Vísir - 22.10.1965, Page 5

Vísir - 22.10.1965, Page 5
VlSIR . Föstudagur 22. október 1965. 5 útlönd í raorgun útlönd í morgún utlönd. i morgun utlönd 1 morgun Nkrumah villsenda her tíl Rhodesiu —ef„Bretar breaðist skyldu sinni" Orðrómurinn um að Wilson myndi fara til Salisbury reynd- ist réttur. Lundúnafréttir í gær- kvöldi og morgun herma, að þeir fari þangað um helgina, hann og Bottomley samveldis- ráðherra, til þess að reyna á ný — að aftra því, að lýst verði einhliða yfir sjálfstæði — og verður nú reynt að ná samkomu lagi á grundvelli yfirlýsingar Smiths, en hún fól í sér loforð um að virt yrðu í sérstökum sáttmála réttindi allra lands- manna. Smith sagði í útvarpsræðu i gærkveldi, að ákvörðunin um heimsókn Wilsons sýndi, að enn væri þó vonarneisti óslokkn aður, en ekki varð þess vart hjá honum, að Rhodesiustjóm gæti slakað til, og raunar kom það ----------------------------<s> Alisherjarverkfall í Argentínu Peroniska ’.andssambandíð í Argentínu boðaði til allsherjar- verkfalls í gær eftir að verka- maður hafði verlð skotinn til bana og annar særður lífshættu- Iega í átökum milli lögreglunnar og verkamanna. Átökin urðu í miðhluta Buenos Aires og í úthverfunum. Báðir mennirnir vom úr félagi málmlðnaðarmanna. Mikil ólga er í landinu eins og getið hefir verið í fyrri frétt- um, eða síðan frú Peron kom til landsins á dögunum i afmæl- isheimsóknina. Allsherjarverkfallið á að standa til miðnættis næsta. b i n g skýrt í ljós í ræðu hans, að þeir hefðu verið búnir að þrautræða málið I Lundúnum hann og Wil- son. Fundur Einingarsamtaka Af- ríku hófst í gær í Accra. Sitja fundinn fulltrúar 28 þeirra ríkja, sem í sambandinu eru, en ná- grannalönd Ghana, fyrr fransk- ar nýlendur, sitja hann ekki, vegna þess að hann er haldinn í Ghana, þar sem þau segja að skotið hafi verið skjólshúsi yfir undirróðurs og landshorna- menn, sem vinni gegn hagsmun- um þeirra og öryggi. Rhodesiumálið er á dagskrá á fundinum og ræddi Nkrumah forseti Ghana það í alllangri ræðu. Kvaðst hann þess fullviss, að eining mundi ríkja um það í sambandinu, að leggja til herlið til hjálpar þeim 4 milljónum blökkumanna í Rhodesiu, sem byggju við stjóm 200,000 hvítra, án sjálfsögðustu réttinda. Nkrumah tók það fram, að þvl aðeins væri þörfin á hemaðar- legri aðstoð fyrir hendi, að Bretar brygðust skyldu sinni gagnvart blökkufólkinu þingsjá Vísis Nkrumah. heims- horna milli Mikill straumur fólks frá Kúbu er nú til Floridaskaga f Bandaríkjunum eftlr tveggja daga hlé sem varð á flutningun- um. ► Callaghan fjármálaráðherra Bretlands sagð’i í ræðu í London í gær (fimmtudag) að ekki mætti slaka á í baráttunni til þess að treysta efnahag lands- ins. ► Það veldur vonbrigðum á Bretlandi, að Ástralíumenn hafa ákveðið að kaupa bandarískar flugs í stað brezkra. Boelng- og farþegaflugvélar tll Innanlands- CD-gerðir urðu fyrir valinu. Kaupverð er samtals 28 mlll- jónlr punda. ^ Bretar ætla að smíða kjam- orkukafbát sem á að fá heitið HMS CHURCHILL. ► Lundúnaútvarpið skýrðl frá þvf f morgun, að Austur-Þjóð- verjl, ungur vélamaður, hefði komizt undan á flótta til V.