Vísir - 06.12.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 06.12.1965, Blaðsíða 2
VlSIR . Mánudagur 6. desember 1965. Cói byrim í ÞKOTTAHOUmm 9 Það er vonandi að framtíðin verði eins góð og byrjunin í nýju íþróttahöllinni í Laugardal um helgina. Þar stóðu íslenzk lið sig mjög vel gegn hinu snjalla liði Karviná frá Tékkóslóvakíu og vann úrvalslið Reykja- víkur sinn leik og sýndi á köflum leik, sem var á við það bezta sem sést í handknattleik, og FH gerði jafn, tefli og fór þó illa með tækifæri sín, — sigur þeirra hefði átt að vera staðreynd. % Höllin í Laugardal var greinilega viðburður helg arinnar og báða dagana var nær húsfyllir. Fyrri leik- inn sáu nær 2 þús. manns en um 2700 þann síðari. Pen ingarnir byrjuðu að streyma í fjárhirzlumar, enda veitti gestgjöfunum, Fram, ekki af, því heimsókn þessi er dýr, og ágóða hússins verður vitanlega varið til að fullgera húsið, en unnið mun að því af krafti í vetur. • Reykjavík vann 23:20 Á laugardaginn kl. 16 hófst fyrsti leíkurinn í íþróttahöllinni nýju. Jónas B. Jónsson, fræðslu- stjóri, flutti i jðu við þetta tæki- færi og skýrði frá sögu þessa húss og Geir Hallgrímsson borgarstjóri flutti stutt ávarp og afhenti fyrir- liðum liðanna fána Reykjavíkur- borgar til minningar um þennan sögulega leik. Það stóð sannarlega ekki á fyrsta markinu í þessu glæsilega mannvirki. Teykvíkingar hófu sókn og Hörður Kristinsson stökk upp og skoraði 1:0. Strax f næstu sókn skoraði Gunnlaugur Hjálmars son 2:0 og Þorsteinn Bjömsson varði glæsilega vitakast Tékkanna. Tékkar jöfnuðu nú 2:2, en næstu 4 mörk voru frá Reykvíkingum og var forustan nú örugglega þeirra megin út hálfleikinn og í hléi stóð 14:11. 1 seinni hálfleik skora Tékkar 14:12 og 14:13, en eitthvert slen er yfir leik Reykjavíkurliðsins og markverðir Tékka verja örugglega skotin á mark sem vom nokkuð há og virtust vera „óska“skot fyr- ir þá. Tékkar jöfnuðu í 15:15 og voru þá liðnar 8 mín. af seinni 1 hálfleik. Þrátt fyrir ónákvæmar sendingar og að því er virtist þreytu f liðinu I tókst Reykjavík þó að skora tvö næstu mörk og hindra að Karviná næði forystunni, og stóð 17:15 um miðjan hálfleik. Á 18. mín. jafna Tékkar enn 17:17. Talsverð spenna var nú f leiknum, en trá áhorfendum, 2 þúsundum, heyrðist hvorki hósti né stuna, rétt eiris og fram færi heljar mikið drama : fjölum Þjóðleikhússins. Síðustu 10 mínúturnar var þátt ur Karls Jóhannssonar sannarlega stór, — hann hreinlega færði borg sinni sigurinn með frammistöðu sinni. Hann skorar 18:17 og Þor- steinn ver vel. Karl skorar enn í næstu sókn og Þorsteinn ver vei frá Tékkunum öðm sinni. Hinn snjalli línumaður Janik brýzt þá upp og fer í gegnum varnarvagg- inn og skorar 19:18. Stórfallegt og óvænt skot Hermanns Gunnars- sonar færir 20:18 og Karl bætir við 21:18. Landsliðsmaðurinn Had- rava, hin mesta fallbvssa, skorar 21:19 og enn er Karl að‘ verki með 22:19 og mátti þá eig- inlega bóka sigur fyrir höfuðborg- ina. Mark frá Ranik 22:20 gat ekki ógnað sigrinum. Á síðustu sekúnd- um var aukakast dæmt á Tékkana og var tíminn þá liðinn, en aðeins eftir að framkvæma aukakastið. Margföld vörn Tékkanna gat ekki komið í veg fyrir að Karl skoraði Boltinn smaug í gegn og beint í bláhomið, 23:20. Reykjavíkurliðið átti stórgóðan leik á köflum, einkum í fyrri hálf leik og þá helzt fyrri hluta hans, og svo síðar á köflum í seinni hálfleik. Mér fannst Karl Jóhanns- son koma bezt út úr þessum leik. Ég hafði heyrt að hann ætti til að ,jtýnast“ í stórum sal, — en það er sannarlega ekki rétt, a. m. k. gerði hann það ekki hér. Athyglis verður var leikur Hermanns Gunn arssonar og mætti benda landsliðs nefnd á að það er fásinna að nota ekki þann kraft. Þorsteinn Björns- son var góður í markinu og er án efa okkar bezti markvörður í dag. Þá var Hörður Kristinsson ágætur í þessum leik, Þórarinn Ólafsson og Sigurður