Vísir - 15.06.1965, Qupperneq 16
<k
IR
Þriðjudagur 15. júní 1965.
Gísli Halldórsson
fékk Silfurlampann
Gísli Halldórsson leikari hlaut
Silfurlampann í gærkveldi á Silfur-
lampahátíð Félags íslenzkra leik-
dómenda í Þjóðleikhúskjallaranum.
Hlaut hann lampann fyrir leik sinn
í leikritinu Þjófar, Iík og falar kon-
ur. Hlaut hann 425 stig af 600
mögulegum. Næstir Gísla voru
Gestur Pálsson með 250 stig fyrir
leik sinn í Sú gamla kemur i heim-
sókn, og þriðji var Róbert Arn-
finnsson með 200 stig fyrir Hver
er hræddur við Virginíu Wolf?
Aðrir, sem atkvæði hlutu, voru
Bessi BJamason, Regína Þórðar-
dóttir, Helga Valtýsdóttir, Herdís
Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyjólfs-
son.
Handritamálið:
CHRISTRUP FÆR MILLJ-
ÓN / MÁLFÆRSLULAUN
Kaupmannahafnarblaðið Poli-
tiken skýrir frá því hinn 10.
júni s.l. að málfærslumannslaun
G.L. Christrups, hæstaréttarlög-
manns i handritamálinu, muni
verða um 150 þúsund danskar
krónur. Er það tæp milljón ís-
lenzkar krónur. Blaðið segist
geta upplýst þetta atriði vegna
þess að margir hafi í Danmörku
furðað sig á því að stjóm Áma-
safns skuli leggja í þann mikla
kostnað sem málsókninni er
samfara. Um það hafi einnig
verið rætt við handritaumræð-
umar á þingi.
Segist blaðið hafa öruggar
heimildir fyrir upphæð mála-
færslulaunanna sem að framan
er getið og kveður Christrup
duglegan lögfræðing en mann
sem taki jafnan góða þóknun
fyrir ómak sitt.
Politiken skýrir i sömu grein
frá því að Christmp krefjist ó-
gildingar handritalaga danska
þingsins á grundvelli tveggja
meginástæðna:
1) Hér sé um að ræða eignar-
nám. Almannaheill krefjist ekki
þess eignamáms, þ.e. afhend-
ingu handritanna til íslands, og
því sé samkvæmt stjórnar-
skránni það eignamám ólöglegt.
Skilyrði eignamáms sé jafnan
að almannaheill krefjist þess.
2) Við slíka gjörð sem upp-
töku handritanna og afhendingu
eigi jafnan að greiða bætur.
Lögin um handritaafhendingu
geri ekki ráð fyrir að neinar
bætur verði greiddar fyrir upp-
töku þeirra.
Þá hefur Politiken lagt þá
spurningu fyrir Christmp sjálf-
an hvað ske muni ef hann vinni
málið, en það hefur sem kunn-
ugt er verið þingfest fyrir
Eystri landsrétti og fer þaðan,
eftir dóm, til Hæstaréttar.
Framh. á bls. 6.
Christrup
144600 mállnótt
Gott veður var á síldarmiðunum
s.I. sólarhring og vom skipin eink-
um að veiðum um 200 mílur ANA
af Rauðunúpum. Lóðað var á
nokkra síld í Norðfjarðardýpi og
utarlega í Seyðisfjarðardýpi, en
síldin stóð djúpt og fékkst engin
veiði. Á s.l. sólarhring tilkynntu
36 skip um afla, samt. 44.600 mál.
Áskell ÞH 550, Ól. Friðbertsson
ÍS 1000, Helga RE 1600, Bjarmi EA
750, Guðm. Péturs ÍS 1700 Auð-
unn GK 1400, Gullver NS 1550,
Súlan EA 1650, Fagriklettur GK
1500, Gullberg NS 1200, Hugrún
ÍS 1350, Halkion VE 1800, Straum-
nes IS 600, Faxi GK 1300_ Viðey
RE 1550_ Skarðsvík SH 1100,
Ágúst Guðmundsson GK 400, Gunn
hildur IS 550, Sig. Jónsson SU
1200, Elliði GK 1000, Sig. Bjarna-
son 1650, Guðrún Jónsdóttir ÍS
1000, Gjafar VE 1000 Helgi Fló-
ventsson ÞH 1700, Heimir SU 1400,
Helga Guðmundsdóttir BA 1550,
Sveinbj. Jakobsson SH 1000, Ás-
þór RE 1300, Mímir IS 600, Kefl-
víkingur KE 1450, Akurey RE
1450, Akurey RE 1600 Höfrungur
III AK 2200, Ámi Magnússon GK
1250, Björg NK 1200, Jón á Stapa
SH 1100, Þráinn NK 850.
