Vísir - 11.12.1965, Blaðsíða 16
4
:
VISIR
Laugardagur 11. desember 1965
Kveikt ó
norska jóla-
trénu
é morgun
Á morgun, sunnudag, verður
kveikt á norska jólatrénu á Aust-
urvelli. Hefst athöfnin kl. 15:45
með því að Lúðrasveit Reykjavik-
ur leikur. Ambassador Norðmanna,
Tor Myklebost, og Geir Hallgríms-
son borgarstjóri flytja ávörp. Síð-
an mun dómkórinn syngja undir
stjóm Mána Sigurjónssonar.
6,7 MILLJONIR SOFNUÐUST I
HERFERÐ GEGN HUNGRI
Eins og alþjóð er kunnugt
hefur staðið yfir hér á landi
Herferð gegn hungri undanfam
ar 4-5 vikur. Fullyrða má að
hér sé um að ræða vfðtækustu
fjársöfnun, sem efnt hefur verið
til á íslandi og aldrei hefur al
menningur sýnt eins mikið ör-
læti. Framkvæmdanefnd HGH
hefur þeirar tekið við nær 6.7
millj. kr., og enn er óuppgert
við allmarga söfnunaraðila.
Það var Æskulýðssamband ís
lands, samband 11 landssamtaka
æskunnar, sem forgöngu hafði
í máli þessu hér á landi. Sér-
stök framkvæmdanefnd skipuð
fulltrúum pólitísku æskulýðs
samtakanna sá um undirbúning
og skipulagningu herferðarinn
ar með aðstoð fjölmargra aðila
einstaklinga, félagssamtaka og
fyrirtækja. Utan Reykjavíkur
störfuðu 35 nefndir f ölium
stærri bæjum, en óhætt er að
fullyrða að ekki færri en 18-
2000 manns hafi aðstoðað við
framkvæmd herferðarinnar. T.d.
tóku um 1100 manns úr hópi
æskufólks hér þátt í söfnuninni
í Reykjavík, en athyglisvert er
Framh á bls 6
Scotice bilaður
— og nú fara s'imtöl v/ð Evrópu fyrst til Ameriku
Þessa dagana veldur bilun á
simastrengnum Scotice því að
símtöl frá íslandi til Evrópulanda
annarra en landa í Skandinavíu,
fara um Icecan-strenginn til
Montreal fyrst, en þaðan til
Evrópu.
Símtöl við Norðurlönd eru af-
greidd með gamla laginu, með
radfósambandi og hefur það sam-
band verið ágætt undanfarna daga.
Símastrengurinn Scotice er með
7 rásum sem allar eru óvirkar.
Viðgerðarskip er komið á stað-
inn og liggur yfir staðnum þar
sem bilun er, en veður hefur haml
að enn sem komið er og ekki hægt
að taka strenginn upp.
Bilun eins og sú sem nú á sér
stað á strengnum frá íslandi um
Færeyjar og til Skotlands kallast á
máli símamanna „leti“ og er sú
bilun mjög smávægileg og tekur
venjulega stutta stund fyrir við-
gerðarskipin að finna bilunina og
gera við hana, ef veður er ekki
slæmt.
Allir að búa til snjókerlingar
Börnin tóku svo sannarlega kipp í gærmorgun, þegar þau litu út um gluggann og sáu, að þykk,
hvít breiða lá yfir öilu. Þau láta sig litlu skipta, að hinir fullorðnu bölsótast yfir færðinni
og hálkunni, því snjórinn þýðir fyrir þau stórkostlegt ævintýri. Enda var ekki setunnar
boðið, allir þustu út að velta snjóboltum og búa til myndarlegar snjókerlingar. Húsagarðar
um allan bæinn voru markaðir förum eftir stóru snjóboltana og tugir snjókerlinga bættust
skyndilega í hóp listaverkanna sem borgin skartar. Ingimundur Magnússon ljósmyndari tók
þessa mynd í garðinu hjá sér af ieik barnanna.
Pólýfónkórinn flytur Jóla-
óratoríu Bachs um jólin
Valgerður Ólafsdóttir fylgist með vélinni, sem fyllir smjör-
líkið á öskjurnar nýju.
Á milli jóla og nýárs mun
eitt þekktasta tónverk Bachs,
Jólaóratórían hljóma í Krists-
kirkju í Landakoti. Það er Pólý
fonkórinn f Reykjavfk, sem mun
gefa fólki kost á að hlusta á
þetta fagra tónverk, en viða
um lönd þykir flutningur þess
alveg sjálfsagður og ómissandi
þáttur í jóiahaldi.
Jólaóratórían er i 6 köflum
og verða þrír hinir fyrstu fluttir
en þeir eiga '’við fyrsta ann-
an og þriðja jóladag. I fyrra
flutti Pólýfonkórinn tvo fyrstu
kaflana tvö kvöld f röð og i
bæði skiptin fyrir fullu húsi,
Ríkti mikil hrifning áheyrenda
á tónleikunum, og fengu flutn
ingsmenn lofsamleg ummæli.
Flytjendur Jólaóratóríunnar
verða eins og fyrr greinir Pólý
fonkórinn, með sína 40 söngv
ara, 25 manna kammerhljóm-
sveit og einsöngvararnir Guð-
„Jurta"-smjörlíkið kemur í dósum
Salan hefur verið helmingi meiri en búizt var við
Eitt ár er nú liðið síðan „Jurta“
smjörlíki kom ú markaðinn og
hefur sala þess farið Iangt fram
ur því, sem forstöðumenn Af-
greiðslu Smjörlíkisgerðanna
gerðu ráð fyrir. Þessi mikla sala
hefur þó ekki komið fram f
minnkandi sölu hinna eldri teg-
unda smjörlfkis, þar sem sala
þeirra tegunda var heldur meiri
á þessu tfmabili en árið áður.
„Jurta“-smjörlíki er nú að
koma á markaðinn í nýjum um-
búðum, eins konar pappadósum
með plastloki, sem mjög eru
hentugar, þar sem auðvelt er að
bera smjörlíkið á borð í þess-
j um umbúðum, auk þess sem
hægt er að loka þeim vel. Eru
þetta 250 gramma pappadósir en
\þær umbúðir sem „Jurta“-smjör
I líki hefur verið í hingað til, 250
gramma og 500 gramma pakkar
verða þó áfram notaðar, jafn-;
framt pappadósunum. Verður!
smjörlíkið í pappadósunum um '
það bil krónu dýrara en í 250 !
gramma pakka og er það vegna
þess að dósirnar eru dýrari auk
þess sem á þeim er hærri tollur
e- hinum umbúðunum, en dós-
ir þessar eru framleiddar í V.-
Þýzkalandi.
Davíð Sch. Thorsteinsson for-
stjóri Afgreiðslu Smjörlíkisgerð-
anna h.f. og Haukur Gröndal
framkvæmdastjóri skýrði frá því
i gær að salan á „Jurta“-smjör-
líki 8. des. 1964 til 8. des. 1965
hefði verið samtals rúm 267
tonn, en framleiðendur reiknuðu
ekki með að salan myndi verða
meiri en um 120 tonn fyrsta árið.
Varðandi gæði „Jurta-smjörlík-
ij þá upplýstu framleiðendur að
Framh. á bls. 6
Framh. á bls. 6.
Varðarfélagar. Munið afmælis-
happdrætti Varðar. Afgreiðslan i
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll
verður opin til kl. 18 í dag.
onQaaaaoaaaaaaaaaaaoD
13 DAGAR
TIL JÓLA
aoaaaoaaaoaaaaaaaaaarc