Vísir - 03.06.1965, Side 16
C|l M' t * | ' j
m
y M fikNs'H
y
Fknmíudagur 3. júní 1965.
Orðsending
fró Lands-
hnppdræffi
flokksins
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
fresta drætti til 16. þessa mán-
aðar.
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins.
Mynd þessa tók Bjöm Páls-
son flugmaður í morgun við
Surtsey. Sést glöggt á myndinni
hvar hinar nýju eldstöðvar eru
rétt austan við Surtsey.
Finna ekki síid
fyrir norðan land
íslenzku sfldveiðiskipin halda sig
nú öll á stóru svæði 100—120
mflur austur af Langanesi. Þar er
geysimikið magn af síld, en erfitt
að eiga við hana sökum styggðar.
Jón Einarsson, skipstjóri á síldar-
leitarskipinu Hafþór, sagði blað-
inu f morgun, að þeir hefðu séð til
norska síldarleltarskipsins Sars.
Það spannar nú miðin fyrir austan,
en norski flotinn er ekki enn kom-
inn á miðin. Veðrið er Iygnt á
þessum slóðum en svartaþoka, og
hefur verið svo i marga daga.
Norskur Ilnuveiðari, sem kom
inn til Neskaupstaðar í gær, sagð-
ist hafa orðið var við síld á tveim
stöðum fyrir norðan land, á Skaga-
grunni og 20 mílur austur af
Grímsey. íslenzka síldarleitin hefur
ekki frétt af neinni sild á þessum
slóðum. Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur á Ægi, sem er á leið til
Norðurlands, hafði í morgun sam-
band við Sars, og sagði blaðinu,
að norska síldarleitin hefði ekki
heldur frétt af neinni síld þar. Þá
hafa Akureyrarbátar og Jömndur
III kannað svæðið á leið sinni aust-
ur á miðin og ekki orðið varir við
neina síld, svo ekki eru taldar
miklar líkur á, að gleðitíðindin frá
norska línuveiðaranum reynist á
rökum reist.
Á sjöttu síðu Vísis í dag er listi
yfir afla bátanna í nótt.
HÓPUR VÍSINDAMANNA
FARINN ÚT / SURTSEY
Gosið í Surtlu heidur úfrum með sfuffum hléum
þarna fljótandi á sjónum. Ekkert I hans í samræmi við þetta. Gott
gos er f sjálfri Surtsey. skyggni var nú komið til flugs milli
Björn Pálsson flugmaður flaug Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
yfir Surtsey í morgun og er lýsing I Framh. á bls. 6.
Dagsbrúnardeiían
tíl sáttasemjara
Gosið heldur áfram á sömu
slóðum og áður við Surtsey, á
þeim stað sem almennt er kallaður
Surtla. Frá Vestamannaeyjum sást
í gærkvöldi gufustrókur sem virtist
benda til hraungoss í sjálfri Surts-
ey, en í morgun bar ekkert á því.
Kl. 8 í morgun kom svofelld
lýsing frá varðskipi sem statt var
við Surtsey að gosið í Surtlu héldi
áfram með litlum hléum. Mældist
varðskipsmönnum svo til að gos-
hrinurnar stæðu að meðaltali 6
mínútur en á milli kæmi hlé að
meðaltali 1 y2 mínúta. Hæð ösku-
strókanna í Sprengjugosunum er
mest 50 metrar, hæð gufustrókanna
360 metrar. Enn sést ekkert land
upp úr yfirborði sjávarins við
Surtlu, en miklar vikurbreiður eru
í gær var haldinn fundur
vinnuveitenda með fulltrúum
Dagsbrúnar, Hlífar í Hafnar-
firði og verkakvennafélaganna
Framsóknar í Rvík og Fram-
tíðarinnar f Hafnarfirði. Var
samþykkt á fundinum að vísa
deilunni til sáttasemjara ríkis-
ins.
Þá var einnig haldinn fundur,
með sáttasemjara, í gær f deilu
félaganna á Norður og Austur-
Framh. á bls. 6.
