Vísir - 17.08.1965, Blaðsíða 8
8
V I S I R . Þriðjudagur 17. ágúst 1965.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VISDt
Ritstjðrl: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axe! Thorsteinson
Fréttastjóran Jónas Kristjánsson
Þorsteinn ó. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti 3
Askriftargjald er 80 kr. & mánuði
1 lausasölu 7 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja VIsis — Edda hj.
Sjálfbirgingsháttur
I forustugrein Þjóðviljans s. 1. sunnudag skaut upp
kollinum gamalt áróðursbragð, sem mjög var notað
fyrir 30—40 árum: Kommúnistar áttu að vera öðr-
um mönnum miklu gáfaðri, bera af í ræðumennsku
og ritleikni. Bækur, sem ekki voru eftir kommúnista,
voru enginn skáldskapur. Ekkert var list nema þeirra
framleiðsla. Hér á landi bar þessi áróður nokkum
árangur um tíma. Ýmsir, sem voru með öllu frá-
hverfir kommúnisma, héldu eigi að síður að það
væri gáfnamerki að vera róttækur sósíalisti. En það
er langt síðan þetta var. Almenningur á íslandi er
betur að sér nú en fyrir 30—40 árum, og nú eru
allir löngu hættir að tcúa því, að það sé nokkur gáfna-
stimpill að vera kommúnisti. Þvert á móti þykir það
nú bera vott um skort á heilbrigðri dómgreind, og
æði oft verður ekki betur séð en sumir þessir menn
séu haldnir alvarlegum geðtruflunum.
í fyrrnefndri forustugrein var m. a. sagt að
forustugreinar annarra íslenzkra blaða yrðu ,^sjaldn- -i*
ast flokkaðar til góðra hpltmeuþta,fí;]|^4í^^iM^u
til né setningu“. — Já, þvílíkur munur á þeim og
forustugreinum Þjóðviljans! Höfundur greinarinnar
heldur sýnilega að sín skrif verði talin til sígildra
bókmennta þegar fram líða stundir. Hann þjáist ekki
af lítillæti maðurinn sá. Honum er mjög gjarnt að
bregða öðrum um heimsku og þekkingarskort, þyk-
ist sjálfur öðrum fremri að vitsmunum og lærdómi.
Að hans dómi er það æfinlega sönnun heimsku og
fáfræði, ef menn eru á annarri skoðun en hann. Hvað
megnum við, venjulegir, fáfróðir menn, gegn rök-
um meistara, sem stendur „á slíku stigi vitsmuna
og þekkingar“!
Það sem kom ritstjóra Þjóðviljans úr jafnvægi
í þetta sinn, var frásögn Vísis og fleiri blaða um að
í Rússlandi og ýmsum öðrum kommúnistaríkjum væri
nú verið að taka upp lýðræðislegri vinnubrögð á sviði
efnahagsmála en áður hafa tíðkazt þar. Þetta telur
ritstjóri Þjóðviljans sanna heimsku og fáfræði okkar
hinna. — En hvað segir hann sjálfur? Hann segir:
„Hagþróunin í sósialisku ríkjunum hefur orðið
mjög ör, framleiðslan he’fur margfaldast að magni
og fjölbreytileika, nauðsynin á vaxandi lýðræði í
efnahagsmálum hefur sífellt verið að aukast“. —
Hann segir einnig að reynslan hafi leitt í ljós, að
finna þurfi „nýjar og sveigjanlegri hagstjórnarað-
ferðir“.
Hvað er þetta maður, út af hverju ertu þá að
æsa þig? Þetta er nokkurn veginn það sama og við
hinir vorum að segja. Og til viðbótar má geta þess,
að fregnir hafa borizt um að í tilteknum greinum sé,
sums staðar verið að taka upp hreinan einkarekstur.
Ristjóri Þjóðviljans má svo leika sér eftir vild við
að finna á þessu eitthvað annað orðalag en að smám
saman sé verið að „hverfa frá hinu kommúnistiska |
efnahagskerfi". y
Nýja Moskvich bifreiðin — lúxusbfllinn rússneski.
