Vísir - 17.08.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 17.08.1965, Blaðsíða 16
VISIK V Þriðjudagur 17. ágúst 1965 Hókorl í heim- sókn ú Siglufirði Á sunnudaginn lagSi beinhákarl leiS sína inn í Siglufjarðarhöfn og varð fyrlr því óhappi að festa sig undir einni bryggjunni. Varð það hans bani. Menn vita þess engin dæmi að beinhákarl hafi komið í heimsókn inn í Siglufjarðarhöfn fyrr. Hann var 7-8 metrar á lengd og talið að hann hafi vegið a. m. k. 5 lestir eða jafnvel töluvert meir. Þegar Siglfirðingar urðu há- karlsins varir var þegar farið að draga allmikið af honum, en þeg- ar búið var að koma tógi eða vír utan um sporðinn á hákarlinum og átti að fara að draga hann undan bryggjunni, streyttist hann á móti Og urðu þá hörð og mikil átök. Brotnaði staur í bryggjunni við á- tökin, en hákarlinn varð að láta í minni pokann, og áður en lauk slitnaði af honum sp>orðurinn. Sök um þyngdar treystust menn ekki að landa honum og var þá það ráð tekið að róa honum út á fjörð og sökkva honum þar. Hollenzkur sérfræðingur ræðir um æskulýðsmál við íslemlingo — /Eskulýðslaganefnd Sýkur sennilega störfum þegar á þessu ári Hér er staddur um þessar mtmdir í boði menntamálaráðu neytisins hollenzkur sérfreeð- ingur í æskulýðsmálum ,Jaco- bus W. Ooms að nafni. Kemur hann hingað fyrir milligöngu UNESCO en á kostnað hol- lenzkra stjómarvalda. Hefur hann kynní sér æskulýðsmál á fslandi og verið til ráðuneytis nefnd þeirri (æskulýðslaga- nefnd), sem menntamálaráð- herra dr. Gylfi Þ. Gislason, hef ur skipað til bess að semja frumvarp til laga um opinberan stuðning við æskulýðsmál. I nefndina voru skipaðir: Séra Bragi Friðriksson, þáv., framkvæmdastjóri Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur, séra Eiríkur J. Eiríksson, forseti Ungmenna félags íslands, Gisli Halldórs- son, forseti ÍSf, Jón Pálsson, tómstundaráðunautur, Jónas B. Jónsson, skátahöfðingi, Ólafur Egilsson, þáv. formaður Æsku- lýðssambands Islands, Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar, séra Ólafur Skúlason, þáv. æsku lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar og Framh. á bls. 6 Myndin er tekin af Æskulýðslaganefnd á fundinum i Hlégarði. Sitjandi frá vinstri em Ólafur Þ. Kristjánsson, sr. Eirikur J. Eiríksson, Knútur Hallsson formaður, Jónas B. Jónsson og Gisli Hall- dórsson. Standandi frá vinstri em Ólafur Egilsson ritari, sr. Ólafur Skúlason og Þorsteinn Einarsson. Á 6. HUNDRAÐ ÁFENGISFLÖSK- UR FUNDUST í VA TNAJÚKLI Smyglmálinu er enn haldið á- fram. Yfiriieyrslur stóðu í morgun og munu væntanlega standa í all- an dag. Rannsókn mun nú aðal- lega beinast að þvi, hvaðan þessar miklu áfengisbirgðir vom fengnar en sá framburður þykir all ótrú- legur að sumir Langjökulsmenn halda því fram að þeir hafi keypt áfengisbirgðimar i smásöluverzlun í Rotterdam. Eftir að viðbótarleit hafði farið fram í Langjökli, fékk skip’ið loks að láta úr höfn eftir hádegi 1 gær til þess að koma hinum danska fiskfarmi áfram til Ameríku. En áð ur en af því yrði varð útgerð skips ins að setja 3 millj. kr. víxiltrygg- ingu fyrir hugsanlegum sektum og kostnaði í þessu máli. f gærkvöldi hafði toligæzlan lok Bifreiðirnar sunnan Andakílsárbrúar, báðar nokkuð skemmdar. Bílvelta og árekst ur í Borgarfirði ið yfirferð1 í leit í skipinu Vatna- jökli. Leit í skipinu hófst á laug- ardaginn og fannst þá ekkert í fyrstu. En þegar leit var haldið á- fram á mánudaginn, þá fóm á- fengisbirgðir að finnast bæði inni í þiljum í vistarverum áhafnar og í lestum. Áfengið var falið í þilj- unum með líkum hætti og í Lang- jökl’i. í gærkvöldi þegar leit var hætt i bili höfðu fundizt þar 283 flöskur af genever í vistarverum á- hafnar, um 18 þúsund sígarettur og 450 