Vísir - 10.09.1965, Blaðsíða 7

Vísir - 10.09.1965, Blaðsíða 7
n 7 V1 S IR . Föstudagur 10. september 1965. GÍSLI J. JOHNSEN þó umsvifin minnkuðu eftir stríð «g mætti þar á skrifstofu sinn þrátt fyrir háan aldur og hrakandi heilsu, unz hann lagð ist banaleguna. Gísli var tvíkvæntur. Fvrri kona hans Ásdís Gísladóttir andaðist árið 1945. Síðari kona hans Anna Ólafsdóttir lifir mann sinn. Óþarfi er að fara frekari orð um um eðliskosti hins látna forustumanns. Fáum hefur ver ið sú gæfa gefin að verk þeirra gætu talað jafn sterkum rómi um mannkosti og framtak og verk Gísla Johnsens. Þorsteinn Thorarensen t Mér er bæði ljúft og skylt að minnast Gísla heitins og þess góða akurs, sem hann spratt upp úr. Af heimili móður hans hafði ég góð kynni, svo aldrei féll skuggi á ,allan þann tíma, sem ég var þar til heimilis. Foreldrar Gísla voru Jóhann Jörgen Johnsen og Sigrfður Árnadóttir Johnsen. Þau hófu búskap f Vestmannaeyjum á erfiðleika- og fiskileysisárunum um 1880. Jóhann var dugnaðar- maður og mjög vel látinn. Hann reisti stærsta íbúðarhúsið í Vest mannaeyjum 1883 og hafði mikil umsvif og mörg jám í eldinum og var þar vel studdur af ágætri eiginkonu sinni. Þau héldu uppi fjölmennu út- gerðarheimili, oft á vertíðum voru þar 20 manns. Jóhann fékk veitingaleyfi og tók jafnframt að sér þá kvöð að halda uppi sjúkrahúsi fyrir aðkomusjúkl- inga, þó undarlega muni það hljóma í eyrum nútímamanns- ins, að sameina veitinga- og sjúkrahúshald. Þetta var gjört af bráðri nauðsyn, þvl hrepps- félagið var þess ekki umkomið sjálft að bæta úr sjúkrahússkort inum. En það verður skiljan legra þegar á það er litið, að vfnveitingar voru mjög af skorn um skammti og veitingahúsinu beinlínis ætlað eins og kom fram í bréfum sýslunefndar að halda niðri drykkjuskap í Eyjum og skapa góðar umgengnisvenjur. Jóhann sat og eyjajörð og farnaðist vel, enda voru þau hjón samhent að dugnaði og hagnýtni. Hann féll frá á bezta aldri og skildi eftir sig ekkju og 5 drengi og sá yngsti aðeins á fyrsta ári. Sigríður hélt öllu í sama horfi. í dag er hann til moldar bor- inn þessi mæti sonur fóstur- jarðarinnar, er ríkan þátt átti í eflingu atvinnuveganna og framförum með þjóð sinni, enda var hann af því bergi brotinn, sem mikils mátti vænta af. greindur og glöggskyggn svo af bar. Hér er ekki ætlunin að lýsa hinum margþættu störfum þessa brautryðjanda á ýmsum sviðum það hafa gert op gera aðrir mér færari. Gísli Johnsen var af lands- kunnum ættum sem rekja má til landsnámsmanna og forn- ko' íga í marga liðu, en hér verður ættar hans getið lítil- íega. Faðir hans va- af merkum k»upmannaættum frá Suður-Jót landi. Afi Gísla og langafi ráku og áttu Flensborgarverzlun f Hafnarfirði og Papósverzlun. Voru þeir mjög vel látnir. Um það vitna ummæli Ara Hálfdán- arsonar hreppstjóra á Fagurhóls mýri í blaðagrein og Þorleifs alþm. í Hólum. Móðir Jóhanns Johnsen föður Gfsla var Guðfinna Austmann, déttir séra Jóns Austmanns á Ofanleiti, er var dóttursonur séra Jóns Steingrímssonar og konu hans Þórunnar Hannesdótt ur Scheving. Faðir séra Jóns Austmanns var séra Jón á Kálfa i'elli Jónsson Runólfssonar lög- réttumanns á Höfðabrekku af Höfðabrekkuætt, er þar hélzt við óðul öldum saman, komin af Eyjólfi