Vísir - 30.03.1966, Blaðsíða 11

Vísir - 30.03.1966, Blaðsíða 11
n V í S I R . Miðvikudagur 30. marz 1966. Tekst ísiméi að vinna? Fyrsfi lœndsSeikuriiin i handknattleik við Dnni á heimn- vefiii — Utlnr hreytingnr á ísfienzka landsfiiðinu ísland og Danmörk leika á laugardaginn síðasta leikinn í sínum riðli í Laugardalshöllinni í Reykja- vík. Hefst leikur liðanna kl. 17. Landsliðsnefnd kunngjörði í gærdag val sitt á landsliði og hefir hún valið þann kostinn að láta liðið frá í síðasta lands- leik halda sér að mestu. Ingólfur Óskarsson kemur hingað heim og leik- ur með landsliðinu, en úr liðinu frá því í leiknum við Rúmena fara Guðjón Jónsson, Fram og Ágúst Ögmundsson, Val. Liðið nú er skipað 11 mönnum skv. alþjóðareglum, en Rúmenar og íslendingar sömdu sín á milli um að nota 12 menn. Landslið íslands verður þannig skipað (en í sviga er landsleikjafjöldi leikmannanna): Hjalti Einarsson, FH (21 leikur), Porsteinn Björnsson, Fram (9 Ieikir — fær blkar), Auðunn Óskarsson, FH (1 leik- ur), Geir Hallsteinsson, FH (1 leik- ur), Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram (28 leikir — fyrirliði), Hermann Gunnarsson, Val (3 leikir), Hörður Kristinsson, Ánnann (14 leikir), Ingólfur Óskarsson, Fram (10 leikir), Karl Jóhannsson, KR (26 leikir), Sigurður Einarsson, Fram (12 leikir), Stefán Sandholt, Val (5 leikir). Danir hafa í vetur háð 13 landsleiki i handknattleik, hafa unnið 6, tapað 6 og gert eitt fyrsta sumardag 51. víðavangshlaup Í.R. fer fram 21. apríl n.k. eða á sumardaginn fyrsta að venju. Keppt verður um bikara í 3ja, 5 og 10 manna sveitum og vinnst bikarinn fyrir 10 manna sveitina til eignar en hinir tveir eru far- andbikarar, þarf að vinna þá 3svar í röð eða 5 sinnum alls. Hlaupið hefst kl. 2 frá Hljóm- skálagarðinum og verður leiðin svipuð og undanfarin ár, suður mýrina fvrir neðan háskólann í átt að Grímsstaðaholti og til baka Njarðargötu inn í Hljómskálagarð aftur og verður hlaupið líklega lát- ið enda fyrir neðan Menntaskólann. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Karls Hólm c/o Skelj- ungur ekki síðar en 9. apríl. jafntefli. Leikir þeirra eru þessir: Svíþjóð — Danmörk 13:12 Danmörk—Sviþjóð 13:12 Danmörk— Rússland 15:14 Danmörk—Rússland 16:16 Danmörk—Pólland 22:16 Noregur—Danmörk 17:18 Noregur—Danmörk 9:19 Danmörk—Island 17:12 Svíþjóð—Danmörk 11:14 Danmörk—Svíþjóð 9:14 Pólland—Danmörk 18:14 A-Þýzkal.—Danmörk 27:20 Danmörk—Rúmenía 17:20 Landsleikir íslands og Dan- merkur hafa alltaf farið á einn veg, — Danir hafa unnið í öll fimm skiptin og skorað 98 mörk gegn 60 mörkum íslands. Nú fáum við loks að reyna okkur á heimavelli gegn þessu sterka liði. íslenzkur sigur gegn „erfðaféndum“ vorum yrði því sætur, jafnvel þó að island kæmist ekki áfram á heims- meistarakeppnina, sem allt út- lit er fyrir. Reikna má með að Danir leiki hægan sóknarleik og reyni að gera hverja sókn eins langa og hægt er. Þetta er skiljanlegt, þvf þeir munu reyna að koma í veg fyrir að heimaliðið fái boltann of oft til að skora mark. Það er nefnilega ekki loku fyrir það skotið að ísland geti skorað 9 mörkum meira en Danir á heima velli sínum, ef leikurinn er leik- inn á fullum hraða. Dómari í leiknum verður Sviinn Hans Karlsson. Það verður mikið undir honum kom ið hvernig hann túlkar reglum- ar, einkum ef Danir fara að reyna tafir eða hægan sóknar- leik. Það má lika benda áhorf- endum á að þeirra hlutur getur verið stór. Erlendis sýna áhorf- endur andúð sína í verki þegar slikur sóknarlelkur er hafður i frammi. Þetta gerir aftur það að verkum, að leikur liðsins truflast. ísfiandsmófið í lcörfulcnattleilc: KR sigraði Ármarni 71:53 BR sigraði Islandsmótið í körfuknattleik, hélt áfram á föstudagskvöldið og ; fóru fram 2 leikir í 1. deild karla. KR sigraði Ármann 71:53, eftir að Ármann hafði haft yfir í hálfleik 38:33. Einnig sigraði ÍR ÍKF með 68 stigum gegn 42. M.fl. KR—Á 71:53 (33:38). Leikur þessi milli efstu liðanna í 1. deild var mjög jafn í fyrri hálfl. og skiptust liðin oftast á um að skora. Voru varnir liðanna góð- ar ,en þó