FUNDUM 0HEMJUMA GNAFSILD HHH
___.4. ' J: iii --_X
— sagir Magnús á Jörundi III, sem kom með
fyrstu sildina til Krossaness i gær
Fyrsta síldin hefur nú borizt
til Krossaness. Það var aflaskip
ið Jörundur HI., sem kom með
fyrstu síldina þangað í gær um
2300 mál af stórri og fallegri
síld. Jörundur III. var einnig
fyrsta skipið sem kom mcó síld
tíl Krossaness í fyrra. Allt er
tilbúið til sildarmóttöku f
Krossanesi og hefst bræðsla þar
nú þegar.
„Magnús skipstjóri Guðmunds
son stóð brosandi f brúarglugg-
anum og vestfirzka áhöfnin var
í góðu skapi, þegar Jörundur
III. lagðist að bryggju hér í gær
með fyrstu síldina," sagði frétta
ritari Vís'is á Akureyri.
Magnús sagði, að þeir hefðu
fengið síldina um 110 mílur
austur af Langanesi í fyrradag.
„Við fundum óhemju magn af
síld,“ sagði Magnús og benti á
skerminn á dýptarmælinum, er
á var stór svört klessa,
mikil var lóðningin. Jörundur
fékk 2300 mál í 4 köstum og er
þetta allt stór sfld. Þegar frétta
ritari Vísis spurði hann, af
hverju hann hefði komið alla
leíð til Akureyrar með síldina
svaraði Magnús: „Þetta er ef til
vill gamall vani mér líkar alltaf
vel við Eyjafjörð. Annars var
ég að hugsa um að fara til
Vopnaíjarðar, en var hræddur
svo um að eiga það á hættu, að
lokast þar inni vegna ísa, eins
og nú vtrðist ætla að koma á
daginn. Siglingin hingað tók
rétt um sólarhring".
Á MORGUN
Mondo Cane á Islandi: Kurti
Zier, listgagnrýnandi Vísis skrif J
ar grein um sýningu Ferrós íj
Listamannaskálanum.
Madame Butterfly: Þorkell ]
Sigurbjörnsson, tónlistargagn- <
rýnandi Vfsis skrifar grein umj
frumsýningu hinnar kunnu
peru i Þjóðleikhúsinu í kvöld. i
Nýtt snið á héraðsmótm
Sjálfstæðisflokksins
Hljómsveit Svavars Gests annast skemmtiatriBi
Hljómsveit Svavars Gests Garðar Karlssont Reynir Sigurðsson, Magnús Ingimarsson, Svavar Gests, Hall-
dór Pálsson. Að aftan: Ragnar Bjarnason og EHy Vilhjálms.
í sumar efnir Sjálfstæðisflokkur-
inn til héraðsmóta víðsvegar um
landið. Er ákveðið að halda 27
héraðsmót á tfmabilinu frá 11. júní
til 15. ágúst. Samkomur þessar
verða með breyttu sniði frá því,
sem tíðkazt hefur um héðaðsmót
flokksins.
Á héraðsmótunum í sumar munu
forustumenn Sjálfstæðisflokksins
flytja ræður að venju. En auk þess
mun nú sá háttur tekinn upp, að
sérstakur fulltrúi ungu kynslóðar-
innar tali á hverju móti.
Þá verða nú gjörbreytt skemmti-
atriði frá því sem venja hefur
verið. Nú mun hljómsveit Svavars
Gests skemmta á héraðsmótunum.
Hljómsveitina skipa fimm hljóð-
færaleikarar, þeir Svavar Gests,
Garðar Karlsson, Halldór Pálsson,
Magnús Ingimarsson og Reynir
Sigurðsson. Auk þess eru f'hljóm-
sveitinni söngvararnir Elly Vil-
hjálms og Ragnar Bjarnason.
Á hverju héraðsmóti, mun hljóm
sveitin skemmta með margvísleg-
um hætti. Leikin verða vinsæl lög.
Söngur verður, þar sem skiptast á
einsöngur þeirra Ellyar og Ragn-
ars, tvfsöngur og þá mun söng-
Framh. á bls. 6.