Vísir - 30.03.1966, Síða 5
V í S I R . Miðvikudagur 30. marz 1986.
pvivw. NVTOSV W W$f
GerðardámBiriitn dæmir eftir ísSeitzkum lögunt — Að-
stoð við uð kbma upp islenzkum úliðnuði
í gær áttu forstjórar
og aðallögfr. Swiss Al-
uminium fund með blaða
mönnufn og skýrðu
þeim frá mörgu varðandi
starfsemi félagsins og
fyrirhugaðrar álbræðslu
hér á landi. Orð fyrir
forstjórunum hafði Ema
nuel Meyer.
í upphafi máls síns skýröi
Meyer frá því að ástæðan til
þess aö Swiss Aluminium hefði
kosið að byggja verksmiðju
sína hér á landL fremur en ann-
ars staðar, þar sem tækifæri til
þess hefðu boðizt, hefði verið
sú, ,að hér væri raforkuverðið
lægra. Að vísu væri það svipað
á orkusvæðinu í Oregonfylki í
Bandaríkjunum, en þar hefði fé
lagið ekki tækifæri til að starfa
Væri raforkuverðið hér nokk
uð lægra en £ Noregi, en þar
hefur Swiss Aluminium nýlega
byggt álbræðslu í Harðangurs-
firði.
HÆRRI SKATTAR HÉR
Þá var forstjórinn spuröur
um það hvort skattar álbræðsl-
unnar væru hér hærri eða
lægri en í Noregi. Þá kvað hann
vera mun hærri hér á landi og
væri Swiss Aluminium sérstak
lega gert að greiða háa skatta
fyrsta 'Sjö ög hálfa árið. í Nor
egi væri máfum þannig háttað
aö félagið greiddi skatta eftir
hmum almennu reglum skatta-
laganna, en ekki ákveöinn fram
leiðslutoll á tonn eins og hér
verður. Þýddi þetta það að lengi
framan af slyppi félagið með
lægri skatta í Noregi en þaö
yrði að greiða hér, vegna af-
skrifta á vélum og húsum.
ÍSLENDINGAR STÝRI
ÁLBRÆÐSLUNNI
Um vinnuaflið sagði forstjór-
inn: Ef íslendingar óska þess
erum við fúsir til þess að
byggja álbræösluna með inn-
fluttu vinnuafli. Það vinnuafl
myndi þá væntanlega koma frá
Noregi, þar sem viö höfum
æfða menn, er nýlega hafa lok
iö við byggingu álbræðslu okkar
þar. Ef ekki yrði óskað eftir
innfluttu vinnuafli munum við
að sjálfsögöu leita til íslendinga
um bygginguna.
Eftir að verksmiðjan tekur til
starfa verða aðeins sárafáir út-
• lendingar sem þar munu starfa,
örfáir tæknimenn. Er það stefna
okkar aö íslendingar stjómi
verksmiðjurekstrinum og gegni
framkvæmdastjórastöðum þar.
Við 30 þús. tonna verksmiðju
sem fyrst verður byggö, munu
starfa um 200 manns. Eftir 3 ár
verður verksmiöjan stækkuð í
tveimur áföngum upp í 60 þús.
tonn. Þá munu starfa um 450
manns í verksmiðjunni.
ÁLITIÐ SAMNINGSROF
Ekki vildi forstjórinn taka af
stöðu til þeirrar óskar, sem kom
ið hefur fram um'að þjóöarat-
kvæðagreiösla verði látin fara
fram um málið. Kvaö hann það
innanrikismfál, 'SéfA ■ekki:''vafö-
aði félagiöv Þaóvar hanhicspuí'8-i
ur að því hvort Swiss Alumin-
ium hefði gert sér ljósan þann
möguleika að síðar meir gæti
svo farið að meirihluti skapaö-
ist á Alþingi, sem andvígur
væri álbræðslu og riftaði lög-
unum um hana, sem í bígerð
eru. Svaraði hann því til, að á
það yrði vitanlega litiö sem
samningsrof og hlyti þaö mál þá
meðferö fyrir gerðardómi þeim
sem gert er ráð fyrir í álsamn
ingnum aö geri út 'um ágrein-
ing m&li aðila.
DÆMT EFTIR ÍSLENZKUM
LÖGUM í GERÐARDÓMI
Um hinn alþjóölega gerðar-
dóm snerust umræöur nokkuð á
fundinum. Upplýsti lögfræðing-
ur fyrirtækisins að slík ákvæði
væru ekki í samningum Swiss
Aluminium við önnur ríki en ís
land. Ástæðan fyrir þessum á-
kvæðum væri væri hér sú, að Is
land væri skammt á veg komið
í iðnþróuninni og því ekki fyrir
hendi dómar á vettvangi iðnaö
armála og samskipta erlendra
fyrirtækja við íslenzk. Þvf hefði
þessi leið veriö farin, en taka
bæri sérstaklega fram að gerðar
dómurinn mundi í öllu beita ís-
lenzkum lögum og almennum á
kvæðum alþjóöalaga við úr-
lausn ágreiningsefnanna. Væri
fjölmörg dæmi aö finna um
slíka alþjóðlega gerðardóma i
samskiptum ríkja. Væri fráleitt
að halda þvi fram að ósk Swiss
Aluminium byggðist á nokkurri
tortryggni í garð íslenzkra dóm
stóla eða á íslenzku réttarfari.
