Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 1
VÍSIR IKILL MANNFFJOLDI k ÞJÓÐHÁTÍÐIN NI 55. árg. — Föstudagur 18. júní 1965. — 135. tbl, Afar mikið fjölmenni var saman komið á hátíðarsvæðun- um í miðborginni á þjóðhátíð inni í gær. Þeir sem gerðu sam anburð á því og hátíðarhöldun um í fyrra töldu að fjölmennið Geysilegur fjöldi bama fylgdist með skemmtiatriðunum á Amarhóli, væri sízt minna nú en þá og var þó um stórafmæli lýðveld isins að ræða þá. En nú mátti segja með nokkrum sanni, eins og formaður þjóðhátíðamefnd ar Ólafur Jónsson gerði i ræðu sinni af Alþingissvölum, að nú hefði islenzka lýðveldið náð Iögræðisaldri, það væri orðið 21 árs. Fjölmennið var svona mikið, enda þótt veðrið hefði ekki ver ið eins og það getur hagstæð ast verið. Það var t. d. varla hregt að segja að sæi til sólar allan daginn og lengst af grúfðu dimm og þykk ský yfir. Við og við ýrði ofurlítilli rign- ingu úr jieim, en þó ekki svo að kæmi að sök, fyrr en kannski síðast um kvöldið þeg ar nálgaðist miðnætti, að regn ið dró nokkuð úr dansinum, nema náttúrlega hjá bítlaunn- endum, sem dönsuðu á Hót- el íslands planinu og létu ekk ert á sig fá. Regnhlífar slógu marglitum blæ yfir svæðið. Að öðra leyti var veður stillt og milt og varð þjóðhátíðardagur- inn fólki ánægjulegur og eftir minnilegur. Við leiði Jóns Sigurðssonar. Hátíðahöldin í höfuðstaðnum Framh. á bls. 6 SKIPA ViRKFALllNU ER LOKID Samkomulag náðist í gærkvöldi í kjaradeilu þjóna, matsveina og þerna á kaupskipaflotanum. Var samkomulagið undirritað í gærkvöldi og sam- þykkt á fundum verklýðsfélaganna og vinnuveit- enda í morgun. Er verkfallinu, sem staðið hefur í rúma viku því aflétt og láta þau þrjú skip sem stöðvuðust vegna þess nú úr höfn. Efni samkomulagsins er það að ákvörðunum um kaup- hækkun og breyttan vinnutíma meðiima ofangreindra verk- Iýðsfélaga á kaupskipunum er frestað um óákveðinn tíma. Verður því enn um hríð farið að fyrri samningum um þessi atriði. Hins vegar var samið um ýmis kjara- atriði. Þannig hækkar nú trygging vegna örorku og dauða úr 200 þús. í kr. 300 þús. fatapeningar hækka o. fl. Upp- sagnarfrestur þessa bráðabirgðasamkomulags er ein vika. Samkomulagið náðist á fundi sem hófst kl. 5 þann 16. júní og stóð óslitið í meir en sólarhring, eða til kl. 7 að kvöldi 17. júní, er aðilar undirrituðu samkomulagið. Somkomulag nóðist í gær við þjóna, matsveino og þernur á kaupskipaflotanum Þrjú skip stöðvuðust í Reykjavíkurhöfn vegna verk- falls matreiðslu- og fram- reiðslumanna, öll frá Ríkis- skip. Það voru Herjólfur, Herðubreið og Skjaldbreið. Önnur tvö skip voru komin í höfn frá Ríkisskip, Hekla og Esja, en verkfallið hafði enn sem komið var ekki haft mik il áhrif á ferðir þeirra skipa, þar eð þau eiga ekki að láta úr höfn samkvæmt áætlun fyrr en á morgun. Guðjón Teitsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins sagði í morgun að verkfall þetta hefði haft mjög slæm áhrif fyrir rekstur útgerðar sinnar. Það byrfti ekki mikið verk- fall til að tapið væri upp á hundruð þúsunda. Áætlun Herðubreiðar og Skjaldbreið- ar hefði við þetta farið úr skorðum og erfitt væri að koma skipunum aftur inn á áætlun. Eins væri mjög slæmt af skipin söfnuðust saman í Reykjavíkurhöfn vegna vinnujöfnunar við höfnina. Mjög mikill áhugi er um þessar mundir hjá erlendum ferðalöngum fyrir íslands- ferðum og eru mjög margir þejrra væntanlegir til lands- ins með Heklu. Sagði Guðjón að ef ekki hefði samizt í dag, hefði hann neyðzt til að senda ferðaskrifstofum í Evr ópu skeyti og skýra frá þeim vandræðum, sem skapazt hefðu. Það hefði haft í för með sér að fjöldamargar af- pantanir hefðu borizt. Verkfallið olli Eimskipafélag inu líka talsverðu tjóni, því þrjú af skipum félagsins urðu að létta akkerum áður en þau höfðu fengið fullnaðaraf- greiðslu. Þessi skip voru Goðafoss, Selfoss og Gull- foss. Gullfoss fór til Leith og Kaupmannahafnar með megnið af þeim vörum, sem skipið hafa komið með og eru mjög mikil óþægindi af þessu. Mánafoss kom til Reykja- víkur meðan á verkfallinu stóð, og Skógafoss, hið nýja skip félagsins kom í gær. Hvorugt skipið stöðvaðist þó af völdum verkfallsins. GEFAST UPP Á INA NORÐUR AÐ EL TA SÍLD- Millibilsástand er nú komið á sildveiðunum fyrir austan. Bát- arnir era að gefast upp á síld- inni, sem þeir hafa elt langleið- ina til Jan Mayen, og síldin, sem fundizt hefur nær landi, út af Langanesi og Glettingi hefur ekki gefið færi á sér enn. Jakob Jakobsson á Ægi sagði blaðinu í morgun, að gamla Noregssíldin hefði hagað sér á svipaðan hátt núna og um sama leyti í fyrra. Þá gáfust menn mjög snemma upp á því að elta í HAF hana norðu’ eftir, enda gaf Aust fjarðasildin færi á sér 15. júní og bátarnir sneru sér strax að henni. 1 þetta sinn eltu bátamir síldina 300 mílur í átt til Jan Mayen. Þetta var góð síld og veiddist vel, svo bátarnir létu sig hafa siglinguna, þótt hún væri orðin hálfur annar sólarhringur. í gær fór veiðin á þessum slóð- um að detta niður, síldin dýpk- aði á sér og dreifðist, og f nótt voru skipin að týna tölunni á þessum slóðum. Þegar Vísir hafði tal af Jak- obi f morgun, var Ægir staddur austur af Langanesi. Þessi síld Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.