Vísir - 31.05.1965, Blaðsíða 3

Vísir - 31.05.1965, Blaðsíða 3
VÍSIR . Mánudagur 31. maí 1965. 3 1 gær var sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt. Hér í Reykjavík var dag- skrá sjómannadagsins fjöl- breytt að vanda. Fyrsti Iiður dagskrárinnar var að séra Grímur Grímsson hélt hátíðamessu í Laugarásbíói. Klukkan 13,30 hófust hátíða- höldin á Austurvelli. Séra Bjami Jónsson vígslubiskup minntist drukknaðra sjómanna, Fánaborg sjómanna á Austurvelli. SJOMANNA- DAGURINN sem á árinu vom 16. Guðmund- ur Jónsson söng. Ávörp fluttu Guðmundur í. Guðmúndsson utanríkisráðh., Matthias Bjama- son alþm., Jón Sigurðsson for- seti Sjómannasambands íslands, og að lokum afhenti Pétur Sig- urðsson heiðursmerki sjómanna dagsins. 1 þetta skipti vom ekki veitt nein heiðursverðlaun fyrir björgunarafrek, en fjórir aldr- aðir sjómenn vom heiðraðir fyrir störf á sjó. Þeir vom Jó- hann Bjömsson mótorvélstj., Guðni Pálsson skipstj., Jón Bjarnason vélstj. og Sigurjón Júlfusson háseti. Að loknum hátíðahöldunum á Austurvelli fór fram kappróður f Reykjavíkurhöfn. Keppnin átti að hefjast kl. 15.30 og þá höfðu safnazt saman mörg þús. und manns á bryggjunum frá Togarabryggjunni að Varð- skipabryggjunni. Allir biðu þess með mikilli eftirvæntingu að keppnin hæfist, en fólk fékk að bíða iengi. Það var ekki fyrr en rúmlega 4, sem sást til fyrsta riðilsins, en þá hafði fólk beðið í meira en hálftima eftir því að keppni hæfist. Það var ekki annað hægt en að dást að langiundargeði alls þessa fólks. í fyrsta riðli kepptu róðrar- sveit 3. bekkjar sjóvinnuverk- náms Lindargötuskóla (timi 3,08,00), róðrarsveit 4. bekkjar sjóvinnuverknáms Lindargötu- skóla (3,01,7) og skátasveitin Hákarl (2,52,6). 1 öðrum riðli kepptu: Róðrar- sveit björgunarskipsins Sæbjarg ar (2,53,2), róðrarsveit Eim- skipafélags íslands (2,59,4) og róðrarsveit björgúnarskiþsins Gísli j. Johnsen (^45,Í)Tén þéír unnu kepþúlria.va ^ ntunhblB í þriðja riðli keppti róðrar- sveit Ólafs járnhauss við tvær sveitir kvenna og vann Ólafur járnhaus þann riðii, enda var stýrimaður Helgi sprettur (Rúrik Haraldsson), sem hvatti menn sína svo ákaft að heyra mátti hvatningarorð hans um alla höfnina. Róðrarsveit Ólafs járnhauss kemur sigurglöð að landi eftir að hafa sigrað kvennasveitirnar báðar. Stýrimaður Helgi sprettur (Rúrik Haraldsson) hvatti menn sína óspart. Guðmundur í. Guðmundsson flytur ávarp. Matthías Bjarnason alþm. flytur ávarp. Sigursveitin, Róðrarsveit björgunarskipsins Gísla J. Johnsen. Aftari röð frá vinstri Elías Árnason, Hrafnkell Þórðarson, Óskar Baldursson og Jón Alfreðsson. Fremri röð: Sigurður Guðmarsson, Jóhannes Briem stýrimaður og Þórður Kristjánss on. r-'ma aííPfl |

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.