Vísir - 01.04.1966, Qupperneq 5
5
Vf STR . Föstudagirr 1. aprfl 1966.
þ.i.n g s j á. V í s i s
d ! n q s
'þ i n g s j á
VERÐTRYGGING FJÁRSKULDBIND
INGA SPORNAR GEGN VERÐBÓLGU
Stjómarfrumvarpið um verö-
tryggingu fjárskuldbindinga var
tekið til 3. umræöu i neðri deild
[ gær. Gylfi Þ.
Gíslason við-
skiptamálaráð-
herra leitaðist
í ræðu sinni við
p'.' ■ j|gg||g) að svara spum-
ingum stjómar-
andstæðinga,
sem þeir beindu
til hans við aðra umræðu máls-
ins. Sagði hann, að sameiginlegt
við spumingar þeirra væri, að
þeir hefðu spurt um, hvemig
Seðlabankinn ætti að fara með
heimildir þær, sem hann ætti að
fá samkv. framvarpi þessu. Jafn-
framt þessu hefðu þeir látiö í
ljós þær skoðanir sínar, að það
væri hættulegt fyrir Alþingi að
láta Seðlabankann fá þau völd,
er hann ætti að fá samkv. frum-
varpinu. Síðan sagði ræðumaður,
að einn grandvallarskoðanaágrein
ingur væri á milli ræðumanna
stjómarandstæðinga við umræð-
umar. Einar Olgeirsson væri í
grundvallaratriðum á móti verö-
tryggingu, en það væri ekki hægt
að segja um hinn ræöumann
stjómarandstöðunnar, Skúla Guö-
mundsson. Hann hefði fundið það
að frumvarpinu, að verðtrygging-
in væri ekki alger. Sagði ráð-
herra, að sparifé yröi ekki verð-
tryggt nema á móti kæmi verð-
trygging lána. Þessu væri ekki
hægt að mótmæla. Síðan sagði
ráðherra, að komið hefði fram I
ræðu Einars Olgeirssonar að verð-
bólga væri ekki skaðleg, og það
væri síöur en svo tilgangur frum-
varpsins að vinna gegn henni, og
það væri jafnvel ekki æskilegt.
Sagði ráðherra, að skiptar skoö-
anir væra um, hvort örlítil verð-
bólga væri skaðleg eða ekki. Aft-
ur á móti væri samdóma álit sér-
fræðinga aö langvarandi verð-
bólga væri skaðleg. í fyrsta lagi
drægi hún úr spamaðarviðleitni
þjóðarinnar, en hún væri undir-
staða allra framkvæmda í land-
inu. í öðra lagi beindi hún fjár-
festingunni inn á óhagkvæma
braut. í þriðja lagi leiddi hún af
sér hróplegt félagslegt ranglæti.
Af öllu þessu væri augljóst, að
nauösjmlegt væri að vinna ötul-
lega gegn verðbólgunni. Það væri
einmitt tilgangurinn með fram-
varpinu að vera einn þáttur í
þeirri viðleitni að spoma gegn
verðbólgunni. Ríkisstjóminni
væri fullkomlega ljóst, að þetta
eitt nægði ekki til að sigrast á
henni. Það væri grundvallaratriði
I frumvarpinu, að einungis þau
lán, sem verja á til kaupa á eign-.
um, sem verðbóigan hafi þau á-
hrif á, að þær hækki í verði. Að
lokum sagði ráðherra, að það
væri álit rfkisstjórnarinnar og
Seðlabankans, að hér væri
erfitt mál að etja við. Taldi ráö-
herra, að Seðlabankinn ætti aö
fara varlega í því, að beita heim-
ildum þeim, er hann fengi í þessu
frumvarpi. Slðan tók Einar 01-
geirsson til máls, en umræðu um
málið var síðan frestað og fundi
einnig frestað.
Enn frekari fjölgun
prófessora
Benedikt Grön-
dal (A) mælti á
fundi neðri
deildar fyrir
sameiginlegu
nefndaráliti
menntamála
nefndar deildar-
innar um stjóm
arframvarpið um breytingar á lög
um um Háskóla íslands. Sagði
framsögumaður, aö nefndin hefði
rætt ýtarlega mörg vandamál Há-
skólans á fundum sínum. Hefðu
þar mætt þeir Gylfi Þ. Gíslason
STAÐA
eftirlitsmanns við heilbrigðiseftirlitið í
Reykjavík er laus til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi stúdentspróf, eða sam-
bærilega menntun, vegna væntanlegs sémáms erlendis.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgarinnar.
Frekari upplýsingar um starfið veittar I skrifstofu borgar-
læknis. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist skrifstofu minni I Heilsuvemdarstööinni. Áður
auglýstur umsóknarfrestur framlengist til 20. aprfl n.k.
