Vísir - 09.12.1965, Page 6
6
V í S IR . Fimmtudagur 9. desember 1965.
SMITH boðar gagnráðstafanir
Mlkið er rætt um það á Norður
Iöndum, aö Svíar tóku þá ákvörð
un á seinustu stundu, að greiða
atkvæðl eins og Danir, þ.e. með
ályktunartillögu Asíu og Afríku
ríkja varðandi refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku, en meðal 16 þjóða,
sem sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una voru Noregur, Finnland og ís
land. Portúgal var eitt á móti. Til
lagan á eftir að koma fyrir Ailsherj
arþingið og öryggisráðið eitt getur
fyrirskipað refsiaðgerðir, en þar
gæti komlð til greina beiting neit
unarvalds.
Nilsson, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar gerði grein fyrir afstöðu
Svía í gær í iæðu Lagði hann á-
herzlu á að grundvöllurinn undir
fyrri mótbárum hefði fallið niður,
vegna þess að fyrir viðleitni Dana
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,
var tillagan hóflegar orðuð.
Borten forsætisráðherra Noregs
var í Stokkhólmi í gær og ræddi
vlð Nilsson. Hann varaði við að
gera of mikið úr ágreiningi Norður
landa um þetta mál. Skoðanagrund
völlur Norðurlanda varðandi Suður
Afríku væri hinn sami.
IAN SMITH — —
Ian Smlth forsætisráðherra Rhod
esíu flutti útvarpsræðu f gær og
boðaði róttækar gagnráöstafanir til
þess að draga úr áhrifum refsiað-
gerða brezku stjómarinnar. —
Hann kvað framvegis ekkl verða
tekið við grelðslu í sterllngspund-
um frá löndum á sterlingssvæð-
inu — aðelns bandarískum og
kanadiskum dollurum og svissnesk
um frönkum. Hann kvað enn veröa
dregið úr innflutnlngi frá Bretlandi
og hótaði að hækka flutningsgjald
á kolum til Zambiu á járnbrautum
Rhodesiu o. fl.
Smith tók það skýrt fram, að ef
refsiaðgerðir leiddu til atvinnuleys
is í landinu, .yrðu landsmenn að
sitja fyrir þeirri vinnu sem væri að
fá, en annarra landa menn yrðu I
sendir heim. í Rhodesiu er nú y2
milljón manna frá öðrum löndum
við ýmis störf ,en langflestir verka
menn eru frá nágrannalöndum
Rhodesíu
Mývatn —
Framh. af bls. 1
sneri sér síðan að fyrsta lið
fyrirspurnarinnar. Þegar lögin
um kisilgúrverksmiðju við Mý-
vatn voru samþykkt á Alþingi
vorið 1964, hafði verið gert
bráðabirgðasamkomulag við
hollenzka fyrirtækið AIME um
samvinnu við vinnslu og sölu
kísilgúrs úr Mývatni. Á grund-
velli samkomulags þessa var
Kfsiliðjan h.f. stofnuð í júní
1964 af íslenzka ríkinu og hinu
hollenzka fyrirtæki, til að ann
ast endanlega skipulagningu
og annan undirbúning kísilgúr-
verksmiðju við Mývatn. Sam-
kvæmt samkomulaginu skyldu
aðilar stofna tvö félög, fram-
leiðslufélag og sölufélag, þegar
fyrmefndum undirbúningi væri
lokið með þeim árangri, sem
báðir aðilar teldu viðunandi.
