Vísir - 17.11.1965, Blaðsíða 15

Vísir - 17.11.1965, Blaðsíða 15
V í SIR . Miðvikudagur 17. nóvember 1965. I WILL MA.KRY ^ YOU! > tVHAT?!. TAKZAVJ, 717 YOU HEAK \ THAT? I TH0U6HT so.... _ you fooU...S/R/ X SAI7 MO- (r X WON'T J| ' SAY WO'Ji V*, AGAIM ! JPI COWSKCTUlMWs GEMEKXL YEATS! „Tuttugu mínútur", sagði ég og hlustaði með öðru eyranu á fyrir mælin, sem varðstjórinn las í tal- stöðina. ■ „Þeir sleppa ekki úr þessu“ sagði Hardanger. „Það eru lögreglubílar á öllum nálægum leiðum; bílstjór arnir þaulkunnugir öllum staðhátt- um, og þegar einhver þeirra kemur auga á Gregori og fer að veita hon um eftirför, getur það ekki farið nema á einn veg“. „Láttu setja tálmanir á vegina", sagði ég. „Segðu þeim að þeir verði að hefta för hans, hvað sem það kostar". „Ertu kolbrjálaður", hreytti Hard anger út úr sér. „Viltu að konan þín verði myrt? Er þér ekki ljóst, að þeir munu nota hana sem skjöld? Eins og er má telja, að henni sé ekki bráð hætta búin þar sem Gre gori hefur ekki orðið neinna lög- reglubfla var, umfram það sem eðli letg er úti á þjóðvegum. Hann álít ur hálft í hvoru, að rannsókn máls ins hafi verið stöðvuð. Skilurðu það ekki, maður“. „Vegatálmanir", endurtók ég. „Eða eigum við kannski að veita honum eftirför inn í miðhverfi Lundúnarborgar, svo að við getum orðið vitni að því, þegar hann dreif ir þar taugalömunarsýklunum? Og þegar þangað kemur, hljóta þeir í lögreglubílnum líka að missa óðar sjónar of honum. Skilurðu ekki, að við verðum að hefta för hans áður Takist það ekki; komist hann ó- hindrað inn í borgina ..." Hardanger sneri sér að hershöfð ingjanum. „Getur þú ekki komið vitinu fyrir Cavell?“ mælti hann biðjandi. „Hún er einkabam mitt“, svar- aði hershöfðinginn. „Og það er ekki viðeigandi að biðja aldurhniginn mann um að skera úr um það, hvort Iffi einkabams hans skuli fórnað eða ekki. Þú veizt það bezt sjálfur, Hardanger, hve ég ann Mary“. Svo bætti hann við eftir andartaks þögn. „Ég er Cavell sam mála. Gerið eins og hann býður". Hardanger bölvaði lágt, þegar hann laut fram í sætinu og gaf þeim. sem við talstöðina sat fyrir mælin til þeirra lögreglumanna, sem vom í kallfæri, að tálmanir skvldu settar á alla vegi. 1 rauninni var ég ekki í skapi til að halda frásögn minni áfram. En það var þó skárra en að láta und- an síga fyrir þeirri hugsun, sem áleitnust var — hugsuninni um bíl mn, sem nú var skammt undan og Mary í höndum hinna miskunnar- lausu fanta. Og ég vissi líka, að það var þess vegna, sem Hardanger spurði. „Kunningi okkar þama í bílnum gerir sér það að sjálfsögðu ljóst, að enda þótt honum heppnað ist að villa okkur sýn, þá gat það ekki bjargað honum nema um stund arsakir — fyrr eða síðar hlutum við að komast á sporið; fyrr eða síðar hlaut morðið á McDonald og ráð; konu hans að koma 4 daginn, o; þá mundi umslágið í bankTjhólfinu verða opnað, en það óttaðist hann að sjálfsögðu mest,“ spurði ég. „í rauninni höfum við reynzt ótrúlega snarir í snúningum, þrátt fyrjr vill urnar. Það eru ekki liðnar nema fjömtíu klukkustundir síðan ránið var framið. Og hver svo sem íil- gangur Gregoris hefur verið eða er, Ká hefur hann viliað fá frest til að Ijúka honum á meðan honum gafst tóm til, eða áður en brezka lög- | reglan var á hælum hans“. „Það mun hverjum erfitt að ógna | ríkisstjórninni og þjóðinni, og eiga í höggi við lögregluna og réttvís- ina“, varð hershöfðingjanum að orði Sú stiórn er gamli maðurinn hafði á sjálfum sér og tilfinningum sínum var næstum ofurmannleg. „En hvers vegna komst hann þá ekki hjá að myrða dr. McDonald?