Vísir - 26.05.1965, Side 1
ISIR
1965. - 118. tbl.
Heildarsamningafundur í dag
1 dag verður haldinn sam-
eiginlegur samningafundur með'
fulltrúum vinnuveitenda og
verklýðsfélaganna hér fyrir
sunnan og á Norður- og Aust-
urlandi. Hefst fundurinn í Al-
þingishúsinu kl. 2,15 í dag.
Eftir þeim upplýsingum sem
Vísir aflað sér i morgun verður
á þessum fundi aðeins rætt um
eMHHMnwMan
þær sameiginlegu krofur verk-
lýðsfélaganna sem fram eru
komnar. Það er um styttingu
vinnutímans og aukið orlof, úr
3 vikum í 4. Verklýðsfélögin
fyrir norðan og austan hafa
þegar sett fram kröfur um hækk
að kaup einnig, en þær kröfur
hafa ekki enn verið settar fram
af fulltrúum verklýðsfélaganna
hér fyrir sunnan.
í kvöld heldur trúnaðarmanna
ráð Dagsbrúnar fund og er bú-
izt við að línumar skýrist eftir
þann fund og skriður komist
meiri á samningaviðræður. I
gær störfuðu undirnefndir í
samningaviðræðunum við verk-
lýðsfélögin fyrir norðan og
austan.
Nóg síld aðeins 55 mílur frá landi
Kapphlaup síldarbáta á Austfjarðamið þremur vikum
fyrr en venjulega. Hafþór fer norður að leita. Viðtal
vtð iakoh Jakobsson fiskifræðing
Enn hafa fundizt þykkar síldartorfur á kasthæfu dýpi
fyrir austan og enn eru þær nær landi. Þau fáii veiðiskip,
sem komin eru austur, fylla sig á skömmum tíma, og fá
skjóta löndun. Síðast fann Ægir í nótt mikla síld aðeins 55
mílur austur af Dalatanga, yzt í Seyðisfjarðardýpinu.
Síldveiðin fyrir austan er
hafin þremur vikum fyrr en
í fyrra, enda voru margir út-
gerðarmenn óviðbúnir í þetta
sinn, og flýta sér nú allt
hvað af tekur við að koma
skipum sínum út hið allra
fyrsta. Sagt er, að einn skip
stjóri hafi verið svo æstur í
að komast út, að hann hafi
kastað um leið og hann sigldi
út úr höfninni hér fyrir vest
an land.
Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur sagði blaðinu í
morgun, að Krossanesið og
Jón Kjartansson hefðu feng-
ið fullfermi 75 mílur norður
af austri frá Dalatanga, þar
sem Hafþór fann síldina í
fyrrinótt. Var Jón með 2200
mál og Krossanesið 1700. í
nótt klukkan þrjú fann Ægir
svo enn mikla síld í þykkum
torfum og í þetta sinn aðeins
55 mílur austur af Dalatanga.
Þangað voru skipin að flykkj
ast, þegar blaðið var að tala
við Jakob, Reykjaborgin var
búin að kasta og var með
600 mál, Bjartur frá Norð-
firði var að kasta, Dagfari
var að koma og sömuleiðis
Þorsteinn, sem var búinn að
landa fyrstu síld sumarsins í
Neskaupstað. Stjaman var
komin út á 75 mílurnar, þar
sem Hafþór var.
Veður var með bezta móti
á öllu þessu svæði, síldar-
torfurnar nógar og það ofar-
lega í sjónum, að það mátti
kasta á þær.
VEIÐIST EKKERT
NYRÐRA?
