Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 8

Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 8
a V1S IR . Föstudagur 18. júní 1965 VISIR Utgetandi. Blaðaútgatan VISIH Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóran Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó Thorarenser Ritstjórnarskrifstotur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr a mánuði í lausasöiu 7 kr. eint. — Sími 11660 (5 linuri Prentsmiðja Visis - Edda h.f Skipulagðar framkvæmdir það mun jafnan teljast til meiriháttar umbóta nú- verandi ríkisstjórnar ,að hún hóf gerð framkvæmdaá- ætlana ríkisins hér á landi. Slíkar áætlanir hafa um nokkurt skeið tíðkast í öðrum löndum svo sem Frakk landi og gefið hina beztu raun. Hér er ekki um neinn áætlunarbúskap að ræða í þess orðs venjulegu merk- ingu heldur ítarlega og skipulega áætlun yfir fram- kvæmdir ríkisins og afskipti þess innan efnahags- kerfisins. Megintilgangur áætlunarinnar er sá að veita fénu til þeirra framkvæmda sem þarflegastar eru og mest áríðandi, koma í veg fyrir sóun fjár sem skipulagsleysi framkvæmda hefur í för með sér og marka ákveðna stefnu í fjárfestingarmálum. Fyrst var samin framkæmdaáætlun 1963 og aflað til hennar fjár m.a. með láni í Englandi og hefur ver- ið starfað eftir henni síðan. Nú hefur á ný verið gerð sérstök framkvæmda- og fjáröflunaráætlun fyrir árið 1965. Til hennar hefur verið aflað 380 millj. króna og nær áætlunin til um þriðja hluta heildarfjárfest- ingar laiidsmanna á árinu ,en hún verður um 1720 milljón króna alls. Til ráðstöfunar eru 1250 millj. króna af eigin fé ríkisins auk 92 millj. kr. tryggðs lánsfjár. Þessu fé verður á árinu varið til hinna marg- víslegustu framkvæmda. Á sviði sjávarútvegsins verður fé veitt með lánum til fiskiðnaðarins, Fisk- veiðisjóðs og byggingu nýrra dráttarbrauta. Þá verð- ur fé Iðnlánasjóðs aukið og Stofnlánadeildar landbún aðarins sömuleiðis. Sama er að segja um fjáröflun Húsnæðísmálasjóðs og 30 millj. kr. verður varið til lána til verkamannabústaða. Framlög til annarra framkvæmda verða aukin verulega, til hafnar og vegagerða, jarðhitaframkvæmda, flugmála og skóla- bygginga. Auk þess hefur verið gerð sérstök fram- kvæmdaáætlun ríkisins er og hve víða er þar borið arri slíkri áætlun fyrir Norðlendingafjórðung. Með þessu hefur verið hafin ný stefna í veitingu og notk- un opinbers fjárs sem á að tryggja það að nauðsyn- egustu framkvæmdirnar sitja í fyrirrúmi. Skólarnir og þjóðin ]\ýr stúdentaárgangur hefur fengið hvítu kollana sína og heldur út í lífið. Það minnir á að eftir 10 ár útskrifast helmingi fleiri stúdentar en í dag. Því má ekki lengi bíða með stórfellda stækkun Háskólans, fjölgun starfsliðs og kennslugreina. Það er ekki að- eins menningar- og menntamál heldur og landnáms- mál. Með aukinni tækni og vísindamennt bætum við landið, aukum uppskeru þess og nýtum auðlindir þess. Sjálft fræðslukerfið stendur á þröskuldi algjörr ar endurskoðunar, sem hleypi nýju lofti inn í íslenzka skóla, hæfi þá að kröfum tímans og stórbæti mennt- un íslenzkra kennara. Margt er að vinna og til mikils er að vinna á þeim vettvangi. Blásaranemendur í Tónskólanum leika saman. Lokið fyrsta heila starfsári Tón- A skóla Sigursveins Þann 1. oktöber 1964 hófst fyrsta heila starfsár Tónskólans. Auk skólastjóra Sigursveins D. Kristinssonar voru ráðnir þessir stundakennarar: Ágústa Hauksdóttir á píanó,, Áskell Snorrason á