Vísir - 17.11.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 17.11.1965, Blaðsíða 16
VÍSIR Miðvikudagur 17. nóv. 1965. Fonnst látinn í skurði 1 gær, nokkru fyrir hádegi, fannst maður sá, sem hjálparsveit skáta leitaði að í fyrrinótt, en þá án árangurs. Maður þessi, Einar Sigurðsson, Vesturgötu 50, fannst látinn í skurði í Vatnsmýrinni. Þetta er all djúpur skurður og vatn í honum. Lá Einar á grúfu niðri í skurðinum og er fullvíst talið að hann hafi drukknað. Einar heitinn var 61 árs að aldri og hvarf heimanað frá sér á sunnu daginn. Síðan hafði ekkert til hans spurzt, og var hans leitað í alla fyrfinótt. Aðulbruutir í Kópuvogi Kársnesbraut og Kópavogsbraut í Kópavogi hafa nú verið gerðar að aðalbraut, og eru það fyrstu götumar I Kópavogi, sem fá þau réttindi ef Reykjanesbraut er und- anskilin. Er biðskylda við þessar götur og er þetta gert til reynslu að sögn bæjarfógeta. Þannig lftur salur umferðarmiðstöðvarinnar út séð úr vesturendanum þar sem veitingasalurinn verður. Fremst til vinstri er tóbaks-, blaða- og sælgætissala, en aftarlega á myndinni til vinstri er farmiðasalan. Norðurleið kl. 8 á sunmidags- morgun frú Þonn morgun tekur stöðin til sturfu Á sunnudagsmorguninn kl. 8 mun fyrsti áætlunarbíilinn leggja af stað frá nýju umferð- armiðstöðinni við Njarðargötu, það er Norðurleið til Akureyrar, ..................................*..............................................................................................................................—-------------------- ........ mgMwwww þ M f M kl. 9 mun áætlunarbíllinn í Mos fellssveit leggja af stað og kl. 10 er það Kjósarrútan. Umferð- armiðstöðin, sem margir hafa beðið eftir með óþreyju hefur þar með hafið starfsemi sína. Kristjón Kristjónsson, fram- kvæmdastjóri, sem hefur haft með höndum umsjón með verki þessu, sagði í morgun að á föstu dagskvöldið mundi BSf byrja að flytja skrifstofur sínar í um- ferðarmiðstöðina. Siðar mun pósthús koma í stöðina og Verzi unarbankinn mun verða með úti bú. Hlað h.f. mun sjá um veit- ingarekstur á staðnum, og verð ur hann í vesturenda salarins. Ekki er enn búið að ganga frá suðurhliðinni og breytist sal urinn mjög þegar það er búið. Verða þar miklir gluggar f alú- mín-umgjörðum og gera sal- inn bjartan og vistlegan. í ráði mun að olíufélögin verði með benzínafgreiðslu fyrir sunnan stöðina og er ekki ólík- legt að með tímanum verði þar fullkomin þvottastöð og smur- stöð fyrir bílana, — sennilega opið allan sólarhrir.ginn, en það mál er enn á frumstigi. Frá umferðarmiðstöðinni verða reknar allar áætlunarferðir með bílum út á Iand og mun bílafloti sérleyfishafanna vera einhvers staðar milli 70 og 100. TP tf* 17» W 8K 13* 13* ....9* 11» i7Sí «. — «.8.t 4UÍ 1sm „' 11 <» Kristján Kristjánsson sýnir hér skiltin sem sett verða á töflu og gefa upplýsingar um allar ferðir frá stöðinni. Hinn nýi ameríski bíll Bronco hefur fengið miklar vinsældir hér á landi og munu hundruð manna þegar hafa pantað sér þessa bíl- gerð, en hún mun byrja að flytjast hingað til lands að ráðj í næsta mánuði. Hinsvegar hafa farið að heyrast raddir um það að bifreið þessi gæti ekkj flokkast undir „jeppa“ bifreiðir, þar sem hún væri full- Vagninn má taka 80 far- bega í Þýzkalandi -67hér komnari í ýmsum frágangi. Má vera að umtal um þetta hafi að einhveriu leyti sprottið upd frá keppinautum þeim sem flvt.ja inn aðrar gerðir „jeppa“bifreiða. Svo mikið er vist, að í síðustu viku komu fulltrúar frá Fjármála ráðuneytinu og Tollstjóraembætt- inu til bílaumboðs Sveins Egilsson ar og báðu um að fá að skoða og prófa bifreið af þessari tegund, sem þegar hefur verið flutt til lands ins, Þeir skoðuðu hana í krók og kring, en komust að þeirri niður- stöðu, að umkvartanimar væru ekki réttmætar. Bronco-bíllinn kæmi undir þá skilgreiningu, sem í gildi hefur verið um „jeppa“ Þá skilgreiningu er að finna í úrskurði fjármálaráðuneytisins frá 1981 Bronco-bifreiðin uppfyllti öll þessi