Reykjavík, 28. marz 1966.
BORGARLÆKNIR.
Úfboð
Tilboð óskast í að grafa fyrir og að leggja
aðalvatnsæð í Fossvogi fyrir vatnsveitu. Út-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu-vorri Vonar
stræti 8 gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
menntamálaráðherra og háskóla-
rektor. I umræðunum hefði kom-
ið fram mikill áhugi nefndar-
manna á eflingu Háskólans, bæta
aðstöðu hans og kennsluhætti og
efla vísindastarf hans. Sérstak-
lega hefði verið tekið undir þá
skoðun, sem menntamálaráðherra
hefði látið I ljós I framsöguræöu
sinni við frumvarpið, að Háskól-
inn ætti að vera miðstöð íslenzkra
fræða innan Iands og utan og
væri sérstök ástæða til að hlúa
að þeirri deild hans. í þessu sam-
bandi varð nefndin sammála um,
aö leggja fram eina breytingar-
tillögu við frumvarpið, þá, að
fjölgað skyldi um eitt prófessors-
embætti til viðbótar I Isl. fræö-
um. Væri það hugmynd nefndar-
manna, að hinn nýi prófessor ætti
að kenna Isl. nútímasögu og ætti
sú kennsla ásamt rannsóknum, er
henni fylgdu, að ná fram undir
líðandi stund. Síðan var framvarp
ið samþykkt til 3. umræðu.
Stækkun Iögsagnarum-
dæmis Keflavíkur-
kaupstaðar
Ragnar Guðlelfsson (A) mælti á
fundi I neðri deild Alþingis I gær
fyrir frumvarpi, er hann flytur
ásamt fleiri þingmönnum. Fram-
varpið gerir ráð fyrir, aö lögsagn-
arumdæmi Keflavíkurkaupstaðar
stækki til norðurs um landssvæöi
úr landi Keflavlkur h/f, Keflavík,
svo og úr landi Keflavlkurflug-
vallar I eigu ríkissjóðs, hvort
tveggja I Gerðahreppi. Frá gildis
töku laga þessara taki Keflavík-
urkaupstaður að sér framfærslu
allra þeirra, sem eru eða verða
þurfamenn og framfærslurétt eiga
eöa munu eignast I Gerðahreppi.
Ef ekki verður innan sex mánaða
frá gildistöku þessara laga sam-
komulag milli bæjarstjórnar Kefla
víkurkaupstaðar og sveitarstjóm-
ar Gerðahrepps um eigna og
skuldaskipti, er leiöi af ákvæöum
1. gr. laga þessara, skulu þau
þá ákveðin af gerðardómi, skip-
uðum 3 mönnum. Sami geröar-
dómur skal ákveöa bætur fyrir
tekjurýrnun Gerðahrepps, er kann
að leiða af Iögum þessum. Frum-
varpinu var vlsað til 2. umr. og
heilbrigðis- og félagsmálanefndar.
I stuttu máli
Efri deild.
Á fundi I efri deild Alþingis I
gær mælti Ingólfur Jónsson land-
búnaöarráðherra fyrir tveim
stjórnarframvörpum, sem komin
vora frá neðri deild og vora tek-
in til fyrstu umræðu I deildum.
Voru það framvörpin um Skóg-
rækt og mat á sláturafurðum.
Þá mælti Jóhann Hafstein iðn-
aðarmálaráðherra, fyrir stjómar-
frumvarpinu um Iðnlánasjóð, en
það var komið til deildarinnar frá
neðri deild. Öllum þessum fram-
vörpum var vísið til annarrar um-
ræðu og nefnda, -> • .
Auður Auðuns (S) mælti fyrir
áliti menntamálanefndar deildar-
innar um framvarpið um breyt-
ingu á lögum um Stýrimannaskól
ann, en nefndin leggur til aö frum
varpiö verði samþykkt með nokkr
um breytingum, sem hún leggur
fram á sérstöku þingskjali.
Ólafur Bjömsson (S) mæiti fyr
ir nefndaráliti fjárhagsnefndar
deildarinnar um stjómarfrumvarp
ið um tollskrá. Mælir nefndrn með
samþykkt frumvarpsins með
nokkram breytingum.
Neðri deild.
í neðri deild var samþykkt sem
lög frá Alþingi frumvarpið um
sölu eyöijarðarinnar Litla-Gerðls
i Grýtubakkahreppi.