Snemma á þessu ári voru aðilar
sammála um að afstaðnar at-
huganirogrannsóknir réttlættu
það, að ráðizt yrði í byggingu
verksmiðjunnar. Þegar á reyndi
var hollenzka fyrirtækið hins
vegar ekki reiðubúið til að efna
samkomulagið að fullu, með
því að taka þátt í stofnun fram
leiðslufélagsins og sölufélags-
ins, þar sem slfk þátttaka yrði
því fjárhagslega ofviða vegna
annarra fjárfrekra fram-
kvæmda, sem það hefði ný-
lega lagt f. 1 staðinn bauðst
það til að annast sölu kísilgúrs
ins gegn ákveðnum sölulaun-
um. Ríkisstjórnin taldi slíkt
fyrirkomulag óviðunandi þar
sem það gæfi enga tryggingu
fyrir sölu kísilgúrsins. Varð þvf
að ráði að kanna möguleika á
framleiðslu og sölu kísilgúrs í
samvinnu við aðra erlenda að-
ila og í þeim tilgangi hafa ver-
ið teknar upp viðræður við
bandaríska fyrirtækið Johns-
Manville. Af hálfu ríkisstjóm-
arinnar hafa tekið þátt í viðræð
unum, þeir Magnús Jónsson,
fjármálaráðherra, dr. Jóhannes
Nordal, bankastj. og Halldór
Jónatansson, lögfræðingur. Við
ræður þessar hafa verið jákvæð
ar til þessa, en þær verða ekki
til lykta leiddar, fyrr en á
næsta ári, þar sem beðið er eft
ir niðurstöðum af rannsóknum
Johns-Manville á sýnishomum
úr Mývatni.
Við öðrum liðnum gaf ráð-
herrann eftirfarandi svar. Lög-
in um kfsilgúrverksmiðju við
Mývatn nr. 22/1964 veita al-
mennan rétt til samvinnu við
erlendan aðila um framleiðslu
og sölu kísilgúrsins og tak-
markast lögin því ekki við hol-
lenzka félagið AIME og sam-
vinnu við það. Ráðherra sagði
einnig að hann teldi rétt að
Alþingi yrði gerð grein fyrir
til hlítar, þegar hugsanlegar
breytingar lægju fyrir frá því,
sem áður var ráðgert við af
greiðslu málsins í þinginu.
Svohljóðandi svar gaf ráð-
herrann við þriðja liðnum. Und
irbúningur kísiigúrvinnslu við
Mývatn hefur allur miðazt við
það, að forðast bæði tjón á
dýralífi þar og náttúruspjöll.
Þannig var verksmiðjunni ráð
gerðpr staður í Bjamarflagi við
Námaskarð í um 3 km f jarlægð
frá vatninu. 4. mað sl. ritaði
Kísiliðjan h.f. náttúruverndar-
ráði bréf og óskaði álits þess á
hinum fyrirhuguðu fram-
kvæmdum félagsins við Mý-
vatn. í framhaldi af þessu lét
Baldur Lfndal náttúrvemdar-
ráði í té tvær greinargerðir
um, hvaða úrgangsefni sé um
að ræða við framleiðslu kísil-
Kjötkaupmenn
Matvörukaupmenn
FÉLAGSFUNDUR
Almennur félagsfundur verður haldinn í
TJARNARBÚÐ í kvöld og hefst kl. 8,30
DAGSKRÁ:
1. Skýrt frá fyrirhuguðum samningum
við V. R.
2. Afgreiðslutími verzlana í Reykjavík
___________ Stjórnimar.
gúrs og hvaða ráðstafanir eru
fyrirhugaðar til að koma í veg
fyrir, að þau valdi tjóni á dýra
lffi og jurtagróðri Mývatns og
umhverfi þess, svo og, hvernig
tryggt verði að olía komist ekki
í vatnið.
Varðandi fjórða liðinn, byrj-
aði ráðherrann að lesa upp sam
þykkt sem hreppsnefnd Skútu
staðahrepps og bæjarstjóm
Húsavíkur hafði gert um kísil
gúrverksmiðju á fundi 19. sept.
1961.
1 fundarsamþykkt þessari er
skorað á ríkisstjómina að láta
halda kappsamlega áfram at-
hugunum og áætlanagerð um ]
kísilgúrverksmiðju við Mývatn
og öllu er þar að lýtur. Jafn-
framt skoraði fundurinn á Al-
þingi að veita nauðsynlegt fé
til þessara rannsókna svo að
þeim geti orðið lokið og áætlun
argerðinni hið allra fyrsta.
