Vísir - 30.03.1966, Side 4
4
V í S I R . MiðvSkudagur 30. marz 1966.
Sameining
Jóhann M. Kristjánsson hefur
geflð út bók sem hann nefnir
„Maðurinn og alheimurinn“ og
nýlega er komln f bókaverzlan-
ir. Ræðir hánn þar um skoðanir
sinar á alheiminum og sam-
vlnnu þjóða. Hefur hann sent
blaðlnu eftirfarandi grein um
þessi efni:
Sameinaðar þjóðir — U.N.
Sameinaður heimur — A
United World
Andlega sameinaður heimur
— S.U.N.
Sameinað mannkyn.
Eru raddir hugsuða, heim-
spékinga, stórra félagsheilda og
margra stjórnmálamanna. Þetta
er eitt af þeim hljóðmerkjum,
sem lífið sjálft sendir þegar
mest er f húfi f hamförum þess
í rás framvindunnar. Það er
brýnasta þörfin vegna þróunar-
stöðu mannkynsins í dag — ef
það á að halda áfram að vera
tii, — ef ekki, þá verður það
universal harmleikur — skip-
tapi á reginn sæ alheimsins, þótt
það svari kannski til minna en
þess, að forgörðum fari eins
manns flev á hafi þess heims
ér við þekkjum.
Sameinuðu þjóðirnar eru
fyrsta skrefið, en vantar þó mik
ið á, að geta heitið alþingi þjóða
heims, því of marga þingmenn
ýmissa rfkja vantar. Heims-
rfkisstjórn og hæstiréttur mann-
kynsins þarf að koma, áður en
takmarkið: Sameinað mannkyn
næst.
Heims-ríkisstjóm skipuð
mönnum, sem lengst eru komn-
ir f félagslegum þroska og æðri
vizku, sem stöðugt skal skapa
bétri skilyrði til að vaxa og
eflast með aðstoð andlegra
orkustöðva, heimspeki og vís-
indum sem miðast við velferð
mannkynsins og að grundvall-
arlög hennar séu friður og
bræðralag, er það sem stefnt
er að.
1 ritgerð er ég kallaði Sam-
einað mannkyn og sendi alþingi
fyrir 4 árum — er frumvarpið
um „Almanna-vamir" var til
umræðu — lagði ég til, að hér
á íslandi yrði reist háborg
andlegrar menningar, heimsmið-
stöð vísinda og heimspeki —
andleg aflstöð, sem innti það
hlutverk af hendi, að sameina
allar þjóðir heims undir eina
stjóm, stjóm friðar, réttlætis og
bræðralags, yfirstjóm Samein-
uðu þjóðanna. Um þetta o. fl.
hefi ég skrifað 6 greinar, er
koma í bókabúðir f dag í lítilli
bók, sem heitir Maðurinn og
alheimurinn.
Sú stofnun, sem telja verður
mikilvirkasta í dag, sem hefir
að takmarki „að tryggja sam-
lvndi með kynþáttum, frið á al-
þjóðavettvangi, bræðralag allra
manna með heimsstjóm og
frelsi einstaklingsins lögum sam
kvæmt“, er The Intemational
Academy, sem er sjálfstæð vís-
inda- og menntastofnun, setin
hálærðum mönnum og er einnig
sambandsstofnun Academia og
Universitia víða um heim og hef
ir umbjóðendur í 80 löndum
heims. The Intemational Aca-
demy var stofnuð í Toulouse í
Frakklandi 1880, er skrásett hjá
mennta-, vísinda- og menningar-
stofnun UNESCO Sameinuðu
þjóðanna í París, og hefir höfuð-
stöðvar sínar í Voncouver í
Kanada. Megin tilgangur hennar
er að efla frið og bræðralag.
„Vísindunum er ætlað að gjöra
hana að veruleika og með heim-
speki verða kenningar hennar
fluttar". Þessi mikla stofnun er
heimsbræðralag lærðra æru-
verðugra fræðara. Forseti henn-
ar og stórkanzlari er erkibisk-
up dr. William Franklin Wolsey,
tvímælalaust einn af stórmenn-
um heimsins í dag.
Ailsherjarráðið og öldunga-
deildin hefir valið Canadian
College of Life fyrir menntaset-
ur sitt, svo og The Universal
Life Foundation. Takmark henn
ar er: A United World.
Mikil alda andlegrar starfsemi
rís nú í Englandi. Stofnun sem
heitir The Voice Universal hóf
starfsemi sína 1 Sussex árið
1952 með útgáfu tímarits með
sama nafni og fyrirlestrum um
heim alian. Tímaritið The Voice
Universai er útbreitt í meira
en 60 löndum heims. Stefna
þess er friður og bræðralag.
