Vísir - 17.11.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 17.11.1965, Blaðsíða 6
VISIR . Miðvikudagur 17. nóvember 1965. TORGIÐ Ný Reykjavíkurskóldsaga eftir Kristmaun Guðmundsson, sem vekja mun mikla athygli og umtal jú é‘5', $4, jpMm tdL. hts&þhi ‘ •LMMa et/$~ tWt/ík* i Jaa, ^-0 AMXA, ( ' OMmaA ** * ýD A 'W\aAs 4, Snmið — Sjö slesscsst — FramhaJd at' bls. 1. 1. september 1965 til 31. des. 1966, gilda hinir nýju samn- ingar frá 1. ágúst 1965, þ.e. fyrir þær veiðiferðir, sem hóf- ust 1. ágúst eða síðar til 30. sept. 1966. Að öðru leyti var yfirleitt samið um 14% kauphækkan- ir á fastakaupsliðum yfir- manna, til samræmis við þær allsherjar kauphækkanir, sem samið var um s. 1. sumar. Hins vegar var ekki samið um neinar hækkanir á aflaverð j launum. Þá voru einnig gerðar lítils j háttar lagfæringar varðandi | frídaga-hlunnindi yfirmanna. j Aðilar að þessum samning j um eru Félag íslenzkra botn- vörpuskipaeigenda annars veg | ar, og hinsvegar Farmanna- og I fiskimannasamband íslands fyrir hönd eftirtalinna félaga: Skipstjóra og stýrimannafélags- ins Ægis, Skipstjórafélagsins Norðlendings, Skipstjóra og stýri mannafélagsins Öidunnar. Skip- stjóra og stýrimannafélagsins Kára, Hafnarfirði, Vélstjóra- félags íslands og Félags ís- lenzkra loftskeytamanna. Framh. af bls. 1 Femt slasast í Hvalfirði. Mjög harður árekstur varð milli tveggja bifreiða um níuleytið 1 gærkvöldi hjá Skeiðhóli — þar sem Staupasteinn er í Hvalfirði. Þar slasaðist fernt, 2. stúlkur og 2 karl menn og voru öll flutt til læknis- aðgerða til Reykjavíkur. Bifreið- irnar stórskemmdust báðar og varð að fá kranabifreiðir til að fivtja þær af árekstursstað. Lögreglunni í Reykjavík var til- kynnt um árekstur þennan kl. 21.10 með upphringingu frá Hálsi í Kjós. Voru strax sendar tvær sjúkrabifreiðir, ásamt lögreglu á slysstaðinn. Áreksturinn varð i brekkunni vestan við Staupastein og mun hafa orðið vegna þess, að hvor- ugur bílstjóranna mun hafa séð til hins fyrr en um seinan, enda báðir ökumennirnir blindazt af ljósum bifreiðanna. Bifreiðir þær sem þama áttu í hlut vom E 307 á leið til Akra- ness og R 16405 á suðurleið. Fyrr- nefndu bifreiðinni ók Halldór S. Árnason, Skagabraut 38 Akur- eyri, og farþegar f bílnum voru þrjár dætur haris, Ragnhildur Erla, Ágústa og Margrét. Slasaðist Halldór á sfðu, hné og í andliti, Ragnhildur í andliti og á handlegg og Ágústa í andliti. Margrét slapp ómeidd. Halldór var í gærkvöldi fluttur í sjúkrahús. ökumaður R 16405 var Guð- brandur Hlíðar dýralæknir í Reykjavík. Hann var einn í bílnum og slasaðist á handlegg og fæti. Hann var fluttur í sjúkrahús strax að athugun lokinni f slysavarð- stofunni. Talið er að hann hafi brotnað, á hnéskel. Telpa hlýtur höfuðmeiðsl. Rétt um klukkan 6 í gærkveldi varð umferðarslvs á Laugavegin- um gegnt húsi nr. 163, rétt vestan við Höfðatún. Telpan var að ganga yfir Laugaveginn, en þá bar að bifreið á leið vestur, er rakst á telpuna. Varð telpan fyrir hægra frambretti bílsins og kastaðist f götuna. Mældust rúmlega 15 metra hemlaför eftir bifreiðina og bendir það til að hún hafi verið á allnokkurri færð. Telpan er 6 ára gömul og heitir ! Lilja Friðriksdóttir til heimilis að ! Skúlagötu 66. Hún hlaut meiðsli á höfði og var flutt til læknisað- gerðar. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kópavogs verður haldinn í kvöld í Sjálfstæðishúsinu og hefst kl. 20,30. Venjuleg aðalfundarstörf. Axel Jónsson, alþingismaður, ræðir bæjarmál að lokn- um aðalfundarstörfum. STJÓRN Kópavogs FRAMTIÐARATVINNA Maður, hetlzt á aldrinum 25—40 ára, se mer algjörlega reglusamur, getur fengið fram- tíðaratvinnu við vélar í hreinlegum iðnaði. Æskilegt að viðkomandi hafi unnið við vél- ar áður. Tilboð sendist auglýsingad. Vísjs fyrir laugardag merkt „Framtíð 333“. KOPARPIPUR - DÆLUR Koparpípur 10, 11, 12, 15, 18, 22 og 28 mm. fyrirliggjandi. Einnig Bell og Gossett mið- stöðvardælur. Hagstætt verð. BURSTAFELL BYGGINGAVÖRUVERZLUN Réttarholtsvegi 3 — Sítni 38840. ANDRÉS AUGLÝSIR UÚ! er ekki lengur þörf að fara erlendis til að kaupa ódýr föt. Terylenebuxur á 575,00 Stakir jakkar á kr. 895,00.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.