Vísir - 24.08.1965, Page 15

Vísir - 24.08.1965, Page 15
V í S IR . Þriðjudagur 24. ágúst 1965. EDWARD S. ARDNS: 15 'iísi'jwvw.i.'édk tmms pæjarar = Saga um njðsnir og ásiir á ííaSíu til umráða tii þess að ljúka hlut- verki sínu. Durell gat ekki hætt á að verða látinn dúsa inni nokkra daga. Hann tók skjóta ákvörðun. Hann greidd’i manninum nýtt högg og maðurinn hneig niður án þess að gefa frá sér hljóð. Durell greip han í fallinu og lagði hann varlega niður. Svo þre'ifaði hann á slag æð mannsins eins og hann væri að gera eitthvað, sem ekki skipti máli. Tíu minútum síðar sat hann í íeigubil á leið tii Hote! de la Paix. Prinsinn veitti honum strax mót- töku. Þjónn í austurlenzkum bún'- ingi hneigði sig fyrir honum, og sagði, að hans hátign prinsinn hefði beðið eftir honum og vildi herra Durell gjöra svo vel að koma með sér. Þjónninn gekk á undan honum gegnum hvert her- bergið á fætur öðru og voru þau öll búin dýrindis húsgögnum. Prins inn var ekki klæddur austurlenzk um búningi, heldur frænum fötum og hann var f hvítri skyrtu með dökkt, einlitt bindi um hálsinn. Hann sat út við vegg í stól með háu baki. Hann var smáfættur mjög og var í gljáburstuðum skóm Fætur hans snertu ekki gólfið. , — Monsjör Durell, sagði hann, þolinmæði vor var næstum þrotin, bg oss hafði flogið í hug, að banda rísk stjórnarvöld hefðu ekki mik~ Jnn áhuga á máli \ því, sem vér höfum miklar áhyggiur af. , — Flugvél minni hafði seink- , ,að, sagði Durell. Ég er nýkominn frá Bangkok, þar sem ég starfaði með viðskiptasendinefnd og mönn jum frá Noramco Tin. , — Eruð þér verkfræðingur? — Nei. — Leynisnápur, vitanlega. Þér lítið líka þannig út. Sama mann- gerð og herra Talbot. — Ég held nú ekki að við Tai- bot séum neitt líkir. Prinsinn brosti kuldalega. Hann var kringluleitur, feitlaginn í and- liti. í augum hans var ekki meiri hlýja en i granít, en samt vöktu augu hans nokkra athygli Durells, | sem ályktaði að fyrir nokkrum; mannsöldrum kynni blóð einhvers | forfeðra hans hafa blandazt frönsku | blóði. Mikil óprýði var að öri á andliti hans sem náði úr öðru munnvikinu f boga að eyrnarflipa ■hans. — Vér verðum brátt að hverfa til lands vors, þar sem nauðsyn | krefur a" vér hröðum okkur heim.' Vitið þér nokkuð um málverkin m(n? — Mér skilsf að þér séuð viss um, að Jack Talbot hafi tekið þau án leyfis? — Hann stal þeim, sagði prins- inn. Og vér krefjumst þess að þeim verði skilað þegar í stað. Mér er sama hvernig þér náið þeim — — en það verður að ná þeim og skila þeim án tafar. — Eruð þér nú viss um, að Jack Talbot sé sökudólgurinn? spurði Durell. Við efumst ekki um, að þér teljið hann hafa stolið þeim en vel vitið þér að hér er um svo verðmæta dýrgripi að ræða, að hver einasti listmunaþjófur á meginland inu mundi hætta á mikið til þess að ná þeim. — Vér erum ekki að hugsa um peningaverðmæti málverkanna. Þau eru heilög í okkar augum. eru : ættartafla vor í 1200 ár. Þau eru ■ vor dýrmætasta eign. Maður eins og herra Talbot, sem vér treystum, og var í þann veginn að tryggja landi yðar viss réttindi í voru 'iandi, gæti verið gott dæmi um það, hve vel er treystandi þeim fyrirtækium bandarískum, sem vilja semja við oss. — Og það er sama sem og að segja umbúðalaust, að fyrst Jack Talbot sé þjófur séu allir Banda- ríkjamenn jrjófar. — Afföll þau er menn verða fyr- ir hafa áhrif á skoðanir þeirra og afstöðu. Þar sem ríkisstjórn yðar hefur falið yður málið munum vér tala í fullri hreinskilni. Vér óskum eftir því að hafa fengið í vorar hendur Dwan-málv., er við stíg- um upp í flugvélina eftir þrjá daga. Vér hvikum ekkj frá þeirri af- stöðu. Gerist þetta ekki, er öllum