gekk Ármenningum öllu betur gegn svæðisvörn KR-inga og hafa Ármenningar sjaldan hitt eins vel og þeir gerðu í fyrri hálfleik. KR hafði yfir 10:8 eftir 5 mín. leik, ÍKF 68:42 en Ármenningar komust yfir 12:11, aftur KR 15:12, Ármann jafnar 19:19, og komast yfir 23:20 og halda forskoti sínu út hálfleikinn, sem endaði 38:33 Ármanni f vil. KR-ingar ná ekki að jafna metin fyrr en eftir 7 mín. leik í síðari hálfleik og er staðan þá 45:44 KR í hag. Á næstu mín. taka KR- ingar svo skorpu þar sem þeir skora 17 stig gegn 2 Ármenninga, og má því segja að þetta hafi gert út um leikinn. Staðan var 58:46 og Birgir Birgis farinn útaf með 5 villur svo ekki blés bvrlega fyrir Ármenningum, enda fengu þeir ekki við neitt ráðið og unnu KR ingar hálfleikinn 38:15 og leikinn með nokkrum yfirburðum 71:53 j eftir jafna byrjun. Eins og fyrr hefur verið sagt, var þetta mjög þýðingarmikill leikur efstu liða 1.1 deildar. Nú er einasta von Ár- í manns um íslandsmeistaratign sú, að þeim takist að sigra ÍR, og KR tapi bæði fyrir KFR og ÍR. Þá eru þau jöfn Ármann og KR og verða að leika aukaleik. Eins er um ÍR, takist þeim að sigra Ármann. Beztir Ármenninga voru þeir Hallgrímur Gunnarsson, sem hitti mjög vel, einkum í fyrri hálfleik og skoraði 15 stig, Davíð átti einn- ig ágætan leik með 12 stig svo og Birgir meðan hans naut við. Hann skoraði einnig 12 stig. Hjá KR féllu stigin þannig: Einar Bollason 28, Guttormur 13, Gunnar 11, Kol beinn 13 og Kristinn 7. — G. G. j Danska landsliðið er skipað þessum mönnum: Erik Holst, Aarhus KFUM, Leif Gelvad, AGF, Ame Andersen, Efter- slægten, Gert Andersen, HG, Iwan Cristiansen, Aarhus KFUM, Ove Ejlertsen, Ajax, Jörgen Peter Hansen, Tarup, Klaus Kaae, Aarhus KFUM, Max Nielsen, Kk 31, Jörgen Petersen, HG, Ole Sandhöj, Skovbakken, Jan Wichmann, Ajax, Jörgen Vodsgaard, Aarhus KFUM. Ekki er vitað um end- °g stóri... • Þessa skemmtilegu mynd tók Bjarnleifur Bjamleifsson á Hálogalandi um síðustu helgi. Það er Hörður Kristinsson landsliðsmaður, sem hélt þama boltanum f uppréttri hendl. Birgir Björnsson, fyrirliði FH var ekki á því að gefa sig enda bótt hann sé miklu minni en Iörður. En honum tókst ekkl að ná boltanum, jafnvel ekki neð því að stökkva upp. Það hafa fleiri reynt og ekki tekizt. 'etta vekur oft kátinu áhorf- enda í handknattleik. O Hins vegar lauk viðureign liða þeirra Harðar og Birgis (báðir eru fyrirliðar liða sinna) svo, að sá lágvaxni vann sigur, eins og Davið yfir Golíat forð- um. anlegt val á liði úr þessum 13 manna hópi. Danska liðið kemur hingað á föstudagskvöldið 03 fer utan á sunnudag. Á miðvikudag fer danska landsliðið í keppnisferð til Rússlands. Fjórlr danskir blaðamenn fylgja liðlnu og einn útvarpsmaður, sem mun lýsa leiknum beint í danska útvarp- ið. Menntamálaráðuneytið býð- ur danska landsliðinu og gestum til veizlu að loknum leiknum. Aðgöngumiðar að leiknum eru seldir í bókabúðum Lárusar Blöndal og hófst sala þeirra i morgun. Kosta miðamir kr. 125. íslnndsmátið í körfuknoftleik Staðan í 1. deild: KR 6 6 0 496—315 12 Á 7 5 2 475—481 10 ÍR 6 4 2 438—372 8 KFR 6 1 5 458—408 2 ÍKF 7 0 7 342—533 0 Tafla yfir 10 stigahæstu menn í íslandsmótinu: St. L. 1. Einar Bollason, KR 173 6 2. -3. Einar Matthíass., KFR 131 6 2.-3. Birgir Ö. Birgis, Á 131 6 4. Þórir Magnússon, KFR 119 6 5. Hólmst. Sigurðsson, iR 112 6 6. Friðþjófur ,lKF 104 6 7. Davíð Helgason, Á 99 7 8. Hallgr. Gunnarss., Á 89 7 9. Agnar Friðriksson, ÍR 87 5 10. Kristinn Stefánss., KR 78 6 SIMONIZ LINO-GLOSS SjóHgl|ánndi gólfbón Húsmæður hafið þið athugað: aö komiö er á markaðinn frá hinum heimsþekktu SIMONIZ verksmiðjum LINO-GLOSS sjálfgljáandi gólfbón. LINO-GLOSS gerir dúkinn ekki gulan . LINO-GLOSS gefur gömlum dúkum nýtt útlit. LINO-GLOSS heldur nýjum dúkum nýjum. LINO-GLOSS ver dúka óhrein- indum og rispum. LINO-GLOSS gerir mikiö slit- þol og gljáa Biðjiö kaupmanninn um þessa heimsþekktu úrvalsvöm. Einkaumboð: ÓLAFUR SVEINSSON & CO- umboðs- og heildverzlun P.O. Box 718 Rvik, siroi 30738

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.