Vísir - 24.08.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 24.08.1965, Blaðsíða 2
7 \ V1SIR. Þriðjudagur 24. ágúst 1965.’ ROSCHBORS FCKK CRFITT FCRBALAS — 10 tíma seinkun á fiugvéi til íslonds Erfitt ferðalag Rosenborgar- manna til íslands á áreiðanlega eftir að setja mark sitt á leik þeirra í kvöld í Evrópubikar- keppni bikarliða í kvöld. KR á nú leik á heimavelli og mun áreið- anlega ekki láta sitt eftir liggja í að gera norsku bikarmeisturunum erfitt fyrir. Rosenborgarliðið kom hingað til Reykjavíkur klukkan rúmlega 2 í nótt og var þá 10 tímum eftir á- ætiun. Varð liðið að bíða lengi á flugveilinum í Kastrup og þarf ekki að taka fram, aö það hefur verið þreytandi bið. Liðin í kvöld eru þannig skipuð: Heimir Guðjónsson Ársæll Kjartansson Bjarni Felixson Þórður Jónsson Þorgeir Guðmundsson Sveinn Jónsson Sæmundur Bjarkan Ellert Schram, fyrirliði Gunnar Felixson Baidvin Baldvinsson Sigurþór Jakobsson getur sett strik í reikmnginn í kvöld Úr leiknum á Skipaskaga á laugardaginn. Eyleifur og Ellert Schram eigast þarna við, Heimir stendur bak við þá, skreiðarhjallar í baksýn. Furðulegt ferSalag KR-iaga Kolsýringur i bílaum Var það ástæðan fyrir siappieika þeirra í Beiknum gegn Akranesi? ® Ferðalag KR-inga frá Reykjavík til Akraness til hins mikilvæga 1. deildarleiks á laugardaginn var varð heldur betur sögulegt. KR-ingar vöM„ þann samgöngumáta að fá langferðabíl frá BSÍ Töldu þeir að með því móti mundi liðið fá hentug- asta ferð upp eftir, — en annað kom á daginn. Bíllinn, sem sendur var, var nokkurra ára gamall austur- þýzkur langferðabíll fyrir um 30 menn, fremur tötralegur að sjá. Það kom síðar í ljós að bíll þessi var ekki aðeins lítið augnayndi heldur reyndist hann ekki ' fullkomnu lagi og höfðu KR-ingamir andað að sér korsýringslofti megnið af leiðinni frá Reykjavík og til Akraness. Tók ferðaiag þeirra 3'/2 tíma, en 2ja tíma akstur er mjög eðlilegur á þessari leið. Til kraness komu KR-ingar iaust fyrir hálf-fjögur og var þá greinilegt að vél skrjóðsins var alveg að gefa upp andann, og KR-ingar þolinmæðina, tveir menn kvörtuðu undan þungum höfuðverk og ógleði og mörg- um leið ekki sem bezt. Bifreiðin ók um kaupstaðinn með þvf braki og brestum, sem fyrr um daginn höfðu fælt mestallan kvikfénað burtu frá Hvalfjarð- arleiðinni. í leiknum reyndist KR-liðið sljórra en nokkru sinni fyrr. Það var satt að segja ekki ein- leikið. Menn velta nú fyrir sér hvort það hafi ekki verið þessu furðulega ferðalagi að kenna og virðist það ekki ósennileg skýring, því það er vitað mál að kolsýringur getur haft mjög skaðleg áhrif og dregið þrótt úr m'Jnnum, jafnvel þótt í litlu si. Þess vegna er það ekki óeðlileg spurning að spyrja hvort kolsýringur f austur- þýzkum langferðabíl hafi orðið banabiti KR á íslandsmótinu í ár. — jbp — T. Pedersen B. Tingstad S. Haagenrud Knut Jensen Dómari: W. J. Mullan Skotlandi Línuverðir: J. Rodger — A. O. Russeil T. Kleveiands E. Hansen E. Nygaard Frode Moe T. Lindvaag K. Rönnes (fyrirliði) T. Fossen ÁRMANN VANN BÆÐIIR 0G KR Með tilkomu bikarkeppni K.K.I. virðast körfuknattleiksmenn um allt land, hafa fengið verðugt verkefni til að glfma við. 1 þessa fyrstu keppni sendu 16 Iið þátt- tökutilkynningu og hefur rikt mik- ill áhugi á keppninni, og ýmsir efnilegir körfuknattleiksmenn hafa komið fram á sjónarsviðið og fyllsta ástæða til að ætla að þátt- taka verði enn betri næsta sumar. Nýlega fór fram ieikur milli íþróttaféiagsins Þórs á Akureyri og Ungmennasamb. V.-Húnvetn- inga og Iauk honum með sigri Þórs sem skoraði 84 stig gegn 27. Nú um helgina lauk svo 2. umferð keppninnar, þá sigruðu ísfirðingar Borgnesinga með 46:45, í hálfleik var staðan 23:19. I Reykjavík sigr- aði Ármann bæði K.R. og Í.R. Ármann—K.R. 50:40 (23:26) og Ármann—Í.R. 49:36 (21:21), en at- hygli skal vakin á þvf að það eru einungis 1. og 2. flokks liö þessara félaga sem þátt taka í keppninni. Fjögurra liða úrslit fara fram f Reykjavík, væntanlega um miðjan september en þau lið eru Ármann, UMF Selfoss, íþróttafél. Þór og Körfuknattleiksfélag Isafjarðar. K.K.Í. Ársþing HSÍ Ársþing Handknattleikssam- bands íslands árið 1965 verður haldið í Reykjavík í Félagsheimili K.R. við Kaplaskjólsveg 2. og 3. okt. n.k Verður þingið sett laug- ardaginn 2 okt. kl. 14.00. Tillögur, sem leggja á fyrir árs- þingið skulu berast stjórn H.S.Í. fyrir 10. september. | STÚLKA ÓSKAST ; Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í tízku- i verzlun. Uppl. í síma 19768. ! KONA ÓSKAST Kona óskast til húsverka hluta úr degi eða eft ir samkomulagi. Góð laun. Uppl. í síma 19768 og 15561. Bíll til sölu Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðu- múla er til sýnis og splu Chevrolet sendi- ferðabifreið, árgerð 1962. Uppl. á staðnum. Tilboð sendist Skúla Sveins- syni, varðstjóra fyrir 31. ágúst n.k. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 23. ágúst 1965.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.