samkomulagsumleitunum ráðherra | lands yðar við oss slitið. Durell var Ijóst hve erfiður mað ; ur Túvanafan prins var við að eiga. Hann var sjálfselskur ein- ræðisherra, sem var vanur að fá vilja sínum framgengt í öllu. Hann var slægvitur, gat dansað stjórn- málalegan línudáns af mikilli list. Hann hafði til að bera allt það, sem einkennir stjórnmálamenn Austurlanda, slægvitra, dula, sem aldrei létu vélast til neins, og á- vallt hugsuðu eitthvað, sem þeir létu ekki í Ijós, er þeir töluðu. Dur ell hafði kynnzt mörgum slíkum, en í hans starfi giltu ekki aðrar reglur en þær, sem leiddu til þess að árangur næðist. Viðræðan var stutt, en það heppnaðist Durell að varðveita ró sína þrátt fyrir hinar grófu ásak- anir Tavanafans. Sannleikurinn var sá, að engar sannanir lágu fyrir um að Jack Talbot væri sökudólg j urinn, aðeins líkur, Talbot og tveir S af mönnum prinsins höfðu komið aftur frá Rómaborg kvöldið áður klukkan hálfsjö, og hólkarnir voru settir í eitt af svefnherbergjunum í íbúðinni. Klukkustundu síðar kom í Ijós, að Talbot var horfinn og þjónninn, sem hafði fengið það hlutverk að gæta málverkanna lá meðvitundarlaus á gólfinu. Þegar hann raknaði úr rotinu sagði hann að Talbot hefði barið sig niður og farið með málverkin. Þegar Durell baðst leyfis um að megr. yfirheyra þjónustufólkið neitaði Túvanafan því afdráttar- laust. Og Durell gat engu lofað um að vera búinn að hafa upp á Talbot og málverkunum áður en prinsinn héldi heimleiðis. Viðræð- urnar höfðu því næsta lítinn árang ur borið. — Við höfum þó rætt málið hvcr i frá sínum sjónarhóli, sagði prins- inn brosandi. Vér óskum ekki hefndar. Vér látum yður um að hegna Talbot, en ekkert samstarf 1 við North American Tin kemnr til greina fyrr en búið er að finna viðunandi lausn á þessu máli. Þegar Dureil var á leið út úr, íbúða Túvanafans gat hann ekki var ^ izt því, að ala grunsemd um, að prinsinn hefði af ásettu ráði leit- að átyllu til þess að fella niður , viðræður þær við Ncramco Tin, j en ekki var hann viss um það. Framkoma prinsins var eðlileg j 1 þegar tekið var tillit til tignar hans ■ uppeldis og skapgerðar. Og það : sem skipti máli nú var að finna málverkin og afhenda þau. Elien hafði engar upplýsingar getað gefið sem að gagni komu varöandi gerðir • Talbots síðasta sólarhringinn, um j {hvað hann aðhafðist, að undan- téknu þvf, að líkur voru fyrir, að ■■ hann væri valdur að hvarfi mál-: verkanna, en Silas Hanson hafði i i fengizt Við málið allan daginn j j svo að hann ákvað að fara á fund j j hans þegar f stað. En hann tafðist dálítið. í for- j salnum að íbúð greifans brosti I þjónninn einkennilega og sagði: — Afsakið herra, en það er mað ur sem óskar að hafa tal af yður, áður en þér farið. * í sömu svifan opnuðust dyrnar og Anton Pacek kom inn. Durell brá, en lét ekki á því bera. Pacek brosti gleitt. Hann minnti á krókódfl, sem opnaði gin sitt. Þótt hann væri feit laginn og þungur var hann furðu léttur í hreyfingum. Hann rétti fram þykka, luralega hönd, en Dur ell lét sem hann sæi það ekki. — Gott kvöld, herra Durell. Við hittumst hér á hlutlausu svæði Pacek dró að sér hönd sína brosandi. — Þér virðist úr jafnvægi, vinur minn. — Ég er ekki vinur yðar, sagði Durell. — Svo sannarlega eruð þér reið ur, sagði Pacek — Alls ekki, hvað eruð þér að gera hér, Pacek? — Ef til vill er ég í sömu er- indum þér. Við höfum talað um viðskipti, Túvanafan prins og ég. Það er allt og sumt. Dálítið við- skiptasamkomulag milli míns lands og Hans var til umræðu okkar í milli. Durell vissi vel hve þjálfaður og duglegur Pacek var. Hann var svíramikill, herðar þreknar, hendur sterklegar, varir