HVAÐ HOFÐINGJARNIR
HAFAST AÐ...'
Aleksei Kosygin, forsætisráð-
herra Rússa, er ekki hrifinn af
lífskjarastefnu fyrirrennarans,
Krústjoffs, og hefur sagt að
margar breytingar verði að gera.
Til dæmis sé stefnan á bifreiða
framleiðslunni úrelt, að því er
hann segir, og, nú, jgtli;|Rú§,sar
-áð ieggja aukna ’áhéEriun'á'iáð
IJ> frartilóiða éínfcabílöi'^sfesSíT'^til
sönnunar lagði hann fram mynd
ir af nýrri tegund Moskvich
bifreiða, sem kemur að öllum
líkindum hingað til landsins nú
í haust.
☆
Hér er mynd af einni slíkri
bifreið, en þótt Kosygin vilji
að sem flestir Rússar geti ekið
Á laugardag hófst í Roskilde
Ring í Danmörku mikil aksturs
keppni, þar sem þátttakendur
frá Englandi, Bandaríkjunum,
Svíþjóð, Finnlandi og íslandi
tóku þátt auk að sjálfsögðu
danskra bílagarpa.
Sá Islendingur sem tók þátt í
þessari keppni er Sverrir Þór-
í slíku „lúxus-tæki“, þá vill
hann, embættisins vegna, ekki
láta sjá sig í ódýrari bifreið en
Lincoln Continental, amerísk-
um, með sjónvarpstæki við aft-
ursætið.
oddsson og í dönskum blöðum
er sagt að keppendur séu flestir
á heimsmælikvarða.
Aðstandendur keppninnar hafa
verið örlitið óstyrkir vegna
banaslyssins sem varð í þessari
keppni í fyrra og hafa þvf lag-
fært brautina allmjög. Keppnin
stóð yfir laugardag og sunnu-
dag.
HAFLINGER
KOMINN TIL
LANDSINS
Haflinger bifreiðin notuð sem snjóplógur.
Áhugi á meiri fjölbreytni
landbúnaðarbíla er að aukast.
Nýtt fyrirtæki, Skorri h. f., hef
ur hafið innflutning á nýrri teg
und landbúnaðarbifreiðar sem
minnir að útliti til mjög á lan;l
búnaðarbifreiðina „Farmobil"
og er ekki ólíkur að smíð.
Nýja bifreiðin er austurrísk
að gerð og nefnist „Haflinger"
og framleiddur af Steyr-Daiml-
er-Puch A. G. í borginni Graz
í Austurríki.
Kostar án aukatækja 114 þús
und — hámarkshraði 60 km. —
ber 515 kílu — fjögurra sam-
stilltra gíra — drif á öllum hjól
um — ekki á varadekkinu —
hærri frá jörðu en aðrir inn-
fluttir landb.bílar — og furðu-
lega seigur við að aka ófærur
eins og fram kom er blaðamönn
um var sýnd bifreiðin. Benzín
eyðslan er í lægra lagi, eða um
9 lítrar á hundrað í bæjarakstri
en 3-5 lítrar á klukkutímann í
torfæru-akstri. Með þessum bíl
er hægt að fá frá verksmiðjunni
margs kyns aukatæki, svo sem
snjóplóg gangstéttarhreinsara
(20 slíkir í notkun í Miinchen),
lofthamar, úðunartæki, rafsuðu
tæki og ýmislegt fleira gagnlegt.
Sigurjón Ingimarsson, einn af
forstöðumönnum Skorra h. f.
mun í hau fara til Austurríkis
til að kynna sér rekstur verk-
stæðis og varahlutaþjónustu bif
reiðarinnar og fyrst í stað mun
verða komið upp verkstæði hér
í Reykjavík, eða samið við eitt
hvert bílaverkstæði um að ann
ast viðgerðarþjónustu. Fyrir þá
er hafa áhuga á að kynnast
þessum bíl er rétt að geta þess,
að umboðið hefur fyrst um sinn
skrifstofu að Baldursgötu 10 hér
í borg.