harmoníum, Emil Adólfsson á harmoniku, melo- diku og munnhörpu, Gunnar K. Jónsson á gitar, Helgi Kristjánsson á gítar, Hallgr. Jakobss. á gítar, Ing rid Kristjánsd. á píanó, Jóhannes Eggertss. á knéfiðlu og trommu og Sigurður Þórólfsson á trompet. Alls stunduðu nám í skólanum 177 nemendur og skiptust þannig á miili námsgreina: Harminika 7, melodika 9, munn- harpa 4, gítar 53, mandolin 1, banjó 1, píanó 21, harmoníum 3, tromma 2, trompet 10, fiðla 5, knéfiðla 1, blokkflauta og nótna- lestur 60. Tónfræði var kennd í tveim flokk um og stunduðu það nám 35 nem- endur. Æfður var reglulega samleikur einstakra hljóðfæraflokka, svo sem blásaraflokkur, hópur af melodiku- nemendum og annar hópur munn- hörpu og harmonikunemenda o. fl. Dagana 2., 3. og 4. maí fóru fram próf og voru prófdómendur Dr. Hallgrímur Helgason og Hallgrimur Jakobsson söngkennari. Prófi luku 145 nemendur. Á starfsárinu voru haldnir tvenn ir nemendatónleikar. Hinir fyrri sunnudaginn 20. desember, hinir síðari á skírdag þann 15. aprfl, hvorir tveggja í Hagaskólanum fyr- ir fullu húsi áheyrenda. Á hvorum þessara tónleika komu fram 80 nemendur í einleik, samleik og í stærri flokkum. Þann 6. maí var skólanum slitið (í bíósal Austurbæjarbamaskólans) og voru þá jafnframt afhent náms- vottorð. Ný Islandsbók Út er komin ný myndabók, með myndum og texta eftir Hjálmar R. Bárðarson. Bókin er 208 bls. að stærð, í alshirtingsbandi og litprentaðri hlífðarkápu. Alls eru 241 mynd í bókinni, þar af 50 litmyndir. Texti er á 6 tungumálum: ís- lenzku, dönsku, ensku, frönsku, þýzku og spönsku. Á hverju tungumálanna eru tvær blaðslð ur kynningartexti fremst, en sfð an er texti með myndunum á öllum tungumálunum. Bókin er Lyftir vinnupalli prentuð í Hollandi með gravure- aðferð (tiefdruck). Efni bókarinnar er fyrst og fremst landkynning, íslenzkir at vinnuhættir og íslenzk sérkenni í landslagi, hverir og eldgos. 1 stórum dráttum má segja, að í bókinni sé í myndum farin hringferð kringum landið. Kraninn með blaðamann Vísis hátt i lofti við Vísis-húsið. í 16 metra hæð Sænsk ferða■ manna- paradís ^ Fullyrt er, að nú verði fram kvæmd áformin um að gera sænsku eyna Ven f Eyrarsundi að „ferðamanna-paradís“. Sænska stjómin hefur fallizt á, að fyrirtæki nokkurt fái leyfi til kaupa þar á 15 búgörðum, þar sem áformað er að reisa gistihús, koma upp smábátahöfn reisa ferðamannabæ, gera golf- Pg tennisvelli o. s. frv. Kaup verðið er 1,3 millj. saænskra króna. Fyrir skömmu var tekin í notkun bifreið hér f bænum, sem á vafalaust eftir að verða mlkilvægt þjónustutæki. Þetta er stór kraftmikill bfll, sem er með tveim stómm örmum og áföstum vinnupalli. Vökvaútbún aður iyftir örmunum og er á þann hátt hægt að lyfta vinnu- pallinum 1 16 metra hæð. Eigandi bifreiðarinnar er Arthur Sveinsson Langholtsvegi 128, en hann keypti bifreiðina fyr'ir áramót af Sölunefnd varn arliðseigna. Síðan þá hefur hann unnið að því að gera bif- reiðina upp, svo að segja má að hún sé sem ný. Þegar búið er að lyfta vinnu- pallinum í 16 metra hæð er mesti þungi sem hægt er að hafa á vinnupallinum 500 kg. Þessi bíll er því fyrst og fremst hugsaður fyrir léttar viðgerðir á húsum og ef til vill málningu, því verði verkið ekki því meira sem á að gera, þá er notkun á bifreiðinni mun ódýrari en að reisa vinnupalla við húsið. Leig an á bifreiðinni kostar 360 kr. á klst, án manns.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.