Vísir - 11.12.1965, Page 2
VÍSIR . Laugardagur 11. desember 1965.
gITSTJORI: JON BiRGIR PETURSSON
SSSííií:
■
■' s ■;
STEFÁN — Rússar miklir bardagamenn.
ÞÓRARINN — Handboltí eftir 5 ár á sjó
ÁGÚST — Æfði meira af skyldurækni.
ÞAÐ KOM A 0 VART
— segja nýliÖarnir í landsliðinu
Þrír ungir óg efnilegir leik-
menn munu leika sinn fyrsta
landsleik á morgun. Þetta eru
þeir Þórarinn Ólafsson úr Vík-
ing, og félagamir Guðmundur
ögmundsson og Stefán Sand-
holt úr Val. Þórarinn er eini
leikmaðurinn í liðinu úr 2.
deild, en þeir félagamir eru ný-
sloppnir með liði sínu úr þeirri
deild.
Allir eiga þeir eitt sameigin-
legt: Það kom þeim á óvart
að verða landsliðsmenn.
★
Þórarinn Ólafsson er 23ja
ára, meðalmaður á hæð, en
sérlega kraftalega vaxinn, enda
vakti hann snemma athygli í
handknattleik fyrir hin föstu
skot sín.
„Ég byrjaði í 3. flokki í
Víking, en hætti í rúm 5 ár í
handknattleik, en þau ár var
ég sjómaður bæði á vertíð og
svolítið á togurum".
— Hvemig atvikaðist það þá
að þú b'yrjaðir aftur f hand-
knattleik?
„Þegar ég hætti að starfa á
sjó voru kunningjar mínir marg
ir í handboltanum og einhvem
veginn dróst ég með, lenti í 1.
flokksliðinu hjá Víking og svo
skömmu seinna í méistara-
flokki“.
Og þetta gerðist fyrir þrem
árum, nú er Þórarinn kominn í
landsliðið, sem leikur gegn
Rússum á morgun. Tvívegis
hefur hann leikið með Reykja-
víkurúrvali, fyrst í fyrrahaust
og né aftur gegn tékkneska
liðinu á laugardaginn var, þeg-
ar - íþróttahöllin var tekin í
notkun, en við lagninguna á
gólfinu vann Þórarinn mjög
ötullega ásamt félögum sinum
mörgum.
Þórarinn segist hafa séð
Rússana á kvikmynd fyrir
nokkmm dögum og segir
þá áreiðanlega sterka. „Við
gemm allt til að klekkja á
þeim, en ég þori engu að spá
um úrslitin“
Eitt vildi Þórarinn taka fram
að lokum: Hann var mjög
undrandi á að vera valinn.
★
Ekki síður undrandi var hinn
kornungi Ágúst Ögmundsson,
19 ára gamail leikmaður úr
Val. Ágúst kom ekki fram á
sjónarsviðið fyrr en í fyrravet-
ur með 2. deildarliði Vals. Að
vísu hafði hann' tekið áður þátt
í hraðmóti Þróttar árið áður,
þá leikmaður í 2. deild, en vakti
engu að síður athygli, en þetta
mót vann Valur. Valur vann
líka 2. deildina og leikur því
í 1. deild f ár.
í sumar var Ágúst í hópi
þeirra sem kallaðir voru til æf-
inga með landsliðinu. Það var
víst meira af skyldurækni og
góðum hug til þeirra, sem hafa
áhuga á að skapa hér gott
landslið að Ágúst mætti svo
vel til tjfinga. Hann gerði sér
ekki minnstu vonir um að lenda
í hópi þeirra, sem valdir yrðu.
Landsliðsnefnd fór f vali
sfnu eftir því hve vel menn
hefðu æft og hversu vel þeir
væru komnir inn í hin ýmsu
leikkerfi, sem æfð höfðu verið
og því varð Ágúst, sem er
mjög góður línumaður, fyrir
valinu.
Ágúst byrjaði á handbolta
14 ára gamall með Val og með
félaginu æfir hann einnig
knattspymu eins og margir
handknattleiksmenn (of margir,
reyndar) gera.
