Vísir - 07.05.1965, Side 6
u
V í S I R . Föstudagur 7. maí 1965.
Athugasemd frá
Áka Jakobssyni
Lögmaður Jósafats Amgrtms-
sonar, Áki Jakobsson hrl. sendi
Vísi í gær eftirfarandi yfirlýsingu
og bað blaðið að birta hana vegna
fréttatilkynningar um Keflavíkur-
málið f dagblöðunum í fyrradag.
Fer yfirlýsing lögmannsins hér á
-?ftir:
Út af hinni furðulegu fréttatil-
kynningu embættis saksóknara rík
isins varðandi ákæru á hendur
Jósafat Amgrímssyni o.fl. tel ég
mig knúinn til að taka það fram,
að. Jósafat var ekki verktaki að
verkum þeim sem málið hefur snú
'■'.t um.
Þær nafnritunár,,falsanir“, sem
áttu sér stað eru framkvæmdar
vegna bókhaldshagræðingar hjá
hinum bandarísku aðilum, vegna
-'trangra reglugerðarfyrirmæla,
samkvæmt einstökum fyrirmælum
heirra hverju sinni, framkvæmd'á-
'krifstofum viðkomandi stofnana
á Keflavíkurflugvelli, og allar á-
vísanir og skjöl undantekningar-
Iaust undirrituð og staðfest af
hinum bandarísku forstjórum við-
komandi stofnana.
Nafnritanir þessar vom með
fullri vitund og samkvæmt fyrir-
mælum hinna bandarísku yfir-
manna stófnana þessara. „Nafnrit-
anafalsanir" þessar vom ekki not-
aðar í neinum samskiptum manna
á meðal heldur eingöngu sem bók-
haldsgögn hinna bandarísku stofn-
ana.
Engin fjárdráttur eða fjársvik
áttu sér stað í sambandi við þetta
mál, enda hafa engar kærur borizt
um slíkt og saksóknaraembættið
verður að viðurkenna þessa stað-
reynd vegna þess að það treystir
sér ekki til að hafa uppi fjár-
svikaákæru í máli þessu.
Saksóknaraembættið sparaði ail-
ar yfirlýsingar og fréttatilkynning
ar til blaða sl. vetur, þegar Jósafat
Arngrfmsson var af nokkmm dag-
...blöðum bæjarins borinn sökum um
milljónatuga króna fjársvik á með
an hafin. sat f gæzluvarðhaldi og
gat ekki borið .hönd fyrir höfuð sér
Það er rétt hjá Þjóðviljanum, að
rannsóknardómarinn hefur forðizt
að beina rannsókn sinni að hinum
bandarísku aðilum, sem fýrirskip-
uðu þessar „falsanir."
í sambandi við þetta Keflavíkur-
mál vil ég taka þetta fram: Mál
þetta var hafið með slíku offorsi
af hálfu saksóknaraembættisins og
rannsóknardómarans að menn
héldu að hér væri um stó-rfellt
fjársvikamál að ræða. Hin mikla
rannsókn sem vafalaust kostar nú
mörg hundmð þúsund krónur, leið
ir hins vegar í Ijós að engin fjár-
svik eða fjárdráttur hefur átt sér
stað, og ennfremur leiðir rannsókn
in f ljós að gæzluvarðhaldsúrskurð
ur yfir 3 mönnum var algerlega á-
stæðulaus, enda einn gæzluvarð-
haldsfanginn ekki einu sinni á-
kærður.
Það er rannsóknarefni hvemig
þetta svokallaða Keflavíkurmál er
upp komið. Mér virðist mikil þörf
á að rannsakað verði hvert er upp
haf þessa máls, einkum með tilliti
til þess að réttaröryggi í landinu
er í hættu, ef hægt er að setja í
gang refsivörzlustofnanir þjóðfé-
lagsins af annarlegum ástæðum.
Út af ákæm í tékkamáli ísfé-
lags Keflavíkur skal fram tekið að
þar liggja ekki fyrir neinir tékkar
sem gefnir hafa verið út án heim-
ildar opinb. lánastofnunar enda
það staðfest í framhaldsrannsókn.
Enginn þessara tékka var gef-
inn út af Jósafat Arngrímssyni.
Engar upplýsingar liggja fyrir
í máli þessu um fjárhagstjón af
útgáfu þessara tékka.
Áki Jakobsson, hrl.
