Vísir - 24.08.1965, Side 9
V í S IR . Þriðjudagur 24. ágúst 1965.
^SHtSHIHHHIHHHHHHHHHHHHHHHHIHHHH
9
II, Súðavík v/'ð Álftafjörð
ísafjarðarkaupstaður
er við Skutulsfjörð, vest
asta fjörðinn við ísa-
íjarðardjúp. Næsti fjörð
ur þar fyrir austan, bak
við Arnarnesið, er Álfta
fjörður. Þar kúrir lítið
þorp við miðja vestur-
hlíð fjarðarins og ber
nafnið Súðavík.
Þorpsbyggð hófst þarna, þeg-
ar norska hlutafélagið „Mons
Lars Compani“ reisti hvalveiði-
stöð á eyri tveimur kílómetr-.
um innan við Súðavík, — Lang-
eyri. Þar er raunar talin gömul
bækistöí Hansakaupmanna.
Norsku hvalafangaramir höfðu
mikið umleikis þama á sínum
tíma og dáðust íslendingar að
verkmenningu þeirra á Lang-
eyri. Verksmiðjuhúsin voru
rifin árið 1905, en eftir að Norð
menn fóm frá Langeyri var
þar rekin saltfiskverkun og síð-
ar hraðfrystihús. Nú hefur ver-
ið reist þar niðursuðuverk-
smiðja.
Óx upp um aldamótin.
Vísir átti fyrir stuttu tal við
Halldór Magnússon, útgerðar-
mann og oddvita f Súðavík,
og spurðist fyrir um viðgang
staðarins. Halldór sagði m. a.:
Framleiða lostætið
kavíar.
— Það er heldur lítið um að
vera hér núna. Þrír 20—40
tonna bátar leggja upp hér
núna, tveir heimabátar og einn
ísfirzkur bátur. Það er svo sem
alveg nóg að gera hér, enda
er töluverð atvinna við niður-
suðuverksmiðjuna á Langeyri,
hér skammt fyrir innan þorpið.
Þar er nú verið að undirbúa
niðurlagningu grásleppuhrogna,
eða kavíar.
— Verksmiðjan hefur starfað
í rúmlega tvö ár. Hún er að
nokkru leyti í gömlum húsa-
kynnum hvalveiðistöðvar og
frystihúss, sem vom þar áður,
en að nokkru leyti í nýjum
húsakynnum. 1 fyrra var lagt
Hér er Súðavik við Álftafjörð. Fjallið er SúðavíkurfjalL
OF NÁLÆGT ÍSAFIRÐI
Súðavík óx smám saman á
tveimur síðustu áratugum lið-
Toloð vlð
Halldór Magnús-
son oddvita
innar aldar og fyrstu áratugum
þessarar aldar, en hefur lengi
staðið í stað. Þorpsbyggðin
stendur dreift á meira en kfló-
Imetra löngum kafla við sjóinn
og rýmið er nóg. Stunda marg-
ir þorpsbúar enn lítilsháttar
búskap og garðrækt og er ekki
síður sveitaþorpsbragur heldur
en útgerðarbragur á Súðavík.
Þorpið er byggt í landi þriggja
jarða, Súðavíkur, Traða og
Saura.
niður í verksmiðjunni heilmikið
af þorskhrognum, sem seld
voru til Englands. Aðalstarf-
semi verksmiðjunnar hefur þó
verið í rækjunni. Hér hafa lagt
upp 6—8 rækjubátar frá Isa-
firði. Við verksmiðjuna hafa
starfað 10—15 manns, þegar
hún er f fullum gangi.
— Hér er ekki stunduð nein
trilluútgerð, enda emm við of
langt frá miðunum fil þess að
það borgi sig. En aftur á móti
hefur verið stunduð hér sér-
kennileg útgerð á einum bát.
Hann hefur verið á hrefnuveið-
um og hefur fengið fimm hvaii
síðan í vor,
— Hreppurinn fær 1 milljón
í útsvör á þessu ári og alls
1,6—1,7 milljónir f tekjur. Mest
af þessu fer í rekstur á ýmsum
föstum liðum svo sem líftrygg-
ingum og skólamálum.
Engin höfn —
bara bryggja.
— Hvað framkvæmdir snertir,
er veitt 200.000 krónum til þess
að gera við trébryggjuna héma.
Til viðbótar fáum við lán, svo.
sem úr atvinnuleysistrygging-
arsjóði, þannig að það verður
unnið við bryggjuna fyrir 600.-
000 krónur á árinu. Bryggjan
var raunar stækkuð og endur-
bætt fyrir tveimur árum, svo
að hún verður allgóð sem slík
eftir endurbætumar f sumar.
— Það hafa verið gerðar á-
ætlanir og mælingar í sambandi
við mögulega hafnargerð hér,
því trébryggjan er alveg ófull-
nægjandi, en við höfum ekki
haft bolmagn til að ráðast í
neinar slíkar framkvæmdir. Við
eigum að vísu að fá 600.000
krónur af Vestfjarðaráætlun-
inni til þe að endurbæta höfn
ina, en það er lftið hægt að
"iíT’v 1 JjO? 6» i
stækka hana fyrir þá peninga.