“ „Fyrst og fremst vegna þess, að dr. McDonald vissi tilgang hans með ráninu. Hefði dr. McDonald lifað til að láta það uppskátt, þá voru allar áætlanir Gregoris komn ar út um þúfur. En þó var það kannski fyrst og fremst ráðskonan, 1 frú Tmpin, sem gerði. McDonald | var harðvítugur náungi, sem mundi | ekki hafa sagt meira en honum I þótti hóf að, þó svo að hann væri látinn sæta pvndingum. öðru máli gegndi um frú Turpin — hún hefði getað fengið hann til að leysa frá skjóðunni, ellegar hún hefði gert það sjálf. Frú Halle gaf fyllilega í skyn, að McDonald væri kvenholl- ur í meira lagi. Það eldist yfirleitt ekki af mönnum fyrr en um átt- rætt. Frú Turpin var glæsileg kona, ekkja á bezta aldri og það leyndi sér ekki, að hún var yfir sig ást- fangin af McDonald; hvort hann var ástfanginn af henni, enda skipt ir það ekki máli. Þegar í harðbakk ann sló, mundi hún hafa sagt allt, sem hún vissi um Gregori og fyrir ætlanir hans, til þess að bjarga Mc Donald. Framburður hennar mundi að öllum líkindum hafa orðið til þess, að McDonald hlvti aðeins væg ustu refsingu þrátt fyrir allt“. „Það er ágizkun mín“, mælti ég enn, „en líka einungis ágizkun, að frú Turpin hafi hringt til McDon- alds, þar sem hann var staddur f rannsóknarstofunni, strax þegar ég var farinn með bréfin. Og að Gre- gory hafi annað hvort verið þar viðstaddur og heyrt nægilega mik ið til þess að hann gæti lagt saman tvo og tvo, eða að hann hafi farið heim með McDonald að sfmtalinu loknu og strax getið sér til, hvað um væri að vera. Að við værum komnir á slóð McDonalds og þá yrði honum sjálfum hætt, og til þess að komast hjá því, myrti hann þau bæði“. „Allt fellur þetta hvað að öðru“, varð Hardanger að orði. Hann var náfölur og svipurinn hörkulegur. Það var augljóst, að því fór fjarri, að hann gæti fyrirgefið mér afstöðu mína gagnvart Mary. „Netinu var þegar lokað“, sagði ég, „Annað mál er svo það, að kannski hefur stóri fiskurinn slopp ið á sfðustu stundu, og aflinn því einskis virði. En eitt er víst. Aðal- tilgangur Gregoris hefur ekki verið sá að stofmwin í Mordon yrði jöfnuð við jörðu. Hann er annar og stórum mikilvægari; eitthvað, sem við hefðum getað komið í veg fyrir og hefðum sennilega komið í veg fvrir, ef okkur hefði verið það ljóst fyrirfram". „Eins og hvað?“ spurði Hardang- er. „Það er þitt að gizka á það. Mér finnst að ég hafi þegar lagt fram minn skerf, hvað það snertir í dag". Ég haflaði mér aftur á bak f mjúku sætinu; fann, að þreytan var að vinna á mér, þreytan, sársaukinn og óvissan. Ég minntist þess óljóst, að eitthvert fífl hafði einhvern tíma haldið þvf fram, að m^ður gæti ekki þjáðst af sársauka nema á einum stað í senn. Ég var hins vegar í vafa um, hvar kvöl mín var sárust, í fætinum, síðunni eða höfðinu, og komst að þeirri niðurstöðu, að síðan hefði þar vinninginn. Ökuhr. var yfir nfutíu mflur þar sem regnblautt ur vegurinn var nokkurn veginn beinn framundan, og bílstjórinn ók af slíkri leikni, að við sjálft lá, að mér rynni f brjóst, þrátt fyrir allar kvalimar og áhyggjumar vegna Mary. 1 sömu svifum lét talstöðin enn til sín heyra. Fvrst komu kallmerkin, sfðan heyrðist tilkynningin: „Bíll, sem samsvarar lýsingunni, en skrásetn ingarnúmer sást ekki, beygði rétt í þessu til vinstri af Lundúnavegin- um á hliðarveg til Flemington, sennilega til þess að forðast vega tálma á krossgötunum framundan. Fylgi honum eftir. „Flemington", endurtók varðstjór inn framí, maður frá Alfringham. Auðheyrt að hann varð dálítið undr • andi. „Sá vegur endar f Fleming j ton, og þaðan kemst hann einungis j til baka aftur á Lundúnaveginn, ; um það bil þrem mílum fjær“. i „Hve langan tíma getur það tek- j ið hann?