Óskarsson sterkir varnarmenn, en Gunnlaugur, eins góður sóknarmaður og hann er átti til að gleyma vörninni. Liðið í heild það bezta, sem barizt hefur undir merkjum Reykjavíkurborgar. | Karviná sýndi sem fyrr að iiðið ' er mjög gott, hraðir leikmenn, margir skotmenn, línumenn frá- bærir, ekki sízt hinn lágvaxni Janik. Sá maðurinn, sem mest ógnun stafaði þó af var hinn ungi j Bielickv og skoraði hann 5 mörk með langskotum sínum, Ciner, landsliðsmaði var sæmilegru en hinn landsliðsmaðurinn Hadrava brást mjög í þessum leik. Mark- verðirnir Konecny og Novák voru ágætir. Magnús Pétursson dæmdi léik- inn og gerði það vel. Mörkin skoruðu: Hörður 7, Karl 7, Hermann 3, Gunnlaugur 2, Guðjón, Þórarinn, Stefán og Sig- urður Einarsson sitt hver. Fyrir Karviná skoruðu Bielicky 5, Ranik 4, Ciner 3, Janik 3, Hadrava 2, Konrád 2 og Klincik eitt. — jbp — FH gerði jafntefli 19:19 Leikurinn í gær milli Karviná og FH dró að sér fullt hús áhorf- enda, sem voru heldur daufir sem fyrr og hvöttu FH lítið sem ekk- ert enda þótt leikurinn væri frá fyrstu minútu til hlnnar síðustu æsispennandi. Leikurinn átti ann- ars að vinnast af FH, en furðuléleg ar skyttur í vitaköstum eyðilögðu 1 4 af 5 möguleikum á að skora úr svo upplögðum tækifærum og ekki tókst að ná „nema“ jafntefli 19:19. Karviná náði forystunni í fyrstu sókn sinni og skoraði hinn hættu- legi skotmaður Belicky gegnum vörnina. Höfðu gestimir nú fmm kvæðið en FH jafnaði jafnóðum. Markvarzla FH var afar léleg, og vömin ekki nema miðlungs góð. Var furðulegt að Hjalti skyldi ekki vera látinn fara í markið fyrr en eftir margendurtekin mistök hjá Karli M. Jónssyni, sem átti nú sinn lakasta leik, en á 20 mín. kom Hjglti inn og gerbreytti markvörzl unni, en þá var staðan 8:8 og hafði FH skömmu áður komizt yfir f fyrsta sinn f leiknum. FH náði nú tveggja marka for ystu, en aftur tókst Tékkum að komast yfir. Öm Hallsteinsson jafnaði 12:12 á 29. mín. og skoraði annað mark eftir að ná boltanum á línunni úr stangarskoti Ragnars og skoraði 13:12 en rétt á eftir var flautað til leikhlés. Fyrstu mínútur seinni hálfleiks Framh. á bls. 5 Þoð ófrúlega gerðist: ÆFINGALAUSIR REYKJA- VÍKURMEIS TA RA R Það ótrúlega gerðist um helgina í körfuknattleik. Hálf- gert „oldboys“lið kom, sá og sigraði. Sigraði KR, Evrópu- bikarliðlð með talsverðum yfir burðum og varð Reykjavikur- meistari. Þetta var lið KFR, skipað gömlum og vel þekktum nöfnum, sem ekki hafa lagt neina stund á æfingar í vetur. ~<s> Sigurði Óskarssyni (annar frá vinstri) haldið óþyrmilega á iinu. Tékkamir, Karl og Sig. Einarsson horfa á. Er furðulegt að hugsa til þess að svona nokkuð skuli geta komlð fyrir, — en allt getur gerzt í körfuknattlelk sem öðru. KFR og KR voru nokkuð jöfn f byrjun, en þegar 10 min- útur voru liðnar af leik, hálf- leikurinn hálfnaður, var sem skot KR-inga vildu alls ekki hitta körfuna. Skot Einars Matthíassonar og félaga fóru hins vegar oftast rakleitt ofan í körfuna. Þannig skomðu KFR í gær 23:0 á seinni 10 min útunum og höfðu yfir í háifleik 37:17, en KR hafði haft yfir 17:14 á 10. mínútu. 1 seinni hálfleik var KR-liðið öllu liressara, en ekki minnkaði munurinn svo nokkru næmi fyrr en undir lokin að KFR slakaði á, þegar sýnt var að Iiðið var búið að vinna, og þá var Sigurður Helgason farinn af velli með 5 villur, en vara- menn á félagið enga á við þá 5 sem ieika mest. Lokastaðan var 7:57. Einar Matthíasson var bezti maðurinn í þcssum leik, skor- aði 20 stig, Þórir, unglingalands llðsmaður félagslns, og sá eini sem æfir körfuknattleik, skor- aði 21 stig og stóð sig mjög vel, Sigurður Helgason (2.08 m á hæð) skoraði 16 stig. Fyrir KR skoraði Kolbelnn 20 stig og var eini maðurinn, sem var nokkum veginn sæmilegur, Einar Bollason skoraði 13 (öll f seinni liálfleik) og Guttormur 13 stig. —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.