Einarssyni lögmanni í Dal, föðurs Einars sýslumanns sama stað, er átti Hólmfríði ríku systur Þorvarðar Erlends- sonar lögmanns og Vigfúsar Erlendssonar hirðstjóra á Hlíð- arenda. Sonur Einars og Hólm- fríðar var Eyjólfur junkæri í Dal er Jón Arason biskup gifti Helgu dóttur sína og stóð brúð kaup þeirra á Hólum. Höfðabrekkumenn höfðu þann heiður að hafa varðveitt handritið af Sæmundareddu, codex regius, hjá þeim hafði Brynjólfur biskup fengið hand- ritið. Sigríður móðir Gísla var greindar- og myndarkona, bú- sýslukona stórbrotin og sterk að allri gerð. Trúkona og tryggða- tröll og ekki vantaði hjarta- hlýjuna við munaðarleysingja og þá sem bágt áttu. Hún var listakona og lék allt í höndum hennar ,eins og sum verk hennar vitna um. Um margt var þessi kona lík hinu svipmikla héraði sem hún ólst upp í. Faðir hennar var Ámi Þórar- insson bóndi á Hofi í Öræfum. Kominn af Þorleifi lögréttu- manni á Hofi Sigurðssyni sýslu manns Stefánssonar og Þórunn ar Jónsdóttur lögréttumanns á Dyrhólum Ólafssonar sýslu- manns sama stað Einarssonar á Felli Þorsteinssonar sýslu- manns á Þykkvabæjarklaustri. Þórunn var í móðurætt komin af Goðdalaklerkum, Oddi bisk- upi Einarssyni og Bjarna sýslu manni á Burstarfelli. 1 móðurætt var Árni faðir Sigríðar kominn af Svfnfelling um og telja menn það sömu ættina og hina fomu Svínfell- inga frá Þórði Freysgoða. Með kvonfangi Sveins ríka 1 Svínafelli Jónssonar, er hann gekk að eiga Vilborgu Ámadótt- ur Pálssonar umboðsmanns á Skriðuklaustri, tengist þessi ætt við helztu ættir á Austurlandi. Páll faðir Vilborgar var sonur Bjöms sýslumanns Gunnarsson-* ar dáinn um 1603. Kona Páls vai Þuríður Árnadóttir sýslu- manns á Eiðum og þaðan var Árnanafnið komið í Öræfin og bar Árni Þórarinsson, er kom inn var af Sveini í Svínafelli nafnið. Geta má þess, að þær vom frændkonur Sigríður Áma- dóttir Johnsen og Helga Árna- dóttir frá Hofi í Öræfum, móð ir Bjarna Jónssonar frá Vogi. Steinunn á Hofi móðir Sigríðar var Oddsdóttir Gunnlaugssonar á Búlandsnesi Oddssonar lög- réttumanns ríka í Papey. Hér hefur að nokkm verið rakin ætt Gísla og ekki hefði fyrri aldar mönnum þótt sæma að slíkur maður lægi óbættur hj garði hvað þessi efni á- hrærði. A lokum þetta um leið og ég kveð Gísla með beztu þökk um fyrir höfðingsskapinn og allt það góða, sem hann lét af sér leiða. Jón forsætisráðherra Magnússon hafði látið þau orð falla í skáldaræðu er hann hélt fyrir Gísla við visst tækifæri, að mótið, sem hann var mótað- ur f, hefði brotnað. Þeim mörgu er á hlustuðu, þóttu ummælin eftirtektarverð, því vissulega y ði vandfundinn hans líki. Sigurður J. Árnes. t písli J. Johnsen stórkaupmað- ur andaðist að heimili sínu, Túngötu 7, s.l. mánudag 6. þ. m., nærri 85 ára að aldri. Hann verð ur borinn til grafar í dag., Með Glsla J. Johnesn er geng- inn einn mesti athafnamaður þessa lands, sem var brautryðj- andi á fjölmörgum sviðum og sístarfandi til síðustu stundar. Hann lifði hina mestu umbrota tíma þjóðar sinnar, meðan hún reis úr örbirgð til bjargálna, og var í þeim umskiptum virkur þátttakandi. í æsku hans var verzlun öll og viðskipti f hönd- um ■ erlendra aðila, er hirtu lítt um þjóðarhag. Landsmenn þén uðu ekki fyrir brýnustu nauð- synjum, þótt stritið