Vísir - 15.06.1965, Side 7

Vísir - 15.06.1965, Side 7
 7 í SIR . Þriðjudagur 15. júni 1965. Greinargerð Christrups lögmanns i handrita- málssókninni rakin H irmlle lovon om udlereringen af de idumkl ' unnar L. Christrup hæsta- ^ réttarlögmaður stefndi í sið ustu viku danska kennslumála ráðuneytinu til ógildingar á lög unum um handritaafhendingu. Mörgum mun þykja forvitnilegt að kynnast því á hvaða rökum lögmaðurinn byggir málssókn sína. 1 málinu verður hann m. a. að byggja málatilbúnað sinn á sjálfri erfðaskrá Áma Magnús- sonar ,en eins og kunnugt er af ýmsum skrifum um það efni eru mörg vafaatriði i sambandi við þá erfðaskrá. Hér verður nú á eftir rakin kafli úr greinargerð þeirri sem Christrup lögmaður lét fylgja stefnu sinni í málinu: "tTinn 6. janúar 1730 sömdu Árni Magnússon prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og eiginkona hans Metta Magn- ússon erfðaskrá þar sem þau því sama ári. Vegna sérstakra fjárhagsskipta milli prófessorsins og rentu- ■ kammersins var ekki hægt að f ljúka búskiptum fyrr en 1756. | Það drógst því að semja skipu » lagsskrá fyrir sjóðinn og áður g en það var framkvæmt dóu þeir báðir skiptaráðendumir. Þeir höfðu þó hvor fyrir sig samið uppkast að skipulagsskrá og i sjóðurinn hafði þegar tekið til : starfa. Á grundvelli þessara tveggja uppkasta, sem voru í öllu i. verulegu samhljóða lét Friðrik f konungur fimmti semja skipu- lagsskrá sem var staðfest 18. janúar 1760. Aðalatriði skipulagsskrárinnar i eru svohljóðandi: „Sjóður Árna Magnússonar samanstendur af þessum eign- hdnthhriflor i Y't**Vgt'árrr *<< f * >>. fiiift ' br( f fwr M>U‘ t 4 _ . * ,. ■ . . »: -----. * • i «U -■< fUtt *fr;i.w*írm*'*m4w» Kowtmi*. '■ , >;».» ittfcr ts J :* « mt\ 4*0* V*tt r*tfi«* t<'W.' ' ' ' ~ ' | I eá. jJ M iit *Íí? Þannig skýra dönsk blöð frá málsókn Christmps. Þau leggja áherzlu á það, að hann hafi stefnt sjálfu ríkinu fyrir dómstól. Þykir þetta óvenjuleg málsókn. jÁrnasafn sjálfstæð stofnun sem nýtur verndar stiórnarskrárinnar •/ * ... Stw nnibd va 'srú**Hr>« , , kváðu á um, hvernig fara skyldi með eigur þeirra við fráfall þeirra. í 4. grein erfðaskrárinn- ar er það ákveðið, að ef prófess orinn falli frá fyrr en eiginkon an skuli allar bækur hans og skjöl, bæði prentuð og skrifuð falla til háskólans, en ef hann lifir eiginkonu sína skuli hann halda bókum sínum og skjölum óhreyfðum þangað til hann fell ur frá. í 7. gr. erfðaskrárinnar er á- kveðið að fjármunir þeir sem ilheyra búinu við fráfall þess tojónanna, sem Iengur lifir, skuli • afloknum vissum greiðslum talla í opinberan sjóð (legat) ög skuli sá sjóður notaður til að styrkja einn eða fleiri stúdenta hverju sinni frá íslandi. Þar er ennfremur ákveðið að Thomas Barholín justitsráð og Hans Granv^, assessor sem vaf kunn- ugt um óskir arfleiðenda skyldi falið að semja nánari reglugerð um starfsemi sjóðsins. I’ 8. grein erfðaskrárinnar er ennfremur að sjóðnum skuli stjórnað af stjórnskipaðri nefnd. Þá er ákveðið í 9. grein að skipta ráðendurnir Bartholin og Gramm skuli hafa algert vald og heimild til að gera breyt- ingar á erfðaskránni. Camkvæmt efni erfðaskrárinn- ar var aðstaðan þannig sú að bækurnar og skjalasafnið skyldu ganga hn í sjóð sem yrði til góða fyrir íslenzka stúd- enta, en skiptaráðendurnir máttu víkja frá ákvörðunum erfðaskrárinnar. Hinn 7. janúar 1730 andaðist Árni Magnússon prófessor og eiginkona hans 15. september á um sem hinn látni gaf til þess í dánargjöf: 1) Lausa fé sem nú er að upphæð 13,356 ríkisdalir, 1 mark og sex skildingar. 2) íslenzk og önnur handrit, og að mestu leyti óprentaðar bækur, samkvæmt bókalista sem gerður hefur verið. 3) Prentaðar bækur, sem all ar eru nefndar hver á sínum stað f bókalista Háskólabóka- safnsins og skuiu um eilífð verða notaðar til að upplýsa og stuðla að þvf, að á prent komist allt sem varðar norræna sögu, sögu Danmerkur, Noregs og þeirra landa sem undir þau heyra, sögu þeirra, tungu og fomieifar, þar á meðal frásagnir um gamla tíma á Norðurlönd- um, landafræði, lög, venjur, siði, Iifnaðarhætti, listir, vísindi, myntgerð, minnismerki og allt annað þvílíkt. Og að þessu skuli vissir styrkþegar og skrifarar stöðugt vinna að undir eftirliti og stjóm sjóðsstjórnenda eftir reglum sem hér verða nánar á- kveðnar“. Af þessum ákvörðunum má sjá, að s(i breyting hefur verið gerð á ákvæðunum frá því sem stóð f erfðaskránni, að það er ekki aðeins lausafé sem fellur til sjóðsins heldur einnig bóka og skjalasafn prófessors- ins. Það er einnig tekið fram f skipulagsskránni að eignir sjóðsins skuli varðveittar með eignum háskólans og að tveir forstöðumenn skulu stjóma sjóðnum, kosnir af háskólaráði. 