Vísir - 01.04.1966, Page 6
6
V í SIR . Föstudagur 1. apríl 1966.
Fösfudngsgrein —
y Framh. af bls 9
Að minnsta kosti líkaði þeim
það ekki vel er þeir fréttu ,að
rússneskur togari væri skvndi-
lega farinn að „stunda veiðar“
þama f nágrenninu.
^tvik þetta suður á Spáni hef-
ur orðið til þess að svara
ýmsum spumingum. Þýðingar
mest þeirra er að það hefur kom
ið í ljós, að kjamorkusprengj-
umar geta ekki spmngið fyrir
óhapp, t.d. í flugslysi Á þeim er
slíkur öryggisútbúnaður að það
á ekki að geta komið fyrir. f
þeim er fyrir komið mörgum
hvellhettum með TNT sprengi
efni sem þrýsta mörgum plútóní-
un eða úraníum einum saman. En
þvf aðeins getur atómsprenging
mvndazt að allar hvellhettumar
springi á sama sekúndubrotinu.
Þó sprengjan falli niður f flug
slysi getur aðeins ein hvellhetta
spmngið í einu og hún gerir ekki
annað en að eyðileggja sprengj
una, orsakar ekki kjamorku-
sprengingu. Það má segja að það
er þó heldur betra að vita þetta,
því að ein vetnissprengja af
þeirri gerð sem var í banda-
rísku sprengjuflugvélinni myndi
gereyða ö!lu á um 20 km svæði.
Þorstelnn Thorarensen.
Slippur ó... —
Framhald af bls. 1.
þykki bæjarstjómar, en meö
meðmælum hafnamefndar sem
byggðist á því, að núverandi
leigutaki dráttarbrautarinnar
Slippstöðin h.f. hafði tjáð sig
reiðubúna að taka nýju dráttar-
brautina á leigu gegn nauðsyn-
legu gjaldi.
Síðan gerist þaö, að nú 17.
marz var haldinn fundur f hafn
amefnd Akureyrar, þar sem var
mættur Skapti Áskelsson for-
stjóri Slippstöðvarinnar og Að-
alsteinn Júlíusson vitamála-
stjóri.
Þá var eftirfarandi bókað á
fundinum:
„Slippstöðin h.f. núverandi
leigutaki dráttarbrautarinnar
hefur óskað.endurskoðunar á á-
ætlunum um nýja dráttarbraut
á vegum Hafnarsjóðs, vegna
breyttra aðstæðna á ýmsan hátt
og hefur lagt fram tillögur um
nýja lausn á málinu, er miðað-
ar verði við:
1) Endurbyggingu gömlu
tlráttarbrautarinnar og stækkun
hennar fyrir skip 1500-2000
þungatonna með möguleika til
hliðarfærslu fyrir 500 þunga-
tonna skip.
2) Athafnasvæöi fyrir stál-
skipasmíðastöð norðan núver-
andi brautar.
3) Möguleika á nýrri dráttar-
braut norðan nýrrar skipasmíða
stöðvar.
Hafnamefnd óskar umsagnar
vitamálastjóra um tillögur þess
ar áður en hafnamefnd gerir til-
lögu um afgreiðslu málsins til
bæjarstjómar."
Málið er nú í athugun hjá
vitamálastjóra, sem aðallega
mun gera kostnaðaráætlun við
fyrirtækið.
Þetta dráttarbrautarmál er
um þessar mundir eitt mesta
framfaramál Akureyrar. Auk
þess sem um það er að ræða að
koma þar upp stærstu dráttar-
braut á landinu, hefur Slipp-
stöðin áhuga á að auka stór-
lega stálskipasmfðar sfnar.
Frakkar —
Framhald af bls. S.
arinnar f New York ... „mennimir
sjö og hinar sjö ungu konur léku
af frábærri nákvæmni, andagift og
leikni ...“, „Le Devoir" f Mon-
treal sagði: ... „strengjasveit eins
og þær gerast beztar ... hefur
unnið sér sess meðal hinna fremstu
í heimi...“ „Winnipeg Tribune"
sagði: „Þeir era tónlistarmenn f
orðsins fyllstu merkingu, bæði að
því er varðar hæfileika hvers ein-
staks og fullkomnun samleiks
þeirra ...“
„M. Demieres Nouvelles“ i
Strassborg segir um Paul Kuentz
og Parfsarsveit hans: „Fullkomin
tækni þessara hljóðfæraleikara er
furðuleg, smitandi leikgleði þeirra,
samleikur þeirra og samræmd stíl-
kennd athyglisverð ...“ Og
„Joumal de Geneve'* f Genf segir:
„Meiri nákvæmni blæbrigða og
betra jafnvægis milli hinna ýmsu
hljóðfærahópa verður ekki krafizt
... sízt þar sem einleikamir eiga
f hlut ... samleikurinn er mjög
góður ... flutningurinn var í stuttu
máli hámákvæmur en samt fín-
legur...“
Ölvaðir —
FramhHi« at bls 16.
