Vísir - 04.06.1965, Page 11

Vísir - 04.06.1965, Page 11
V I S I R . Föstudagur 4. júní 1965. f T kvik mynair TONABIO: 'fkviki'* Imyndirl kvik, myndir ik J kvik [ kvi'k } kvik 1 idirjmyndir|myndir]myndirg J kvik, arnyndir kvikl myndirl BLEIKI PARDUSINN — bandar'isk, frá United Artists „Hafi nokkurntíma uppi verið harðduglegur og samvizkusam- ur lögreglustjóri þá er það monsjör Jacques Clouseau (Pet er Sellers) í París. Auk þess er honum margt til lista lagt — hann leikur t. d. á forláta Stradi varusfiðlu úr plasti, og þá eink- um róandi vögguljóð eftir að hann er kominn undir sæng með eiginkonu sinni, hinni ungu og fögru Simone (Capucine). sem hann ann af þeim ástríðu- hita, sem frönskum er í blóð borinn. Hafi nokkurntíma uppi verið afburða snjall og slunginn gim- steinaþjófur, er það Sir Chajles Lytton (David Niven) — brezk- ur aðalsmaður að ætt, en auk þess frægur íþróttamaður og enn frægari sem kvennag'ull. Og nú vill svo til, að enda þótt Simone fagra kunni vel að meta dugnað eiginmannsins sem lögreglustjóra, finnst henni hann ekki einungis óþolandi sem tónlistarmaður heldur og hundleiðinlegur og þreytandi sem eiginmaður. Aftur á móti er hún ástfangin af hinum glæsi lega gimsteinaþjófi og aðals- manni — svo ástfangin, að hún veitir honum al!a þá aðstoð. sem hún má i starfi hans, þó að það samrýmist að sjálfsögðu ekki vel embættisstarfi eigin- mannsins. Þegar svo ein austurlenzk prinsessa, hennar hátign Dala (Claudia Cardinale) kemur allt i einu fram á sjónarsviðið, er ekki að undra þótt dragi til tíð inda, einkum þegar þess er gætt að hennar hátign er ekki einung is töfrandi, heldur á hún og stærsta, fegursta og dýrasta eð- alstein, sem um getur — Bleika pardusinn svokallaða. Þannig eru aðalpersónurnar í Bleika Pardusnum eins og þeim er lýst í „leikskránni". Sögu- þræðinum þarf vart að lýsa — sagan hefur verið framhalds- saga hér í Vísi og notið mikilla vinsælda. Margar stjörnur þöglu mynd anna kunnu illa við, er tal og tónn komu til sögunnar og töldu að þá væri Iokið tímabili, er aldrei kæmi aftur. Og lengi vel höfðu „þöglu stjörnurnar" nokkuð til sfn máls. Fyrst í stað ofnotuðu kvikmyndaframleið- endur hina nýju vídd en minni áherzla var lögð á látbragðslist og leik. Síðan hafa gömlu, þöglu gamanmyndimar með Chaplin, Burster Keaton o. fl. farið sigur för um heiminn og margir full- yrt, að svo „hátt“ gætu gaman myndir aldrei náð á ný. En það leynist einhver kraft- ur í „gömlu Hollywood", sem sendi okkur gamanmyndir á gullöld skopleikaranna. Þaðan kom fyrir fáum árum West Side Story, eitt stórfenglegasta kvik- myndaverk síðustu ára, og nú gamanmyndin Bleiki Pardusinn, sem verður að hljóta 7 stjörnur fyrir skemmtanagildi. Myndin er fyrst og fremst stórkostleg frá hendi Blake Ed- wards, handritahöfundar og leik stjóra, en þó væri hún lítið án tveggja aðalleikaranna, Peter Sellers og David Niven. Einkum er Sellers óborganlegur. Atburðarásin er hæfilega hröð og hinir brezku leikarar setja hinn fágaða, brezka kímni svip á myndina. Hjá því verður vart komizt hér, frekar en annars staðar, að útnefna Bleika Pardusinn ,gam- anmynd ársins" — hún er fyrir „unglinga" á aldrinum frá sjö ára til sjötugs. b. sigtr. George frændi og frú lögreglustjórans. HAFNARFJARÐARBÍÓ: Eins og spegilmynd sænsk, eftir Ingmar Bergman t Það,,pr nokkuð varásamt að fyrir sig ^r.æilací ,að iqggjaíisinn ætla sér að útskýra kyikmyndir eigin skilning í verkið. Bergmans, það er sjaldan hægt Það er óhætt að segja, að að útskýra listaverk til fulls, Bergman hafi notið sömu að- því listnjótandanum hverjum stöðu og Bitlarnir brezku á sín- Systkinin í kvikmyndinni „Eins og spegilmynd". um tíma, það hafði verið skapað hæfilegt andrúmsloft og sviðið undirbúið, svo næsti maður sem fram kæmi yrði krýndur. Japanski kvikmyndastjórinn Akira Kurosawa hafði um ára- bil sent frá sér kvikmyndir sem vöktu eftirtekt og furðu og varð fyrst þekktur fyrir mynd sína „Rashomqn" sem sýnd var á’ kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 1951. Með myndum sínum hafði Kurosawa boðað breyt- ingu í kvikmyndagerð og þegar ungur, sænskur kvikmynda- stjóri, Ingmar Bergman að nafni, hóf að senda frá sér eftir tektarverðar kvikmyndir, þá