væri ærið. Þeir þekktu ekkert til véla eða afkastamikilla tækja og höfðu heldur ekki efni á að eignast slíkt. í landinu var allt niðumýtt og varla til sæmilegt hús eða mannvirki að talizt gæti. Allt var af vanefnum gert, skipakost ur lítill og lélegur Ekki voru til vegir eða brýr, samgöngur voru í molum, enginn sími og póstur var borinn á bakinu milli héraða. Otlendingar höfðu umráð yfir öllum verzlunarleiðum, bryggj- um þerrireitum, fiskhúsum, upp- skipunarbátum og öllu því, er til viðskipta þurfti, og allur arður- inn af viðskiptum og striti lands manna fór út úr landinu. Þá var það sem ármenn ís- lenzkra framfara koma fram á sjónarsviðið. Fremstan f þeirra flokki má nefna Gísla J. John- sen. Gísli var fæddur 1881 frosta veturinn mikla 10 marz í Vestmannaeyjum. Vestmanna- eyjar verða vettvangur hans. Rétt fyrir aldamótin leggur hann til atlögu við dönsku selstöðu- verzlunina þar og stofnar þá, ennþá ómyndugur verzlun undir nafni Sigríðar móður sinnar. Það þótti í mikið ráðizt og af mörgum álitið ofætlun svo ung- um manni og félitlum, að ætla sér að ná þeim lóðum, verzlun- arhúsum, þurrkhúsum, vöru- geymsluhúsum og öðru, er til þurfti til verzlunarreksturs og útgerðar í stórum stíl og það náðist heldur ekki án erfiðis eða baráttu. Gísli J. Johnesn tók við verzl- inni á eigið nafn 1902 og hafði þá.fengið fullmyndugralfiyfi hjá stjómarvöldum 21: árs ■ að aldri. Verzlunarfýrirtæki hans varð brátt aðsópsmikið og eitt stærzta verzlunarfyritæki hér á landi. Jafnhliða verzluninni hafði hann á hendi skipaaf- greiðslu og póstafgreiðslu í Vest mannaeyjum. Jafnframt verzlun inni rak hann mikla útgerð, átti marga báta og var einn aðal- frömuður á vetvangi vélbátaút- gerðinni. Varð fyrstur til að fá vél í bát í Vestmannaeyjum. Gísli yar hinn fæddi forustu- maður og stóð með afburða dugnaði í broddi fylkingar í öllu því, er til nýjunga og framfara horfði. Fyrir utan fyrsta vélbátinn má benda á, að hann byggði fyrsta vélfrystihúsið í Vestmannaeyj- um, sem jafnframt var fyrsta vél frystihúsið í landinu. Hann byggði og þar fyrstu fiskimjöls- verksmiðjuna en allir vita, að frystihús og mjölyerksmiðjur eru meðal stórfeldustu atvinnu tækja hér á landi og hafa stuðl- að að mestri aukningu þjóðár- teknanna. Þá var Gfsli frumkvöð ull gð lagningu síma til Vest- mannaeyja og ótal mörgu öðru, sem hér verður ekki talið. Auk atvinnureksturs sfns mátti Gísli svo sinna ótal mörgum trúnaðar störfum fyrir bæjarfélag sitt sem bæjarstjórnarfulltrúi, sýslu- nefndarmaður og forstöðumað- ur ýmissa stofnana, þá var hann og brezkur ræðismaður f Eyjum Allt, sem Gísli J. Johnsen kom nálægt, var framkvæmt af svo miklum stórhug og myndarskap, að undrun vakti. Nægir þar að benda á að hann gaf Vestmanna eyingum sjúkrahús til af- nota. Var það met f rausnarskap, sem ekki var slegið út fyrr en seinna af honum sjálfum, er hann gaf Slysavarnarfélagi ís- lands vandaðan nýtízku björg- unarbát með öllum búnaði. Starfsævi Gísla J. Johnsen má skipta í tvö aðskilin tfmabil. Fyrst er hann brautryðjandinn mikli f Vestmannaeyjum, sem á drýgstan þáttinn f að gera fæð- ingarbæ sinn að þeirri miklu út- gerðarstöð og athafnamiðstöð, sem hann er í dag. í viðurkenn- ingar- og þakklætisskyni gerðu