Yrði ekki gripið til geröardóms
leiðarinnar nema ýtrasta nauð-
syn kreföi.
j BÍHff'íóísfíárinn á að 32'fíki:
fiefðíí'þegar ritað undir s'áftmál
ann um stofnun hiinnar alþjóö
legu gerðardómsnefndar 18.
nóv. 1965, sem sett var á lagg
irriar á vegum Alþjóðabankans,
og á m.a. að skera úr ágreiningi
Fulltrúar Swiss Alumlnium: Frá vinstri: dr. Willi Hámmerli, aðal-
lögfræðingur félagsins, dr. P.oul Muller og E. Meyer, forstjórar
þess. (Ljósm. Vísir).
milli íslands og Swiss Alumin-
ium.
NÝ VERKSMIÐJA í
EYJAFIRÐI?
Þá gat forstjórinn þe?s, að
fyrirtæki sitt hefði heldur kos
ið að byggja verksmiðjuna hér
sunnan fjalla vegna þess auka-
kostnaðar, sem bygging í Eyja-
firði hefði haft í för með sér.
Hins vegar heföi fyrirtækið ekki
fallið frá áformi sínu um ál-
bræðslu á íslandi af þeirri á-
stæðu einni, en krafizt hagstæö
ari kjara þá í sjálfum samnjjngn
um. ’ En eftir-a,ð hafísinn -kom
í fyrrg befðL Merið mikiðfálitaTrn
mál hvort fyrirtækið hefði lagt
út í álbræöslu norðanlands.
Hins vegar kæmi það til greina
í framtíðinni, er reynsla væri
fengin af rekstrinum við
Straum, að byggja verksmiðju
í Eyjafirði og þá með íslenzkri
eignaraðild að einhverju leyti.
ENGIN EITURHÆTTA
Fráleitt kvað forstjórinn þaö
vera að nokkur lofthreinsunar-
tæki þyrfti að setja I verksmiöj
una við Straum, þar sem svo
væri vindasamt þar. Mætti
jafnvel rækta rósir við verk-
smiðjuvegginn, því reykurinn
úr verksmiðjunni myndi engin
áhrif hafa á gróður í nágrenn-
inu eða fiskþurrkun, sem einn
blaðamannanna kvaðst óttast.
' 4SLENZKUR, LÉTTUR
IÐNAÐUR
Þá kvað Mr. Meyer fram-
leiðslu álverksmiðjunnar mundu
verða selda til Bretlands. Hrá-
Framh. á bls. 6.
þingsjá Vísis
þingsjá Visis
þingsjá Vísis
Frumv. um hægri akstar samþ. til3. mr.íHD.
Á fundi í neðri deild í gær var
frumvarpiö um hægri handar
akstur tekið til framhalds ann-
arrar umræðu og atkvæða-
greiðslu. Var fyrsta grein frum-
varpsins samþykkt að viðhöfðii
nafnakalli með 26 atkv. gegn 9.
Þeir, sem sögðu já við atkvæða-
greiðsluna voru þessir alþingis-
menn: Siguröur Bjarnason, Axel
Jónsson, Birgir Finnsson, Bjarni
Benediktsson, Björn Fr. Björns-
son, Ragnar Jónsson, Eðvarð Sig
urðsson, Einar Ágústsson, Ey-
steinn Jónsson, Geir Gunnarsson,
Guðlaugur Gíslason, Gylfi Þ.
Gíslason, Hannibal Valdimars-
son, Ingólfur Jónsson, Ingvar
Gíslason, Jóhann Hafstein, Jón
Skaftason, Jónas G. Rafnar, Lúð-
vík Jósepsson, Matthías Bjarna-
son, Pétur Sigurösson, Ragnar
Arnalds, Sigurður Ágústsson,
Skúli Guðmundsson, Sverrir Júl-
íusson og Matthías Á. Mathie-
sen. Nei sögöu: Óskar Jónsson,
Benedikt Gröndai, Bjöm Pálsson,
Gunnar Gíslason, Halldór Ás-
grímsson, Daníel Ágústíníusson,
Óskar E. Levy, Sigurvin Einars-
son og Þórarinn Þórarinsson. 5
pingmenn greiddu ekki atkvæði.
Síöan var frumvarpinu vfsað til
3. umræöu meö 25 atkv. gegn 5.
Vernd barna og
ungmenna.