Jakob sagði blaðinu, að
fyrsta síldin veiddist yfirleitt
fyrir norðan land, og Aust-
fjarðaveiðin byrjaði yfirleitt
ekki fyrr en síðari hluta júní,
14. júní í fyrra. I þetta sinn
Framh. á bls. 6.
býr kjarakröfu
Bandalag starfsmanna rík-
is og bæja undirbýr nú tillög
ur sínar í kjaramálum og
kröfugerð. Eiga þær tillögur
að hafa komið fram samkv.
lögum fyrir 1. júní. Á þingi
í vor var lögunum um kjara
samninga og kjaradóm opin-
berra starfsmanna breytt
þannig að frestir til samn-
inga voru lengdir og hefur
málið því eftirfarandi gang
á næstu mánuðum:
Fyrsta stálskipið í slipp
Suður I Garðahreppi er unn-
ið af fullum krafti að því að
Ijúka smíði nýs skips, sem er
nær 200 tonn. Það er Stálvík,
sem smíðar bátinn, og þessi i
mynd var tekín fyrir nokkru
þar suður frá, rétt eftir að vinnu
degi lauk og skipasmiðimir
höfðu fengið greitt vikukaup
sitt. Vísismenn hittu þá „um
borð“ Jóhannes Jóhannesson,
skipatæknifræðing og Garðar
VISIR
Á morgun er uppstigningar-
dagur og kemur VÍSIR þá ekki
út. Næsta blað kemur út á
föstudaginn 28. maí.
Sigurðsson, verkstjóra í Stálvík,
þar sem þeir vom að fá sér í
nefið. Bak við sést bátur, sem
kominn var i slipp hjá Stálvík.
Er tillögur opinberra starfs
manna hafa komið fram er
þriggja mánaða frestur til
samninga við ríkið. Ef samn
ingar hafa ekki tekizt kem-
ur þann 1. september til
kasta sáttasemjara. Ef sam
komulag næst ekki fyrir til-
stilli hans á að vísa málinu
til Kjaradóms þann 1. októ-
ber. Dómurinn hefur síðan
tvo mánuði til starfa og skal
hann kveða upp dóm sinn í
síðasta lagi 1. desember. Er
þá miðað við að dómur hans
taki gildi 1. janúar 1966.
Þá var einnig gerð breyt-
ig á ákvæðunum um kjara-
samninga bæjarstarfsmanna,
þannig að Kjaradómur skal
ganga í þeirra málum 15. des-
ember og er þá einnig mið-
að við að sá dómur taki gildi
1. janúar. <
Clay vann Liston
á rothöggi í nátt
CASSIUS CLAY vann sigur
í nótt yfir SONNY LISTON í
heimsmeistarakeppninni i hnefa-
leik, en tugmilljónir manna
fylgdust með keppninni i sjón-
varpi og útvarpi í nótt.
Það tók Clay aðeins 1 mínútu
og 45 sekúndur að yfirbuga
andstæðing sinn, en sagt er frá
keppninni á íþróttasíðu, bls. 11,
í blaðinu í dag.
SíUarflataiagaskipiu ivö átbúia
Dælur settar í Þyril í tiýækesiandi og Klettsskipið er á leið til Þrándheints
Þyrill, sem keyptur hefur ver
ið t;i síldarflutninga hefur nú
hlotið nafnið Dagstjaman og er
um þessar mundir i Þýzkalandi,
þar sem all-miklar breytingar
eru gerðar á skipinu m. ?.. sett
í það cnnur síldardæla eg sér-
stök aflvél fyrir síldardæl-
urnar. — Pí sagði JóisaS Jons-
son forstjóri Síldar og fiski-
mjölsverksmiðjunnar í stuttu
viðtali við Vísi í morgun, að
skip það sem fyririækið festi
nýlega kaup a kæmi hingað
sennilega um miöjan júlimánuð
og færi þá beint í sfldarflutn-
:ng a.
Samkvtemt upplýsingum sem
Vísir hefur fengið hjá Guðfinni
Einarssyni í Bolungarvík er
Dagstjarnan eign Bolvíkinga að
% hlutum og Isfirðinga að l/3
hluta. Sagði Guðfinnur að gert
væri ráð fyrir að Dagstjarnan
yrði komin á miðin um miðjan
júní. Eins og fyrr segir verður
sett í skipið önnur síldardæla
til viðbótar við þá, sem sett var
í það í fyrra og með tilkomu
nýju dælunnar er gert ráð fyrir,
að hægt verði að dæla um borð
100 tonnum á kiukkustund, en
í fyrra var hægt að dæla um 75
tonnum. Þá er einnig verið að
útbúa skipið þannig að löndun
Framh. á bls. 6.