Aðspurður kvað fulltrúinn að sér
þætti ólfklegt að skýrslur gæfu til
kynna aö ölvun við akstur færðist
í aukana, væri tekið tillit til þess
hve bflum færi ört fjölgandi og
einkum hve þeim unglingum færi
mjög fjölgandi, sem ækju bifreið-
um. En hann benti á það um leið
að hann hefði að vísu ekki neinar
samanburðarskýrslur undir hönd-
um, og eins, að þær segðu — eins
og áður er getið — f rauninni ekki
allt um það hve hve marga það
henti að aka „undir áhrifum."
Nýr sjóður —
Framhald af bls. 1.
skattgjaldi álbræöslu. Loks em
víðtækar lántökuheimildir fyrir
sjóðinn, ef nauðsynlegt reynist
að afla honum aukins fjár vegna
aðstoðar við framkvæmdaáætl-
animar. Fyrstu 10 árin mun
hinn nýl Atvlnnujöfnunarsjóður
hafa yfir að ráða eingöngu af
eigin fé, um 700 millj. kr.
Rétt er að taka það fram, að
með þessari sjóðsmyndun er
ekki létt neinum skyldum af
ððram stofnsjóðum atvinnuveg-
anna, þannlg að hér er um al-
gjört viðbótarfé að ræða, til hag
nýtlngar á þelm stöðum, þar
sem þörf er f jölbreytts atvinnu-
lffs.
Vonast rfkisstjómin til þess,
sagði fjármálaráðherra ennfrem-
ur, að með sjóðsmyndun þess-
ari sé hægt að stuðla að þvf á
viðunand) hátt að atvlnnulíf geti
blómgazt á öllum þeim stöðum
á landlnu, þar sem skilyrði eru
fyrir hendi til arðbærra fram-
kvæmda, svo að komið verði 1
veg fyrir óvtðunandi samdrátt
byggðar f landinu.
íþróttohús —
Framh. af ols 16.
leysti úr þörfum skólanna og
fþróttafélaganna fyrir æfinga-
húsnæði og keppnis- og sýning-
arhúsnæðis en að íþróttafélögin
frestuðu f bili uppbyggingu
eigin fþróttahúsa og lánuðu til
byggingarinnar framlög sin
skv. fjárhagsáætlun.
Þar til húsnæði þetta yrði til-
búið láti bærinn íþróttafélög-
unum f té til afnota skemmu
sem bærinn láti byggja á at-
hafnasvæði sfnu á Gléráreyrum
og tilbúin verði næsta haust.
Stefna skal að því aö hraða
byggingu íþróttahússins eins
og unnt er.
Blaðið átti tal við Gísla Jóns
son menntaskólakennara og
bæjarfulltrúa á Akureyri. Hann
sagði að bærinn ætti íþróttahús
en það væri gamalt og of lítið
og ekki þægilegt. Það bæri
vissulega að fagna því aö sam
staða hefði nú náöst um að
koma upp fullkomnu íþrótta-
húsi, sem myndi vissulega
verða íþróttahreyfingunni til
framfara auk þess sem skólam
ir þyrftu á íþróttahúsi að halda
Hann kvað byggingu þessa f-
þróttahúss hafa verið lengi á
döfinni en þaö sem nú hefði
gerzt væri að ákv. hefði verið
að láta smíði þess ganga fyrir
öðrum íþróttamannvirkjum og
m.a. hefðu íþróttafélögin á-
kveðið að fresta sínum
aögeröum við byggingu f-
þróttahúsa og lána fé sem þau
hafa fengið veitt í þvi skyni
til þessa nýja íþróttahúss.
Fundur Angliu
í kvöld
Brezk-íslenzka félagið Anglia
hefur sfðasta kvöldfund og skemmt
un vetrarins í Sjálfstæðishúsinu kl.
8.30 í kvöld Verður þar að vanda
fjölbreytt dagskrá og mun m.a.
hinn nýi sendiherra Breta á ís-
landi Halford Mc-Leod ávarpa
fundinn. Þá verða fjölbreytt
skemmtiatriði, sem öll munu fara
fram á ensku að vanda. Verður síð
an dansað fram yfir miðnætti.
Starfsemi Angliu f vetur hefur
staðið með góðum blóma og eru
félagsmenn allir minntir á þenn
•an sfðasta fund vetrarins.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
HÖFUM TIL SÖLU:
Einbýlishús á 2 hæðum í Silfurtúni I. hæð: 2 stofur, stórt
hol, eldhús og WC. II. hæð: 5 svefnherbergi og bað.
Ræktuð lóð, mjög fallegt útsýni.
6 herb. íbúö í Austurbænum. Verð 1300 þús. íbúðin er 2
stofur, eldhús, bað WC og 4 svefnherbergi, ca. 50 ferm.
bílskúr, hentugur fyrir mann með iðnrekstur.