Vestmannaeyingar hann að heið ursborgara sínum, og þegar þeir spurðu andlát hans, voru allir fánar þar drengir í hálfa stöng. Eftir að hafa orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni í kreppunni 1930 og verið neyddur til að selja eða láta af höndum eignir sínar á mjög óhagstæðu verði varð Gísli aftur að byrja á nýjan leik. Nú skipti Gísli alveg um hætti beinum atvinnurekstri og útflutningsverzlun, en helgaði sig aðallega innflutningi véla f skip og tækja til vinnuspamaðar og stórvirkra framkvæmda. Og hann var meðstofnandi margra þjóðþrifa-fyrirtækja, sem enn í dag eru með blómlegustu fyrir- tækjum þessa lands. Segja má, að áhugi hans hafi beinzt að öllu því, er til þjóðþrifa og fram fara horfði. Ég, sem þetta rita, kynntist ekki Gísla J. Johnsen persónulega fyrr en hann var kominn á þann aldur, sem flestir draga sig í hlé að afloknu löngu og farsælu ævistarfi. En þótt Gísli J. Johnsen væri þá orðinn sextugur að aldri, átti hann eftir að koma mörgum hugðarefnum sínum í framkvæmd. Eftir þetta byggði hann sér heimili, sem er eitt af fegurstu húsum borgar- innar, en áður hafði hann byggt sér fbúðarhús á svipuðu stað sem þótti tilvalinn sendiráðsbú- staður fyrir stórveldi, og er það enn. Fyrstu kynni mín af Gísla voru þau, er hann færði Sjó- mannadeginum dýrmætan verð- launagrip til að keppa um f kappróðrum, en frá upphafi sýndi hann sjómannadagssam- tökunum sérstakan velvilja, og var hann og frú Anna, kona hans, sérstaklega hlynnt bygg- ingu Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, og þá ekki síður starf semi Slysavarnafélags Islands. En þannig var háttað, að skrif- stofa S. V. F. í., sem ég veitti forsöðu, var í mörg ár í sama húsi, Hafnarhúsinu, og beint yfir skrifstofu og vara- hlutageymslu Gísla J. Johnsen. Við mættumst þvf oft í stigan- um, og við höfðum það sam- eiginlegt að þegar sérstök verk- efni kölluðu að, sem fljótlega þurfti að Ijúka og sem nokkuð oft vildi verða, þá vorum við ekki bundnir af ákveðnum vinnu tíma, oft vorum við einir við vinnu í hinu mikla húsi fyrir utan tollverði og hafnarverði, er skiptu vöktum. Oft undraðist ég þá hinn eldlega áhuga Gísla og starfsþrek. Það hlýtur að hafa verið mikilfenglegt að sjá hann taka til hendi, þegar hann var upp á sitt bezta. Það virtist ekkert það vera, sem færi fram hjá honum. Þrátt fyrir langan vinnudag og vafstursöm og mik- il viðskipti virtist hann hafá tíma til að fylgjast með öllu, sem var talað og skrifað um og til einhverra heilla horfði. Jafn- vel hinar lengstu ritgerðir og flóknustu mál hafði hann kynnt sér til hlýtar, og sýnir það, hve eldfljótur hann hefur verið að fara yfir lesefni og festa sér það í minni. Þegar urðu hörmu- Ieg slys, fylgdist hann af athygli með því, hvað hægt var að gera til hjálpar, og hann skildi allar aðstæður svo ve' þvf sjálfur hafði hann sem útvegsmaður og eigandi margra skipa átt marga andvökunótt fyrr á árum við að útvega hjálp og gera út hjálpar leiðangra á óveðursnóttum. Það var ekki minnst vegna þess, sem hann og kona hans, frú Anna Johnson, tóku þá á- kvörðun að gefa Slysavarnafé- lagi íslands fullkominn vélbjörg- unarbát fyrir Reykjavík, þegar Frh. á bls 4

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.