Innan The Voice Universal, er
ný stofnun sem hefir að mark-
miði andlega sameiningu þjóða
— Spiritual Unity Of Nations
S.U.N., er hyggst með því að
stofna Hof eða Musteri viða um
heim fyrir andlega starfsemi,
sem einbeiti sér að því, sameina
þjóðir, og með aðstoð nútíma
tækni, heimspeki og vísindum,
að grundvalla heimsstjórn friðar
og bræðralags.
Þessi stofnun S.U.N. hefir
skipað framkvæmdaráð með
fulltrúum frá ýmsum löndum
úr öllum heimsálfum.
Vegna greina er ég hefi sent
til The Voice Universal og The
Theosophist í Adyar o. fl. og
þegar hafa komið út í þessum
tímaritum auk margra er ég
hefi sent en bíða birtingar þá
Kona óskast
til matreiðslustarfa, og önnur til veitinga
starfa. Uppl. í síma 32809.
Höfum til sölu
Jagúar fólksbifreið, skemmtilegur einka-
vagn í fyrsta flokks lagi. Hagstæðir greiðslu
skilmálar. Skuldabréf koma til greina.
Bílasalinn við Vitatorg
Sími 12500
Jóhann M. Kristjánsson.
hefi ég komizt í samband við
framangreindar stofnanir.
The Intemational Academy
hvers forseti er erkibiskup Dr.
William Franklin Wolsey hefir
sýnt mér þann mikla heiður, að
útnefna mig hinn 6. des. s.l.
heiðursdoktor í heimspeki —
Doctor of Philosophy Honoris
Causa.
Hinn 31. des. s.l. var ég út-
nefndur einn af stjórnarmeðlim-
um The Spiritual Unitiy of
Nations S.U.N.
Mannkyninu verður aldrei
stjómað farsællega, aldrei
heimsfriður, útrýming hungurs
og annarra þjáninga, nema af
þeim, sem meta andleg verð-
mæti framyfir þau efnislegu og
breyta þeim efnislegu i andleg
verðmæti. Aðeins sú heims-
stjóm, sem byggir á háþróuðum
trúarbrögðum, heimspeki og
vísindum og skilyrðislausri
bræðralagshugsjón án allrar
aðgreiningar trúarbragða, kyn-
þátta og þjóðernis getur hafið
mannkynið „til síns heima“
heima friðar, frelsis, fegurðar og
réttlætis.
Inngangsorð mannkvnsins til
farsællar framtíðar, er aðeins
eitt: Eining. Grundvöllurinn
fyrir heimsstjóm er að skapast.
Háborg andlegrar menningarrís.
— Andinn sigrar — lífið fer
sínu fram.
Jóhann M. Kristjánsson.
Tónskóld —
Framh af bls. 8
sem haldin er á tveggja ára
fresti á Norðurlöndunum til
skiptis, en röðin var komin að
okkur núna.
— Hvaö olli?
— Peningaleysi og ekki nógu
góð skipulagning. Þetta með
peningaleysið fannst þeim út í
hött, við grobbum ekki svo
lítið um fjármálin á öðrum svið
um.
— Svo að þið hafið haft bæði
gagn og gaman af ferðinni?
— Já, það má segja það.
Svona ferðir eru frekar sjald
gæfar hjá okkur, kostnaðurinn
við að komast á staðina er of
mikili. Það em eiginlega vand-
ræði hvað fjarlægðimar em
miklar.
— Hvað er svo næst á dag-
skrá hjá Musica Nova?
— Framundan er konsert
með ýmiss konar nýrri músik
bæði innlendri og erlendri og
ætli við spilum þá ekki eitt-
hvað af þessu prógrammi, sem
við fórum með. Þessi konsert
verður fyrrihluta apríl og
annar verður svo haldinn seinna
í vor.
s. b.
Fáein orð til Gunn-
ars Benediktssonar
Kæri vinur!
Fyrir jól bjóst ég til að senda
þér nokkrar iínur í tilefni grein
ar þinnar um Njáluhöfund og
Barðafræði. Þetta mistókst fyr-
ir mér og mér sjálfum að kenna.
Nú er það í rauninni óþarft að
ræða frekar um þetta mál. Nú
veizt þú eins og aðrir, sem meö
menntun fylgjast, að íslend-
ingasögur hafa gerzt í landinu
og eru skráðar flest aliar fyrir
1201. Fyrir daga Nordals á ís-
landi hefur enginn maður kennt
innlendur né útlendur, að ís-
lendingasögur séu skáldsögur,
höfundaverk á 13. öld. Nordals
fræði eru fyllilega kveðin niður,
og eðli þeirra ekki nema ein-
hvers konar Sölvska, sem með
aumkunin er búin að taka á
arma sína. Barði Guðmundsson
hinn skemmtilegi og fróði sögu
maður tók mark á þessu bulli,
en fékk að vita það, að hér hafði
honum orðið hált á hellu. Og ég
þori aö segja það, eftir mín af-
skipti af þessu máli, blaðagrein
og tali við Barða, að ekkert væri
honum fjær skapi, ef hann nú
lifði, en verið sé að hampa
þessu, og úr hefði hann bætt
hefði hann lifað, þótt í raun og
veru þurfi hann eftir engu að
sjá, fyrir sinn fróðleik og heita
tilfinningu fyrir sögunni.