2ja herb. fbúð, verð 650 þú§., — og
3ja herb. íbúð. Verð 890 þús. í Austurbænum. íbúðimar
eru á sömu hæð, hentugar fyrir tvær fjölskyldur, sem
vilja vera saman. Sér garður fylgir íbúðunum.
4ra og 5 herb. íbúðir við Flókagötu.
3ja herb. íbúð, nýstandsett, verö kr. 625 þús., út 250 þús.
4ra herb. fbúð í steinhúsi, nýstandsett, verð 750 þús.
Glæsileg 5 herb. íbúð f Vesturbænum, mjög fallegt útsýni.
3ja og 4ra herb. íbúðir tilbúnar undir tréverk
Tóbaks- og sælgætisbúð á góðum stað. Ennfremur iðnaöar-
og verzlunarpláss í borginni og Kópavogi.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12
Sfmar 14120, 20424 og kvöldsímí 10974.
75 ára í dag:
Karl Friðriksson
yfirverkstjóri
Sjötíu og fimm ára er í dag Karl
Friðriksson. Karí er einn af mestu
vegageröarmönnum Iandsins, fyrr-
um yfirverkstjóri hjá Vegageröinni
og brúarsmiður ágætur. Fæddur var
hann 1. apríl 1891 að Hvarfi í Víöi-
dal. Búskap hóf Karl meö fyrri
konu sinni Guðrúnu Sigurðardótt-
ur 1913, að Efri-Þverá, en upp úr
1920 hefur hann vinnu við brúar-
smíð. Var Karl alls 17 ár viö það
starf og byggði á þeim árum fjöl-
margar brýr yfir fljót landsins, alls
um 100 að tölu. Á styrjaldarárun-
um var Karl yfirverkstjóri gatna-
gerðar Reykjavíkurborgar, en 1945
tók hann við yfirverkstjórastarfi
vega í Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
sýslum, með búsetu á Akureyri.
Hingaö til Reykjavíkur flutti Karl
1962, er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir. Síöari kona hans er
Guðrún Hannesdóttir. Karl er kunn
ur víða um land fyrir vega og brú-
arbyggingar sínar, hinn mestl at-
kvæða- og dugnaðarmaður.
Verkam.flokkur—
Framh. af bls. 16
þeir lásu upp úrslitin vegna æs-
ingahrópa frá múgnum.
Fyrstu úrslit virtust benda til
þess að atkvæðaaukning Verka-
mannaflokksins mynda nema
. allt að 5% og var þá spáð að
' ''ijeir'myndu m aíilt að 150 þing-
sæta meirihluta. En eftir því
sem leið á talningu kom í ljós,
að aukningin var nálægt þvi
3%. Sama hreyfingin virtist
vera um allt landið hvarvetna
jókst atkvæðamagn Verka-
mannaflokksins og hann hreppti
flest þau kjördæmi þar sem
Ihaldsflokkurinn hafði haft tæp-
an meirihluta. Atkvæðamagn
íhaldsflokksins stóð vfðast í
stað og mjög víða hafði það
heldur minnkað.
í morgun þegar ljóst varð að
Verkamannaflokkurinn myndi
hljóta öruggan meirihluta gerð- |
ist það á kauphöllinni í London i
að Sterlingspundið hækkaði I
verulega í verði á frjálsum
markaði gagnvart öðrum gjald-
eyri. Er talið að það stafi af því
EKCO
S J ÓN VARPSTÆKIÐ
SERSTAKLEGA
HAGSTÆÐ
STAÐGREIÐSLUKJOR.
OCíCkdl
Laugavegi 178, sími 38000.
RAF-VAL
Lækjarg. 6 A, sími 11360,
EKCO-SJÓNVARPSTÆKIÐ
SEM VEKUR ATHYGLI.
að með styrkri stjóm getur Wll-
son forsætisráðherra betur snú-
izt við, vandamálum efnahags-
málanna.
SIMONIZ
LINO-GLOSS
SjáKgljáandi
gólfbón
Húsmæður hafið þið athugað:
að komiö er á markaðinn frá
hinum heimsþekktu SIMONIZ
verksmiðjum
LINO-GLOSS
sjálfgljáandi gólfbón.
LINO-GLOSS gerir dúkinn
ekki gulan .
LINO-GLOSS gefur gömlum
dúkum nýtt útlit.
LINO-GLOSS heldur nýjum
dúkum nýjum.
LINO-GLOSS ver dúka óhrein-
indum og rispum.
LINO-GLOSS gerir mikið slit-
þol og gljáa.
Biðjið kaupmanninn um þessa
heimsþekktu úrvalsvöru.
Einkaumboð:
ÓLAFUR SVEINSSON & CO.
umboðs- og heildverzlun
P.O. Box 718 Rvík, sími 30738