vindlar. I lestum var smyglvarningurinn falinn í farangursgeymslum bif- reiða, en þeim síðan læst. í bifreið- unum fann tollgæzlan 248 flöskur af genever og 9 flöskur af Viskí og 40 þúsund vindlinga. Þar með er tala áfengisflaskna í Vatnajökli komin á 6. hundraðið. Tollgæzlan hefur hætt leit í Vatnajökli í b’ili og stafar það mest af því hvilík vöntun er á starfsliði. Drukkinn mað> ur ufvopnuður Nokkru eftir miðnætti i nótt var það kært til lögreglunnar í Reykjavík að vopnaður maður væri á ferli niðri við AusturvöIL Fyrir framan Hótel Borg hitti Iögreglan dauðadrukkinn mann á ferli með byssu að vopni. Og enda þótt maðurinn þætti ekki líklegur til stórræða í því ásigkomulagi sem hann var þótti heldur ekki ástæða til að láta hann vera með vopn á almannafæri. Enginn veit hvenær slíkir menn munu geta farið sjálfum sér eða öðrum að voða, þótt óviljandi sé. Byssuna tók Iögreglan í vörzlu sina og mað urinn var einnig tekinn úr umferð. f morgun kom skipið Langá til Reykjavíkur, en eins og kunnugt er af fyrri fréttum fundu danskir toliverð'ir talsvert áfengismagn í skipinu á plastbrúsum. Langá var tollafgreidd í Vestmannaeyjum um helgina og þá gáfu skipverjar upp þær áfeng’isbirgðir sem danska toll gæzlan hafði fundið. Verða þær birgðir væntanlega teknar frá borði í dag. Um miðjan síðasta laugardag varð allharður árekstur við hlið skammt sunnan við brúna á Anda kflsá. Rákust þar saman Volks- wagen-bifreið frá Akureyri og Citroen-bifreið úr Reykjavik. Virtist helzt sem báðar bifreið- imar hafi ætlað samstundis um mjótt hlið en af skiljanlegum á- tæðum reynzt ókle'ift. Skemmd- t bifreiðimar nokkuð að fram- in, en þó reyndist Volkswagen-bif reiðin í ökufæru ástandi á eftir. Slys urðu ekki á mönnum, utan hvað farþegar VW-bifreiðarinnar köstuðust fram og hlaut bílstjórinn smáskurð á enni. Sama dag varð í Bifröst í Borg arfirði bílvelta. Fólksbifreið með háan og mikinn hlaða af tjöldum, svefnpokum og fleiru ferðalegu á þaki tók mjög krappa beygju og lagðist á hliðina. Engan mun þó hafa sakað nema bílinn, sem skemmdist nokkuð, einkum á þeirri hlið er lagðist á götuna. Þrátt fyrir þessi óhöpp hefur sumarið verið eltthvert það róleg- asta hjá Borgar lesslögreglunni í nokkum tíma. Slys og óhöpp um helgino Nokkur óhöpp og slys urðu um síðustu helgi í Reykjavík. Þeirra mest má telja um- ferðarslys, sem varð um fjög- urleytið e. h. á laugardaginn, er 5 eða 6 ára gömul telpa varð fyrir bíl á Laugarnesveginum, móts við hús nr. 42. Telpan hafði verið að elta hund út á götuna, en gætti sín ekki fyrir umferðinni og hljóp fyrir bíl, sem kom aðvífandi. Kvaðst öku maður ekki hafa séð til telp- unnar fyrr en slysið varð. Hún var flutt til frekari rannsóknar og meðferðar. Annað umferðaróhapp varð fyrir ofan Ártúnsbrekkuna á mótum Vesturlands- og Suður- landsvegar skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt sunnudagsins. Ökumanni bifreiðar hafði fip- azt undir stýrinu, ók út af veginum, upp á umferðareyju og lenti þar á umferðarskilti. Við höggið skall stúlka, sem var farþegi í framsætinu, með höf- uðið á framrúðuna og braut hana, en sjálf taldi hún sig vera ómeidda og þurfa ekki á læknisaðstoð að halda. Talið er, að bíllinn hafi skemmzt mik- ið. Annarri bifreið var sömu nótt ekið út af veginum hjá Eyri í Kjós, en ekki er blaðinu kunn- ugt um hvort þar hefur orðið slys á fólki eða ekki. Aðfaranótt mánudagsins var ekið á hest á Mosfellssveitar- veginum gegnt Blikastöðum. — ekki er vitað um afdrif hests- ins að öðru leyti en því, að hann hvarf út í myrkrið og fannst ekki aftur, en árekstur- inn var hins vegar harður, því bæði framrúða og loftnetsstöng bifreiðarinnar brotnaði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.