1 skipulagsskrá eru svo mörg ýtarleg ákvæði um rekstur og stjóm sjóðsins, er þar m. a. tek ið fram að ekkert fmmrit eða skjal megi lána út nema alveg sérstaklega standi á og aðeins í ákveðinn tíma og ennfremur að ef forstöðumennimir geri ekki skyldu sína, þá hafi allir og hver og einn rétt til að kæra það til háskólans. Þegar þessi skipulagsskrá var samþykkt var sjóðurinn þar með formlega stofnaður, hann ræður yfir höfuðstól og lausafé, hef- ur stjóm og hlýtur að njóta venjulegrar réttarverndar. lif’eð reglugerð 24. september 1772 var hin fasta Áma Magnússonar nefnd stofnuð og eiga sæti í henni hinir tveir for stöðumenn og fjórir aðrir nefnd armenn. Þessi nefnd er hinn raunverulegi stjómandi sjóðs- ins. Samsetning nefndarinnar og tala nefndarmanna hefur síðan breytzt sbr. konungsskipanir frá 1850, 1883 og 1936. Er nú ákveðið að í nefndinni skuli eiga sæti 11 menn, sem eru kosnir með ákveðnum hætti, þó þann- ig og hinir tveir forstöðumenn skulu kosnir af háskólaráði og eiga þeir að hafa eftirlit á veg um háskólans sérstaklega með því að ákvæði skipulagsskrár- innar séu haldin. 1 núgildandi reglugerð um þetta segir, að þær breytingar sem gerðar hafi verið á stjóm stofnunarinnar breyti í engu eignarréttarafstöðu Árna stofnunar eða afstöðu háskól- ans til hennar. í þessari konunglegu tilskipun er byggt á því, — og á öðru var heldur ekki hægt að byggja, — að Árna Magnússonar stofn unin sé sjálfseignarstofnun sem er undir eftirliti Kaupmanna- hafnarháskóla og undir beinni stjórn nefndarinnar. Slík sjálfseignarstofnun er sjálfstæð persóna að lögum og nýtur venjulegrar réttarvernd- Jslendingar hafa all lengi gert kröfur um afhendingu á handritasafni því sem tilheyrir Áma Magnússonar stofnunni. Með lögum númer 194 frá 26. maí 1965 um breytingu á skipu lagsskrá Áma Magnússonar sjóðsins hefur nú verið ákveðið að stofnuninni skuli skipt í 2 deildir, þannig þau handrit og skjöl stofnunarinnar sem teljast íslenzk menningareign skuli af- hent Háskóla íslands til varð- veizlu og geymslu ásamt með ákvæði um að hæfilegur hluti höfuðstóls sjóðsins skuli afhent ur Háskóla fslands. Það sem í rauninni gerist sam kvæmt þessum lögum er að hluti eigna Áma Magnússonar stofnunarinnar, bæði hluti hand rita og skjala og hluti fjármuna eru afhent íslandi. það atriði að þessi afhending er framkvæmd í formi skipt ingar á Árna Magnússonar stofn uninni skiptir ekki máli. Það er bara formsatriði sem er valið til að reyna að gefa þessum gemingi réttarlegan grundvöll. Sé ekki hægt með lögum að skipa Árna Magnússonar stofn uninni að afhenda hluta eigna sinna til fslands, þá er ekki hægt að fá sömu niðurstöðu með skipt ingu á stofnuninni. Það eru aðeins efnisstaðreynd ir sem skipta máli ekki forms- atriði. Sjóður Árna Magnússonar (Árna Magnússonar stofnunin) er sjálfseignar stofnun sem hlýt ur að njóta venjulegrar réttar verndar fyrir lausafé sitt og höfuðstól. Með fyrrnefndum lög um er um að ræða þvingunaraf sal á lausafé og höfuðstóli. Clíkt þvingunarafsal er aðeins hægt að framkvæma svo framarlega sem skilyrðin sam- kvæmt 73 grein stjórnarskrár innar eru fyrir hendi. Sam- kvæmt því ákvæði er eignarrétt urinn friðhelgur, og það er ekki hægt að skylda neinn til að af- henda eign sfna nema almenn- ingsheill krefji og þá er því að- eins hægt að gera það með lög um og með fullum bótum fyr- ir. Því skal mótmælt að tillit til almenningsheilla krefjist afhend ingar til Islands á lausafé og höfuðstól stofnunarinnar. Þar við bætist að nefnd lög inni halda engin ákvæði um skaða- bætur. Þess vegna er þess óskað að lög þessi væru dæmd ógild sem stríðandi gegn 73. grein stjórnar skrárinnar. Þar við skal bætt, að þar sem skilyrði 73. greinar stjómarskrár innar eru ekki uppfyllt, hefur löggjafarvaldið enga heimild til að knýja fram nauðungarafsal eins og hér er um að ræða né heldur að framkvæma breyting ar á ákvæðum erfðaskrárinnar, þannig að hluti af lausafé og höfuðstóli sjóðsins skuli afhent erlendu ríki.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.