Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 5
V í SIR . Föstudagur 18. júní 1965. utlönd í mörgun; ‘: .útlönd í morgun utlönd 1 morgun útlönd í morgun á 1riBi í Víetnam Brezka útvarpið skýrði frá því í gærkvöldi, að eining hefði náðst á Samveldisráðstefnunni sem' sett var í ^ær, að senda friðarnefnd til V/a- aton, Moskvu, Peking, Sai- go ’anoi til að reyna að komaá frið; ; ’ ietnam. Wilsbn yrði leið- togi jg valdir í nefndina með hon- um fjórir aðrir samveldisleiðtogar, Ghana, Nigeriu, Trinidad og Cey- lon. Allir að undanteknum fiorsætis- ráðherra Ceylons hefðu .'allizt á að vera í nefndinni, en þess var getið, að búið væri að síma for- sætisráðherra Céylons og hann beð- inn að vera með, en hann gat sem kunnugt er ekki setið ráðstefn- una. Er búizt við svari hans um þetta. Fréttin um þetta hefir vakið stórkostlega athygli Wilson skýrði frá samkomulaginu £ neðri mál- stofunni, þar sem ieiðtogar hinna flokkanna lögðu blessun sína á það, þeir Sir Alex Douglas-Home fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi stjórnarandstöðunnar og Jo Grimmond formaður Frjálslynda flokksins, en £ Washington var Johnson forseti fljótur til að fagna hugmyndinni, og endurtók að hann vildi fara hvert sem væri og tala við hvern sem er, eins og hann áð- ur komst að orði, til þess að ræða frið £ Vietnam. Hann kvaðst mundu kalla saman stjórnarfund um mál- ið þegar i dag og má vænta, að stjórnin leggi þar blessun sina á áformið. Johnson gat þess, er hann ræddi þetta, að samkvæmt greinargerð dagsettri 7. júnf, er hann hefði með höndum, væri -afstaða Norður- Vietnam óbreytt: Norður-Vietnam- leiðtógarnir vildu ekki setjast að samningaborði. Wilson kom fram i sjónvarpi í gær, auk þess sem hann flutti ræðu í neðri málstofunni, og talaði um þá tilraun, sem nú stæði til að gera. Hann sagði, að það væri „betra að reyna“, þótt engin vissa væri um árangur, en „að hafa alls ekki reynt“. Áformið kvað hann lýsa friðarhug samveldisþjóða og vilja til forustu. Hann kvaðst fara sem formaður nefndar samveldisþjóða, ekki sem forsætisráðherra Bret- lands. I fréttum í morgun var svo sagt frá því, að sú eining sem talað var um £ gærkvöldi, af Wilson og öðrum, og fram kom í tilkynningu frá samveldisráð- stefnunni, væri ekki fyrir hendi, því að Tanzania væri hugmynd- ,inni mótfallin, og það væri því ekki rétt, sem sagt hefði verið í tilkynningu í gær að þar væri eining ríkjandi um málið. Er bú- izt við átökum á ráðstefnunni í dag vegna afstöðu Tanzaniu. Wilson sagði í gær, að hann vonaðist til að nefndin gæti lagt af stað innan fárra daga, — ekki hefði verið rætt við aðila £ fyrr- nefndum' höfuðborgum, en það hlyti að verða erfitt „að neita að ræða við okkur“. Tvær MIG-flugvélar skotnar niður. Bandarískar orrustuþotur, sem voru til verndar sprengjuþotum frá flugvélaskipi í árás á Norður-Viet- nam, réðust á 4 MIG-þotur og Framh. bls. 13 í gær átti að skjóta á loft frá Kennedyhöfða mestu eldflaug sem nokkum tima hefir verið smíðuð, en því var frestað vegna óhag- stæðra skilyrða, cn nú stendur til að gera tilraunina í dag. Eldflaugin nefnist TITAN 3 og er 42 metrar á hæð (£ sumum fréttum’ segir 39). Þeir, sem stjórna landvörnum dandaríkjanna ætla henni m. a. það hlutverk að flytja í einu átta fjarskiptagervihnetti út i geimihn, og þar með stofna sitt (þ.e. land- varna) „eigið simakerfi úti í geimn am“. Með tilkömu þessarar eldflaugar yggjast landvarnirnar taka sér 'mis hlutverk, sem geimrannsókna- tofnunin til þessa hefir haft með öndum, en hún er ekki undir tjórn landvarnanna. i STUTTU Með tilraunum þessum má og búast við stórbættum skilyrðum til þess að hafa not af gervihnöttum til njósna. Lítil stúlka í Suður-Vietnam missti báða foreldra sína í orrustunni um Don Xoai. MÁLI Þegar sprengingin varð í norska oliuskipinu Ronastar í Rotterdam í vikunni brotnuðu rúður í Haag í 50 km. fjarlægð. — Ronastar er 31.881 lesta skip. Eitt hundrað þingmenn brezka jafnaðarmannaflokksins hafa í bréfi til Harolds Wilspns forsætisráðherra lýst áhyggjum sínum út af Vietnamstefnu Bandaríkjastjórnar. >• Ekki hefur ehn náðst sam- komulag milli frönsku róttæku flokkanna (að kommúnistum undanteknum) um sameiginleg an frambjóðanda í forsetakosn ingunum á hausti komanda. For setaefni jafnaðarmanna Gaston Deferre borgarstjóri í Marseille sagði þó í vikunni, að sam- komulagsskilyrði væru fyrir hendi . Sólgleraugu fízkan 1965 ECHTENIA sólgleraugu vöktu geysilega athygli á vörusýningum. ECHTENIA sólgleraugu eru komin FALLEG — VÖNDUÐ — FARA VEL Þér getið valið þá gerð af ECHTENIA sólgleraugum sem yður klæðir. Aðeins þekkt vörumerki og því ávallt beztu fáanlegu vörur hverju sinni. HEILDSÖLUBIRGÐIR: H. A. TUIINIUS - heltdverzlun

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.