Vísir - 22.05.1965, Qupperneq 11
VI S IR . Laugardagur 22. maí 1965.
J
Á MORGUN kl. 16 hefst íslandsmótið í knattspyrnu með tveim
leikjum úti á landi. Annar leikjanna er í Njarðvík, hinn á Akur-
eyri. Sennilega verður það sammerkt le kjunum, að þeir ver'ða
hnífjafnir og spennandi.
NJARÐVÍK
Keflvikingar hafa ekki vakið
mikla aðdáun í vor fyrir leik
sinn, enda eru meiri kröfur gerð
ar til liðs þeirra þar eð þeir
bera kórónu íslandsmeistaranna.
Enginn vafí er þó á að Keflvík
ingar eru harðir í horn að taka
og eflaust eiga Skagamenn eftir
að komast að því & morgun.
Akurnesingar hafa einu sinni
komið fyrir augu reykvískra á-
horfanda og fengu góðan dóm,
liðið var á tilraunastigi, en síð-
an hefur Ríkharður Jónsson
komið í liðið og lék stöðu fram
varðar og þótti mjög uppbyggj
andi og góður leikmaður. Lið-
ið er án vafa sterkt. Hrakspár
hafa undanfarin 5—6 ár fylgt
Akranesliðinu en alltaf hefur
það staðizt prófraunina. ! 11
ár hefur liðið svo til alltaf ver
ið í fyrsta eða öðru sæti, —
aldrei neðar en í þriðja. Glæsi-
legur árangur, sem ekki verður
sleginn næstu árin.
Það er ekki auðvelt að spá
fyrir um úrslit leiksins milli
Akraness og Keflavíkur, en jafn
tefli eða ein marks sigur annars
hvors ekki ólíklegur.
AIÍUREYRI
Akureyringar hafa æft af mikl
um móði og án efa munu þeir
taka á öllu sem þeir eiga með
heimaáhorfendur til að hvetja
sig á morgun, þegar þeir leika
sinn fyrsta leik í 1. deild gegn
Fram eftir að þeir unnu sig aft-
ur upp í deildina eftir eins árs a
fjarveru. Lið Akureyrar er lítið
breytt, reynslumikið lið og gott
lið, þegar allt kerfið vinnur sam
an, en á því vill verða misbrest
ur.
Fram barðist í bökkum í fyrra
í 1. deild og sumir spá því að
svo verði einnig nú. Ekki er ég
alveg viss um að það verði.
Framarar hafa oft sýnt ótrúlegt
þrek á úrslitastundum og án efa
munu þeir byrja þegar í fyrsta
leik að safna stigunum. Lið
þeirra hefur heyrzt mikið frá
í sumar. Það er skarð fyrir skildi
að missa Geir markvörð og Bald
vin Baldvinsson, sem fór í KR,
en góðir einstaklingar hafa kom
ið upp í staðinn. Nú er aðeins
spurningin um hvort þeim tekst
að klóra sig áfram. Ég spái
naumum sigri Akureyrar á
heimavellinum. — jbp —
Sunnudaginn 23. maí kemur
hingað til lands enska 2. deildar-
liðið Coventry City og mun leika
þrjá leikj á Laugardalsvellinum. Á
mánudag leika þéir gegn Bikar-
meisturunum K.R., á miðvikudag
gegn íslandsmeisturunum frá
Keflavík og á föstudag gegn úrvali
landsliðsnefndar. Allir léikirnir
hefjast kl. 20,30. Það þykir ætíð
stórviðburður hér •fo' okkar fá-
breytta knáftsþyrnUheimi að fá
hingað enskt atvinnúlið og er Co-
ventry vafalaust nr. 2 að styrk-
leika þeirra ensku liða sem heim-
sótt hafa okkur, aðeins Liverpool
er sterkara. Einnig hefir virzt svo
á undanförnum árum, að strákarnir
okkar hafi orðið skarpari í leik
sínum eftir að hafa leikið við gott
lið í vorheimsókn og er ekki að
efa að svo verður nú.
Coventry City F. C. er stofnað
1883 undir nafninu Singers F. C.,
en endurskipulagt undir núverandi
nafni 1908. Veturinn 1935—6 unnu
þeir sig upp í 2. deild og var bezti
árangur þeirra fyrir stríð nr. 4
1938. Þeir féllu aftur niður í 3.
deild og alveg riiður á neðsta þrep
4. deildar, en unnu sig fljótlega
upp og hafa verið á uppleið síðan.
Eftir að Jimmy Hill tók við fram
kvæmdastjórn félagsins, en hann
var áður leikmaður hjá Fulham og
formaður samtaka atvinnuknatt-
spymumanna og þótti atkvæða-
mikill í þeirri stöðu, hefir nýtt lif
færzt í knattspyrnu Coventryborg-
Æfingar hjá
| ar og t. d. var meðalaðsókn að
1 heimaleikjum félagsins veturinn
1963 — 4 eða árið sem þeir unnu
sig upp í 2. deild 28.000 mans, sem
er hátt hlutfall jafnvel miðað við
1. deildarlið.
SQRQ MR j MÁRKVARÐ A N NA
c^url n OÍTíTí ’ íhTT i nt?,u | nv-.í!IIvT ;6u ift-jsv ;i
.. fp, tí nORfíIf|:>ir 'tít1/5ÍÖ ! •. „kf. (’*’ ».>* .,,*■'
n08BÍf|5Ír '"TbÍÖ
Leikur KR og Vals í fyrrakvöld var oft skemmti-
legur og tvísýnn og mörg augnablik í ieiknum voru
hrollvekjandi, bæði fyrir liðsmenn og áhangendur
liðanna á áhorfendapöllunum. í dag segjum við
sögu tveggja markanna í myndum. Báðar þessar
myndasögur hafa eitt sameiginlegt, — þær eru
raunasaga markvarða beggja liðanna.
1. Heimir stekkur léttilega upp eftir aukaspyrnu, sem kom hátt að markinu. — 2. Heimir hefur misst boltann og horfir eftir skoti
Reynis Jónssonar í netið. Reynir er lengst til hægri á myndinni. Valsmenn hýrir, KR-ingar daprir á myndinni.
Knattspyrnuæfingar Umf. Breiða
bliks í Kópavogi verða þannig i
sumar:
5. fl. á miðvikudögum og föstudög-
um kl. 6—7
4. fl. á sömu dögum frá kl. 7—8
3. fl. á mánudögum og miðviku-
dögum kl. 8—9
Meistara- og 2. flokkur á mánu-
dögum og miðvikudögum kl. 8,
föstudögum kl. 8,30.
Þjálfarar 4. og 5. flokks eru
Sveinn Skúlason og Þórður Guð-
mundsson, hjá 3. fl. þjálfar Sölvi
Óskarsson, en Pétur Bjamason þjálf
ar elztu flokkana.
Hvetur Breiðablik þá sem hafa
áhuga á að æfa með félaginu að
mæta á æfingar hjá félaginu á vell
inum við Kópavogsbraut.
Keflavék-Akranes og Akureyri-Fram ern fyrsfu Seikirnðr
Breiðabliki
1. Sigurður Dagsson stekkur upp, — en ekki nóg að vera hár í loftinu og boltinn hoppar yfir hann og Björn Júlíusson. — 2. Bald-
vin KR-ingur, lengst til vinstri á myndinn', hefur skorað, Sigurþór fagnar, Sigurður Dagsson lengst til vinstri, heldur um
höfuð sitt yfir vonbrigðunum og Björn Júlíusson liggur á jörðinni eft r oð hafa reynt að bjarga.
COVENTRY - KR
ANNAÐ KVÖLD