Einnig stóð í samþykkt þess-
ari, að fundurinn hefði ákveðið
að senda öllum þingmönnum
Norðurlandskjördæmis eystra
og einnig landskjörnum þing-
mönnum, sem búsettir eru í
kjördæminu áskorun, er hann
hafði samþykkt til ríkisstjórn
arinnar og Alþingis um málið
og væntir þess að allir þessir
menn veiti málinu brautár-
gengi. Að lokum sagði ráð-
herra, að þeir Magnús Jónsson
fjármálaráðherra og Karl Krist
jánsson hefðu haldið fundi á
s. I. ári og þessu ári með þess
um aðilum og hefði þeim verið
gerð grein fyrir fyrirhuguðum
framkvæmdum og fyrirhugaðri
starfrækslu verksmiðjunnar.
Enn væri ekki lokið samning-
um við landeigendur, en það
yrði væntanlega innan skamms.
Sterkt öl
Framh. af bls. 1
gerð sterks öls. Það er hol-
lenska stórfyrirtækið Heineken,
sem hyggst koma hér’ upp öl-
húsi í samráði við einn af stór
kaupmönnum borgarinnar Rolf
Johansen. Þá hefur Sana á Ak-
ureyri áætlanir um að brugga
sterkt öl og eru tækin á leið-
inni til landsins frá Danmörku.
Má því senn búast aftur við
miklum umræðum um það
hvort leyfa eigi bruggun sterks
öls f landinu og sölu þess, því
þetta mál hefur jafnan verið
eitt af mestu hitamálunum með
þjóðinni.
Bótar —
Framh. af bls. 16
hafa raunar verið flutt á álfa
brennur, sem verið er að
hlaða víðsvegar um borgina.
Það er því vissara fyrir
bátaeigendur, sem eiga báta
sína í Reykjavíkurhöfn að
taka sér göngutúr niður að
höfn einhvern næstu daga til
að fullvissa sig um að bátar
þeirra séu ekki komnir á ein
hvern brennuhlaðann, og eins
að tala við hafnarverðina til
að gera þeim grein fyrir báta
eign sinni.
Bátar þeir sem hér er um
að ræða eru aðallega litlir
trillubátar, en nokkrir þilfars
bátar eru í þessum hópi líka.
26 milljónir —
Framh. af bls. 1
upphæð er dregið er um aðra
mánuði ársins.
3. desember dró DAS um vinn
inga að heildarupphæð 2 milljón
og 215 þúsund krónu'r og var
hæsti vinningurinn ibúð á 500
þúsund krónur, en desember er
ekki vinningahæsti mánuður
DAS, þar sem happdrættið fer
ekki eftir almanaksárinu.
Á morgun dregur happdrætti
Háskóla íslands um sínar 15
milljón 780 þúsund krónur og
skiptast þær niður á 6300 vinn
inga. Hæstu vinningarnir tveir
eru á milljón hvor, en næstu
númer fyrir ofan og neðan mið
ana sem milljónirnar hljóta
fá 50 þúsund krónur hver í
sárabætur. Síðan eru tveir vinn
ingar á 200 þúsund og tveir á
100 þúsund krónur. Vinninga-
upphæð Happdrættis Háskóla ís
lands í desember er þrisvar til
fimm sinnum hærri en aðra mán
uði ársins.
Þá eru 7 önnur happdrætti
sem f desember draga um vinn
inga yfir 50 þúsund krónur.