Gylfl Þ. Gísla-
son, menntamála-
ráöherra, mælti
'yrir stjórnarfrv.
um vernd barna
og unglinga. —
Sagði ráðherra í
upphafi máls
síns, aö frumvarp
um þetta sama
efni hefði verið lagt fram á Al-
þingi í fyrra, en ágreiningur
hefði þá risiö milli menntamála-
nefnda beggja deilda um viss
atriöi frumvarpsins, sérstaklega
varðandi það atriöi frumvarpsins,
sem fjallaði um vinnu bama og
unglinga. Þessi ágreiningur hefði
oröið til þess að frumvarp það
náöi ekki afgreiðslii síöasta þings.
Þess vegna heföi menntamálaráö-
herra ritað • nefndarmönnum
menntamálanefnda beggja þing-
deilda bréf, þar sem þeir voru
skipaðir í nefnd, sem átti að
leysa ágreining þann, sem upp
hafði komið á síöasta þingi. Þessi
nefhd hefði gert nokkrar athuga-
sefndir viö frumvarpið og hefðu
þær allar veriö teknar til greina
við samningu þessa frumvarps. Á
meðan þessi nefnd starfaði, hefði
forseti A.S.Í. komið þeim tilmæl-
um til forsætisráðherra, að ákv.
um vinnu ungmenna yrðu ekki
tekin upp í þessu frumvarpi, held
ur yrðu ákvæði um það tekin upp
í frumv. um vinnuvernd, sem
veriö var þá aö undirbúa. Þess
vegna hefði ríkisstjómin tekið
þann kost að hafa ákvæði um
þessi atriði á sama veg og nefnd
sérfræðinga hefði gert tillögur
um. Þess vegna sagðist mennta-
málaráðherra mælast eindregið til
þess, að deilur, sem upp hefðu
vaknað á sl. þingi, yröu ekki hafn
ar nú um þetta mál, en yrðu
geymdar þangað til vinnuverndar-
frumvarpið kæmi fyrir Alþingi.
Frumvarpinu var síðan vísað til
2. umr. og menntamálanefndar.
Verðtrygging
f j árskuldbindinga.
Stjórnarfrumvarpiö um verð-
tryggingu fjárskuldbindinga var
tekið til framhalds annarrar um-
ræðu á fundi neðri deildr’..rir
Fyrst var borin undir -ði
tillaga framsóknarmanna í fjár-
hagsnefnd deildarinnar um aö
vísa málinu frá meö rökstuddri
dagskrá. Var sú tillaga felld með
20 atkv. gegn 19. Breytingartill.
meirihl. fjárhagsnefndar voru síð
an samþykktar og frumv. vísað
til 3. umr.
Loðdýrarækt rædd í
efri deild.
Frumvarpið um loðdýrarækt
var tekiö til fyrstu umræöu í efri
deiíd í gær. Alfreð Gíslason (K)
talaði ákveðið gegn frumvarpinu
Sagöi hann, að það væri mjög illa
úr garði gert og næstum óger-
legt að ræða það hér á Alþingi.
Einnig sagði hann, að hann efað-
ist um að loftslag eins og væri
hér á íslandi, mundi henta vel til
minkaeldis.
Þorvaldur G. Kristjánsson (S)
fór nokkrum orðum um efni frum
varpsins í heild. Sagði hann síð-
an, að ekki ætti
aö vera ákvörö
unarástæða
þess nú, hvort
loðdýrarækt
skyldi leyfð nú
hér á landi, að
nú váeri þegar
fyrir villimink-
ur 1 landinu.
Sagði ræðumaður, að ekki væri
vafi á að, er loðdýrarækt var
stunduð hér á landi, var hún
ekki stunduö með gróða. En
heyrzt hefði, að einmitt í þann
mund, er minkaeldi var bannað
með lögum, heföu menn veriö
búnir að fá það mikla reynslu í
minkaeldi, að líkur væru taldar á
að atvinnugreinin gæti orðið arð-
bær. Sagði ræðumaður, að minka
eldi á hinum Norðurlöndunum
væri nú orðinn arðbær atvinnu-
vegur og skilaði nú miklum gjald
eyristekjum, en þessu hefðu írin-
ar Norðurlandaþjóðirnar ekki náö
nema meö því að reka minkabúin
meö miklu tapi í upphafi. Sagði
ræðumaöur að lokum, að við ís-
lendingar ættum.að geta hagnýtt
okkur minkaeldi ekki síður en
hin Norðurlöndin. Hér væri til
staðar bæöi hentugt loftslag og
nógur fiskúrgangur, en þaö væri
einmitt álit sérfræðinga, aö fisk
úrgangur hentaði mjög vel til aö
fóöra mink .
Ásgeir Bjarnason (F) mælti
heldur gegn frumvarpinu en með
því. Sagðist hann vilja fá tölu-
legar upplýsingar um þjóöhags-
gildi þess að stunduð yrði minka
rækt hér á landi.
Frumvarpinu var síðan vísaö
til 2. umr. og landbúnáðarnefrici-'
ar.
Framh. á bls. 6.
I