var brautin rúdd. Árið 1957 sýndi „La Cinémat héque Francaise'1, franska kvik- myndasafnið. nokkrar myndir Bergmans og hundruðir Frakka stóðu i biðröðum til að sjá þær. í þeim hópi voru menn eins og Francois Truffaut Alain Resna- is, Claude Chabrol og fleiri. Það var umrót í heimi kvikmynda- gerðar, boðskapur frelsis og ein faldleika birtist í mörgum nýj um myndum og umrótið hlóðst upp í bylgju, sem sfðan skall allt í einu á strönd kvikmynda húsanna. „The New Wave“ eða „Nýja bylgjan" barst frá Frakk landi til fjölda landa á svip- stundu. Eins og unglingar dá Bítlana sem upphafsmenn bítilæðis og hárprýði, þannig hefur Berg- man orðið nokkurs konar „faðir hinnar nýju stefnu" í kvik- myndalist. Bergman er hin ó- ræða véfrétt og enginn getur talið sér sæmd í að vefengja listaverk hans. Það er því ákaflega stáemt, hversu seint myndir hánS ber- ast hirigað til larids^1 —1 það er rétt eins og fá amerísk dag- blöð send með skipspósti. Og það sem verra er, ég man ekki eftir að hafa séð í kvikmynda- húsi hér á landi nokkra af fyrri myndum Kurosawa. Því miður virðast kvikmyndahúsaeigendur ekki fylgjast of vel með nýjung um í kvikmyndalist, enda eru þeir háðir verðlagseftirliti og ætíð nokkur áhætta í því fólgin að kaupa dýrar myndir, sem seljast áhorfendum á sama verði og ódýrar glæpamyndir. Kvikmyndin Eins og spegil- mynd leiðir áhorfandann til sjálfsskoðunar líkt og myndir Bunuels gera í ríkum mæli, auk þess sem Bergman leggur fyrir áhorfendur spurninguna: Hvað er guð? Kvikmyndunin er lát- laus og einföld og leikur persón anna jafn og einlægur. Ekki verður um myndina sagt, að hún sé góð dægradvöl, en aftur á móti er hún fremur holl mönn um til íhugunar. b. slgtr. Hópferð Dana fíl íslands Að handritamálinu loknu hyggst Dansk-Islandsk Samfund, félag vina og velunnara íslands í Dan- mörku, éfna til íslandsferðar á næstunni. Efnir félagið til hópferð- ar hingað til lands þann 5. júli með leiguflugvél frá Common Aircharter System. Verður dvalizt hér á landi í rúman hálfan mánuð og haldið aftur til Kaumannahafn- ar þann 27. júlí. Fraaskur maður eyddi aleigunni til að gera kvikmynd um tsland KetilB Ingólfsson ver doktersrifgerð í kjorneðiisfræði •Ketill Ingólfsson eðlisfræðingur, tók fyrir nokkrum dögum doktors- próf í kjarneðlisfræði við háskól ann I Ziirich í Sviss. Heitir ritgerð Ketils „Beitrage zu exakten Aus- wertungen in den Quantitatstheorie der Bellenfelder". Ketill er 28 ára gamall Reykvík- ingur, sonur hjónanna Ingólfs Þor- steinssonar, bankafulltrúa og Vil borgar Vilhjálmsdóttur. Að loknu stúdentsprófi frá M.R. 1956 hélt Ketill til Ztirich þar sem hann nam eðlisfræði og nam að auki við tón- listarháskólann þar í borg og lauk prófi þaðan. Franskur áhugakvikmyndatöku- maður að nafni Birmann de Rell es sem ferðaðist um ísland í fyrra sumar til að taka hér kvikmynd hefur nú lokið útgáfu kvikmyndar innar og hefur blaðið fengið þeer fregnir utan frá Paris, að kvik- mynd þessi sé mjög vel gerð. Það var de Relles sem lenti í því slysi eins og margir minnast að falla I hver við Geysi og skað- brennast á fæti. Kvikmynd hans fjallar um ferð til Færeyja, Islands og Grænlands. Höfundurinn eyddi í töku kvikmyndarinnar aleigu sinni, en hann hefur nú selt hana sænsku kvikmyndafyrirtæki, Svensk Filmindustrj sem mun sjá um dreifingu hennar til sjónvarps stöðva. Hún er einnig föl íslenzk- um aðilum, sem vildu fá hana til sýningar. Sá kafli myndarinnar, sem fjall ar um fsland er að sýningartíma 37 mínútur. Efn'i hennar er and- stæða sveitar og bæjarlífs. Fyrst var sýnt landslag, aðallega sandar, fjöll og hverir. Síðan víkur sög- unni til borgarmenningarinnar í Reykjavík hve mikið sé byggt þar og sýndur stórborgarbragur henn ar. Þriðji kafl'i fjallar um sveitalíf í Skaftafellssýslu. fslenzkt tal er með myndinni og annast það j Andri ísaksson sálfræðistúdent. Fulltrúi íslenzka sendiráðsins í j París, Birgir Möller sem hefur séð myndina segir um hana: „Yfirleitt er það um myndina að segja, að upptakan er tæknilega mjög vel gerð og listræn. Samtöl fslending- anna ;ru á margan hátt fróðleg I um land og þjóð, þótt nokkuð séu i þau ungæðisleg á köflum. Cki,.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.