Ágúst var brautskráður frá
Verzlunarskóla fslands s.l. vor
og hefur starfað hjá Tryggingu
h.f. á Laugavegi 178 frá því f
júlí í sumar.
★
Stefán Sandholt mátti eigin-
lega ekki vera að því að tala
við neinn þegar við hittum
hann. Inni f hinum ógnarstóru
Framh. á bls. 6.
ÍSIAHD RUSSIAHD
Fyrsti landsleikurinn við Rússa
í dag fer fram fyrsta milliríkja-
keppni íslands við Sovétrikin. Það
er á morgun sem landslið þessara
þjóða mætast í íþróttahöllinni í
Laugardal í landsleik í handknatt-
leik, en á mánudag hittast þessi
lið aftur f keppni á sama stað.
Þessir andstæðingar vorir eru
svo til óþekkt stærð, við vitum
þó þetta um þá. Þeir unnu Finna
fyrir ári með 25:14 og unnu Svía
einnig það ár með 25:20, gerðu
jafntefli við Rúmena 12:12. Þeir
töpuðu líka fyrir Svíum með 16:23,
Rúmenum 9:15 og Ungverjum
14:15. Hingað koma þeir eftir
keppnisför til Danmerkur og Svf-
'þjóðar og árangurinn hefur verið
góður hjá liðinu. Danir unnu með
2 marka mun og gerðu jafntefli f
sfðari leiknum, Svfar unnu þann
fyrri en töpuðu þeim seinni nieð
eins marks mun.
Rússar eru reyndar nýgræðingar
í þessari íþrótt, en málin hafa ver-
ið tekin föstum tökum heima fyrir
eins og títt er um íþróttastarfið
hjá þeim, — og árangurinn virðist
ekki ætla að láta standa á sér.
Samkvæmt nýjustu skýrslum eru
starfandi um 20 þús. lið í hand-
knattleik í landinu og hátt á 4.
hundrað þúsund stunda handknatt
leik.
Islenzka landsliðið hefur verið
mjög umrætt undanfarið og val
þess gagnrýnt af mörgum, en
i sennilega hefur hér verið unnið f
. fyrsta skipti eftir fyrirframgerðri
áætlun, — beztu einstaklingarnir
Rússneski þjálfarinn Grinbergas leiðbeinir leikmönnum sínum vel. Enginn fer inná völlinn án þess hafa ekki verið valdir, heldur bezta
að fá nákvæmar fyrirskipanir eins og sjá má. | heildin, sú heild, sem getur leikið
bezt það kerfi, sem þjálfarinn,
.Karl Benediktsson hefur lagt fyrir
liðið. Vonandi tekst nú vel að út-
færa það og þá er tilganginum náð.
Það er ekki auðvelt að spá neinu
um úrslit í þessum lándsleikjum,
en án efa verða þeir hörkuspenn-
andi og ótrúlegt að munurinn verði
mikill á liðunum, því íslenzkur
handknattleikur er án efa á ágæt-
um mælikvarða. — jbp —
Liðin á
morgun
Islenzka liðið á morgun er
þannig skipað:
Þorsteinn Björnsson, Sigurð-
ur J Þórðarson, Ragnar Jóns-
son (fyrirliði), Gunniaugur
Hjálmarsson, Karl Jóhannsson,
Birgir Björnsson, Guðjón Jóns-
son, Hörður Kristinsson, Stéfán
Sandholt, Ágúst Ögmundsson
[ og Þórarinn Ólafsson. ^
Rússnesku leikmennirnir eru
þessir (ekki vitað hvaða lið þeir
senda endanlega: Abaishvili,
Tsapenko, Veldre, Reznikov,
Matsezchinskas, Lebedev,
Tsertvadze, Zdorenko, Zelenov, t,
Usenko, Phakadze, Klimov, ?
Schevchenko, Koldka. ;
Dómari er Svíinn Hans Carl- í,
1 son. (