bláleitar. Durell vissi, að Pacek hafði á sínum tíma tekið ágætt próf í háskólanum í Moskvu og þar áður hafði hann lokið verkfræðiprófi í Berlín. Hann hafði- verið sæmdur Leninorðunni, orðu Rauða fánans, og slík var kaldhæðni lífsins, að hann hafði verið sæmdur bandarisku heiðurs merki eftir síöustu heimsstyrjöld. Rándýrslegt útlit hans var villandi. Þessi kraftajötunn var bráðgáfað- ur maður — og hættulegur and- stæðingur. — Komið msð mér, Durell, við skulum ræðast við undir beru lofti Þér getiö verið alveg öruggur... — ... fyrir hverjum? Lævísin í svip Paceks hafði ekki farið framhjá Durell. Pacek yppti öxlum. — Eigum við ekki að semja um vopnahlé — um stundarsakir? Við skiljum hvorn annan. — Eruð þér viss um það? — Verið svo vinsamlegur að koma út. Veggirnir hér eru ekki hljóðeinangraðir. — Yður mun bezt manna kunn ugt um hvort svo er eða ekki. — Við ættum að ræða viðskipti, sngði Pacek. Við erum báðir skyn- rcniir menn. Ég ber virðingu fyrir '■••r. Durell. Við vitum allt um yð- •>r sem vitað verður. Og sumir okk sr óttast vður. Ég er þó ekki í beim hópi, en ég viðurkenni yður sem minn hasttnlegasta andstæðing Og vitanlega harma éa, að þér skuluð halda áfram að starfa í blindni fyrir húsbændur j'ðar, þessa heimsvaldasinna. — Hættið áróðursþvættingi yðar, það er tímaeyðsla. — Afsakið, ég veit hve önnum kafinn þér eruð. Ég veit um úr- slitakosti Túvanafans. Þeir gengu út. Er út á göfuna kom hugsaði Durell á þá leið, að Pacek mundi ekki hætta á neitt, stm af gæti leitt fhlutun svissn. lögreglunnar, að minnsf-a kosti mundi hann ekki hætta á neitt utan gistihússins. Veður var enn gott. Pacek kinkaði kolli á áttina til hafnarinnar, eins og hann með því vildi gefa til kynna, að hann vildi, að þeir færu f þá áttina. Margt manna var á ferli. Klukkan var ekki enn orðin tfu. Durell fór ekki í neinar grafgötur um, að KGU vildi gera hann „óskaðlegan" ef til vill koma honum fyrir katt- amef. Hann var því vel á verði og hugleiddi hvað Pacek mundi hafa í huga. Hann gat ekki gert sér grein fyrir hvort þeim var veitt eftirför. Pacek mundi sennilega vera vopnaður, en þótt svo væri ekki, voru margar aðferðir til þess að ryðja mönnum úr vegi. Hann gætti þess, að ganga ekki of nærri Pacek. Og augljóst var ,að Pacek SNYRTISTOFA STELLA ÞORKELSSON Snyrtisérfræðingur Hlcgerði 14 . Kópavogi Simi 40613 ViSIR ASKRIFENDAÞJONUSTA > Askriftar- l Kvartana- s,minn er <1661 virka daga Kl 9- 20. netna laugardaga ki. 9 - 13. AUGLÝSING 9 VlSI eykur vidskiptin MAV8E I WAITE7 TOOLONG, , MOMBAI, AFTER EVIL MEN STICK. ME WITH BA7 ME7ICINE, BEPORE T X CAME FOR VIOUK 1“ ' Annar dagur rís yfir þorp bakið á þér, Tarzan vinur. Þú stungið mig með þessu vonda bregzt læturðu hmnavélina töfralæknanna, en í húsi Momba segir að fætur þínir séu enn lyfi áður en ég kom til þess að koma á morgun og fara með þig er Tarzan enn með lamaða fætur dauðir. Kannski beið ég of lengi leita hjálpar ykkar? Við eigum til Mombuzzi. Við höfum notað 3 matimati á eftir að vondu menn’irnir höfðu einn matimafi eftir. Ef þetta wtsm KOPAVOGUR Afgreiðslu VÍSIS í Kópa vogi annast frú Birna Karisdóttir, sími 41168. AfgreiðsJan skráir nýja kaupendur og þangað ber að snúa sér, ef um kvartanir er að ræða HAFNARFJÖRÐUR Afgreiðslu VISIS i Hafnarfirði annast frú Guðrún Ásgeirsdóttir, dmi 50641 Afgreiðslan skráií nýja kaupendur og þangað ber að snúa sér, ef um kvartanir ar að ræða. KEFLAVÍK j Afgreiðslu VlSIS í Kefla /ík annast Georg Orms- :on. sími 1349. Afgreiðslan skráir nýja kaupendur og þangað ber að snúa sér, ef um kvartanií er að ræða.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.