Þ. loftleiðis, f lítilli flugvél. Mað- urinn hafðl aldrei flogið fvrr. þingsjá Vísis Frumvörpum um hiísnæðismál og verðtrygg- ingu fjárskuldbindingu fylgt ár hluði Fundir vom f báðum deildum alþingis f gær. Efri deild. Tvö mál voru á dagskrá i efri deild. I. Frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum nr. 19 10. mai 1965, um Húsnæðismálastofnun ríkis- ins. í samræmi við yfirlýs- inguna í sumar. Félagsmálaráðherra Eggert G. Þorsteinsson fylgdi málinu úr hlaði. Frumvarp þetta er flutt i samræmi við yfirlýsingu þá um húsnæðismál, sem ríkisstjórnin gaf í sumar í sambandi við samn inga verklýðsfélaganna um kjara málin. Enn fremur er lagt til, að fasteignamat til eignaskatts verði sexfaldað. Aðal ákvæði frumvarpsins eru: Ríkisstjórnin getur Iátið byggja hagkvæmar, ódýrar íbúðir í fjölbýlishúsum i samvinnu við hlutaðeigandi sveit arfélög. Lánsfjárhæðin má nema allt að kr. 280.000,00 á hverja íbúð, þó ekki meira en 3/4 hlut um verðmætis fbúðar samkvæmt mati trúnaðarmanna Veðdeildar Landsbanka íslands. Lánsfjárhæð in, kr. 280.000,00 er miðuð við visitölu byggingarkostnaðar 1. júlí 1964, en skal framvegis hækka eða lækka samkvæmt þeirri vfsitölu. Heimilt er þó að veita hærra lán til efnalítilla með lima verkalýðsfélaga, og skal f þessu skyni verja 15 — 20 millj. kr. árlega af tekjum byggingarsjóðs rfkisins. Láglaunafólk í verklýðs félögum skal hafa forkaupsrétt að íbúðum þeim, sem byggðar eru og er heimilt að veita meðlimum verklýðsfélaga lán til kaupa á íbúðunum, sem nemur 4/5 hlut- um af verðmæti íbúða og skal pá telja gatnagerðargjald með verð- mæti íbúðanna. Lán, sem veitt verða meðlimum verklýðsfélaga, skulu vera til 33 ára, afborgana laus fyrstu 3 árin, en endurgreið ast síðan á 30 árum. Lán þessi verða því aðeins veitt, að kaup andi íbúðar hafi greitt 5% af verðmæti íbúðarinnar einu ári áð ur en honum verður afhent full gerð íbúð og setji þá tryggingu, sem Veðdeild Landsbanka íslands tekur gilda fyrir skilvfsri greiðslu þeirra 15%, sem honum ber að greiða með jöfnu greiðsl- um árlega næstu þrjú árin. Alltaf með útgjöldum en aldrei með tekjuöflun Ólafur Jóhannesson tók næstur til máls. Hann sagði að frumvarp þetta myndi veita mönnum mik- inn stuðning við byggingu húsa, en sagðist vera algjörlega á móti hækkun fasteignaskatts. Ólafur taldi, að hækkun fasteignaskatts myndi ýta undir dýrtíðina og verða til að húsaleiga hækkaði al mennt. Ræðumanni fannst, að herða ætti eftirlit með skattsvik um og reyna að uppræta alla skatt svikara. Þá tók til máls fjármála ráðherra Magnús Jónsson og sagði að það væri venja fram- sóknarmanna að vera með öllum útgjöldum, en á mótf allri tekju öflun. Ráðherrann sagðist taka vel á móti öllum tillögum fram- sóknarmanna er vörðuðu sparn að. Varðandi eignaskattinn sagði ráðherra að deila mætti um, hvort hann væri f þessum lögum eða öðrum. Ráðherrann sagði að það væri mjög eðlilegt að þeir sern hefðu komið sér upp fasteignum á betri tímum, legðu eitthvað í söl urnar til að hjálpa þeim er stæðu í húsbyggingu núna. Þá tók Ólaf- ur Björnsson til máls, og sagð ist aðeins vilja leiðrétta þau um mæli Ólafs Jóhannessonar um að skattur þessi mundi leiða til auk innar dýrtíðar og hækkandi húsa- leigu, þvf eigendur fasteigna myndu sjálfir bera þennan skatt, og færði nokkur rök máli sínu til stuðnings. Ólafur Jóhannesson tók aftur til máls og einnig Alfreð Gíslason. Að lokum tók félags- málaráðherra til máls og svaraði nokkrum athugasemdum Ólafs og Alfreðs. Málinu var síðan vfsað til 2. umræðu og heilbrigðis og félagsmálanefndar. Atvinnuréttindi vélstjóra. 