Þyrlan —
Framh. af bls. 16
Keflavikurflugvelli að hann gæti
ekki dregið úr orku hreyfilsins og
mundi því lenda með hraða.
Vitni sáu síðan að þyrlan lækkaði
"lugið úr 300 feta hæð með mikilli
'erð, sem leiddi til að þún stakkst í
jörðina. Vitnin hafá skýrt svo frá,
að trjönan hafi leitað upp á við áð-
ur en þyrlan fór að missa hæð og
rfefndi síðan bratt niður og þyrlu-
blöðin svignuðu upp.
Ýmislegt bendir til þess að þyrl
an hafi hallað til hægri og fram
þegar hún kom niður og að flug-
maðurinn hafi enga stjórn haft á
henni.
Brak úr þyrlunni hefur verið flut
vestur um haf til rannsóknar á
rannsóknarstofu flotans þar.
Síldarskip —
Framh. at bls 8
armenn tileinki sér full not af
fiskritanum og læri að nota
hann sem réttast. bæði sem
leitartæki og veiðitæki. 1 bók-
inni er gefin skýr og augljós
mynd af úllum þeim þáttum,
sem verður að taka tilit til og
gerðar tillögur hvernig leitað
og kastað skuli með fiskritan-
um, en það seinastnefnda verða
menn einnig að læra af reynsl
unni, en ráðleggingar geta
miög flýtt fyrir beirri kunn-
áttu.
í eftirmála segir Davíð Ólafs
son m. a.
Tækniþróun í veiðum með
herpinót bæði við síldveíðar og
þorskveiðar hefir verið með
ólíkindum á undanförnum ára-
tug. Grundvöllinn að þessari
þróun má segia, að sá að finna
í fiskileita’-t'Mríijm sem hafa
gerbreytt viðhorfum fiskimanns
ins til fisksins með því að auð
velda honum svo mjög að
finna fiskitorfurnar ekki aðeins
á hvaða dýpi, sem þær kunna
að vera, heldur einnig á stóru
svæði lágréttu út frá skipinu.
í flestum tilfellum má segja, að
þegar fiskimaðurinn hefir tek-
izt að fá fiskitorfuna inn á leit
artæki sitt og hún er innan
þess sviðs, sem veiðarfærið
nær til, þá séu örlög torfunnar
ráðin.
Þekking fiskimannsins á tæk
inu og möguleikum þess við
hinar margvíslegustu aðstæður,
sem náttúran býður upp á er
þv£ eitt hið þýðingarmesta við
þær veiðar, þar sem fiskleitar
tækjum verður við komið.
Nausyn fræðslu á þessu sviði
er því óumdeilanleg og ekki
sízt fyrir það, að þróunin er hér
mjög ör og fiskimanninum því
mikil nauðsyn á að geta fylgzt
með henni.
Tóbak —
■ ramii i 16. síðu
það samþykkt til 3. umræðu
í neðri deild.
En við þá umræðu gerist það,
að nokkrir þingmenn, þeir Birg
ir Finnsson, Halldór E. Sigurðs
son og Pétur Sigurðsson, bera
fram frávísunartillögu á þá
leið að frumvarpinu verði vís-
að til ríkisstjórnarinnar. Töldu
flutningsmenn, að frumvarpið
næði alls ekki tilgangi sínum,
þar sem mikið væri flutt inn í
landið af erlendum blöðum og
tímaritum og í þeim væri tals
vert af alls konar tóbaksauglýs
ingum. Töluverðar umræður
urðu um málið á Alþingi í gær
en að lokum var frávísunartil-
lagan samþykkt að viðhöfðu
nafnakalli með 24 atkvæðum
gegn 12.
Skottaeftirlit —
Framh. af bls. 16
leysi skal hann sekur um allt að
helm. þeirrar fjárhæðar, er undan
skyldi draga. Sömu viðurlög hlýtur
sá er aðstoðar við rangt skatt-
framtal.
Ef endurtekin og stórfelld brot
má dæma menn til allt að 2 ára
varðhaldsv. Sérstök nefnd skal á-
kveða sekir nema ríkisskattstjóri
eða sökunautur óski eftir að málið
i
fari fyrir dómstólana.
Ennfremur er gert ráð fyrir £ til-
lögum nefndarinnar, að slysa- og
sjúkradagpeningar svo og greiðslur
vegna veikinda eða slysa úr sjúkra-
sjóðum verkalýðsfélaga skuli und-
anþegin skattálagningu.