Guðlaugur Gíslason (S) mælti
fyrir nefndaráliti heilbrigðis- og
félagsmálanefndar deildarinnar
um stjórnarfrumvarpið um breyt
ingu á lögum um sveitarstjómar-
kosningar, en nefndin mælir ein-
róma með samþykkt frumvarps-
ins. Sami þingmaður mælti einn-
ig fyrir nefndaráliti sömu nefnd-
ar um frumvarpið um breytingu
á hreppamörkum milli Hafnar-
hrepps og Nesjahrepps. Mælir
nefndin einnig með samþykkt
frumvarpsins. Stjómarfrumvarp-
ið um breytingu á lögum um Ferða
mál var samþykkt við 3. umr.
og sent til efri deildar.
Framvarpið um breytingu á lðg
um um aðför var samþykkt við
aðra umr. og vísað til 3. umr.
Ný mál
í gær var lagt fram framvarp
til laga um breytingu á lögum um
rétt til fiskveiöa í landhelgl. í
frumvarpinu felst, að ráðherra er
heimilt að leyfa vinnslu- og verk-
unarstöðvum að kaupa afla af er-
lendum veiðiskipum I íslenzkum
höfnum á tlmabilinu 1. júní 1966
til 31. maí 1967. Skal ráðherra
binda leyfið við ákveðna staði
eða landshluta eftir því, sem hag-
kvæmt þykir. Svo geti og ráðherra
bundiö leyfið við ákveðnar teg. i
fisks eða annars sjávarafla og sett
skilyrði um magn, verð og sérstak
ar löndunarreglur. Flutningsmenn
frumvarpsins era Jón Þorsteins-
son og fleiri.
Frönsk hljómsveit leikur
hér um helgina
Innan skamms er væntanleg
hingað til lands ein kunnasta
kammerhljómsveit Frakklands,
Parísarsveit Pauls Kuentz. Kemur
sveitin hingað á vegum Péturs Pét-
urssonar — Skrifstofu skemmti-
krafta — og heldur tónleika 1
Austurbæjarbíói sunnudaginn 3.
apríl.
Parlsarsveit Pauls Kuentz skipa
auk stjórnandans, fjórtán hljóð-
færaleikarar, sjö konur og sjö
karlar, auk þess sem með henni
leika oft frægir einleikarar á ýmis
hljóðfæri.
Paul Kuentz stundaði nám við
L’Ecole Superieure de Musique I
París og útskrifaðist þaðan með
fyrstu verðlaunum. Hljómsveit sína
stofnaði hann árið 1950 og era
hljóðfæraleikaramir flestir verð-
launahafar frá þessum sama skóla
— og allir Parísarbúar.
Fyrstu hljómleikum kammer-
sveitarinnar I apríl 1951 var af-
bragðs vel tekiö, og síðan hefur
hún haldið meira en 700 hljómleika
heima og erlendis, m. a. heimsótt
flest lönd Evrópu og farið a. m. k.
tvær hljómleikaferðir um Banda-
ríkin og Kanada. Auk þess hefur
hljómsveitin víða komið fram I út-
varpi og sjónvarpi og leikið inn á
fjölmargar hljómplötur. Á sumrin
hefur sveitin haldið hljómleika I
Cap d’Ail, I útileikhúsinu fræga,
sem Jean Cocteau teiknaði.
Cocteau hefur sérstakt dálæti á
Paul Kuentz og kammersveit
hans og hefur m. a. teiknað fyrir
hana auglýsingaspjöld og efnis-
skrár.
Hljóðfæraskipan sveitarinnar er
I meginatriðum þannig, að fiðlur
era sjö, víólur tvær, cello tvö, einn
bassi og síðan annaðhvort píanó,
cembalo eða orgel. í ýmusum verk-
um svo sem Branderborgarkon-
certum J. S. Bachs er bætt við
ýmsum blásturshljóðfærum, flautu,
óbó, fagott, trompet eða homi.
Verkefnaval sveitarinnar er afar
vlðtækt — má segja að það spanni
þrjár aldir, allt frá verkum fyrir-
rennara Bachs, svo sem Couperins,
Leclairs og Vivaldis til nútímatón-
verka, svo sem Benjamíns Brittens
og André Prevost. Hvað frægust er
Parfsarsveitin þó fyrir flutning sinn
á Brandenborgarkoncertunum og
öðrum verkum Bachs.
Kammersveit Pauls Kuentz hef-
Paul Kuentz hljómsveitarstjóri
ur hvarvetna hlotið mikið lof gagn-
rýnenda. Frönsku blöðin „Penseé
Francaise" og „Journal Musical
Francaise" hafa lýst hana „beztu
kammerhl j ómsveit Frakklands“.
Gagnrýnandi New York Times
sagði eftir síðustu hljómleika sveit-
Framhald á bls. 6.