Til þess að gera höfn hér þarf
4—5 milljónir króna, ef eitt-
hvað gagn á að vera í því. Hér
eru mjög góð skilyrði til hafn-
argerðar.
— Hafnarsjóður er mjög fá-
tækur af því að skipaumferð er
hér nær engin. Strandferðaskip-
in koma ekki hingað, þótt að-
staðan leyfi það. öllum vörum
hingað er yfirleitt skipað upp
á Isafirði og þaðan er fram-
leiðslan héðan líka flutt út.
Skammur vegur
til ísafjarðar.
— Samgöngumar til ísa-
fjgrðar eru ágætar nú orðið.
Þangað liggur sæmilegur vegur
og er hálftíma leið á bíl til ísa-
fjarðar. Og .þessi vegur er fær
allt árið um kring nema dag og
dag á vetmm. Þjónustu sækj-
um við að mestu til ísafjarðar.
Þar situr t.d. læknirinn í svo-
nefndu Súðavíkurhéraði, en
það nær yfir alla Norður-ísa-
fjarðarsýslu austan ísafjarðar-
kaupstaðar.
— Það tekur því varla að
minnast á byggingaframkvæmd
irnar hér, því þær eru engar
Að vísu á að fara að byggja
dálítið spennistöðvarhús fyrir
rafmagnsveituna, en ibúðarhús
em engin byggð. Það kom dá-
lítil skorpa í byggingarnar fyrir
tveimur-þremur árum og voru
þá byggð sex íbúðarhús, en síð-
an hefur ekkert verið byggt.
— íbúðafjöldinn hefur staðið
1 stað hér í mörg ár og eru nú
hér 204 íbúar. Það er yfirleitt
heldur lítið um að vera hér, en
atvinna er samt nóg, þótt hún
mætti svo sem vera meiri. Uppi
staðan í atvinnunni eru bátarn-
ir og niðursuðuverksmiðjan.
— Það má segja, að nálægð-
in við ísafjörð hafi háð Súðavík
og hindrað vöxt þorpsins.
Færeyskir stúdentar
Stúdentaráð Háskóla íslands bauð
nýlega tveimur fulltrúum Megin-
félags föroyskra studenta hingað
til lands, og dvöldu þeir hér f
boði Stúdentaráðs dagana 14. —16.
ágúst s.l. Gestirnir voru Hans J.
Debes, forrrtaður Meginfélagsins,
og Árni Ólafsson, formaður utan-
ríkisnefndar þess. Tilgangur Stúd-
entaráðs með boðinu var að stuðla
að auknum skilningi milli þessara
tveggja stúdentasamtaka og sam-
vinnu þeirra að ýmsum sameigin-
legum áhugamálum.
Á fundi Færeyinganna með full-
trúum Stúdentaráðs og utanrfkis-
málanefndar þess mánudaginn 16.
ágúst ríkti mikill samhugur. Var
samþykkt, að báðir aðilar könnuðu
möguleika á að hefja fljótlega stúd
entaskipti á milli Háskóla íslands
og Fróðskaparseturs í Tórshavn ,en
það er nafn hins nýstofnaða vísis
að færeyskum háskóla. Yrði gert
ráð fyrir, að einstakir stúdentar
dveldust í 3—4 vikur við nám í
hinu landinu fyrir milligöngu stúd-
entasamtakanna. Þá var samþykkt
að kanna möguleika á að halda
færeysk-íslenzk stúdentamót, e. t.
v. hið fyrsta næsta sumar í sam
bandi við Ólafsvökuna í Færeyjum
eða 17. 'úní-hátíðahöldin hér. Enn-
fremur var ákveðið, að samtökin
skyldu í framtíðinni leitast við að
skiptast á hagnýtum upplýsingum
í ríkari mæli en verið hefur.
heimsókn
I sambandi við þennan fund
færði formaður Meginfélagsins
Stúdentaráði að gjöf færeyskan
borðfána frá félagi sínu.
Á sunnudaginn var færeysku
gestunum boðið til Þingvalla,
Geysis og Gullfoss. Daginn eftir
áttu þeir viðræður við rektor Há-
skóla íslands, prf. Ármann Snæ-
varr. Þá var þeim boðið að skoða
íslenzka útvarpið, en annar þeirra
vinnur einmitt v'ið færeyska út-
eysku gesta mjög ánægjuleg og
I heild var koma hinna fær-
eyzku gesta mjög ánægjuleg og
allur árangur viðræðna einkar já-
kvæður.
Þess má geta að' lokum, að
A myndinni eru, talið frá vinstri, Sigurður Björnsson, yfirmað-
ur utanríkismála í Stúdentaráði, Ámi Ólafsson form, utan-
ríkisnefndar færeysku stúdentasamtakanna, Hans J. Debes,
form. Meginfélags færeyskra stúdenta, og Helgi Guðmunds-
son form. utanríkismálanefndar Stúdentaráðs Háskóla íslands
Stúdentaráð hefur sent Stúdenta-
handbókina, sem það gaf út í
fyrra, að gjöf til allra þeirra, sem
taka stúdentspróf að ári í Færeyj
um, til kynningar á kennsluhátt-
um við Háskóla íslands, en fáir
Færeyingar hafa verið við háskóla-
nám hér undanfarið.
(Frá Stúdentaráði Háskóla G-
lands).