Vísir - 26.05.1965, Blaðsíða 11
VI S 1R . Míðvíkudagur 26. maf 1965.
CASSIUS CLAY VARÐ HEIMSMfíSTARI
EFTIR RÚMRAR MÍNÚTU KEPPNI í NÓTT
Notoði gamalt afbrigði af hægri handar kross-höggi,
sem Liston gat ekki varist-Clay vill mæta Patterson næst
„Mohammed Ali er heimsmeistari“, hrópaði
dómarinn upp yffr sig. Hann virtist í engu minna
uppnámi en allir áhorfendurnir í hnefaleikasalnum
í Lewiston á Maine, þegar Cassius Marcellus Clay,
sem nú virðist hafa fengið nafnið Mohammed Ali
viðurkennt sem sitt aðalnafn, sendi „stóra ljóta
bjöminn“ í gólfið „knock-out“ eftir 1 mínútu og
45 sekúndur.
Það var hægri handar högg, sem Liston féll fyr
ir og þetta var hraðasta „knock-out“ keppni í
sögu hnefaleikanna. Aðeins 4000 manns horfðu á
þessa keppni í Lewiston, en milljónir fylgdust með
á sjónvarpsskermum eða í kvikmyndahúsum, en
þar var keppnin sýnd jafnóðum. Útvarpsstöðvar
voru með mikinn viðbúnað og mannfjölda til að
lýsa keppninni, og ekki hvað sízt útvarpsstöð
bandarísku herjanna og BBC, en á báðar þessar
stöðvar hlustuðu menn hér á íslandi í nótt.
Þeir kapparnir Clay og Liston
voru vigtaðir í gser og var Clay
þá 93.5 kíló og Liston 97.5 kíló.
Eitthvað í kringum 250 lög-
reglumenn voru á verði í húsinu
þar sem keppnin fór fram bg‘
Var ástæðan sú, 'að óhugnánlég-
ar hótanir hafa borizt um líflát
ggggEBfl
frá öfgamönnum í flokki Black
Muslim og er Clay sakaður um
að standa í hópi þeirra sem létu
myrða Malcolm X á dögunum.
Vildu þeir fá þarna tækifæri til
hefnda þar sem allur heimurinn
væri áhorfandi. Leituðu lög-
reglumenn að skotvopnum á á-
horfendum við innganginn og
allt svæðið var fínkembt og
sjálfur pallurinn var grand-
skoðaður til að sprengju væri
ekki laumað undir hann.
Einkum voru það þó konurn-
ar, sem voru rannsakaðar gaum-
gæfilega. Var sagt að kona ætti
að myrða Clay og voru veski
kvennanna yfirfarin til að leita
að vopni, en ekkert fannst.
Dómari í keppninni var hinn
gamli kappi Joe Walcott, en
hann hafði 3ja manna „kvið-
dóm“ til að taka ákvörðun ef
keppnin ynnist á stigum, — en
eins og allir vita þurfti aldrei
að koma til þess.
Clay opnaði keppnina með
hægri og vinstri á höfuð List-
ons, en var þvingaður í vörn
* aftur, þegar Liston sló frá sér.
Með frábærri „fótavinnu"
sneiddi Clay hjá höggunum, en
renndi síðan leiftursnöggt inn
í Liston með hægrihandarhögg.
Liston hélt áfram vörn, en allt
í einu kom nýtt hægrihandar-
högg og Liston fór í gólfið með
brambolti miklu, — — hann
stóð upp í sama mundi og dóm-
Stepin Fetchit, sem hafði kennt
honum þetta afbrigði, en sjálfur
„Eg hafði sagt fólki að ég
hvorki Joe Louis, Rocky Mar-
ciano eða nokkur annar í heim-
Frámh á bls 6
Cassius Clay var hálfsmeykur um að Black Muslims mundu
gera alvöru úr hótun sinni um að myrða hann. Þar segir
hann blaðamanni frá hótuninni og greinilega skelfdur á
svipinn.
Þarna sækir Cassius Clay að Sonny Liston og þjarmar
að honum.
COVENTRY - KEFLAVÍK í kvöld
Þetta er hin unga frú Sonji Clay, sem aldrei er sögð hafa
síðasta orðið á heimilinu ,a. m. k. ekki gegn Cassius Clay.
Þarna er hún að horfa á mann sinn keppa og er greinilegt
að henni er ekki alveg sama um hann og óttast, að hann
hljóti meiðsli.
f kvöld leika Coventry City
og Íslandsmeistarar Keflavikur
á Laugardalsvellinum f Reykja-
vík. Leikurinn hefst kl. 20.30.
Eftir síðasta leik Coventrv
að dæma má búast við að Kefl-
víkingar geti eitthvað hamlað á
móti sigri, en ótrúlegt þykir mér
að þeim takist að sigra eða ná
jafntefli gegn atvinnumönnun-
um.
Lið Keflavíkur mun mæta
með sína sterkustu menn og
sama er um Coventry að segja