Vísir - 01.04.1966, Side 3
V í SIR . Föstudagur l'. apríl 1966,
5
„Viva Maria“-tízkan er lögð af
stað umhverfis jörðina og hún
ætlar sér að keppa við „op-art“
tískuna og það, sem tizkukóng
amir f París sýndu fyrir rúmum
tveimur mánuðum.
„Viva Maria“ mótmælir allri
geimferðartizku og geometrisk-
um linum, en kemur i þess
stað með svolítið rómantískan
svip, hún kemur með pffur, rykk
ingar og blúndur.
„Viva Maria“ er ekki ný tízka
hún er eftiriíking af aldamóta-
tízkunni.
„Viva Maria“-tízkan fór að
gera vart við sig í verzlunum
í París í fyrrasumar en fötin
voru meira ætluð sem gluggaút-
stilling en söluvara. Ástæðan
var sú að suður í Mexico var ver
ið að taka kvikmyndina „Viva
Maria“, kærleikskvikmynd, sem
gerast á um aldamót. Og aðal
leikkonumar voru þær Brigitte
Bardot og Jeanne Moreau, og
þær klæddust síðpllsum, stíg-
vélaskóm, blúndu- og pffublúss
um og höfðu stráhatta á höfði.
„Viva Maria“, kvikmyndin,
varð brátt mikið umtöluð, ekki
sízt fyrir það að Birgltte Bardot
var að veikjast öðru hverju og
tafði það töku kvikmyndarinnar,
rétt eins og Elísabet Taylor
tafði „Kleópötru“ á sinum tíma
og hleypti verðinu á henni upp
um helming.
„Viva Maria“ var þvf orðin
fræg löngu áður en hún kom
á hvíta tjaldið, en þangað er
hún nú komin, þótt ekki hafi
hún enn heiðrað hvft tjöld á Is
landi.
Brigitte og Jeanne vöktu svo
mlkla hrifningu er þær vom
kiæddar aldamótatízkufötum að
fataframleiðendur vfða um lönd
hafa séð sér leik á borði og haf-
ið framleiðslu á fötum með
„Viva Maria“ sem fyrirmynd.
Binda margir miklar vonir við
þessa tízku því að þeir segja að
þetta geti ef til vlll orðið til þess
að breyta tánlngastúlkunum úr
„bftnikkum“ f huggulegar ungar
stúlkur. Það verður nefnilega að
vera snyrtilegur og hreinlegur
ef klæðast á samkvæmt „Viva
Maria“-tízku, með hvítan blúndu
kraga, mansjettur o. s. frv.
En hvemig er annars með
„Viva Maria“-fötin?
Við höfum enn ekki séð nein
íslenzk „Viva Maria“ föt, en Svf
ar framlelða þau nú af miklum
krafti og hér skulum við Ifta á
nokkur sýnishom frá þeim.
Á stóru myndinni em þrjár
stöllur og sitja tvær þeirra f
rólum og eru ósköp rómantfskar
á svipinn.
Sú í rólunni til vinstri er klædd
rauðu pilsi úr þunnu ullarefni
og blússan er úr köflóttu baðm-
ullarefni. Á blússunni er litill
kringlóttur kragi, slaufa f háls
inn og fjórir hnappar framan
á ermunum. Litimir em lillablár
bleikur og milliblár.
Stúlkan sem situr svo ein-
er f hnésfðum kjól úr röndóttu
baðmullarefni. Er það ljósgrænt
með dökkgrænum og gulum rönd
um. Framan á kjólnum er hvítur
„smekkur“ með blúndum í kring
og fjórum perluhnöppum og einn
ig eru sams konar hnappar á
ermunum. Pilsið er vítt og f
mittið er mjótt belti.
Sú sem situr í rólunni til
hægri er i kjól með sama sniði
og sá græni, nema hvað þessi er
skósfður og litimir em: fjólu-
blátt, blágrænt og gráleitt. Um
hattinn hefur hún bundið klút
úr sams konar efni og kjóllinn.
Stúkan, sem situr syo eln-
mana niðri í homi ,er f ljós-
blárrl blússu með pffum og legg-
ingum og pilsið, sem er með pff-
um að neðan, er gult með rauð-
um og brúnum köflum. Beltlð
er rautt og bandlð á hattlnum
í sama lit.
Við viljum bæta vlð að köflótt
pils, stutt eða sítt, hvft erma-
löng blússa og hálsbindi úr sama
efni og pilsið er fljótgerður bún
ingur og fyllilega samkvæmt
„Viva Maria“-tízkunni.