Læknakandidatarnir nýju
Ljósmyndari Vísis, I.M. hitti læknakandidata, sem útskrifuðust í vor, í heimsókn í gær í Ingólfs
Apóteki. Þeir eru frá vinstri: Birgír Guðjónsson, Helgi Þórarinsson, Bragi Guðmundsson, Guðmund-
ur J. Guðjónsson, Hannes Blöndal, Sigurður Jónssson og Þórir Arinbjarnarson.
Fulltrúar A T.A. í heimsókn
Hingað til lands komu með
flugvél í gærkvöldi bandarísku
hjónin Marian og Theodore
Carter Achilles. Þau komu frá
London þar sem þau sátu ráð-
stefnu ATA (Atlantlc Treaty
Association), en það eru sam-
tök áhugamanna um samstarf
Atlantshafsrikjanna og starfa á
mjög svipuðum grundvelli og
félögin tvö hér á landi: Varð-
berg og Félag áhugamanna um
vestræna samvinnu. Hr. og frú
Achilles munu hafa hér tveggja
daga viðdvöl og sitja fund hjá
Varðbergi. Þetta er í fyrsta
sinn sem þau hafa viðdvöl hér
á landi, en þau hafa tvisvar
áður haft millilendingu á Kefla
víkurflugvelli á Ieið sinni til
Evrópu. Þau hjónin hafa ferð-
azt mikið, enda hefur hr. Áchill
es haft á hendi fjöldamörg trún
aðarstörf á vegum Bandaríkja
Dregið á morgun
I dag er seinasta tækifæri
að fá sér miða í hinu stórglæsi
lega happdr..:ti Sjálfstæðis-
flokksins, á morgun verður
dreg'ið. Þeir sem ekki hafa gert
skil á heimsendum miðum eru
áminntir að gera það í dag. Á
morgun verður dregið um það
hverjir fá hinar glæsilegu bif-
reiðir, hvor að verðmæti 330
þús. kr., fyrir aðeins 100 kr.
Látið ekki happ úr hendi
sleppa, á morgun verðið þér ef
til vill bifreið ríkari. Það er ef
til vill verið að selja vinnings
miðann þegar þér gangið fram
hjá bifreiðunum í dag.
Skrifstofa happdrættisins í
Sjálfstæðishúsinu við Austur-
völl verður opin til kl. 10 í
kvöld.
Landshappdrætti
isflokksins.
Sjálfstæð-
stjórnar víða um heim.
A.T. A. eru samtök áhuga-
mannna og studd af einstakl-
ingum og e.u Varðberg og Fé-
Iag áhugamanna um vestræna
samvinnu aðilar að þeim. Þau
starfa í flestum löndum Atlants
hafsbandalagsins.
Theodore Carter Achilles og kona hans Marian Field á flugvell-
inum í gærkvöldi.
Héraðsmót um helgina á Seyðis
firði, Eskifirði og Norðfirði
Um næstu helgi 'verða haldin
þrjú héraðsmót Sjálfstæðis-
flokksins, sem hér segir:
Seyðisfirði, föstudaginn 18.
júní kl. 21. Ræðumenn verða
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar
ráðherra, Jónas Pétursson, al-
þingismaður og Gunnar Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri.
Eskifirði, laugardaginn 19.
júnl kl. 21. Ræðumenn verða
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, Jónas Pétursson,
alþm., og Þór Gunnarsson,
bankafulltrúi.
Neskaupstað, sunnudaginn 20.
júní kl. 21. Ræðumenn verða
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, Jónas Pétursson,
alþm., og Halldór Blöndal, erind
reki.
Hljómsveit Svavars Gests
skemmtir á öllum mótunum.'
Hljómsveitina skipa fimm hljóð
færaleikarar þeir Svavar Gests,
Garðar Karlsson, Halldór Páls-
son, Magnús Ingimarsson og
Reynir Sigurðsson. Auk þess
eru í hljómsveitinni söngvararn
ir Elly Vilhjálms og Ragnar
Á héraðsmótunum mun
hljómsveitin leika vinsæl lög.
Söngvarar syngja einsöng og
tvísöng og söngkvartett innan
hljómsveitarinnar syngur. Gam-
anvísur verða fluttar og stuttir
gamanþættir. Spurningaþættir
verða undir stjórn Svavars
Gests með þátttöku gesta á hér
aðsmótunum.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Svavars Gests
leikur fyrir dansi og söngvarar
hljómsveitarinnar koma fram.
Bjarnason.
I