Vísir - 07.05.1965, Blaðsíða 11
VÍSIR . Föstudagur 7. maí 1965.
n
VALUR sýndi það bezta
Valur og KR bítast um sigur í R-víkurmótinu á mónudag
Valsmennsýndu það bezta
sem til þessa hefur sézt í
knattspyrnuheiminum hér
í vor í gærkveldi, þegar
þeir sigruðu Fram með 4:0
á Melavellinum. Þeir höf ðu
úthaldið og kraftinn, sem
þurfti til að skora mörkin
og það er einmitt það sem
er frumskilyrðið til að
vinna leik, enda þótt knatt
spymumönnum vorum
gangi misjafnlega að skilja
það.
Ingvar Elísson og Reynir Jóns-
son, báðir aðkomumenn í meistara
flokki Vals, annar af Akranesi
hinn úr Kópavogi, eru greinilega
farnir að finna sig betur í liðinu
og ég mundi segja að þeir fremur
en aðrir hafi verið mennirnir að
baki þessa stóra sigurs í leik sem
var mun jafnari en tölurnar gefa
til kynna.
Ingvar Elísson er mjög mark- j
heppinn maður og sýndi það í j
bessum leik að hann var ævinlega
bar sem hann fékk boltann í góðu
færi, enda voru 3 markanna frá
honum, en eitt frá Matthíasi Hjart
•<r$yni.
Ingvar skoraði fyrst á 25. mín
fyrri hálfleik, þá á 2. mín seinni j
hálfleik, en Matthías skoraði á 37.
mín. og Ingvar tæplega tveim mín-
itum síðar.
Næstu leikir
í knottspyrnu
Á laugardag fara fram á Mela-
velli 2 leikir í I. flokki. Kl. 14.00
leika Valur og Víkingur og strax
á eftir Fram og K.R.
Á sunnudagskvöld kl. 20.00 leika
á Melavelli Fram—Þróttur og á
mánudagskvöld kl. 20.30 Valur—
K.R. og þriðjudagskvöld leika
Vikingur—Þróttur..
Á fimmtudag fer fram á Mela-
velli bæjarkeppni milli Reykjavík-
ur og Akraness.
Framarar sýndu framan af öllu
betri samleik, en allur kraftur og
harka var Valsmegin. I seinni hálf-
leik voru það Valsmenn, sem höfðu
trompin á hendi sér. Ekki svo að
skilja að Framarar hafi ekki átt sín
tækifæri, heldur hitt að þeir gátu
ekki notfært þau. Hinn þróttmikli
lörl
3
JL
handknattleiksmaður, Sigurður
Dagsson í marki Vals. átti auðvelt
með að verja markið áföllum.
T7alsmenn eru eftir þenpan leiV
með beztu stöðuna 1 mótinu og
mundi ég telja þá sigurstrangleg-
asta í mótinu ásamt KR, sem
vitanlega verða þeim skeinuhættir.
nnemasBléa .0 n Jjí T7'4ÞP~
•#WII “
Hópsýnipg á Spartakiad.
16 ÞIÍSUND SEM EINN MÁÐUR
Stórkostlegasta hópsýn-
ing á fimleikum, SPARTAK-
IAD, haldin / Prag í júlí
Það bar við snemma í júlí
1955 að fólk sem horfði á sjón-
varpsdagskrá í vestur Úkraínu
í Russlandi fékk nýja mynd
inn á sjónvarpsskerminn, dag-
ikráin var skyndilega rofin án
nokkurs fyrirvara með glæsi-
legri hópsýningu frá geysistór-
um íþróttaleikvangi, þar sem
búsundir manna, allir eins
klæddir, framkvæmdu fimleika-
sýningu á ótrúlega nákvæman
og öruggan hátt. Og sýningin
hvarf aftur og tónlistin sem
hafði fylgt þagnaði, og dag-
skráin sem sýnd hafði verið héit
áfram eins og ekkert hefði í
skorizt.
Nokkru síðar var skýring
fundin á þessu fyrirbæri. Loft-
truflun hafði orðið til þess að
sjónvarp frá Tékkóslóvakíu
barst án sendistöðva eða mót-
tökustöðva í Rússlandi nokkur
hundruð kílómetra vegalengd til
Úkraínu. Dagskráin sem Úkra-
ínubúar höfðu fengið að sjá
hluta af var Spartakiade-hátíðin
mikla, sem haldin var í tilefni
af 10 ára afmæli tékkneska lýð-
veldisins.
Nú eru 10 ár liðin frá þessum
atburði og í júlíbyrjun verður
Spartakiadehátíðin, hin þriðja í
röðinni, haldin til að fagna 20
ára afmæli lýðveidis .' Tékkó-
slóvakíu. Hundruð þúsunda
munu fylgjast.með hópsýningum
fimleikamanna, sem hafa verið
undirbúnar og æfðar svo mán-
uðum skiptir. Ætingar sem
þessar eru í rauninni einstakar
og hrelnt og beint ótrúlegar fyr-
ir almennan áhorfenda. Þau at
riði, sem hafa ílesta þátttak-
endur eru með um 16.000 þátt-
takendur en það atriði er fram-
kvæmt af kvenstúdentum og
mönnum úr herjunum, iðnnem-
um og yngri og eldri fimleika-
mönnurn. Minnsta sýningin er
býsna stór, ' 2000 úrvals fim-
leikamenn sýna á ýmsum áhöld-
um, og er þetta erfiðast allra
hinna mörgu atriða á sýningar-
skránni á Strahov-vellinum.
Spartakiade-dagamjr verða
frá I. til 3. iúlí að báðum dög-
um meðtöldum, en ymis hátíða-
höld önnur fara að sjálfsögðu
fram og verður því mikið um
dýrðir í Prag þessa daga.
Ungar <og svifléttar stúlkur á einni sýningimni.
- --trsL3í