“ spurði Hardanger. „Þetta eru níu eða tíu mílur, en vegurinn er ekki sem beztur og víða krappar beygjur", svaraði bíl stjórinn. „Heldurðu að við komumst það á tíu mínútum?" „Ég skal ekki segja, herra minn“. Bílstjórinn hikaði við. „Ég þekki veginn ekki nógu vel“. „Það geri ég aftur á móti“, sagði varðstjórinn. „Við höfum það á þeim tfma“. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu. Vegurinn var háll eins og gler, en bílstjórinn náði þangað, sem vegirnir mættust aftur, á til teknum tíma; það tðk hann meira að segja nokkrum mínútum skem ur, en hins vegar er ég ekki frá því, að gráu hárunum á höfði okk ar hafi fjölgað eitthvað á meðan við ókum þann spöl. Af tilkynning um frá lögregluþiónunum, sem veittu Gregori eftirför, mátti ráða, að Gregori sá væri hvorki leikinn né öruggur bílstjóri. Bílstjórinn hægði ferðina og heml aði. Við lögðum bílnum út við veg arbrúnina, þannig að hann lokaði algerlega hliðargötunni, stigum út, og varðstjórinn beindi sterkum ljós kastararum inn á hliðargötuna svo að hann hlaut að blinda þann, sem nálgaðist okkur þá leiðina. Við tókum okkur stöðu hinum megin við Jagúarinn, og spölkorn frá hon um, þar sem ekki gat talizt öruggt, að Gregori, eða þeim, sem sat und ir stýri, tækist að stöðva bflinn í tæka tfð, en þá mundi árekstur ó- umflýjanlegur. Skammt frá hliðargötunni gat að líta bóndabýli með útihúsum á víð og dreif, en dauft ljós í gluggum heima á bænúm. Öðrum megih við hliðargötuna var djúpur skurður; mér meir en datt í hug að leynast þar og kanta stórum steini inn um hliðarrúðu bflsins, þegar hann nálgaðis og rnyndu þeir, Gregori bg aðstoðarmaður hans, þá ekki fá neitt ráðrúm til að átta sig. Og ég mundi hafa gert það, ef ég hefði ekki óttazt ,að ég kvnni þá að slasa Mary þó að hún sæti f aftursætinu þegar við yis-urn síðast, var eins víst, að þeir hefðu flutt hana í fram sætið. Ég afréð því að halda kyrru fyrir þar, sem ég var kominn og bíða átekta. Allt f einu heyrðum við hreyfil gný, sem hækkaði og nálgaðist óð fluga. Andrá síðar sáum við glampa af bflljósum. Við krupum á kné í hvarfi við Jagúarinn. Ég dró upp japönsku marghleypuna og tók hana úr öryggi Það var auðséð á flökti ljósanna, að bíllinn skreið sitt MY ) U WELL, MAOiM,X'VE SA\71 7IECE-AM7 X SU770SE YOU'LL SAY /W'AGAIM! UMBOÐSMENN VISIS 1 ÁRNESSÝSLU ERU: Á SELFOSSI Kaupfélagið Höfn og Arinbjörn Sigurgeirsson Á STOKKSEYRI Benzínsala Hraðfrystihússins Á EYRARBAKKA Lilian Óskarsdóttir, Hjallatúni I HVERAGERÐI Reykjafoss IÞORLÁKSHÖFN Hörður Björgvinsson UMBOÐSMENN VISIS SELJA BLAÐIÐ TIL FASTRA KAUPENDA OG j LAUSASÖLU VÍSSR askrifendaþjönusta Áskriftar- Kvartana- simmn er Jæja Naomi, ég hef sagt það sem ég hef að segja og ég geri ráð fyrir að þú segir aft ur nei. Nei. Þetta hélt ég. Asninn þinn... herra. Ég sagði nei við því að segja aftur nei. Ég skal giftast þér. Hvað? Tarzan heyrð irðu þetta? Til hamingju Yeats hershöfðingi. 11663 virka daga Ki 9-19 nema laugardaga kl. 9-13. AUGLÝSINC ! VISI eykur vidskiptin ^-^‘""‘niiiiTr ';i iiniinnMw

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.