Var frumvarpinu svo breyttu
vlsað til neðri deildar.
Landsvirkjun —
‘-ramn at jís 1
verið sýndur með þessu fram-
faramáli, og ennþá sannaðist
forystuhlutverk Reykjavfkur í
raforkumálum. Okkur væri
nauðsyn að hugsa stórt og taka
stór skref, og með þvi að ráð-
ast í stórvirkjun og flytja stór
iðju inn í landið gætum við
framleitt ódýrari raforku fyrir
landsmenn er stuðla myndi að
auknum og fjölbreyttari at-
vinnuháttum íslendinga.
Frumvarpið var síðan sam-
þykkt með atkvæðum allra
nema kommúnista.
Lögreglukór —
Framh. at bls. i
gert, að lögreglustjóri Oslóborgar
komi hingað.
Lögreglukór Reykjavíkur var 30
ára á sl. ári og hefur starfsemi
kórsins staðið með miklum blóma
að undanskildum strfðsárunum.
Hefur kórinn bæði sungið inn á
hljómplötur og komið fram opin-
berlega. Hefur kórinn farið tvisvar
sinnum utan og tekið þátt i nor-
rænum söngmótum lögreglumanna
Er það nú orðin venja að lögreglu
kórar Norðurlanda komi saman á
fimm ára fresti i höfuðborg eins
Norðurlandanna.
Á síðasta móti voru bornar fram
margar óskir um að mótið yrði
haldið næst á Islandi og hefur lög
reglukór Reykjavíkur, en f honum
eru 20 menn, tekið að sér að sjá
um mótið.
Á fundi með blaðamönnum fyr-
ir skömmu skýrði stjórn kórsins
frá þessari fyrirhuguðu heimsókn
og lét þess jafnframt getið að þar
sem hér væri um að ræða mjög
stóran hóp manna og kostnaðar-
samt mót hefði lögreglukór Rvík-
ur ákveðið að gangast fyrir happ
drætti. Eru 10 vinningar í boði, en
aðalvmniri""’-5"" er Volkswagen-
bifreið. Heitir stiórn lögreglukórs-
ins á almenr>-'“- "ð stvðja kórinn
svo að mótið geti farið vel fram
og orðið þióðinni til sóma.
Menn óskast
Okkur vantar nokkra laghenta starf«smo«*
strax.
, S "i8h>{ .Ti92 ^nriBm aesq esea sínriBq í
h/f O F N A S MIÐ J A N Sími 2l2zu
(íNHOLTI »0 - R £ VKJAV/ÍIC - ÍSIANOI tJUUI'
Snyrtibekkur
Til sölu snyrtibekkur og tveir lampar. Sími
37207 kl. 3—6 í dag.
Bíll til sölu
Renault ’55 illa útlítandi ógangfær með ný
uppgerðri vél með sæmilegum gangpörtum
Verð gæti orðið hagstætt ef samið er strax.
Uppl. í síma 40533 milli kl. 7—8 á kvöldin.
Blómabúðin Gleimmérei
Blómaker, garðpottar, blómapottar, gróður-
mold, fræ, laukar, afskorin blóm og potta-
blóm. Opið til kl. 2 laugardag og sunnudag.
GLEYMMÉREI
Sundlaugavegi 12 Sími 22851
íbúð til leigu
Góð 4 herbergja íbúð í Hlíðahverfi til leigu
frá 14. maí n.k. fyrirframgreiðsla nauðsyn-
leg. Tilboð merkt, Boga.hlíð — leggist inn á
augl. Vísis fyrir 12. maí.
Laghentur maður
Laghentur maður óskast strax. Uppl. kl. 10
—12 og 1—3 á morgun (laugard.)
BITSTÁL Griótagötu 14. sími 21500
Happdrætti Háskóla islands
Á mánudaginn verður dregið í 5. flokk*
2,100 vinningar að fjárhæð 3.920.000 Kivnur. Á morgun eru seinustu forvöð að endumýja.
5. flokkur.
2 á 200.000 kr. 400.000 kr.
2 á 100.000 - 200.000 -
52 á 10 000 - 520.000 -
180 á 5.000 - 900.000 -
1.860 á 1.000 - 1.860.000 -
Aukavinningar:
4 á 10.000 kr. 40.000 kr.
Happdrætti Háskóla íslands. 2100 3.920.000 kr.