Vísir - 22.10.1965, Qupperneq 1
V
VÍSIR
55. árg. — Föstudagur 22. október 1965. — 241. tbl.
'Tff
Susanna Reith hið umdcilda
strandskip liggur enn í Reykja
BLAÐIÐ í DAG
víkurhöfn og er óljóst hver ör
lög þessa skips verða. Nýlega
er kominn hingað þýzkur mað
ur fyrir eiganda skipsins tii að
kynna sér málið og nú um helg
ina er væntanlegur eigandl
skipsins Hans Edwin Reith, en
hann er nú staddur i Banda-
rikjunum. Hann er eigandi Or-
Framhald bls 6.
Fyiri eigandi SUSÖ\'NU
kemur hingað um helgina
Lögreglan fær radar-tæki
til hraðamælinga
. . . og þannig lítur mælirinn út, sem markar hraða bifreiðarinnar
skýrt og greiniiega.
Merkileg nýjung í umlerðareltirliti
Lögreglan er nú að fá nýtt
tæki til þess að hafa eftirlit
með hraða bifreiða og á að
reyna það á næstunni í Reykja
vík og nágrenni og kanna hvaða
gagn er hægt að hafa af því.
Hér er um að ræða radar-tæki
sem getur svo að segja á svip
stundu sagt fyrir um hraða
þeirra bifreiða sem því er
beint að.
Tækið kallast „Stephenson
Radar Speedanalyser". Það er
í tveimur hlutum. Annar hlut-
inn en nokkurs konar radarspeg
ill, sem beint er móti bifreið
þeirri sem mæla á hraðann á.
Hinn er mælir, þar sem mæl-
isnál markar skjótlega hraða
bifreiðarinnar í kfiómetrafjölda
á klst.
Tæki þetta er mjög hand-
hægt og auðvelt í allri með-
ferð. Það mun styrkja sönnunar
aðstöðu lögregluþjóna fyrir því
að ökuhraðabrot hafi verið
framið, því að hægt er að
framhald á bls. 6
Þannig lítur radarskífan út, sem
stefnt er gegn grunsamlegum
bifreiðum.
Hallvelg Fróoadóttir í Reykjavíkurhöfn í morgun, er henni hafði verið fylgt tfl hafnar vegna Iandhelgis-
brots. 1 baksýn sést Þorkeli máni.
Varðskipið Albert kom f nótt
til Reykjavikur með tvo ís-
lenzka togara, sem teknir voru
að meintum ólögiegum veiðum
í Faxaflóa. Réttarhöld munu að
Ifkindum hefjast sfðdegis.
Vísir fékk þær upplýsingar
árdegis f dag hjá forstjóra
Landhelgisgæzlunnar Pétri Sig-
urðssyni, að varðskipið Albert
hefði komið að togurunum Hall
veigu Fróðadóttur og Þorkatli
Mána í nótt að meintum ólög-
legum veiðum 3—4 sjómílur
innan þeirra marka, sem gilda
fyrir togveiðar íslenzkra skipa
í Faxafióa. Er það um bil út af
miðjum flóanum, sem þeir voru
teknir.
Þegar Vísir átti tal við Pétur
Sigurðsson var ekki að fullu
ákveðið um réttarhöld, en lík
legt talið. að þau myndu hefj
ast siðdegis.
Þorkell máni var alveg ný-
farinn á veiðar (20. þ. m.) en
Hallveig Fróðadóttir fór á veið
ar þann ellefta.
NÝTT
TOLLSKÝLI
Það er verið að hreinsa bruna
rústirnar að Straumi, sagði Sig-
urður vegamálastjóri Jóhanns-
son í viðtali við Vísi í morgun.
Þegar því er lokið og um leið
og Keflavíkurvegurinn verður
opnaður flytjum við þangað til-
búið skýli, sem Vegagerðin á.
Verið er að undirbúa smíði nýs
skýlis að Straumi. Það verður
byggt nákvæmlega eins og
ikýlið sem brann — og líka
úr timbri, þar sem við reiknum
ekki með að það verði kveikt f
því líka, sagði vegamálastjóri
að lokum.
Bifreiðin, sem árekstrinum olU.
Drukkinn, olli slysi og stórskaða
Á ellefta timanum í gærkvöldi ók
drukkinn ökumaður á strætisvagn
og stórskemmti báðar bifreiðirnar.
Farþegi sem sat í farþegasætinu
hjá drukkna bílstjóranum slasaðist
og var fluttur í sjúkrahús.
Lögreglunni var tilkynnt um á-
reksturinn kl. 22.19, en hann hafði
orðið á Suðurlandsbraut gegnt Múla
Strætisvagn var á leið austur göt-
una en á móti kom Moskvitchfólks
bíll og var þeim síðarnefnda ekið
á hægri akrein, eða öfugu megin á
vegi. Strætisvagnsbílstjórinn sá
hvað verða vildi og hafði dregtð
svo mjög úr hraðanum að hann var
t þann veginn að nema staðar þegar
Moskvitchbíllinn skall framan á
hann. Ef strætisvagninn hefði verið
á teljandi ferð hefði vafalaust orðið
þarna enn alvarlegra slys og meira
tjón.
Báðir bílarnir skemmdust. Stræt
isvagninn hægra megin að framan,
en litli bfllinn klesstist allur að
framan, og það svo mjög að öku-
maðurinn sat fastur undir stýr
l inu og gat sig hvergi hreyft. Urðu
lögreglumenn, sem komu á stað-
inn að losa hann undan því. Hann
virtist þó ekki vera slasaður að
ráði, en blæddi samt lítilsháttar
úr vör. Þeim mun meira slasað
ist farþegi hans, maður á fimmt
ugsaldri sem sat í framsætinu við
Framhald á bls. 6.
\