Barða, og fleiri mönnum, er
það vorkunn, þótt þeir gerðu
ekki ráð fyrir einskonar verum
í landinu, sem leiddu menn enn
þá framaf einhverju afglapa-
skarði. Ég sannaði Barða mitt
mál með því, að sýna honum
fram á hversu sá maður, sem
sagði frá því, er Flosi á Svína-
felli fór í Iiðsbón um Austur-
land eftir Njálsbrennu, hefði
verið með öllu ókunnugur á
Austurlandi. í þeirri ferðalýs-
ingu er staðfræðilega ekki heil
brú, nema fáein bæjarnöfn eru
rétt með farin og klykkja út
með því að segja að Flosi fór
frá Hofi í Vopnafiröi til Krísu-
víkur, líka í Vopnafirði, og fyrr
á ieið hans frá Njarðvík en Hof,
og þaðan norður til Vopnafjarð-
ar!
Ég varð hissa í grein þinni,
stórgramdist hún fyrir þín rit-
örlög, fyrir þín ritörlög að
spinna annan eins þráð
af lokleysu. Ég ætla
að fræða þig svolítið í málinu.
Njáls söigu lýkur á þessum orð-
um: Ok lýk ek hér Brennu-Njáls !(
sögu. Þetta „ek“ er óbein undir
skrift Oddaverjans og um 1130,
sbr. íslendingabók Ara og for-
mála Sæmundar fróða fyrir
sinni Konungabók: „Á bók þessi
lét ek rita“. En þeir sem bæta í
og við bók Sæmundar, líka í for
málanum, um 1177 segja: „vjer“
enda þá eflaust fleiri saman.
Sá sem segir málaferlasöguna af
Alþingi heitir Þorbjöm og er
nefndur við málið. Þannig er
Njála samsett úr mörgum sög-
um, sem aliar eru komnar í
sögugjörð alþýðu fyrir 1030 sbr.
Guðbrandur Vigfússon og ekki
betur en það, að stórar missagn
ir hefur hún að geyma. Vertu
nú sæli.
Benedikt Gíslason
frá Hofteigi.
Vertiðm fremur
rýr austmfnlls
Eins og sagt var frá í blaðinu
f gær hafa aflabrögð verið
fremur rýr f verstöðvunum
austanfjalls. Hér verður nú
rakið hver afli einstakra báta
var orðinn um 21. marz sam-
kvæmt frásögn Suðurlands.
ÞORLÁKSHÖFN
Til Meitilsins í Þorlákshöfn
höfðu 21. marz borizt 1335
tonn, sem er helmingi minna en
á sama tíma í fyrra, enda voru
nótaveiðarnar þá í algleymingi
f Þorlákshöfn.
Afli bátanna: Dalaröst 336
tonn í 44 róðrum, ísleifur 308
tonn í 46 róðrum, Draupnir 208
tonn í 38 róðrum, Þorlákur íl.
185 tonn í 41 róðri, Þorlákur
166 tonn í 30 róðrum og
Klængur 132 tonn í 19 róðrum.
Áuk þess hefur Kambaröst
eign Norðurvarar h.f. fengið
203 tonn. .
EYRARBAKKI
Bátamir þar fóru að leggja
netin 28. febrúar en afli veriö
rýr, gæftir stirðar og stundum
landað £ Þorlákshöfn og aflan-
um ékið til Eyrarbakka.
Afli bátanna: Kristján 191
tonn, Þorlákur Helgi 179 tonn,
Hafnfirðingur 76 tonn, Jóhann
Þork. 69 tonn. Samt. 515 tonn.
STOKKSEYRI
Frekar hefur verið tregt í net
in, en gæftir sæmilegar. Mest
barst á land 21. marz, um 100
tonn eftir 3 daga landlegu. Er
heildaraflinn nú um 100 tonn-
um minni en á sama tíma i
fyrra.
Afli bátanna: Hólmsteinn 185
tonn, Bjarni Ól. 170 tonn, Há-
steinn II. 150 tonn, Fróði 140
tonn og Hásteinn I. 65 tonn.
Samt. 710 tonn.
Hásteinn I. er með fiskitroll
þessa vertiö og hefur gengiö
sæmilega, þegar gott hefur ver
4ö.