skilyrði og mun því fást inn- flutt sem ,,jeppa“bifreið. En það skiptir ekki svo litlu máli, vegna þess að innflutningsgjöld eru miklu lægri. Margir sem hafa kevpt hafa Bronco-bifreið nú. hefðu alls ekk: haft fiárhagslega getu til að kaur- hana með öllum þeim gjöldum ser’'> eru á veniulegum fólksbifreiður; Af jeppabifreíðum greiðist aðei’> 40% tollur En af fólksbifreiði”; greiðist 90%, tollur og bar auki sérstakt bifreiðainnflutnings giald sem er 125%. Svo sjá m. að munurinn er mikill. Rannsókn á banaslysinu ó bkasfigi! Ræft við forstjóra S.V.R. Víslr sneri sér til forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur, Eir- xks Ásgeirssonar, út af atburð! þeim, er átti sér stað í fyrra dag, þegar strætisvagn á Álf- heimaleið var skyndilega stöðv aður af lögreglunni, vegna meintrar yfirhleðslu. Sá strætisvagn, sem hér um ræðir, er af Mercedes Benz gerð, 80 farþega á götum þýzkra borga, en 67 farþega hér!! í þessari ferð, eða réttara sagt á þeim stað, sem talning fór fram, reyndust farþegarnir 91 að tölu. Vitanlega er það ekkert laun ungarmál heldur forstjórinn á- fram, að f vissum tilfellum verð ur naumast hjá því komizt að flytja fleiri farþega í ferð, en ströngustu ákvæði mæla fyrir ’ um. Gilda í þeim efnum sömu ! reglur hjá sambær'!e'””" J menningsfyrirtækjum erlendis. Leitazt er þó við að bæta úr eftir þvf sem vagnkostur á hverj um tíma frekast leyfir. Vissir umferðar„toppar“ stundum ófyrirséðir eru jafnan að myndast, — einnig að því er varðar fjölda farþega í strætis vögnum. F.iga þeir m a. rót sína að rekja til skyndilegs ill viðris, eða jafnvel bara úrhell- is gróðrarskúrar, landsleiks á Laugardalsvellj eða mánaðarfrís í framhaldsskólum, sem í þessu tilfelli fylgdi óyenju gott veður. Til þess að mæta slíkum af- brigðum í farþegastraumj með almenningsvögnum, þyrfti t.d. vagnkostur S.V.R. að vera stór um meiri en hann nú er, auk þess sem ákveðinn fiöldi vagn stjóra yrði ávallt að vera til taks Þessi ráðstöfun myndi þó f mörgum tilfellum ekki leysa allan vandann. Sá aukakostnað- ur, sem af þessu mvndi leiða, hlyti að langmestu leyti að koma fram ! hækkuðum fargjöldum. í tilvikum sem þessu verður því að meta annars vegar hugsan- lega jlysahættu og aukinn kostnað hins vegar. í því tiifelli, sem hér um ræðir, telur vagnstjórinn akst- ursskilyrðin þau beztu, sem völ er á, og að hann hafi séð nægj- anlega vel til beggja handa. Um þetta atriði vil ég þó ekki deila, þótt ég telji mat reyndra vagnstióra skirta í þessum efn- um miklu máli. Ekki dreg ég í efa, að lög- reglumaðurinn hafi við stöðvun þessa vagns, haft lögin með sér. En vænlegra til árangurs hefði ég þó talið. að vandamál sem þetta hefði verið rætt á breið- um grundvelli. Á þann hátt skýrast málin bezt frá báðum hl'ðum op góðs árangurs íafnan að ita. Greinargóð fengin á m Rannsókn út af banaslyssmálinu í Hlégarði er enn í fullum gangl: hjá bæjarfógetaembættinu í Hafn- ’ arfirðl og var þegar búið að yflr- heyra ar.. 20 manns frá þvf er rannsókn hófst og þar tíl fyrir hódeglð í dag. Hilmar Ingimundarson fulltrúi bæjarfógeta skýrði Vísi frá því að , I yfirheyrslur í málinu hafi staðið vfir í allan gærdag og hófust enn að nýju fyrir hádegið í dag. Verð- ur þeim haldið áfram eftir því ; sem þörf krefur. ’ Fulltrúinn sagði að nú væri mál- '.m svo á veg komið að greinargóð lýsing hefði fengizt á piltinum sem i átti í höggi við piltinn sem lézt. Þama væri sennilega um 16—18 ára gamlan pilt að ræða, og kvaðst Hilmar fastlega búast við, að til þessa pilts næðist úr því sem komið væri. Það léttir og mikið fyrir rannsókninni að tekizt hefur að afla nafna velflestra þeirra, sem staddir voru í Hlégarði um- rætt kvöld. Enn væri, sagði fulltrúinn, of snemmt að segja nokkuð um það hvort banamein piltsins hafi or- sakazt af höggum eða öðru, því krufningsskýrslan liggur enn ekki fyrir. Nafn hins látna pilts verður ekki birt að svo komnu máli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.