Framsóknarflokkurinn dró
um þrjá bíla að upphæð sam-
tals 516 þúsund krónur. Á Þor
láksmessu draga svo eftirtalin
happdrætti: Styrktarfélag van-
gefinna um fólksbíl og jeppa að
upphæð samtals 524 þúsund
krónur. Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra um tvo bíla og aðra
vinninga að upphæð samtals
544 þúsund. Þjóðviljinn um tvo
bíla að upphæð 310 þúsund og
Alþýðuflokkurinn um þrjá bfla
að upphæð 488 þúsund. Knatt
spyrnufélagið Haukar dregur
um leikföng fyrir 50 þúsund
krónur. Á sjáifan aðfangadag
dregur svo Sjálfsbjörg, lands
samband fatlaðra um bíl að upp
hæð 330 þúsund krónur og verð
ur það ekki amalegur jólaglaðn
ingur.
Flautuleikari —
Framh. af bls. 16
sinni og lék Gilbert með þeirri
hljómsveit í mörg ár Telur hann
þetta samstarf með Beecham hafa
orðið sér alveg ómetanlegt. Síðar
eftir stríðið, bauð Beecham honum
svo stöðu aðalflautuleikara við
Royal Philharmonic Orchestra í
London.
Geoffrey Gilbert hefur ferðazt
víða um heim og haldið sjálf-
stæða tónleika og einnig hefur
hann leikið með hljómsveitum und
ir stjóm frægra hljómsveitarstjóra
svo sem Furtwanglers, Kleibers,
Bruno Walters, Klemperer o.fl.
Gilbert er kennari við Konung-
Iega músíkskólann í Manchester,
Guildhall músíkskólann og Trinity
músfkskólann. Nemendur hans eru
nú starfandi við flestar hljómsveit
ir í Bretlandi og marga nemendur
á hann starfandi utan Bretlands, t.
d. á fslandi Hafa flestir flautu-
leikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar
verið nemendur hans og má þar
nefna Averil Williams og Þórarin
Magnússon. Nú er íslendingur einn
af nemendum Gilberts, Jón Sigur
bjömsson og telur Gilbert megi
vænta mikils af honum.
Þetta er í fyrsta skipti sem Gil
bert kemur til fslands en hann hef
ur hér aðeins tveggja daga við
dvöl, þarf að vera mættur til að
leiká f London á Iaugardag. Auk
þess að leika með Sinfóníuhljóm
sveitinni hér mun Gilbert leika
fyrir útvarpsupptöku ásamt Guð
rúnu Kristinsdóttur píanóleikara.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
innar hefjast að venju kl. 21. Þess
má geta að tónleikar þeir sem á-
kveðið var að yrðu 30 desember
verða haldnir miðvikudaginn 29.
desember.
Blómabúðin Gleymmérei
Afskorin blóm, pottablóm, gúmmítré, cypres-
tré. — Jólaskreytingar í úrvali.
GLEYMMÉREI Sundlaugavegi 12, sími 31420.
ÁRBÆ JARHVERFI
Höfum til sölu 3 og 4 herb. íbúðir tilbúnar undir tré-
verk og málningu með tvöföldu gleri og svalahurð. Öll
sameign pússuð utan sem innan og málað. Allar sam-
eiginlegar hurðir verða komnar. Geymsla með hurð og
hillum fylgir hverri íbúð. íbúðirnar verða tilbúnar
seinnipart næsta árs og er miðað við að útborgun sé
100 þús. Eftirstöðvarnar má greiða á 8 mánuðum.
Veðdeildarlán verður tekið upp í eftirstöðvar. Heildar-
verð á 3ja herbergja íbúðum kr. 600 þús.. Á 4ra herb.
endaíbúðum með suður og vestur svölum kr. 700 þús.
Góðir greiðsluskilmálar.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10A. 5. hæð. Síml 24850. Kvöldsfmi 37272.
3 HERB' 'IBÚÐ
3 herb. íbúð í nýju fjölbýlishúsi til sölu á góð
um stað í vesturborginni þriðju hæð ca 90
ferm. stór stofa 2 svefnherbergi eldhús og
bað. Teppi á stofu og í holi tvöfalt gler, hlut-
deild í þvottavél í kjallara. Góð lán áhvílandi.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
Austurstræti 12. Símar 14120 og 20424 _