.
kílóvatta raforkuver í Þjórsá
við Búrfell, í meginatriðum í
samræmi vio frumvarp til laga
um Landsvirkjun.
Guðmundur Vigfússon (full-
trúi komma) tók næstur til
máls, kvað hér staðið í leyni-
samningum við erlend auðfélög,
og stærð Búrfellsvirkjunarinn-
ar sýndi, að orkan væri eink-
um ætluð útlendingum. Bar
hann fram breytingartillögu á
þá leið, að farin yrði smávirkj-
analeiðin fyrst um sinn þ. e.
reist lítil gufuvirkjun í Hvera-
gerði, og síðar, þegar þörf Is-
lendinga væri orðin meiri, þá
yrði ráðizt f stórvirkjun. Til-
laga Guðmundar var felld, einn
ig varatillaga hans um að Búr-
fellsvirkjun verði eigi stærri en
70 þús. kw og orkan eingöngu
seld innlendum aðilum.
Flokkssystir Guðmundar,
Adda Bára Sigfúsdóttir tók í
sama streng og hann, en viídi
auk þess fullyrða, að sérfræð-
ingar þeir, er að álitsgerðum
hafa unnið, væru látnar segja
hálfan sannleikann, svo hægt
væri að komast að rangri niður-
stöðu.
Einar Ágústsson (F). ræddi
um að nú þegar væri búið að
verja 35 — 40 milljónum til und
irbúningsframkvæmda við Búr-
fell, svo ekki væri ráðlegt að
hætta við þá virkjun. Auk þess
benti hann fulltrúum komm-
únista á það álit sérfróðra
manna að ísmyndun í Þjórsá
verði aldrei svo mikil, að hún
geti raskað að verulegu leyti
heildarniðurstöðutölum áætl-
unarinnar.
Fleiri , tóku til máls og af-
sönnuðu fullyrðingar kommún-
ista, og kváðu þar ekki ráða
vísindalegar niðurstöður sér-
fræðinga, heldur önnur og ann-
arlegri sjónarmið.
Að lokum tók borgarstjóri,
Geir Hallgrímsson, til máls.
Gagnrýndi hann árásir kommún
ista á vísindamenn þá, er starf-
að hafa við rannsóknir þessar.
Kvað hann hagsmunum Reykja
víkur og Reykvíkinga sómi hafa
Framh. á bls. 6
200 erlendir laga-
verðir hér í sumar
á norrænu s’óngmóti lögreglukóra
Stálu ísskápum og snyrti-
vörum fyrir 70þás. krónur
Ákveðið hefur verið að bjóða
hingað til lands 200 lögregluþjón-
um frá Norðurlöndum næsta sum-
ar. Koma þeir hingað í boði lög-
reglukórs Reykjavíkur í tilefni af
því að hér á að halda mót nor-
rænna lögreglukóra. Ráðgert er að
mótið standi kringum eina viku
og án efa munu hinir norrænu lög
reglumenn setja svip á höfuðborg-
ina, en þeir koma fram í sínum
einkennisbúningum. Meðal hinna
erlendu lögreglumanna, sem koma
hingað, eru aílmargir þeirra hátt-
settir í lögreglunni, m.a. er ráð-
Framh. á bls. 6
Tveir ungir menn um tvítugt
hafa viðurkennt þrjá þjófnaði.
Stálu þeir tveimur nýjum is-
skápum og snyrtivörum fyrir
um 40 þús. krónur á tveimur
stöðum. Stálu þeir þessum hlut
um án þess að brjótast inn
þegar -eir fóru t.d. með is-
skápana lét annar þeirra loka
sig inni.
Málið hefur verið hjá rann-
sóknarlögreglunni undanfarna
daga og hefur Njörður Snæ-
hólm varðstjóri haft rannsókn
þessa með höndum.
Piltarnir munu hafa byrjað á
því að stela tveimur ísskápum
frá Sambandinu en verðmæti
þeirra beggja er um 30 þúsund
krónur. Stálu þeir ísskápunum
með þeim hætti, að annar þeirra
lét loka sig inni í húsinu, þar
sem skáparnir voru geymdir og
siðan kom kunningi hans hon-
um til aðstoðar.
Ekki létu þeir sér það nægja
að ná í tvo nýja ísskápa, heldur
stálu þeir næst snyrtivörum
ýmiss konar fyrir um 20 þús.
krónur. Hafði annar þeirra starf
að hjá heildsölufyrirtæki og
hafði lykil undir höndum, þann
ig að þeir þurftu lítið að hafa
fynr þessum þjófnaði.
Það er ekki vitað hvort þeir
höfðu í hyggju að setja á stofn
snyrtivöruverzlun, nema hvað
þegar þeir stálu næst, tóku
þeir úr geymsluporti Hafskips
við Njarðargötu snyrtivöru fyr-
ir svipaða upphæð og höfðu
þeir þannig komizt yfir mikið
úrval af snyrtivörum fyrir um
40 þús. krónur auk ísskápanna
tveggja.
Þegar piltarnir voru hand-
teknir höfðu þeir nær allan
þennan varning undir höndum.
Ekki er vitað til þess að þeir
hafi komizt undir manna hend-
ur áður.