2. Frumvarp til laga um at- vinnuréttindi vélstjóra á islenzk um skipum. Sjávarútvegsmála- ráðherra Eggert G. Þorsteinsson talaði fyrir málinu Ráðherrann sagði að frumvarp þetta hefði orð ið til vegna starfa nefndar sem menntamálaráðherra hefði skipað í febrúar 1964 til athugunar á menntunarkröfum og atvinnurétt indum vélstjóra. Ráðherrann rakti síðan efni frumvarpsins í megindráttum, og var málinu síð an vísað til 2. umræðu og sjávar- útvegsnefndar. Dregið úr óvissu um framtíðarverðgildi peninga. Neðri deild. I neðri deild var eitt mál tekið til umræðu. Frumvarp til laga um verðtryggingu fjárskuldbindinga. Viðskiptamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason fylgdi málinu úr hlaði og gaf yfirlit yfir frumvarpið. Meginefni frumvarpsins er verð- trygging, þar sem annað hvort er miðað við vísitölu eða annan hliðstæðan grundvöll, og nær það til fjárskuldbindinga, bæði þeirra, sem ákveðnar eru í peningum, svo og í öðrum verðmæli. Það er meginstefna frumvarpsins, að verðtrygging sé aðeins leyfð, þeg ar ákveðnum skilyrðum er full- nægt. Gert er ráð fyrir sjálfstæðri en takmarkaðri heimild til verð- tryggingar hjá lífeyrissjóðum og fjárfestin'garlánastofnunum. Verð trygging á innlánum innlánsstofn ana yrði háð ákvörðun Seðlabank ans, svo og varðtrygging í samn ingum milli annarra aðila. Hér er í raun og veru mörkuð leið til þess að draga úr einni tegund áhættu, þ. e. a. s. óviss- unni um framtíðarverðgildi pen- inga, í viðskiptum sparifjáreig enda og annarra eigenda fjár- magns annars vegar og lántak- enda hins vegar. Stefnt er að þvi að skapa svipaðar aðstæður að þessu leyti og við stöðugt verð lag. Frumvarpið gerir ráð fyrir, að verðtrygging sé því aðeins leyfð, að fjárskuldbinding standi í a. m. k. þrjú ár, en með því mundi komið í veg fyrir, að vísitölu krónan ryðji sér til rúms í al- mennum peningaviðskiptum. Þá tók til máls Einar Ágús'.s son og sagði að lögin hefðu heilla vænleg áhrif ef vel myndi tak ast, og sagði, að verðtrygging sparifjár væri nauðsynleg, enda hefðu framsóknarmenn verið me'- þessu máli og nú síðast á siðasta alþingi. Ræðumaður sagði að brýn nauðsyn væri að bæta hlu! sparifjáreigenda, og draga úr dýrtíðarspennunni, og sagði að sparifé væri verðtryggt í mörg- um löndum. Að síðustu tók til máls Lúð- vík Jósefsson. Lúðvík sagði að ekki þyrfti um það að deila að vinna bæri gegn verðbólgunni, Að lokum sagði Lúðvík að lög þessi þyrftu að vera víðtæk verð trygging, og ráðstafanir gegn dýr tíð. Málinu var síðan vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefndar. Ný mál Frumvarp til laga um raforku veitur. Flm. Skúli Guðmundsson og fleiri. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 19 frá 1887, um aðför. Flm. Ólafur Jó hannesson. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 115 7. nóv. 1941, um Búnaðarbanka íslands. Flm. Páll Þorsteinsson og fleiri. Frumvarp til laga um verðjöfn- unar og flutningasjóð síldveiða árið 1965. Frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja eyðijörðina Hálshús í Reykjar- fjarðarhreppi. Flm. Hannibal Valdimarsson. Tillaga til þings ályktunar um undirbúning löggjaf ar um þjóðaratkvæði Flm. ólafur Jóhannesson og fleiri. MUUÍLílj;:..

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.